Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992.
Messur
Arbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Þór Hauksson. Organisti Sigrún Stein-
grímsdóttir. Sunnudagaskóli Árbæjarsafn-
aðar kl. 11 í Ártúnsskóla, Selásskóla og safn-
aðarheimili Árbæjarkirkju. Fyrirbænastund
miðvikudag kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Fundur með fermingarbörn-
um og foreldrum þeirra eftir messu. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Org-
anisti Daníel Jónasson. Barnaguðsþjónusta
í safnaðarheimilinu á sama tíma. Kl. 16. Af-
mælistónleikar kórs Breiöholtskirkju til
styrktar orgelsjóði kirkjunnar. Kl. 20.30.
Samkoma á vegum „Ungs fólks með hlut-
verk". Ræðumaður: Halldóra Ólafsdóttir.
Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu
þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaöakirkja: Barnamessa kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Ingólfur Guðmundsson
messar. Einsöngur Reynir Guðsteinsson og
Viktor Guðlaugsson auk hljóðfæraleikara.
Organisti Guðni Þ. Guðmundsson.
Digranesprestakall: Barnasamkoma í Safn-
aðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11.
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11. Sr.
Þorbergur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkórinn syng-
ur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr.
Jakob Á. Hjálmarsson. Barnastarf í safnað-
arheimilinu á sama tíma. Kirkjubíllinn fer um
vesturbæinn. Síðdegisguðsþjónusta kl.
17.00, Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 14.00.
Sr. Kristinn Hóseasson messar. Organisti
Kjartan Ólafsson. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
Eyrarbakkarkirkja: Messa kl. 14.
Fella- og Hólakirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11 í umsjá Sigfúsar og Guðrúnar. Guðsþjón-
usta kl. 11. Dómprófastur, sr. Guðmundur
Þorsteinsson, vísiterar söfnuðinn og prédik-
ar. Sóknarprestar sr. Guðmundur Karl Ág-
ústsson og sr. Hreinn Hjartarson þjóna fyrir
altari. Organisti Guðný M. Magnúsdóttir.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20.30. Sönghópur-
inn Án skilyrða sér um tónlist. Prestur sr.
Hreinn Hjartarson.
Frikirkjan í Hafnarfiröi: Barnasamkoma kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffiveitingar í
safnaðarheimilinu að lokinni guðsþjónustu.
Einar Eyjólfsson.
Fríkirkjusöfnuöurinn í Reykjavík: Laugar-
dagur. Flautudeildin kl. 14.00 í Safnaðar-
heimilinu. Kl. 15.00. Samverustund eldri
barnanna í Safnaðarheimilinu. Sunnudagur
kl. 11.00. Barnaguðsþjónusta. Kl. 14.00.
Guðsþjónusta, Fermingarskólinn sérstak-
lega boðaður.
Grafarvogssókn: Barna- og fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 í Félagsmiðstöðinni Fjörgyn.
Guðfræðinemarnir Elínborg og Guðmunda
aðstoða. Guðsþjónusta kl. 14 fellur niður
vegna dvalar kirkjukórs og organista í æf-
ingabúðum. Vigfús Þór Árnason.
Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Yngri
börnin niðri og eldri börnin uppi. Mikill
söngur, fræðsla og leikræn tjáning. Messa
kl. 14. Tómas Tómasson veitingamaður
prédikar. Fermingarbörn og foreldrar þeirra
sérstaklega boðin til messunnar. Prestur sr.
Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arinbjarnar-
son.
Grindavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11.
Messa kl. 14. Heimsókn frá Útskálakirkju.
Prestur sr. Hjörtur Magni Jóhannsson. Org-
anisti Ester Ólafsdóttir. Kór Útskálakirkju
syngur. Sóknarprestur.
Hallgrímskirkja: Fræðslusamvera kl. 10.
Gunnar J. Gunnarsson: Trúarbrögð mann-
kyns. Messa kl. 11.00. Altarisganga. Barna-
stund. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Klrkja heyrnarlausra: Messa kl. 14. Barna-
kór Hallgrímskirkju kemur í heimsókn. Sr.
Miyako Þórðarson. Kl. 17. Tónleikar Mót-
ettukór Hallgrímskirkju. Flutt verður ensk
kirkjutónlist fjögurra alda. Stjórnandi Bern-
harður Wilkinson.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10. Sr.
Tómas Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og Suðurhlíð-
ar á undan og eftir messu. Hámessa kl. 14.
Sr. Arngrímur Jónsson.
Hjaliasókn, messusalur Hjallasóknar, Digra-
nesskóla: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Kór Hjallasóknar syngur. Organisti Oddný
Þorsteinsdóttir. Kristján Einar Þorvarðarson.
Kársnesprestakall: Barnastarf í safnaðar-
heimilinu Borgun sunnudag kl. 11. Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Magn-
ús Guðjónsson biskupsritari prédikar og
þjónar fyrir altari. Organisti Stefán R. Gfsla-
son. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Keflavíkurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11.
Munið skólabílinn. Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14. Vænst er þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra.
Kirkjuvogskirkja: Barnastarf laugardag kl.
13 f umsjón Arndísar, Torfhildar og Margrét-
ar.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjal-
ar Lárusson.
Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups.
Messa kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kór Kórskólans
syngur. Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi
eftir messu. Aftansöngur alla virka daga kl.
18.00.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta ki. 11.
Fermingarbörn aðstoða. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Sr. Jón D. Hróbjarts-
son. Barnastarf á sama tíma undir stjórn
Þórarins Björnssonar. Heitt á könnunni eftir
•guðsþjónustu. Messa kl. 14. Bjöllusveitin
leikur. Organisti Ronald Turner. Sr. Jón D.
