Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1992, Blaðsíða 4
[
20
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, Ȓmi 673577
I sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og sölu
olíumálverk, pastelmyndir, grafík og ýmsir leirmunir.
Opió alla daga frá kl. 12-18.
Árbæjarsafn
„Það er svo geggjaö" nefnist sýning sem stendur
nú yfir í Árbæjarsafni. Opið alla daga nema mánu-
daga kl. 10-18. Sýningin verður í allt sumar.
Ásgrímssafn
BergstaAastræti 74, simi 13644
Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugardögum og
sunnudögum kl. 13.30-16.00.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Bók-
menntirnar í list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt
hefur veriö tekin í notkun ný viðbygging við Ásmund-
arsafn. Safnið er opið kl. 10-16 alla daga.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
Opiö alla virka daga frá kl.10-16.
FÍM-salurinn
Garöastræti 6
Laugardaginn 22. ágúst opnaði finnska listakonan
Lena Pyyhtiá-Viljanen sýningu á olíumálverkum.
Sýningin stendur til 7. sept. og er opin daglega frá
kl. 14-18.
Gamla Álafosshúsiö
Nú stendur yfir sýning á verkum Hauks Dórs. Á sýn-
ingunni eru málverk og teikningar. Sýningin er opin
alla laugardaga frá kl. 12-18 og stendur í allt sumar.
Café Mílanó
Nú stendur yfir sýning á verkum Ríkeyjar Ingimund-
ardóttur. Á sýningunni eru olíumálverk, vatnslita-
myndir og skúlptúr.
Gallerí 11
Skólavöröustíg 4a
Nú standa yfir sýningar listamannanna Magnúsar
S. Guðmundssonar og Ólafs Benedikts Guðbjarts-
sonar,(innri salnur). Sýningarnar standa yfir til 3.
sept. og eru opnar daglega frá kl. 12-18.
Gallerí G-15
Skólavöröustig 15
Siðasta sýningarhelgi á Ijósmyndasýningu Katrinar
Elvarsdóttur. Á sýningunni eru 20 svart-hvítar silfur-
gelatínljósmyndir sem allar eru unnar á þessu ári.
Sýningin verður opin laugardag og sunnudag frá kl.
14-18 og stendur til 1. september.
Gallerí Borg
v/Austurvóll, s. 24211
Nú stendur yfir sölusýning á verkum islenskra lista-
manna. Á sýningunni eru meðal annars verk eftir
Kjarval, Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Blöndal, Erró,
Tolla, Sigurjón Ólafsson. Sýningunni lýkur i lok ág-
úst og er opin alla virka daga frá kl. 14-18.
Gallerí Ingólfsstræti
Bankastræti 7
Nú stendur yfir sýning á myndum, máluðum á silki,
eftir Guðrúnu Arnalds. Einnig eru fjögur myndverk,
unnin úr bývaxi og litadufti á striga eftir Jón Sæ-
mundsson. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18.
Gallerí List
Skipholti, sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið dag-
lega kl. 10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugard. kl. 10-16 og sunnud. kl. 11-17.
Galleri Sævars Karls
Bankastræti 9, sími 13470
7. ágúst opnaði Helgi Valgeirsson myndlistarsýningu
í Gallerí Sævars Karls. Á sýningunni eru málverk og
teikningar. Sýningin er opin á verslunartíma og
stendur til 4. september.
Gallerí Umbra
Amtmannsstíg 1
Nú stendur yfir sýning á verkum Halldóru Emilsdótt-
ur. Á sýningunni eru verk sem unnin eru á þessu ári
og er þetta sjötta einkasýning hennar. Sýningin
stendur til 9. sept. og er opin þriðjud.-laugard. kl.
12-18 og sunnud. kl. 14-18. Lokað á mánud.
Geysishúsið
Aöalstræti 2
Nú stendur yfir sýningin Höndlað í höfuðstað -
þættir úr sögu verslunar í Reykjavík. Að sýningunni
standa Borgarskjalasafn Rvíkur, Ljósmyndasafn
Reykjavíkurborgar og Verslunarmannafélag Rvík. Á
sýningunni er reynt að rekja þróun verslunar I borg-
inni frá upphafi hennar til nútímans meö skjölum,
Ijósmyndum og öðrum gögnum. Sýningin mun
standa til 30. ágúst. Hún er opin alla daga kl. 9-20.
