Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1992, Qupperneq 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Símj 63 27 00 FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1992. Tommi í Hard Rock: Ætlaraðstökkva íteygjuúr 55metrakrana Tómas Tómasson í Hard Rock Café ætlar aö verða fyrsti íslendingurinn til aö stökkva teygjustökk úr 55 metra krana. Tommi mun stökkva úr krananum á sunnudaginn kl. 17.00 við Kringluna. Hann segist lengi hafa gengið með það í maganum að prófa teygjustökk en það er vinsælt í Bandaríkjunum og víðar. Á eftir Tomma munu fleiri þekktir menn stökkva úr krananum sem kemur frá Danmörku. „Elsta manneskjan, sem stekkur teygjustökk reglulega í Bandaríkjun- um, er rúmlega áttræð kona. Ég er nú ekki mikill bógur en hlýt að geta stokkið eins og hún,“ sagði Tómas. Hann hefur tvisvar stokkið í fallhlíf en aldrei prófað teygjustökkið. Hann viðurkennir að hann sé svolítið loft- hræddur. „Héðan af er að hrökkva eða stökkva. Það er búið að kynna þetta víða og nú er of seint að hætta við,“ sagði hann. „Fjölskyldan mín veit að ég er nú einu sinni svona gerður og kippir sér ekkert upp við þetta.“ -JJ HafnarQörður: Um 25 lítrar af óblönduðum spíra fundust í fjörunni við Hvassahraun í Hafnarfirði. Spírinn var í brúsum á bauju. Sá sem fann spírann til- kynnti jafnframt að sjór hefði komist í brúsana. Um smygl er að ræða. -bjb BústaðuríKjós: Eldur í strompi Slökkviliðið í Reykjavík var kallað í nótt i sumarbústað í landi Möðru- dals í Kjós. Kviknað haíði í einangr- un í kringum stromp en húsráðendur voru búnir að slökkva eldinn þegar slökkviliðið ni'ætti á vettvang. Bú- staðurinn var vaktaöur í klukkutíma áeftir. -bjb Arnfetamímnaðurmn: Varðhald í hálf an mánuð Dómari úrskurðaði í gær um gæsluvarðhald yfir manninum sem var tekinn með hálft kíló af amfetam- íni síðastliðinn mánudag. Maðurinn fer í 14 daga gæsluvarðhald sem er helmingi styttra en fíkniefnalögregl- an óskaði eftir. -bjb Ákvörðun um sjávarafla næsta árs: Átök magnast í ríkisstjórn - Þorstein ogDavíðgreinirennverulegaá Þorstein Pálsson, Davíð Oddsson gangi. á að ekki verði veidd nema 190 og Friðrik Sophusson greinir enn Einn af ráðherrum Sjálfstæðis- þúsund tonn af þorski á næsta ári á um hvort aflaheimildir Hagræö- flokksins sagði í samtali við DV að en Davíö Oddsson vill ganga lengra ingarsjóðs eigi að koraa til úthlut- ráðherrarnir væru lítið sem ekkert og vill að veidd verði 220 til 230 unar eða ekki. Þorsteinn vill að farnir að ræða þau mál sem væru þúsund tonn af þorski. Með því þeim 12 þúsund tonnum, sem sjóð- erfiðust, eins og Hagræðingarsjóö, yrði jafnstöðuleiðin farin og með urinn ræður yfir, verði úthlutað en og því væri ekki enn komið í ljós henni leikinn biðleikur til eins árs. Davíð og Friðrik vilja að þau verði hvort samstaða tækist eða ekki. Á þeim tíma vinnst betra svigrúm seld eins og gert er ráð fyrir í lögum Helgin sem fer i hönd verður mjög til að takast á við þann vanda sem um sjóöinn. Ráðherrar Alþýðu- þýðíngarmikil og getur ráðíð úr- við blasir. flokks hafa haldið sig til hllðar i slitum um hvort ráöherrar Sjálf- Raddir heyrast um óskir um málinu en talið er