Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1992, Qupperneq 2
28
LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 1992.
BOar
Ný kynslóð Toyota Corolla frumsýnd í Evrópu í liðinni viku og hér á landi eftir tvær vikur:
Stærri og rúmbetri í fjórum
mismunandi gerðum
- „algerlega nýr frá grunni/' segir aðalhönnuðurinn, Takayasu Honda, í viðtali við DV-bíla
„Þetta er aö mínu mati algerlega
nýr bíll frá grunni þótt vissulega sé
byggt á reynslu fyrri ára,“ sagði
Takayasu Honda, aðal tæknihönnuð-
ur sjöundu kynslóðar af Toyota Cor-
olla sem sýnd var bílablaðamönnum
í Evrópu í fyrsta sinn í vikunni.
Toyota stefndi blaðamönnum til
holxenska strandbæjarins Noordwijk
aan Zee, skammt frá Amsterdam, í
vikunni og var undirritaður með í
þeim hópi. Erindið var að kynnast
þessum nýja bíl og fara í reynslu-
akstur.
„Þetta er búin að vera stíf en
ánægjuleg fimm ára vinna,“ sagði
Honda, hönnuður bílsins, við okkur.
„Og aö þessu sinni var einna mesta
vinnan lögð í það að mæta ört vax-
andi kröfum Evrópumanna um stað-
albúnað í bílnum jafnframt því að
gera innanrýmið betur úr garði og
Mlnægja plássþörf væntanlegra
kaupenda í Evrópu."
Stærri en áður
Það fyrsta sem vakti athygh þegar
þessir nýju bílar voru skoðaðir er að
línur ahar eru miklu ávalari en áður
og faha vel að því sem við höfum
áður séð í Toyota Camry og Carina
E. Þá er þessi nýja kynslóð töluvert
stærri en áður. Svo dæmi sé tekið
er hatchback-gerðin 100 mm lengri,
30 mm breiðari og 15 mm hærri en
eldri gerðin. Hjólahaf er 35 mm meira
og sporvíddin er 30 mm meiri að
framan og 40 mm að aftan. Þá er far-
angursrýmið stærra.
Strax í upphafi er boðið upp á íjór-
ar mismunandi gerðir: Hatchback,
hftback, sedan og station-gerð. Jafn-
framt er boðið upp á mismunandi
útgáfur eftir búnaði.
Reynsla fyrri ára sýnir að hatch-
back-gerðir seljast best í Evrópu og
því var lögð áhersla á að koma fram
með hönnun sem henlaði þeim
markaði. í þriggja hurða útgáfunni
er bílhnn mun sérstæðari í úthti en
áður hefur sést frá Toyota, lágur nið-
ursveigður framendi og frekar hár
og mikih afturendi sem gefur sér-
stætt útht, svipað því sem áður hefur
sést í bhum frá Opel og eins í Re-
nault 19, svo dæmi séu tekin af
handahóti.
Þá er hatchback-bílhnn einnig fá-
anlegim í fimm hurða útgáfu sem
vegna stórra glugga og hönnunar er
sérlega rúmgóður.
Liftback-bíllinn er að mati undir-
ritaðs best heppnaða gerðin af þess-
ari nýju kynslóð Coroha. Sportlegt
útht, einkum vegna vel heppnaðrar
hönnunar á afturendanum gefur
bílnum skemmtilegt yfirbragð.
„Klassískasti“ bílhnn í hópnum er
sedan-bílhnn, eða hefðbundinn fólks-
Sedan-billinn er næsta klassískur í útliti og svipar nokkuð bæði til Camry
og Carina E hvað heildaryfirbragð snertir þótt hann hafi sinn eigin svip.
Ford Escort XR311987, eklnn 70.000, fallegur
bfll. Verð kr. 700.000 staðgreltt.
BÍLALEIGA
SÍMI (91)674949
Hatchback-geröin i þriggja hurða útfærslu er skemmtilega sportlegur bill og samsvarar sér vel, sérstaklega frá
þessu sjónarhorni.
bhl með skotti. Þessi gerð bíla er sú
söluhæsta í heiminum og það er í
raun þessi bhl sem er grunnurinn í
hönnuninni að sögn Takayasu
Honda, hönnuðar bílsins.
Sedan-bílhnn á án efa eftir aö falla
vel að markaðnum hér á landi en það
hefur sýnt sig að „venjulegir" fólks-
bOar eiga nú betur upp á pallborðið
aftur eftir mikla markaðshlutdeild
bíla af hlaðbaksgerð í mörg ár.
Fjórða útgáfan er svo station-gerð-
in sem nú fellur mun betur að hehd-
arlínu hinna bUanna en áður og ber
þess merki að hafa verið hannaður
sem shkur frá grunni en ekki aðeins
Iacocca og Concorde
Hér situr Lee lacocca, stjórnarformaður bandaríska bilaframleiöandans Chrysler, stoltur framan á nýjasta
trompi verksmiðjanna, einum af LH-sedan bílum Chrysler sem kallast Concorde en í baksýn er hin eina og
sanna Concorde í eigu breska flugfélagsins British Airways. Myndin var tekin á Kennedyflugvelli i New York
fyrir nokkrum dögum. Af hálfu Chrysler eru miklar vonir bundnar við LH-bílana sem eru i flokki millistórra bíla
og þetta verður síðasta útspil lacocca í bílaiðnaðinum fyrir Chrysler því hann lætur af embætti seinna á
þessu ári en Concorde mun koma á markað f nóvember.
fólksbíll með „kassa“ líkt og stund-
um hefur viljað brenna við hjá bíla-
framleiðendum og þar hefur Toyota
ekki verið undantekning.
Station-bílar eiga stöðugt stærri
hlut af bílamarkaðnum hér á landi
og sennilega á þessi gerð nýju Coroh-
unnar eftir aö ná hyhi kaupenda og
að mati undirritaðs eiga jafnvel
margir eigendur eldri Corohabíla af
hlaðbaksgerð eftir að renna hýru
auga th stationbhsins.
Efnismeiri
Það er greinhegt að þessi nýja Cor-
oha er ekki aðeins stærri en fyrir-
rennarinn heldur er bhhnn í hehd
„efnismeiri“ ef svo má að orði kom-
ast. Innréttingar ahar eru viðameiri
og það fmnst strax þegar gripið er
um stýrishjól og gírstöng að gæðin
hafa aukist.
Mælaborð og stjómtæki hafa feng-
ið að hluta nýtt útht þótt í sumum
bhunum, sem vom kynntir fyrir
okkur blaðamönnum í Noordwijk,
hafi veriö hálfsnautleg mælaborð
verða þeir bhar, sem koma á markaö
hér á landi, með „fullbúnu" mæla-
borði, eða öhum helstu mælum, þar
á meðal snúningshraðamæh.