Aðgangur ókeypis.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Nústenduryfirmálverkasýnig Elíasar B. Halldórsson-
ar. Á sýningunni eru 46 olíumálverk sem flest eru
unnin á sl. ári. Sýningin stendur til 31. ágúst. Sýning-
arnar eru oprtar alla daga nema þriöjudaga frá kl.
12-18. J kaffistofu stendur nú yfir sýning á högg-
myndum úr steini. Verkin eru eftir Einar Má Guðvarð-
arson og Susanne Christensen og eru unnin í marm-
ara, íslenskan grástein og móberg. Sýningin er sölu-
sýning og er opin virka daga frá kl. 11—18. Hún stend-
ur til 31. ágúst.
Hafnarhúsið
Tryggvagötu
Nú stendur yfir sögusýning í Hafnarhúsinu. A sýning-
unni er sýnd þróun og uppbygging Reykjavíkurhafn-
ar og þar er einnig mikil veggmynd sem Gylfi Gísla-
son myndlistarmaður hefur gert af Reykjavíkurhöfn
eins og hún mun hugsanlega líta út áriö 2017. Sýn-'
ingin er opin daglega frá kl. 13-18 fram til hausts.
Hótel Lind
Nú stendur yfir sýning á verkum Reynis Sigurðsson-
ar. Á sýningunni eru 24 oliumálverk og einnig akrýl-
rnyndir. Sýningin er opin á afgreiðslutíma veitinga-
hússins.
Sýning á Hressó
Opnuð hefur verið í veitingahúsinu Hressó sýning á
Ijósmyndum eftir Kristján Logason. Myndirnar eru
ýmist svarthvítar, handmálaðar eða í lit.
Hlaðvarpinn
Vosturgötu 3
Nú stendur yfir sýning á verkum myndlistarkonunn-
iar Lu Hong. Myndirnar eru málaðar með vatnslitum
á sérstakan kínverskan bambuspappír. Sýningin er
opin alla virka daga kl. 12-18, laugard. kl. 10-18
og sunnud. kl. 13-17. Sýningin stendur til 30. ágúst.
Kjarvalsstaðir
og er opin alla daga frá kl. 10-18.
Nesstofusafn
Neströö, Seltjarnarnesi
var formlega opnað föstudaginn 10. júli sl. Þetta er
nýtt lækningminasafn og þar eru til sýnis áhöld og
tæki sem tengjast sögu læknisfræðinnar á islandi.
Sofan er opin á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laug-
ardögum frá kl. 12-16. Aðgagnseyrir er kr. 200.
Norræna húsið
Laugardaginn 29. ágúst verður opnuð f anddyri sýn-
ing á grafíkverkum eftir norska listamálarann Ludvig
Eikaas. Myndefnið er Henrik Ibsen og persónur hans.
I sal stendur nú yfir farandsýning á heföbundinni
japanskri leirgerö. Á sýningunni eru verk eftir 56 leir-
kerasmiði. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-19
og stendur til 6. sept.
Listasalurinn Nýhöfn:
Hafsteinn Austmann sýnir
málverk og vatnslitamyndir
Hafsteinn Austmann opnar sýn-
ingu í Listasalnum Nýhöfn, Hafnar-
stræti 18, laugardaginn 29. ágúst. Á'
sýningunni eru málverk og vatns-
litamyndir, unnar á síðastliðnum
þremur árum.
• Hafsteinn er fæddur 1934 á Ljóts-
stöðum í Vopnafirði. 1951 innritaðist
hann í Myndlistaskólann í Reykjayík
og á árunum 1952-1954 stundaði
hann nám við Handíða- og mynd-
listaskólann. Að því loknu hélt hann
til Parísar í framhaldsnám við Aca-
demie de la Grande Chaumier og
dvaldi þar tvö ár.
