Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1992, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1992.
23
Kvikmyndir
draga úrgóðum leikurum. Lakasta mynd-
inafþremur. -GE
HÁSKÓLABÍÓ
Night on Earth ★★,/2
Jarmusch hefur húmor, góða leikara og
snjallt frásagnarform. Myndin skiptist í
fimm misgóða kafla en heildin er
skemmtilegtilbreyting. -GE
Sími 22140
Bob Roberts ★★
Potað aðeins í stjórnmálin vestra í heim-
ildarmyndastíl líkum og í „Spinal Tap”.
Margt fyndið en ádeilan er ekki nógu
beitt og formið vinnur gegn myndinni.
-GE
Tvídrangar ★★★
Eflaust óskiljanleg fyrir þá sem sáu ekki
þættina en þegar Lynch tekur sér frí frá
furðulegheitunum getur hann magnað
upp óhuggulega grípandi drama. Sheryl
Lee sýnir einn besta leik ungs leikara sem
égmaneftir. -GE
Háskaleikir ★★★
Spennumyndir eins og þær gerast bestar.
Mikill kraftur og mikill hraði, raunsæ þrátt
fyrir ýktan endi. Harrison Ford er góður
Jack Ryan.
-HK
Svo á jörðu sem á himni ★★★
Kvikmyndataka, sviðsetning og tónlist er
með því besta sem gerist í íslenskum kvik-
myndum. Álfrún H. Örnólfsdóttir er senu-
þjófurinn. -ÍS
Steiktir grænir
tómatar ★★★,/2
Stórgóð mynd sem fjallar um mannlegar
tilfinningar, vináttu og áhrifamátt frá-
sagna. Toppleikur í öllum hlutverkum.
-ÍS
LAUGARÁSBÍÓ
Sími 32075
Eitraða Ivy ★★ 'A
Lítur út fyrir aö vera spsnnumynd en er
í raun vitrænt sálfræðilegt drama sem
verður spennandi af þvi að persónurnar
eru lifandi. Endirinn er veiki punkturinn
en Barrymore sá Ijósasti. -G E
Lygakvendið ★★
Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti
ekki við því að gugna á endasprettinum.
-GE
REGNBOGINN
Sími 19000
Sódóma Reykjavík ★★ 'A
Skemmtileg og bráðfyndinn mynd á köfl-
um sem lýsir ferð saklauss pilts i gegnum
spillingu og undirheimalíf borgarinnar.
Vel kvikmynduð og klippt. Einnig sýnd i
Háskólabíói. -HK
Ógnareðli ★★★★
Siðlaus.... spennandi.... æsandi....
óbeisluð.... óklippt.... ógeðsleg ....
óafsökuð.... glæsileg .... tælandi....
spennandi..., frábært... (Nei, ég fæ
ekki prósentur).
-GE
Lostæti ★★ 'A
Skemmtileg framtíðarsýn frá tveimur
teiknimyndahöfundum. Myndin er meiri
stílæfing en nokkuð annað.
-GE
Henry ★★★
Gálgahúmor og ofbeldi í bland meltist
misvel en myndin er vissulega óþægilega
raunveruleg og situr eftir lengi.
-GE
SAGA-BÍÓ
Sími 78900
Blóðsugubaninn Buffy -k'A
Góðir sprettir i samtölum og persónu-
sköpun og drepfyndin dauðasena Pauls
Rubens bjarga ekki misheppnaðri sögu.
-GE
Lygakvendið ★★
Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti
ekki við þvi að gugna á endasprettinum.
-GE
STJÖRNUBÍÓ
Sími 16500
Bitur máni ★★★
Mikil sálfræðikönnun á tveimur persón-
um hjá Roman Polanski að þessu sinni.
Áleitinn texti um kynferðislega niðurlæg-
ingu verður magnaður i meðförum Peter
Coyote. Minniráfyrstu myndir Polanskis.
-HK
Ofursveitin ★★
Dolph og Van Damme eru báðir daufir
en það kemur ekki í veg fyrir hasar og
læti. Sagan er glórulaus en góður leik-
stjóri og slatti af peningum halda uppi
fjöri. -GE
Börn náttúrunnar ★★★
Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum
með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur
gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng-
legt landslag og góður leikur blandast
mannlegum söguþræði. _hk
Mikið annríki
hjá körfubolta-
mönnum
- sjö leikir í úrvalsdeildinni fara fram um helgina
Það verður í nógu að snúast hjá
körfuknattleiksmönnum um helgina
og þeir sem áhuga hafa á körfuknatt-
leik hafa úr miklum fjölda leikja að
velja. Sjö leikir eru nefnilega á dag-
skrá úrvalsdeildarinnar um helgina
og þeir tveir fyrstu á fóstudagskvöld.
Þá leika Breiðabhk og Skallagrím-
ur í Digranesi og Njarðvík og KR í
Njarðvík. Blikar eru enn án stiga í
deildinni og verða að fara að vinna
leik. Njarðvíkingar eiga það sam-
merkt með KR-ingum að hafa farið
mjög iila af stað í úrvalsdeildinni og
leikurinn er því mjög mikilvægur
fynr bæði liðin.
