Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1992, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1992.
23
Kvikmyndir
húmorinn oft góður. Ekki alslæm. -G E
Greiöinn, úrið og stórfisk-
urinn ★★
Akkúrat það sem ég hafði búist við af
Frökkum og Bretum að gera saman farsa.
Leikhópurinn heldur myndinni uppi.
-GE
Veröld Waynes ★★ !4
Losaraleg saga en Wayne og Garth eru
óneitanlega mjög fyndnar týpur. Húmor-
inn einum of „local" fyrir okkur.
-GE
Refskák ★★★
Ein af örfáum spennumyndum sem eru
spennandi allt til endaloka. Övenju snjallt
handrit og stílhrein leikstjórn.
-GE
Steiktir grænir
tómatar ★★★ 'A
Stórgóð mynd sem fjallar um mannlegar
tilfinningar, vináttu og áhrifamátt frá-
sagna. Toppleikur í öllum hlutverkum
-IS
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Beethoven ★★
Ekki merkileg saga en alveg pottþétt fyrir
krakka. Fullorðnum mun heldur ekki leið-
ast. -GE
Stopp eöa
mamma hleypir af ★Vi
Stallone er ekki slæmur gamanleikari og
Getty er góð en sagan er nauðaómerkileg
formúluklisja frá upphafi til enda.
-GE
Töfralæknirinn ★★
Öspennandi saga dregur úr áhrifum stór-
leikara og ægifagurra frumskógarslóða.
-GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Ógnareðli ★★★★
Siðlaus..spennandi..., æsandi...,
óbeisluð..., óklippt..., spennandi...,
ógeðs*íeg..., óafsökuð..., glæsileg...,
tælandi..., spennandi..., frábært... (nei,
ég fæ ekki prósentur).
-GE
Lostæti ★★ /2
Skemmtileg framtíðarsýn frá tveimur
teiknimyndahöfundum. Myndin er meiri
stílæfing en nokkuð annað.
-GE
Léttlynda Rósa ★★★
Mjög fagmannlega unnin mynd um alvar-
legt tilfelli brókarsóttar og þau vandamál
sem skapast í kringum það. Frábær leikur
góðra leikara.
-Is
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Vinny frændi ★'/2
Formúlugamandrama á hálfum hraða. Of
hæg til að vera spennandi og of langt
milli góðra brandara til að vera fyndin.
-GE
Amór Guðjohnsen mun leika í nýrri stöðu gegn ísraelsmönnum á sunnudaginn, í stöðu aftasta varnarmanns.
Sterkt íslenskt lið
mætir liði ísraels
- í æfingaleik í knattspymu á sunnudaginn
íslendingar og ísraelsmenn leika vináttulandsleik í
knattspyrnu á Laugardalsvellinum klukkan sex á sunnu-
dag. Leikurinn er liður í undirbúningi íslenska liðsins
fyrir komandi átök í undankeppni heimsmeistarakeppn-
innar í knattspymu.
íslendingar mæta til leiks með sterkt lið og íimm at-
vinnumenn, sem leika erlendis, munu leika með íslenska
liðinu. Það em þeir Siguröur Grétarsson, Grasshoppers,
sem er fyrirliði hðsins, Arnór Guðjohnsen, Anderlecht,
Þorvaldur Örlygsson, Nottingham Forest, Ólafur Þórðar-
son, Lyn, og Guðni Bergsson hjá Tottenham. Aðrir leik-
menn í íslenska hðinu eru markverðimir Birkir Kristins-
son, Fram, og Friðrik Friðriksson, ÍBV, Valur Valsson,
UBK, Kristján Jónsson, Fram, Andri Marteinsson, FH,
Baldur Bjamason, Fylki, Baldur Bragason, Val, Arnar
GrétarssonjUBK, Rúnar Kristinsson, KR, Sigurður Jóns-
son, ÍA, Hörður Magnússon, FH, og Valdimar Kristófers-
son, Fram.
Arnór mun leika í
stöðu aftasta varnarmanns
Ásgeir Ehasson landshösþjálfari hefur lengi haft hug á
því að prófa Arnór Guðjohnsen í stöðu aftasta varnar-
manns með landsliðinu og fær nú tækifæri til þess. Verð-
ur fróðlegt að sjá hvernig Arnór skilar þessu nýja hlut-
verki.
Segja má að þetta sé eitt sterkasta lið sem íslendingar
geta stillt upp í dag ef undan er skilin fjarvera Eyjólfs
Sverrissonar hjá Stuttgart. Lið ísraelsmanna er sterkt
og hefur undanfarna daga dvalið hér á landi við æfmgar.
Ferðafélag íslands:
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Náttfari ★
Ófrumleiki og hnökrar í frásögn jarða allar
tilraunir til að skapa sögu, spennu og
hrylling, King-húmor, ágætis leikarar og
kettir klóra í bakkann. -G E
Hnefaleikakappinn ★★
Góð slagsmálaatriði bjarga þessari
blöndu af Rocky og Kickboxer fyrir horn.
-GE
Fimm helgar-
ferðir í boði
Bugsy ★★★
Ris og hnignun skrautlegs gangsters.