Hafsteinn hefur haldið íjölda
einkasýninga og tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima og erlendis. í apríl
síðastliðnum hélt hann einkasýn-
ingu í Galleri Orpheus í Eskilstuna
í Svíþjóð. Hann hefur um árabil ver-
ið kennari viö Myndhsta- og hand-
íðaskóla íslands, er formaður Félags
íslenskra hstamanna og á sæti í safn-
ráði Listasafns íslands.
Hafsteinn Austmann í sýningarsalnum Nýhöfn þegar unnið var að uppsetn-
ingu mynda hans.
Sýningin Hafsteins í Nýhöfn er 12-18 virka daga og frá 14-18 um
sölusýning og er hún opin frá kl. helgar. Lokað á mánudögum.
Þannig teiknar Ludvig Eikaas Henrik
Ibsen.
Norraena húsið:
Henrik Ibsen
og per-
sónur hans
í anddyri Norræna hússins verður
opnuð á laugardaginn sýning á graf-
íkverkum eftir norska hstmálarann
Ludvig Eikaas. Myndefnið er Henrik
Ibsen og persónur hans, en í sept-
ember í fyrr kom út heildarútgáfa á
verkum Henrik Ibsen í Noregi og var
Ludvig Eikaas fenginn til að mynd-
skreyta verkið og á sýningunni má
sjá hvemig hann túlkar margar af
persónum þeim sem Henrik Ibsen
skóp í leikritum sínum. Einnig verð-
ur sýning á heildarútgáfunni en hún
er í tveimur bindum ahs um 1000
blaðsíður.
í tengslum við opnunina verður
dagskrá í fundarsal Norræna húss-
ins. Þar talar Kristinn Einarsson,
framkvæmdastjóri Den norske Bok-
klubben og segir frá útgáfimni og
kynnir verkið. Jahn Otto Johansen
ritstjóri kynnir Ludvig Eikaas og
hstamaðurinn tekur einnig til máls
og segir sitt htið af sjálfum sér.
Ludvig Eikaas er fæddur 1920.
Hann er meðal fremstu núlifandi
hstamanna Nopregs. Eikaas er fjöl-
hæfur í hstsköpun sinni, málar,
vinnur með grafík og gerir högg-
myndir.
Nýljistasafnið:
Nan Hoover sýnir videoverk
Hinn alþjóðlegi listamaður, Nan
Hoover, mun halda yfirlitssýningu á
videoverkum sínum í Nýhstasafninu
dagana 29. og 30. ágúst.
Hoover vinnur verk sín í margvís-
leg form, samanber gjörninga, inn-
stilhngar, teikningar og grafík, en
aðallega eru þau kvikmynda- og
videogerð. Verk Nan Hoover eru
mörg hver athugun á grunneindum
ljóss, hvemig ljós, skuggi, hlutur og
hreyfing tengjast tíma og rúmi.
Nýlega hefur Nan Hoover tekið við
stöðu prófessors í videohst í Lista-
akademíunni í Dusseldorf eftir ára-
langan feril í Hollandi sem hstamað-
ur og kennari. Nan Hoover hefur
haldið sýningar í Evrópu, Japan,
Ástrahu og Bandaríkjunum. Þetta er
í annað skipti sem hún heimsækir
ísland. í fyrra skiptið sýndi hún
gjöminga í Nýhstasafninu í byrjun
síðasta áratugar.
Sýningartímar Nan Hoover: Laug-
ardaginn 29. ágúst frá kl. 14-18 er
stöðug myndbandasýning á stórum
skermi. Sams konar sýning er á sama
tíma á sunnudaginn. Kl. 19-22 á
sunnudag heldur Hoover fyrirlestur
um verk sín og sýnir videoverk.
Þóra Sigurjónsdóttir, listakona frá Lækjarbakka í Gaulverjabæjarhreppi, í
sýningarsal sínum.
Nýtt gallerí í sveitinni
Kiistján Einarsson, DV, SeHossi
Að Lækjarbakka í Gaulveijabæjar-
hreppi hefur hstakonan Þóra Sigur-
jónsdóttir opnað sýningarsal þar sem
hún sýnir handverk sín. Lækjar-
bakki stendur við ströndina í um það
bil 20 km fjarlægð frá Selfossi. í húsi
sínu hefur Þóra komið sér fyrir í
nýbyggðum sal og býður nú gestum
og gangandi að skoða og kaupa.