Á sunnudag fara fram fimm leikir,
heil umferð. Stórleikur verður í
Borgarnesi en þar taka heimamenn
á móti íslandsmeisturum Keflvík-
inga. Leikurinn hefst kl. 16.00.
Um kvöldið fara fram íjórir leikir.
Nágrannaslagur verður í Grindavík
en þangað mæta Njarðvíkingar og
má búast við hörkuleik. Valur á
heimaleik gegn Haukum og þar er
einnig um stórleik að ræða. Þegar
þetta er ritað eru allar hkur á því að
Valsmenn leiki án síns besta leik-
manns, Magnúsar Matthíassonar, og
vitanlega veikir það Valsmenn mik-
ið. Enn einn stórleikurinn fer fram
á Seltjamarnesi en þar taka KR-
ingar á móti liði Tindastóls. Loks
leika Snæfeh og Breiðablik í Stykkis-
hólmi en reikna má þar með auðveld-
um sigri heimamanna. Ahir leikirnir
íjórir heíjast klukkan átta á sunnu-
dagskvöldið.
Teitur Örlygsson, Njarðvíkingur með knöttinn, verður í sviðsljósinu en Njarð-
víkingar leika gegn KR á föstudagskvöld og verða hreinlega eins og KR-
ingar að vinna þann leik. DV-mynd Brynjar Gauti
Ferðafélag íslands:
Ketilstígur-Krýsuvík
A sunnudag er dagsferð á vegum
Ferðafélags íslands, þjóðleiðin Ketil-
stígur-Krýsuvík. Hún er sú síðasta
af 10 fomum þjóðleiðum sem kynnt-
ar hafa verið þetta árið. Ekið verður
Djúpavatnsleið að Ketilstígnum en
hann hggur yfir Sveiíluháls að
hverasvæðinu við Seltún, Krýsuvík.
Hann er raunar hluti af þjóðleið frá
Hafnarfirði.
Brottfór í ferðirnar er frá Umferð-
amiðstöðinni austanmegin. Stansað
verður meðal annars við Mörkina 6
og kirkjugarðinn í Hafnarfirði. Ahir
era velkomnir að vera með en fólk
er hvatt til aö mæta vel búið og með
nesti.
■ i i II —■ II i
Ferðafélag íslands skipuleggur dagsferð um þjóðleiðina Ketilstígur-Krýsuvík.
Handknattleikur:
FH—Ystad
FH-ingar leíka um helgina
tvo leiki í Evrópukeppni
1 meistaraliða gegn sænska
1 liðinu Ystad. Liðin náðu sam-
komulagi um að báðir leikim-
ir færu fram hór á landi.
Fyrri leikurinn fer fram í
íþróttahúsi Hafnarfjarðar á
laugardag og hefst kl. 17.00.
Síðari leikurinn fer fram á
sama stað á sunnudagskvöld
kl. 20.30. Ástæða er til að
hvetja alla handknattleiks-
unnendur til að fjölmenna í
Fjörðinn og styðja FH-inga
tii sigurs I leikjunum.
Haustmót í
fimleikum
Áhaldamót í fimleikum,
Haustmót FSÍ, fer fram í Ár-
mannshúsinu, Sigtúni, á
sunnudaginn og hefst kl.
11.00 með keppni í kvenna-
flokki en keppninni hjá kon-
unum lýkur um kl. 13.00.
Keppnin í karlaflokki hefst ki.
14.00 á sunnudaginn og lýk-
ur kl. 16.30. Keppt verður í
frjálsum æfingum og er reikn-
að með 40 keppendum á
mótið. Á meðal keppenda
verða islandsmeistararnir í
karla- og kvennaflokki.
Golfmót
innanhúss
Á sunnudaginn heldur
Sævar Karl styrktarmót í
Kringlunni fyrir meistara-
flokksmenn Golfklúbbs
Reykjavikur. Þeir eru á leið í
keppnisferð til Spánar þar
sem þeir munu taka þátt í
Evrópukeppni klúbbliða. All-
ur aðgangseyrir að mótinu
rennurtil ferðarinnar. Keppn-
in hefst kl. 9 og verða leiknar
12 holur. Vegleg verðlaun
verða í boði.
Ferðir
Otívist:
Haustblót í
Bláfjöllum
Árlegt haustblót Útivistar
verður að þessu sinni haldið
í Bláfjöllum. Lagt verður af
stað frá BSÍ, bensínsölu,
klukkan 9 á laugardaginn.
Helgin verður notuð til
göngu og skoðunarferða um
Bláfjallasvæðið. Gist verður í
stórglæsilegum skála skiða-
deildar Breiðabliks þar sem
aðstaða öll er til fyrirmyndar.
Á laugardagskvöldið verður
sameiginleg máltíð og kvöld-
Á sunnudag verður dags-
ferð á vegum Útivistar þar
sem gengið verður með
strönd Hvatfjarðar frá Fossá
um Hvítanes i Hvammsvik.
Þar eru fjölbreyttar minjar og
fjörur. Brottför í þessa ferð
er klukkan 10.30 frá BSf,
bensínsölu.