Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1992, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1992, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992. Kvikmyndir beitt ogformið vinnurgegn myndinni. -GE Tvídrangar *★* Eflaust óskiljanleg fyrif Þá sem sáu ekki þættina en þegar Lynch tekur sér frí frá furðulegheitunum getur hann magnað upp óhuggulega grípandi drama. Sheryl Lee sýnir einn besta leik ungs leikara sem ég man eftir. -IS Háskaleikir *** Spennumyndir eins og þær gerast bestar. Mikill kraftur og mikill hraði, raunsæ þrátt fyrir ýktan endi. Harrison Ford er góður Jack Ryan. -HK Hefndarþorsti *★ Spennumynd um skotglaða félaga sem eltast við glæpahyski. Söguþráðurinn of einfaldur til að myndin nái sér á strik. -ÍS Svo á jöröu sem á himni ★★* Kvikmyndataka, sviðsetning og tónlist er með þvi besta sem gerist I íslenskum kvik- myndum. Álfrún H. Örnólfsdóttir er senu- þjófurinn. -ÍS Steiktir grænir tómatar ***'/2 Stórgóð mynd sem fjallar um mannlegar tilfinningar, vináttu og áhrifamátt frá- sagna. Toppleikur i öllum hlutverkum. -ÍS LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075 Eitraða Ivy ★★ V2 Lítur út fyrir að vera spennumynd en er í raun vitrænt sálfræðilegt drama sem verður spennandi af því að persónurnar eru lifandi. Endirinn er veiki punkturinn en Barrymore sá Ijósasti. -G E Lygakvendið ★★ Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti ekki við því að gugna á endasprettinum. -GE Ferðin til Vesturheims ★★,/2 Rómantísk stórmynd um tvö ungmenni sem leggja land undir fót til að nema land í Vesturheimi. Vel leikin mynd, kvikmynd- un og tónlist frábær, en sagan þunn og margtuggin. -HK REGNBOGINN Sími19000 Sódóma Reykjavík *★ /2 Skemmtileg og bráðfyndinn mynd á köfl- um sem lýsir ferð saklauss pilts í gegnum spillingu og undirheimalíf borgarinnar. Vel kvikmynduð og klippt. Einnig sýnd I Stjörnubíói og Háskólabíói. -HK Hvítir sandar ** Miðlungsspennumynd sem tekur sig full- alvarlega. Útlitið er flott og leikhópurinn í hæsta gæðaflokki en leikstjórinn getur ekki bætt fyrir flókið og fálmkennt hand- rit. -GE Ógnareðli **** Siðlaus ... spennandi.... æsandi.... óbeisluð .... óklippt.... ógeðsleg .... óafsökuð .... glæsileg .... tælandi.... spennandi..., frábært... (Nei, ég fæ ekki prósentur). -GE Lostæti ★★ /2 Skemmtileg framtíðarsýn frá tveimur teiknimyndahöfundum. Myndin er meiri stílæfing en nokkuð annað. -GE Henry ★★* Gálgahúmor og ofbeldi I bland meltist misvel en myndin er vissulega óþægilega raunveruleg og situr eftir lengi. -GE SAGA-BÍÓ Sími 78900 Lygakvendið ★* Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti ekki við því að gugna á endasprettinum. -GE Hvítir geta ekki troðið -k-k'A Bráðskemmtileg mynd fyrir þá sem hafa gaman af körfubolta og hafa áhuga á að kynna sér menningu svartra i fátækra- hverfum Los Angeles. -IS Tveir á toppnum 3 ★★ Útþynntur sóguþráður og slök hasaratriði draga úrgóðum leikurum. Lakasta mynd- inafþremur. -GE STJÖRNUBÍÓ Sími 16500 Ofursveitin *★ Etolph og Van Damme eru báðir daufir en það kemur ekki i veg fyrir hasar og læti. Sagan er glórulaus en góður leik- stjóri og slatti af peningum halda uppi fjöri. -GE Börn náttúrunnar Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng- legt landslag og góður leikur blandast mannlegum söguþræði. _j_j ^ Stöðva KR-ingar sigurgöngu ÍBK? - sjö leikir í úrvalsdeildinni í körfu um helgina Mikið fjör verður í úrvalsdeOdinni í körfuknattleik um helgina en þá fara fram sjö leikir í deildinni. Á föstudagskvöld fara fram tveir leikir í fimmtu umferð, Breiðablik mætir KR í Kópavogi og Njarðvíkingar taka á móti sterku liði Snæfells í Njarð- vík. Báðir