Þóra vinnur mikið í akrýlhtum og
málar hún myndir á tré, steina og
striga. Einnig vinnur hún ýmsa
skúlptúra úr blómum og öðru efni
sem til fehur. Þóra vann áður að
búskap en heilsan brást og hefur hún
alfarið snúiö sér að hstinni. Verk
hennar hafa verið sýnd í Þýskalandi
og þangað hefur hún selt stein- og
trémyndir.
Messótinta, æting og steinþrykk
Gunnhildur Ólafsdóttir opnar sýn-
ingu á verkstæði sínu að Lamba-
staðabraut 1, Seltjamamesi, laugar-
daginn 29. ágúst. Gunnhildur útskrif-
aðist úr grafíkdeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1989 og hefur
tekið þátt í nokkrum samsýningum.
Messótinta, æting og steinþrykk
em þær aöferöir sem hún hefur feng-
ist mest við í myndum sínum. Þetta
er fyrsta einkasýning Gunnhildar og
stendur hún th 6. september. Sýning-
in er opin alla daga frá kl. 15-21.
Síðasta sýningarhelgi Katrínar í G15
Nú em síöustu forvöð að sjá ljós-
myndasýningu Katrínar Elvarsdótt-
ur í G15 að Skólavörðustíg 15. Á sýn-
ingunni era 20 svart-hvítar silfur-
gelatínljósmyndir, ahar unnar á
þessu ári. Katrín hefur stundaö ljós-
myndanám í Bandaríkjunum und-
anfarin fjögur ár og tekið þátt í sam-
sýningum þar í landi. Hún hélt loka-
sýningu viö Art Institute of Boston
síðasthðið vor. Sýningin í G15, sem
er sölusýning, verður opin laugardag
og sunnudag frá kl. 14-18.
FÖSTUDAGUR 28. ÁGÚST 1992.
Sýningar
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Laugardaginn 29. ágúst opnar Hafsteinn Austmann
sýningu. Á sýningunni eru málverk og vatnslita-
myndir, unnarásl. þremuráru’m. Sýninginersölusýn-
ingin og er opin frá kl. 12-18 virka daga frá kl. 14-18
um helgar. Lokað á mánudögum.
Nýlistasafnið
Vatnsstig 3b
Laugardaginn 15. ágúst var opnuð minninaarsýning
um Ragnar Kjartansson myndhöggvara. Á sýning-
unni er lögð áhersla á þau myndefni sem listamann-
innum voru hugstæð og hjartfólgin. Á sýningunni
eru alls um 40 verk, unnin meó margvislegri tækni.
Sýningin er opin daglega kl. 14-18 og stendur til
30. ágúst.
Katel
Laugavegi 20b, simi 18610
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda*og erlenda listamenn,
málverk, grafík og leirmunir.
Lambastaðabraut 1
Seltjarnarnesi
Laugardaginn 29. ágúst opnar Gunnhildur Ölafsdótt-
ir sýningu. Sýningin er opin alla daga frá kl. 15-21.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargotu. simi 13797
Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Högg-
myndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-18.
Listmunahúsið
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
sími 621360
Síðasta sýningarhelgi á nokkrum stórum sjávarlífs-
myndum Gunnlaugs Scheving. Myndirnar hafa verið
fengnar að láni hjá ýmsum einkaaðilum og opinber-
um aðilum. i minni sal á annarri hæð er verið að
sýna og selja fjölda myndverka eftir íslenska sam-
timalistamenn.
Listinn
gallerí - innrömmun
Síðumúla 32, sími 679025
Uppsetningar eftir þekkta islenska málara. Opið virka
daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga
kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
i Odda, simi 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum verkum í
eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14-18. Aðgangur
að safninu er ókeypis.
Lóuhreiðrið
Laugavegi 59
Agatha Krisjánsdóttir sýnir i kaffistofunni, á 2. hæð,
fyrir ofan Hagkaup. Á sýningunni eru 10 olíumál-
verk. Opið mánudaga-föstudaga frá kl. 9-18.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum
Haralds Jónssonar. Á sýningunni eru teikningar,
unnar á pappír á undanförnum mánuðum. Sýningin
er opin alla daga kl. 9.30-23.30 nema sunnud. kl.
