Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1992, Blaðsíða 4
20 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992. Sýningar Art-Hún Stangarhyl 7, sími 673577 I sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis og sölu olíumálverk, pastelmyndir, grafík og ýms- ir leirmunir. Opið alla daga frá kl. 12-18. Árbæjarsafn Opið um nelgar kl. 10-18. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74, sími 13644 Safn Ásgríms Jónssonar er opið á laugardög- um og sunnudögum kl. 13.30-16.00. Ásmundarsafn Sigtúni, sími 32155 Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt hefur verið tekin I notkun ný við- bygging við Ásmundarsafn. Safnið er opið kl. 10-16 alla daga. Ásmundarsalur v/Freyjugötu Opið alla virka daga frá kl. 10-16. Borð fyrir tvo Borgarkringlunni Nú liður að lokum málverkasýningar Þórdísar Árnadóttur í versluninni Borð fyrirtvo. Sýning- unni lýkur mánudaginn 2. nóvember. Café 17 Laugavegi 17 Þar stendur yfir sýning á verkum Hermínu Benjamínsdóttur og kallar hún sýninguna Frí- stundagaman Hermínu. Hún sýnir klippi- myndir og myndir unnar úr akrýl. Café 17 er opið á verslunartíma. Éldsmiðjan Sesselja Björnsdóttir sýnir olíumálverk á ann- ari og þriðju hæð Eldsmiðjunnar á horni Bragagötu og Freyjugötu. Sýningin stendur til 15. nóvember og er opin kl. 11.30-23.30. FÍM-salurinn v/Garðastræti Guörún Kristjánsdóttir opnar á morgun sýningu á klippimyndum unnum úr pappír. Sýningin stendur til 15. nóvember og er opin daglega kl. 14-18. . Gamla Álafosshúsið Mosfellsbæ I gamla verksmiðjuhúsinu fást myndlistar- menn við myndlist, leirlist og glerlist. Opið alla laugardaga og aðra daga eftir samkomu- lagi. Gallerí Borg v/Austurvöll, s. 24211 Opið alla virka daga frá kl. 14-18. Gallerí 11 Skólavörðustíg 4a Hannes Lárusson sýnir verk sín í Gallerí 11. Sýningin ber yfirskriftina „Aftur Aftur". Öll verkin, sem eru sýnd, eru gerð á þessu eða síðasta ári. Sýningunni lýkur 5. nóvember. Gaíleri 15 Skólavörðustíg 15 Sigurður Örlygsson sýnir 15 verk, unnin með blandaðri tækni á pappír. Sýningin er opin alla virka daga kl. 10-18 og kl. 11 -14 á laugar- dögum. Sýningunni lýkur 31. október. Gallerí Ingólfsstræti Bankastræti 7 Nú stendur yfir sýning á myndum, máluðum á silki, eftir Guðrúnu Arnalds. Einnig eru fjög- ur myndverk, unnin úr bývaxi og litadufti á striga, eftir Jón Sæmundsson. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18. Gallerí List Skipholti, sími 814020 Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn. Opið daglega kl. 10.30-18. Gallerí Port Kolaportinu Opið laugard. kl. 10-16 og sunnud. kl. 11-17. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9, sími 13470 Sæmundur Valdimarsson sýnir verk sín. Hann sýnir skúlptúra úr rekaviði. Sýningin stendur til 6. nóvember. Hafnarborg Strandgötu 34 Ásrún Tryggvadóttir sýnir tréristur. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga kl. 12-18 fram til 1. nóvember. Hótel Lind Friðrik Róbertsson sýnir olíu- og vatnslita- myndir. Opið á opnunartíma veitingasalarins kl. 8-22. Lóuhreiður Laugavegi 59 Um þessar mundir heldur Ijósmyndarinn Jón Páll Vilhelmsson sýningu á svarthvítum lands- lagsmyndum. Sýningin er opin virka daga kl. 9- 18 og laugardaga kl. 10-16. Hún stendur til 14. nóvember. Menningarmiðstöðin Gerðuberg Á morgun verður opnuð sýningin „Orðlist Guðbergs Bergssonar" í Menningarmiðstöð- inni Gerðubergi. Á sýningunni verða sýndar Ljóðmyndir sem eru konkretljóð Guðbergs frá SÚM-árum, teikningar, Ijósmyndasögur, blaðagreinar, kvikmyndir, munir og fleira. I útibúi Borgarbókasafnsins í Gerðubergi verð- ur m.a. bókasýning. Sýningin er opin mánu- daga til fimmtudaga kl. 10-22, föstudaga kl. 10- 16, laugardaga kl. 13-16 og sunnudaga kl. 14-17. Sýningunni lýkur 24. nóvember. Klýhöfn Hafnarstræti 18 Guðmunda Andrésdóttir opnar málverkasýn- ingu á morgun kl. 16—18. Málverkin á sýn- ingunni eru öll unnin meö olíu á þessu og sl. ári. Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 18. nóvember og er opin virka daga nema mánudaga kl. 12-18 og frá kl. 14-18 um helgar. Nýlistasafnið Vatnsstíg 3B Sigurlaug Jóhannesdóttir, Silla, sýnir í Nýlista- safninu. Á sýningunni eru verk úr hrosshári og gleri. Sýningin er í neðri sölum safnsins. Sýningin er opin frá kl. 14-18 alla daga og lýkur 1. nóvember nk. Kjarvalsstaðir Á morgun kl. 16 verða opnaðar þrjár myndlist- arsýningar. I austursal er yfirlitssýning á verk- um Hrólfs Sigurössonar listmálara, í vestursal er sýning á nýjum verkum eftir Eiiík Smith, oiíumálverkum og vatnslitamyndum, og í vest- urforsal opnar ungur myndhöggvari, Thór Barðdal, sýningu á marmara- og granítskúlpt- úrum sem allir voru unnir í Portúgal á þessu ári. Sýningarnar standa til sunnudagsins 15. nóvember. Frá æfingu á Innansveitarkroniku Halldórs Laxness hjá Leikfélagi Mosfellsbæjar. Leikfélag Mosfellsbæjar: Innansveitarkronika Leikfélag Mosfellsbæjar frum- sýndi Innansveitarkroniku Halldórs Laxness í Hlégarði í gær. Önnur sýn- ing verksins verður á laugardag klukkan 21 og þriðja sýning á sunnu- dag klukkan 21. Alls taka 14 leikarar þátt í sýningunni. Leikstjóri verksins er Hörður Torfason. Innansveitarkronika fjall- ar um kirkjustríð í Mosfellsveit fyrir aldamót og ýmsar merkar persónur sem þá voru uppi. Ljósmynda- sýning Ljósmyndarinn Jón Páll Vilhelms- son heldur ljósmyndasýningu á svart-hvítum landslagsmyndum í kafílhúsinu Lóuhreiðrinu, Lauga- vegi 59, á annarri hæð. Myndirnar eru teknar á svart- hvítar filmur sem eru 9 x 12 cm að stærð. Þá eru þær stækkaðar á há- gæðaljósmyndapappír og loks tónað- ar í Seleníum Toner sem eykur dýpt myndanna. Allar myndirnar eru teknar á íslandi á þessu ári. Jón Páll nam ljósmyndun við Brooks Institute of Photography í Kaliforníu um tíma en hefur starfað sjálfstætt sem ljósmyndari síðastlið- ið ár. Sýningin er opin virka daga frá kl. 9-18 og laugardaga frá 10-16. Hún stendur til 14. nóvember. Nýhöfn í Hafnarstræti: Málverkasýning Guðmundu Guðmunda Andrésdóttir opnar málverkasýningu í Nýhöfn, Hafnar- stræti 18, laugardaginn 31. október klukkan 16-18. Málverkin á sýning- unni eru öll unnin með olíu á þessu og síðasthðnu ári. Verk eftir Guðmundu eru á öllum helstu söfnum á íslandi. Auk þess á hún verk í söfnum í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Englandi, Frakklandi og Danmörku. Sýningin í Nýhöfn er sölusýning. Henni lýkur 18. nóvemb- er og er opin virka daga nema mánu- daga frá klukkan 12-18 og frá klukk- an 14-18 um helgar. M-hátíð í Garðinum Samsýning myndhstarmanna úr Garöinum verður haldin í Sæborgu á laugardag og sunnudag. Sýningin verður opin laugardaginn frá 13.00- 20.30 og á sunnudaginn frá 13.00- 20.00. Tónhstaratriði munu verða við opnun sýningarinnar á laugardag- inn. Eftirtaldir hstamenn sýna verk sín: Bragi Einarsson, Þorsteinn Eggerts- son, Sólveig Björk Gránz, Jóhann Jónsson, Þórður Kr. Kristjánsson, Helga Sif Jónsdóttir, Fanney Hauks- dóttir, Marta Markúsdóttir, Svan- hildur Eiríksdóttir, Anna Borg Walt- ersdóttir og Hrafnhildur