leikirnir hefjast kl. átta. Á sunnudag hefst síðan sjötta um- ferð úrvalsdeildar. Búast má við gíf- urlega spennandi leikjum og ekki nokkur leið að spá fyrir um úrsht. Klukkan fjögur leika Skallagrímur og Haukar í Borgarnesi en bæði þessi hð hafa komið mikið á óvart í vetur og eigá þaö sameiginlegt að leika mun betur nú en í fyrra. Harður slagur verður á Suðurnesj- um en þá mætast Grindavík og Breiðablik klukkan átta. Breiðablik er eina hðið í úrvalsdeildinni sem ekki hefur unnið leik. Stórleikur verður á Hlíðarenda en þá mæta Valsmenn Njarðvíkingum. Valsmenn töpuðu síðasta leik sínum gegn Keflvíkingum og Njarðvíkingar mega varla við því að tapa leiknum. KR leikur á heimavehi sínum gegn Keflavík. Keflvíkingar hafa ekki enn tapað leik í úrvalsdeildinni og liðið hefur sýnt mikinn styrk í síðustu leikjum. Loks leika Snæfell og Tindastóll í Stykkishólmi og má þar búast við hörkuleik enda hafa bæði lið sótt í sig veðrið upp á síðkastið. Sjö blakleikir um helgina Fjórir leikir fara,fram um helgina í 1. deild kírla í blaki. Á föstudagskvöld ieika KA- Stjarnan og Þróttur Nes. og ÍS. Á laugardag leika síðan Þróttur Nes. og IS á ný eystra og Þróttur R. og HK. í kvennaflokki eru þrír leikir á dagskrá. Þróttur Nes. og ÍS teika á föstudag og laugardag og Vfkingur leikur gegn HK á laugardag. Körfuleikir í neðri deildum Þrír leikir fara fram i 1. deild karla I körfu um helgina. Reynismenn frá Sandgerði verða á ferð norðan heiða og teika tvo leiki, gegn UIVIF Akureyrar á föstudagskvöldið og Þór á laugardag. Á laugar- dag leika Höttur og ÍS á Egils- stöðum. I 1. deild kvenna eru fjórir leikir á dagskrá. Á föstudags- kvöld leika ÍS og Tindastóll og Njarðvík og Grindavík. Á laugardag leika Keflavík og Tíndastóll og á sunnudag mætast ÍR og KR. Jafnréttis- mót TBR í TBR-húsinu Jafnréttismót TBR I badmin- ton fer fram um helgina í TBR-húsinu. Keppni hefstkl. 14 á laugardag og kl. 10 á sunnudag. Keppt verður í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik í meistaraflokki, a-flokki og b-flokki. Tveir leikir í 2. deild Breiðablik og HKN mætast í 2. deild karla í handknattleik um helgina og sömuleiðis Fylkir og Ögri. Báðir leikirnir hefjast kl. 14. Þetta eru einu handboltaleikirnir hérlendis um helgina. Jonathan Bow hefur leikið vel með Keflvíkingum í vetur. Á sunnudagskvöld mæta Keflvíkingar KR-ingum á Sel- tjarnarnesi. Ferðafélag íslands: Gengið á Keili Sunnudagsferðir Ferðafélagsins verða tvær og hefjast kl. 13. Gengið verður á Keili. Ekið verður að Hösk- uldarvöhum og gengið þaðan á fjalhð sem er með þeim skemmtilegri á Suðvesturlandi. Fyrir þá sem ekki kjósa göngu á fjall er láglendisganga um Tóumar sem eru gróðurvinjar í Afstapahrauni. Brottfór í ferðimar er frá BSÍ, aust- anmegin (stansað er við Mörkina 6). Afmæhsafsláttur er í boði til félags- manna FÍ. Annað myndakvöld vetrarins verður miðvikudaginn 3. nóvember í Sóknarsalnum, Skipholti 50B. Sýndar veröa myndir úr ýmsum Ferðafélagsferðum. Alhr eru vel- komnir bæði í ferðimar og á mynda- kvöldið. Ferðafélag íslands stendur fyrir göngu á Keili á sunnudaginn. Ferðir Útivist: Stefnt á Vífilsfell Á sunnudaginn verður stefnan tekin á Vífilsfell sem er móbergsfjall. Gengið verð- ur á fjallið frá veginum í Jós- efsdal. Vífilsfell er nefnt eftir Vífli, leysingja Ingólfs Arnar- sonar, en Vífill bjó að Vífils- stöðum norðvestan við Vífils- staðavatn. 1 Landnámu segir að þegar Vífill vildi róa hafi hann gengið á Vífilsfell til að gá til veðurs en frá bæ hans var það um 16-18 km leið í beina loftlínu. Brottför er kl. 13 frá BSÍ og má reikna með að gangan taki um 3 klukkustundir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.