Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Síða 5
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992.
21
Messur
Árbæjarkirkja.Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Sigrún Steingríms-
dóttir. Sr. Þór Hauksson messar.
Áskirkja. Sumarferð safnaðarfé-
lags og kórs Áskirkju á Snæfells-
nes. Lagt upp frá Áskirkju kl.
8.00.
Breiðholtskirkja. Engin guðs-
þjónusta vegna sumarleyfis. Bent
er á guðsþjónustu í Árbæjar-
kirkju. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja. Guðsþjónusta kl.
11. Fermd verður Eva Ýr Gunn-
laugsdóttir, Hvassaleiti 139, Rvk.
Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan. Messa kl. 11.00.
Organleikari Marteinn H. Frið-
riksson. Dómkórinn syngur. Sr.
Hjalti Guðmundsson.
Eyrarbakkakirkja. Messa kl.
10.30. Sóknarprestur.
Fella- og Hólakirkja. Kvöldguðs-
þjónusta kl. 20.30. Prestur Guð-
mundur Karl Ágústsson. Söng-
hópurinn Án skilyrða sér um tón-
listarflutning. Kaffi eftir guðs-
þjónustu.
Grensáskirkja. Prestar og starfs-
fólk kirkjunnar er í sumarleyfi.
Viðhald og viðgerð fer fram á
kirkjunni. Prestar Háteigskirkju
annast þjónustu á meðan.
Hailgrímskirkja. Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Þriðjudag-
ur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja. Hámessa kl. 11.
Sr. Arngrimur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
Landspítalinn. Messa kl. 10. Sr.
Jón Bjarman.
Langholtskirkja. Kirkja Guð-
brands biskups: Hámessa kl. 11.
Sr. Flóki Kristinsson.
Laugarneskirkja. Guðsþjónuta
kl. 11. Sr. Sigrún Óskarsdóttir.
Fimmtudagur: Kyrrðárstund kl.
12. Orgelleikur, altariganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu að stundinni lok-
inni.
Kópavogskirkja. Guðsþjónusta
kl. 11. Sr. Þorbergur Kristjánsson.
Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Frank M. Halldórsson. Mið-
vikudagur: Bænamessa kl. 18.20.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Seljakirkja. Engin guðsþjónusta
vegna sumarleyfis starfsfólks.
Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja. Messa kl.
11. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Organisti Þóra
Guðmundsdóttir.
Fjórða tónleika-
helgin í Skálholti
Sumartónleikar í Skálholtskirkju
verða haldnir á morgun og á sunnu-
dag. Þetta er fjórða tónleikahelgi
sumarsins og ber yfirskriftina
Barokk og nýsköpun.
Á morgun kl. 15 bjóða Guðrún Ósk-
arsdóttir semballeikari, Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari og Rannveig
Sif Sigurðardótttirr sópran áheyr-
endum í franska barokkveislu. Þau
flytja verk eftir Hotteterre, Leclair,
Boismortier o.fl. Guðrún Óskarsdótt-
ir er einn af fáum semballeikurum á
íslandi og hefur verið við nám er-
lendis í mörg ár. Kolbeinn Bjamason
er löngu þekktur fyrir frábæran
flautuleik og er m.a. aðstandandi
Caput-hópsins. Rannveig Sif er nú
við nám í Hollandi og leggur sérstak-
lega stund á barokksöng.
Heimsfrægur blokkflautuleikari,
Dan Laurin frá Svíþjóð, kemur einn-
ig fram. Hann flytur einleiksverk
fyrir ýmsar gerðir af blokkflautum á
laugardaginn kl. 17 og sunnudaginn
kl. 15. Hann frumflytur m.a. verk
eftir Þjóðveijann Markus Zahnhaus-
en. Það hefur aldrei heyrst opinber-
lega áður og er því um alheimsfrum-
flutning að ræða.
-KMH
Hópurinn sem sér um tónlistina á fjórðu sumartónleikum i Skálholtskirkju
sem fram fara nú um helgina.
Hallgrímskirkja:
Dúóið
Lewark-
Portugall
Egbert Lewark trompetleik-
ari og Wolfgang Portugall
orgelleikari eru nú á hljóm-
leikaferðalagi hér á landi og
ætla að halda tónleika í Hall-
grlmskirkju á sunnudaginn kl.
17.
Þeir hafa leikið opinberlega
frá árinu 1985 undir heitinu
Duo Lewark-Portugall og
oðlast margháttaðar viður-
kenningar og lof fyrir. Leikur
þeirra er til á geisladiskum og
hljómplötum. Á tónleikunum
í Hallgrímskirkju flytur dúóíð
verk eftir Telemann, Samuel
Scheidt, Bach og Hándel.
Auk þess leikur Wolfgang á
orgelið Preludíu og fúgu í
c-moll eftir Bach ásamt sál-'
malagi og 9 partítum eftir
Pachelbel.