Sigurðar- dóttir. Máiþing um sögu kristni á Islandi verður í Viðeyjarstofu á laugardaginn Málþing í Viðey: Saga kristni í 1000 ár Málþing um sögu kristni á Islandi verður í Viðeyjarstofu laugardaginn 31. október og hefst klukkan 10. Höf- undar verksins kynna þar rannsókn- ir sínar. Þann 26. mars 1990 samþykkti Al- þingi að minnast þessara tímamóta með því að láta semja ritverk um kristni á íslandi og áhrif hennar á þjóðhf og menningu í þúsund ár. Málþinginu stjóma séra Sigurjón Einarsson, formaður ritstjómar, og séra Þorir Stephensen, staðarhaldari í Viðey. Borgaryfirvöldum og stjórn- endum Viðeyjar er það sérstakt áhugaefni að efla Viðeyjarstofu sem ráðstefnustað um sögu íslands og menningu. Farið verður til málþingsins með Viðeyjarferjunni Maríusúð úr Klettsvör í Sundahöfn klukkan 10 árdegis en þinginu á að ljúka um klukkan 17. Landslagsmyndir Guðrúnar Guðrún Kristjánsdóttir sýnir landslagsmyndir í Norræna húsinu og FÍM-salnum á sýningu sem opnuð verður laugardaginn 31. október. í kjahara Norræna hússins verða myndir unnar í ohu á striga og einn- ig veggmyndir úr stáh. í sýningarsal Félags íslenskra myndlistarmanna við Garðastræti verða khppimyndir unnar úr pappír. Viðfangsefni þess- ara þriggja myndtegunda á báðum stöðum er íslenskt landslag - íslensk- ur sjóndehdarhringur. Guðrún Kristjánsdóttir er fædd í Reykjavík 1950 og stundaði nám við Myndlistarskóla Reykjavíkiu- og síð- an við École des Beaux Arts í Aix-en Provence í Frakklandi. Hún hélt síð- ast einkasýningu í Reykjavík fyrir íjómm ámm en hefur síöan haldið einkasýningar í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi auk samsýninga heima og erlendis. Sýning Guðrúnar verður opnuð í Norræna húsinu klukkan 15 á laug- ardaginn og stendur til sunnudag- isns 15. nóvember. Hún verður opin í Norræna húsinu klukkan 14-19 daglega og í FÍM-salnum 14-18 á hverjum degi. Kvikmyndasýning í Norræna húsinu Sunnudaginn 1. nóvember klukk- an 14 verður sænska myndin Mio min Mio sýnd í Norræna húsinu. Myndin er ætluð eldri börnum og er hún 100 mínútna löng með sænsku tali. Aðgangur er ókeypis. í þessari mynd kynnumst við Bosse sem er 9 ára og býr í Stokkhólmi hjá fósturforeldrum sínum. Lífið er ekki alltaf auðvelt hjá honum og einn dag, þegar hann situr á bekk í garði, kem- ur th hans andi. Andinn var sendur tíl að ná í Bosse og fara með hann th Landsins í fjarska. Sýningar Mokkakaffi v/Skólavörðustíg Þar stendur nú yfk sýning á málverkum af dýrum úr miðbæ Reykjavíkur eftir Huldu Há- kon. Hulda hefur haldið einkasýningar og tek- ið þátt í samsýningum á islandi og erlendis. Sýningin stendur út mánuðinn. Klesstofusafn Neströð, Seltjarnarnesi Nýtt lækningaminjasafn sem sýnir áhöld og tæki sem tengjast sögu læknisfræðinnar á ís- landi. Stofan er opin á sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugardögum frá kl. 12-16. Að- gangseyrir er kr. 200. Norræna húsið Guðrún Kristjánsdóttir opnar sýningu í kjallara hússins á morgun kl. 15. Á sýningunni verða myndir unnar í olíu á striga og einnig vegg- myndir úr stáli. Sýningin stendur til 15. nóv- ember og er opin daglega kl. 14-19. Katel Laugavegi 20b, sími 18610 (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda lista- menn, málverk, grafík og leirmunir. Listasafn ASÍ Erla B. Axelsdóttir sýnir þar málverk. Þetta er sjöunda einkasýning Erlu en hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum hér heima og erlendis. Árið 1989 stofnaði hún ásamt fjórum öðrum listakonum Art-Hún, gallerí og