Meira persónulýsing en spennumynd og
Beatty er stórgóður í langþráðu drauma-
hlutverki.
-GE
Óður til hafsins ★★!4
Vel gerð og efnismikil með stórleik hjá
Nick Nolte. Síðasta kortérið klisjukennt
og skemmir fyrir heildaráhrifum. Atriði úr
fortíðinni geysivel tengd nútímanum.
-HK
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum
með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng-
legt landslag og góður leikur blandast
mannlegum söguþræði.
-HK
Ferðafélag íslands býður upp á
fimm helgarferðir um þessa helgi þar
sem ahir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi.
Ferðimar eru þessar:
1. Síðsumarsferð í Þórsmörk:
a. Ekið á laugardeginum aö hinum
stórkostlegu Markarfljótsgljúfrum
og gengið með þeim að Einhymings-
flötum.
b. Gönguferðir m.a. léttár fjöl-
skyldugöngur í Þórsmörkinni. Frá-
bær gistiaðstaða í Skagfjörðsskála
Langadal. Munið sumardvöhna, t.d.
frá fostudegi eða sunnudegi til mið-
vikudags.
2. Þverbrekknamúli-Hrútfell.
Gist í skálum.
3. Hveravellir-Þjófadalir (grasaferð).
Gist í skála F.í. í Hveravöllum.
4. Landmannalaugar-Eldgjá.
Gist í Laugum.
5. Á fjallhjóli um Kjöl.
Gist í skálum. Rúta flytur hjóhn
inn á Kjalveg.
Upplýsingar og farmiðasala á skrif-
stofunni í Mörkinni 6, s. 682533.
Ferðafélagið býður meðal annars upp á ferð í Þórsmörkina um helgina.
w
Knattspyrna:
Fjorir leikir
hjá konunum
Fjórir leikir fara fram um helgina
í 1. deild kvenna á íslandsmótinu
I knattspyrnu.
Á föstudagskvöldið leika
Breiðablik og Þór frá Akureyri á
Kópavogsvelli og hefst leikurinn
klukkan 19.00. Stúlkurnar í Þór
verða síðan aftur á ferðinni á
laugardag en þá mæta þær liði
Vals á Valsvelli klukkan 14.00.
Uð Skagamanna verður á ferð
á Austurlandi um helgina. Á
laugardaginn mætir fA liðí Hattar
á Egilsstaðavelli klukkan 16.00
og daginn eftir, á sunnudag, leik-
ur ÍA við Þrótt frá Neskaupstað
á Neskaupstaðarvelii klukkan
14.00.
Margir leikirí
3. og 4. deild
Fjölmargir leikir fara fram um
helgina i 3. og 4. deild. Fimm
leikir eru á dagskrá í 3. deild og
sextán leíkír 14. deild. Þessir leik-
ir verða um helgina:
3. deildáföstudag
Völsungur-Magni......kl. 19.00
Skallagrímur-Grótta..kl. 19.00
Dalvík—Tíndastóll.kl. 19.00
3. deild á laugardag
Haukar-KS..................kl. 14.00
Ægir-Þróttur Nes..kl. 14.00
4. deild á föstudag
Afturelding—Njarövík .....kl. 19.00
Leiknir R.-Léttir.kl. 19.00
Austrí E.-Neisti D...kl. 19.00
Leiknir F.-K.S.H..kl. 19.00
Valur Rf.-Huginn.....kl. 19.00
4, deildá laugardag
Hafnir-Ernir............kl. 14.00
Víkingur Ól.-Árvakur.kl. 14.00
Hvatberar-Reynir S...kl. 14.00
HK Fjölnir..............kl. 16.00
Ármann-Snæfell....kl. 14.00
Bolungarvík-Víkverji.kl. 14.00
5. M.-Kormákur.......kl. 14.00
Hvöt-H.S.Þ.-b........kl. 14.00
Þrymur-Umf. Neistí...kl. 17.00
Einherjí-Sindri......kl. 14.00
Huginn F.-Höttur.....kl. 14.00
Útivist:
Dagsferðir
ásunnudag
Á sunnudaginn verður gengið
upp á Skjaldbreið (1060 m) sem
er ellefta fjallíð í fjallasyrpu Útí-
vistar, Skjaldbreið er næststærsta
hraundyngja á ístandi, með mikl-
um og djúpum gíg, 300 m að
þvermáli.
Sunnan í Skjaldbreið eru tveir
móbergsgtgar sem heita Karl og
Kerling. Víðkunnugt er kvæði
Jónasar Hallgrímssonar um
Skjaldbreið. Brottför í ferðina er
frá BSÍ kl. 9. Einnig verður boðið
upp á láglendisgöngu fyrir þá
sem ekki treysta sér á fjallið,
genginn verður hluti af Gagn-
heiðavegi sem er gömul þjóðleið
milli Þingvalla og Borgarfjarðar.
Kl. 13 á sunnudag er útivistar-
dagur fjolskyldunnar I Grafn- !
ingnum. Gengið verður um
Grafninginn, farið í leíkí og
grillaðar pylsur. Upplögð ferð
fyrtr alla fjölskylduna.