Þetta verða lokatónleikar
dúósins I Íslandsförínni en
áður hafa þeir leikið á Akur-
eyrí, Dalvík, Hóladómkirkju
og Reykjahlíðarkirkju á veg-
um Sumartónleika á Norður-
landi. -KMH
Stórmót hestamanna á Hellu
Jön Þóröaison, DV, Suðurlandi:
Um helgina fer fram stórmót sunn-
lenskra hestamanna að Gaddstaða-
flötum við Hellu á Rangárvöllum.
Mótið hófst í gær með kynbóta-
dómum, en að því standa níu hesta-
mannafélög af Suðurlandi, frá Hellis-
heiði í vestri að A-Skaftafellssýslu í
austri. Mótiö verður með nýju sniði
og bryddað upp á mörgu nýju, bæði
hvað varðar umgjörð og innihald.
Þar ber fyrst að nefna að selt verður
inn fyrir hvern dag. Verð á að-
göngumiðum er stillt mjög í hóf, t.d.
kostar aðeins kr. 500 hvom dag. Boð-
ið verður upp á opna töltkeppni í
fyrsta sinn á stórmóti. Yfir 50 hross
eru skráð til leiks og hefst forkeppni
kl. 18 á morgun, laugardag, en úrslit
ráðast á sunnudag kl. 15.30.
Fyrstu kerrukappreiðar hérlendis
verða háðar á sunnudaginn kl. 12.
Keppt verður bæði í brokki og skeiði.
Þá má nefna að stórt sölutjald verð-
ur á svæðinu, en Gulh í Reiðsporti
mun flytja búðina austur yfir heiði.
Veitingahúsið Brúarsporðinn á Sel-
fossi sér um allar veitingar á móts-
svæðinu og býður upp á pitsur og
ýmiss konar rétti. Á laugardagskvöld
verður kvöldvaka sem mótshaldarar
Yfir 50 hross eru skráð til leiks á hestamótinu á Hellu sem fram fer nú um helgina.
kjósa að kalla „Gleðistund eftir Her- ýmiss konar afþreying, en stefna hestamennsku.
mann“ og hefst hún kl. 20.30. mótshaldara er að allir íjölskyldu- Mótið hefst kl. 9 á morgun með
Á svæðinu verður barnagæsla, meðlimir geti haft gaman afhelginni keppni í B-flokki gæðinga og á
leiktæki fyrir böm, hestaleiga og þó einhverjir séu ekki alveg á kafi í sunnudag kl. 12 með kappreiðum.
Sr. Flóki Kristinsson, sóknarprestur við Langholtskirkju. DV-mynd BG
Hugvekj a
Tjaning er öllum mönnum ásköp-
uð og eðlislæg. En hún er jafnframt
áunnin hegðun og manninum lærist
seinna á æfingunni að hefja hana upp
yfir hversdagsleikann og gera að list.
Við berum réttilega lotningu fyrir
listinni, erum þakklát fyrir snilligáfu
mannanna. En við værum bæði blind
og sljó ef við gerðum ekki greinar-
mun á list sem er einlæg og sönn og
hinni sem er uppgerð og innantómt
hismi. Móöir, sem vaggar barni sínu
í svefn, raular við rúmstokkinn.
Söngur hennar er ekki tónlist í eigin-
legri merkingu þess orðs, en er þó
e.t.v. æðri nokkurri sönglist af því
hann kemur frá hjartanu, er fullur
af væntumhyggju og einlægni.
Það er svo með allt mannlegt at-
ferli að það hefur á sér fleiri en eina
hlið. Kurteisi hættir t.d. að vera að-
laðandi þegar hugur fylgir ekki máli
en verður vanaverk eitt. Hún getur
við vissar aöstæður snúist upp í önd-
verðu sína, orðið ókurteisi, jafnvel
smeðja sem við forðumst og býður
við. Þannig er þvi farið um trúrækni
og helgiathafnir, þær geta orðið van-
anum að bráð, misst innihald en er
viðhaldið af hégóma þeirra sem þrá
athygli og lotningu annarra.
Við metum venjur helgisiðanna
mikils og eigum að gera það. En þær
eiga framar öllum athöfnum mann-
anna að fela í sér einlægni og heO-
indi. Að öðrum kosti eru þær ekki
einungis ónýtar heldur einnig hættu-
legar.
Innantómur vani er leiður og
þreytandi. Einkum fer hann trúnni
illa. Þetta þekkti Jesús Kristur úr
samtíö sinni. Hann sagði við hina
trúræknustu og hlýðnustu menn
síns tíma: „Vei yður fræðimenn og
farísear, hræsnarar! Þér líkist kölk-
uðum gröfum, sem sýnast fagrar að
utan, en innan eru fullar af dauðra
manna beinum og alls kyns óþverra.
Þannig eruð þér, sýnist hið ytra rétt-
látir í augum manna, en eruð hið
innra fullir hræsni og ranglætis."
Og í guðspjalli sunnudagsins segir
hann: „Gætið yðar fyrir falsspá-
mönnum, er koma til yðar í sauða-
klæðum, en eru hið innra glefsandi
vargar; af ávöxtum þeirra skuluð þér
þekkjaþá." Séra Flóki Kristinsson