vinnustofur, að Stangarhyl 7. Á sýningunni eru um 40 málverk, öll unnin á sl. 2-3 árum. Sýningin stendur til 1. nóvember nk. og verð- ur opin alla daga frá kl. 14-18. Listasafn Einars Jónssonar Njarðargötu, sími 13797 Opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11-18. Listasafn íslands Þar stendur yfir sýning á verkum eftir Jóhann Eyfells. Á sýningunni er úrval af verkum Jó- hanns frá síðasta áratug og hún er sú stærsta sem haldin hefur verið hér á landi á högg- myndum hans. Sýningin stendur til 22. nóv- ember og er opin alla daga nema mánudaga kl. 12-18. Kaffistofa safnsins er opin á sama tíma. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Laugarnestanga 70 Lokað í októbermánuði. Listinn gallerí - innrömmun Síðumúla 32, sími 679025 Uppsetningar eftir þekkta íslenska málara. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 14-18. Listasafn Háskóla íslands í Odda, sími 26806 Þar er nú á öllum haaðum sýning á nýjum verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl. 14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis. Listmunahúsið, Hafnar- húsinu V/Tryggvagötu Steinunn Þórarinsdóttir sýnir verk sín sem eru flest veggmyndir úr járni, blýi og gleri. Sýning- in er opin kl. 12-18 virka daga, nema mánu- daga og um helgar kl. 14-18. Sýningunni lýkur 8. nóvember. Listhúsið Laugardal Sýningin Fyrsti vetrardagur, sem er samsýning 5 þekktra myndlistarmanna, stendur yfir í sýn- ingarsal Listgallerísins og í aðalanddyri húss- ins. Þeir sem sýna verk sín eru Sverrir Ólafs- son, Þórður Hall, Magdalena Margrét, Val- gerður Hauksdóttir og Þorbjörg Þórðardóttir. Sýningin stendur til 15. nóvember. Verkstæði hússins eru einnig opin á laugardögum. Sjónminjasafn íslands Nú stendur yfir sýning Skipaútgerðar ríkisins. Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Menningarstofnun Bandaríkjanna Laugavegi 26 Collaborations in Monotype II nefnist sýning einþrykksmynda eftir bandaríska grafíklista- menn sem stendur yfir í Menningarstofnun Bandaríkjanna. Sýningin er opin alla virka daga kl. 8.30-17.45 til 1. nóvember. Póst- og símaminjasafnið Austurgötu 11. sími 54321 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15- 18. Aðgangur ókeypis. Safn Ásgrims Jónssonar Bergstaðastræti 74 Sýning á þjóðsagna- og ævintýramyndum eftir Ásgrím í eigu safnsins og Listasafns is- lands. Sýningin stendur til nóvemberloka. Opið um helgar kl. 13.30-16 en einnig er tekið á móti gestum á öðrum tíma sé þess óskað. Stöðlakot Bókhlöðustíg 6 Katrín Didriksen gullsmiður sýnir í Stöðlakoti. Opið daglega kl. 14-18 alla daga nema mánu- daga. Sýningunni lýkur 1. nóvember. Vinnustofa Ríkeyjar Hverfisgötu 59, sími 23218 Þar eru til sýnis og sölu postulínslágmyndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslun- artíma þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Leirverk í Epal Helga Jóhannesdóttir leirlistarkona sýnir leir- verk í Epal. Sýningin er opin alla virka daga á opnunartíma Epal til 6. nóvember. Þjóðminjasafn íslands Opið þriðjudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 12-16. Minjasafnið á Akureyri Aðalstræti 58, sími 24162 Opið daglega kl. 11-17. Vinnustofa Snorra Álafossvegi 18a, Mosfellsbæ 16. júlí sl. opnaði Snorri Guðmundsson sýn- ingu á Listaverki náttúrunnar sem eru högg- myndir úr hrauni og öðrum náttúrulegum efn- um. Hrauniö, sem valið er í hvern grip, er allt út slðasta Heklugosi. Sýningin er opin frá kl. 14-20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.