að þeir styðji stæðisflokksins ná saman í þessu gengisfellingu. Meðal þeirra, sem frekar Davíð og Friðrik en Þor- máli eða ekki. Ef ekki næst sam- þannigtala.erMatthiasBjamason. stein. staða mim það hafa ófyrirsjáanleg- Einar Oddur Kristjánsson á Flat- „Komi til uppgjörs mun Alþýðu- ar afleiðingar varðandi samstarf eyri sagðist i morgun frekar vilja flokkurinn styöja Davíö ffekar en DavíðsogÞorsteinssemekkihefur kostnaðar- og skattalækkanír en Þorstein,“ sagði krati sem tekur verið gott fyrir. gengisfellingu. þátt í þeirri vinnu sem nú er í Þorsteinn Pálsson leggur áherslu -sme Annar sjómaðurinn borinn úr þyrlunni. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem þyrlur Varnarliðsins sækja veika sjómenn frá Eystrasaltslöndunum í löngu sjúkraflugi. DV-mynd S Sprenging í Breiðholti: Helltu bensíni í brunn Nokkrir pörupiltar í Breiðholti, á aldrinum 12 til 14 ára, gerðu sér lítið fyrir í gærkvöld og helltu bensíni f götubrunn og kveiktu í. Töluverð sprenging hlaust af. Um 40 kílóa brunnlok þeyttist um 40 metra upp í loft. Engan sakaði í sprengingunni. Lögreglan náði piltunum skömmu síðar. -bjb Slaktgengi íslendinga íslensku sveitinni á Evrópumóti yngri spilara í bridge hefur gengið illa í síðustu umferðum og er nú komin niður í 12. sæti af 23 þjóðum að loknum.15 umferðum. í 14. umferð tapaði hðið óvænt, 9-21, gegn Eist- lendingum sem hafa verið í neðsta sæti allt mótið en síðan kom naumur sigur gegn Svíum, 17-13, í 15. umferð. Lið Þjóðverja hefur tekið á mikinn sprett og er nú í efsta sæti með 272 stig en í öðru sæti er Ítalía með 269 stig. Norðmenn og Pólveijar eru jafnir í 3.-4. sæti með 263 stig. Róður- inn verður eflaust þungur hjá ís- lensku sveitinni í síðari hluta móts- ins því hún á eftir að spila við fjórar efstu sveitirnar. -ÍS Harður árekstur í gærkvöld varð harður árekstur á mótum Snorrabrautar og Egilsgötu í Reykjavík. Tveir bílar skullu saman með þeim afleiðingum að ökumaður annars bílsins var fluttur á slysa- deild. Bílamir eru mikið skemmdir. -bjb Vamarliðið: Sjúkraf lug eftir tveim Eistum Tvær þyrlur Varnarhðsins og elds- neytisvél fóru í langt sjúkraflug í gær eftir tveim eistneskum sjómönnum. Þeir voru fárveikir um borð í togara sem var staddur 240 sjómílur suð- vestur af Reykjanesi. Þyrlumar fóru af stað í hádeginu og komu með mennina um fjögurleytið að Borgar- spítalanum. Annar var með bráða botnlangabólgu og hinn með inn- vortis verki. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem þyrlur Varnarhðsins sækja veika sjómenn frá Eystrasaltslönd- unum í löngu sjúkraflugi. í síðustu viku var^sjómaður frá Litháen með botnlangabólgu sóttur. í bæði skiptin var beðið um þyrlu Landhelgisgæsl- mrnar en hún getur aðeins flogið 150 sjómílurútfrálandinu. -bjb LOKI Bara að hann teygi sig ekki of langt! Veðriðámorgun: Viða léttskýj- aðáSuð- vesturlandi Á hádegi á morgun verður norðaustlæg átt og rigning eða súld á Norður- og Austurlandi og 5-10 stiga hiti. Víða verður létt- skýjað suðvestan til og hiti allt að 16 stig. Veðrið í dag er á bls 36. borgarar Kgntucky Fried Ghicken TVÖFALDUR1. vinningur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.