14-23.30 og stendur fram eftir ágúst.
Myndlistarsýning í
menntamálaráðuneyti
Elin Magnúsdóttir sýnir oliumálverk og vatnslita-
myndir, Tryggvi Hansen sýnirtölvugrafik og Elinborg
Guðmundsdóttir, Margrét Salome Gunnarsdóttir og
Sigrún Gunnarsdóttir sýna leirlistarverk. Sýningin er
opin á virkum dögum á starfstíma ráðuneytisins kl.
8-16.
Perlan
öskjuhlið
Nú stendur yfir málverkasýning Jóns Baldvinssonar.
Sýningin stendurtil 2. september og ber heitið Með-
an eg ungur er.
Sjónminjasafn íslands
Nú stendur yfir sýning Skipaútgerðar rikisins. Opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18.
Stofnun Árna
Magnússonar
Árnagarði, Suðurgötu
Nú stendur yfir handritasýning i Árnagarði. Á sýning-
unni eru m.a. handrit sem minna á ævistarf Árna
Magnússonar. Einnig eru galdrakver og eitt merkasta
rímnahandrit sem varðveist hefur. Sýningin er opin
alla daga vikunnar nema sunnudaga frá kl. 14-16.
Sýningin stendur til 1. september.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, simi 54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18.
Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59, simi 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir, málverk
og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðju-
daga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafn íslands
Sýningin Húsvernd á islandi var opnuð í Bogasal
Þjóðminjasafns islands laugardaginn 27. júni sl. Þar
er saga húsverndar á islandi rakin í stórum dráttum
og kynntar aðgerðir opinberra aðila sem markað
hafa stefnuna á hverjum tíma. Mikill hluti sýningar-
efnisins er Ijósmyndir, teikningar, vatnslitamyndir og
uppdrættir af gömlum húsum og húshlutum.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58. simi 24162
Opið daglega kl. 11-17.
Myndlistarskóli Akureyrar
Laugardaginn 22. ágúst opnaði sýning á bandarisk-
um einþrykkimynda. Sýningin er opin daglega frá
kl. 14-18 og stendur til 5. sept.
Gallerí Hulduhólar
Mosfetlsbæ
Siðasta sýningarhelgi á sýningu listamannanna
Steinunnar Marteinsdóttur, Sveins Björnssonar, Hlíf-
ar Ásgrímsdóttur og Sverris Ólafssonar. Sýningin er
opin fimmtudag og föstudag frá kl. 17-22 og laugar-
dag og sunnudag frá kl. 14-19.
Vinnustofa Snorra
Alafossvegi 18a, Mosfellsbæ
Þann 16. júlí sl. opnaði Snorri Guðmundsson sýn-
ingu á Listaverki náttúrunnar sem eru höggmyndir
úr hrauni og öðrum náttúrulegum efnum. Hraunið,
sem valió er í hvern grip, er allt út síðasta Heklu-
gosi. Sýningin er opin frá kl. 14-20.
Tjarnarbíó, sími 19181
Sýðasta sýngarhelgi á sýningunni Light Nights. Sýn-
ingarnar hefjast kl. 21-23. Sýningin er gerð til
fræöslu um íslenska menningu, þjóðsögur og vík-
ingatímann. Sýningin fer fram á ensku.
Hótel Búðir
Núna stendur yfir sýning á verkum listamannanna
Arnar Karlssonar, HalldórsÁsgeirssonar og Magnús-
ar Sigurðssonar. Örn sýnir vatnslita- og klippimyndir
í þvottahúsinu, Halldór Ásgeirsson sýnir verk sín á
bryggjunni og Magnús Sigurðsson sýnir nokkur verk
inni á hótelinu. Allar sýningarnar standa yfir i sumar.
Gallerí Slunkaríki
isafirði
Laugardaginn 22. ágúst opnaði myndlistarmaðurinn
Grétar Reynisson sýningu. Á sýningunni eru teikn-
ingar, sumar unnar með blýanti og kaffi á pappir,
en aðrar gerðar með blásaumi, tré, límbandi og oliu.
Sýningin stendur til 13. september.