Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1992, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1992, Síða 8
ee 38 I.AUGÁRDAGUR 25. JÚLÍ 1992. BOar Áttundi vinningsbíllinn í áskriftargetraun DV dreginn út: „Ævintýrin gerast enn" - sagði Gunnar Gíslason, 75 ára Reykvíkingur, sem fékk glæsilega Toyota Carina E 2000 „Ég er nú ekki kominn niður á jörð- ina enn,“ sagði Gunnar Gíslason, sjö- tíu og fimm ára Reykvíkingur, sem var svo heppinn að hljóta áttunda bíiinn sem dreginn var út í áskriftar- getraun DV, glæsilegan Toyota Car- ina E 2000. Við drógum nafn Gunnars, sem býr að Gnoðarvogi 64 í Reykjavík ásamt konu sinni, Kristínu Waage, úr pott- inum á miðvikudagsmorgun en atvik höguðu því svo til að það var ekki fyrr en í hádeginu á fimmtudaginn sem þau hjónin komu að skreyttum vinningsbílnum á neðstu hæð Kringlunnar tíi að veita honum við- töku. Þótt Gunnar hafi haft eilítið lengri tíma en aðrir vinningshafar í áskrift- argetrauninni okkar að átta sig á því að vera orðinn eigandi að jafnglæsi- legum vinningsbU og hann var að veita viðtöku þá var hann rétt svo búinn að átta sig á þessu. „En ævintýrin gerast enn,“ sagöi Gunnar þegar við vorum að koma bílnum út úr Kringlunni og gera hann kláran tíl aksturs og það var ekki laust við að þeir mörgu við- skiptavinir Kringlunnar sem fylgd- ust með afhendingu bUsins renndu til hans öfundaraugum þegar honum var ekið á brott eftir að allt var orðið klárt til brottferðar. Gunnar var vélstjóri tíl sjós í mörg ár en síðustu árin áður en hann fór á éftirlaun vann hann sem járnsmið- ur í landi. Fyrir átti Gunnar þriggja ára Audi 80 en þar áður áttí hann Toyotu, „Co- roUa DX, alveg ágætís bU,“ sagði Gunnar. Hann sagðist skipta reglu- lega um bUa og þeir væru orðnir Ueiri en hann mundi í augnablikinu en hann hefði snemma eignast sinn fyrsta hU. í dag vUdi hann hafa þá sjálfskipta, það væri svo miklu þægi- legra í bæjarakstri. „Annars var hann bróðir minn aö kaupa sér svona bU fyrir nokkrum vikum,“ sagði Gunnar þegar hann virti fyrir sér rennUega Toyotuna. „Ég dreif hann í það að kaupa bíl- inn.“ Enn fímm bílar eftir í pottinum Enn er mikUl möguleUd fyrir Hér tekur Gunnar Gíslason við lyklunum að glæsilegum Toyota Carina E 2000 úr hendi Jóhannesar Reykdal, annars umsjónarmanna DV-bíla. Við hlið Gunnars er Kristin Waage, eiginkona hans, og yst til vinstri er Emil Grímsson, markaðsstjóri Toyotaumboðsins, P. Samúelssonar hf. DV-mynd JÁK skuldlausa áskrifendur DV að hreppa jafnglæsilegan vinning og Gunnar því enn eru fimm bUar eftir í pottinum. Næst verður dregið um Opel Astra frá Jötni hf. en það verður þann 26. ágúst sem það kemur í Ijós hvaða áskrifandi verður svo heppinn að hljóta vinninginn. Það eina sem áskrifendur þurfa að gera er að gæta þess að vera skuld- lausir þegar dregið er um það hvaða áskrifandi verður svo heppinn að hljóta næsta bíl. -JR Volkswagen og Suzuki: Samvinna um evrópskan smábíl - verður smíðaður í verksmiðjum Seat í Barcelona Volkswagensamsteypan og Suzuki Motor Corporation í Japan hafa komist að samkomulagi um sameiginlega þróun og smíði á evr- ópskum smábU en eins og áður hefur komið fram hér í DV BUum hafa þessir aðUar haft þetta í skoð- un ffá haustinu 1991. í dag munu þeir dr. Carl Hahn, stjómarformaður Volkswagen AG, Juan Antonio Diaz Alvarez, stjórn- arformður SEAT S.A. á Spáni, og Osamu Suzuki, stjómarformaður Suzuki, undirrita samkomulag um smíðina í Barcelona. Samkomulagið gengur út á að þessir þrír aðUar muni þróa smábU sem smíðaður verði í verksmiðjum Seat, Zona Franca, í Barcelona. Reiknað er með um 150.000 bUa framleiðslu á ári og að þeir fari aðaUega á Evrópumarkað. Tækifærí til að gera góð bílakaup fyrir helgina! TEGUND ARG. STAÐGR.VERÐ TILBOÐSVERÐ Opel Kadett 1985 Toyota Carina 1986 Charade 4 d.. sjsk. 1988 Peugeot 309 1988 Lada Samara 1986 Subaru 1800 GLF 1983 Toyota Camry 1983 Renault9 1983 Lada Sport 1987 Mazda 323 1985 Ford Escort 1985 VWGolfCL 1988 370.000,- 300.000,- 490.000,- 450.000,- 510.000,- 460.000,- 460.000,- 390.000,- 150.000,- 90.000,- 150.000,- 100.000,- 270.000,- 220.000,- 200.000,- 150.000,- 280.000 230.000,- 330.000,- 280.000,- 350.000,- 300.000,- 610.000,- 560.000,- OPIÐ: Virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 13-17 ENGIN UTBORGUN RAÐGREIÐSLUR TIL 18 MANAÐA SKULDABRÉF TIL 24 MÁNAÐA Bflaumboðið hf. Krókhálsi 1 Reykjavík - Sími 686633 - Sími í söludeild notaðra bíla er 676833

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.