Hróbjartsson. Fimmtudagur: Kyrrðarstund
kl. 12. Orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu að
stundinni lokinni.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11.00. Munið
kirkjubílinn. Guðsþjónusta kl. 11.00. Athug-
iö breyttan tíma. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Guðmundur óskar ólafsson.
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Halldóra Þor-
varðardóttir og kirkjukórinn frá Fellsmúla
annast guðsþjónustuna.
Seljakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guösþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráösson
prédikar. Kórinn Syngjandi Seljur leiðir
söng. Organisti Jakob Hallgrímsson. Mola-
sopi eftir guðsþjónustuna. Guðsþjónusta í
Seljahlíö laugardag kl. 11. Organisti Reynir
Jónasson. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Organisti
Þóra Guðmundsdóttir. Prestur sr. Solveig
Lára Guömundsdóttir. Barnastarf á sama
tíma í umsjá Eirnýjar, Báru og Erlu.
Stokkseyrarkirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11.
Afhentir verða bikarar fyrir íslandsmót akstursíþróttamanna á síðastliðnu sumri.
Verðlaun veitt fyr-
ir akstursíþróttir
Landssamband íslenskra aksturs-
íþróttafélaga stendur fyrir verð-
launaafhendingu íslandsmeistara í
greininni í félagsheimili aksturs-
íþróttaklúbbanna á laugardaginn.
Félagsheimilið er að Bíldshöfða 14
(bakhús) og húsið opnað klukkan 20
en afhendingin hefst klukkan 22.
Afhentir verða 25 bikarar fyrir ís-
landsmótin á liðnu sumri og látinn
verður af hendi 3T bikarinn. Akst-
ursíþróttamaður ársins verður
krýndur en Karl Gunnlaugsson var
handhafi þess titlls síðasta ár.
Gerðuberg:
Ljóðatónleikar
Ingibjargar
A laugardag klukkan 17 verða aðr-
ir ljóðatónleikar Gerðubergs í vetur.
Þá syngur Ingibjörg Guðjónsdóttir
sópran ljóðasöngva meðal annars
eftír Hjálmar H. Ragnarsson, J. Tur-
ina. L. Bemstein, Ravel og V. Bell-
ini. Meðleikari verður Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari. Tónleik-
amir verða endurteknir á mánudag
klukkan 20.30.
Ingibjörg Guðjónsdóttir lauk burt-
fararprófi frá Tónlistarskóla Garða-
bæjar 1986. Aðeins 19 ára gömul sigr-
aði Ingibjörg í Söngkeppni Sjón-
varpsins og tók þátt í alþjóðlegri
keppni ungra söngvara í Cardiff í
Wales 1985. Framhaldsnám stundaði
Ingibjörg í Bandaríkjimum og lauk
BM-prófi frá Indiana háskóla.
Píanóleikarinn Elena Riu frá Ve-
nesuela.
Tónleikar í Hafnarborg:
Elena Riu frá
Venezuela
Á sunnudag mun Elena Riu, píanó-
leikari frá Venesuela, halda tónleika
í Hafnarborg. Að tónleikunum
standa sendiráð Venesuela á íslandi,
Hafnarborg og Menningarmálastofn-
un Venesuela.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk
eftir suður-amerísk og spænsk tón-
skáld. Elena Riu stímdaði nám í
píanóleik hjá Niel Immelman og síð-
an hjá Joseph Weingarten í Trinity
College of Music. Hún hefur unnið
til fjölda verðlauna og haldið tónleika
víða um heim, meðal annars í Suð-
ur-Ameríku, Frakklandi, á Spáni og
Bretlandi og nú er komið að íslandi.
Chalumeauxklarínettutríóiö og
Margrét Bóasdóttir sópransöng-
kona.
Tónleikar í
Rangár-
þingi
Margrét Bóasdóttir sópransöng-
kona og Chalumeauxtríóið halda
tvenna tónleika í Rangárþingi. Þeir
fyrri verða á sunnudag klukkan 15 í
Oddakirkju og þeir síðari miðviku-
dagskvöldið 18. nóvember klukkan
21 á Breiðabólstað í Fljótshlíð.
Chalumeauxtríóið er skipað klar-
ínettuleikurunum Kjartani Óskars-
syni, Óskari Ingólfssyni og Sigurði
Ingva Snorrasyni. Á efnisskrá tón-
leikanna eru verk eför Graupner,
Bach, Jón Leifs og Mozart.
Málþing um siðferði, menntun og þroska
Á sunnudag gengst Siðfræðistofn-
un Háskóla Islands fyrir málþingi
sem ber yfirskriftina Siðferði,
menntun, þroski. Málþingið, sem
hefst stundvíslega klukkan 13 og
stendur til 17.15, verður haldið 1 Há-
skóla íslands, stofu 101 í Odda.
Á þinginu mun Kristján Kristjáns-
son, lektor við Háskólann á Akm:-
eyri, fjalla um það hvort hægt sé að
kenna dygð. Helga Siguijónsdóttir
námsrágjafi mun fjalla um frelsi og
sjálfstæði unglinga, Hreinn Pálsson,
skólastjóri Heimspekiskólans, og Ól-
afur Proppé, aðstoðarrektor Kenn-
araháskóla Islands, flytja erindi og
Sigurður Júlíus Grétarsson, dósent í
sálfræði, leitar svara við spuming-
unni hvort sálfræði skipti máli fyrir
menntun og þroska. Loks mun Ing-
ólfur Á. Jóhannesson, uppeldis- og
sagnfræðingur, flytja erindi um
framfarir og þroska.
\ 21
Þjóðleikhúsið
Sfmi 11200
Smídaverkstæöiö:
Stræti
laugardag klukkan 20
Stóra sviðið:
Dýrin í Hálsaskógi
laugardag kl. 14.
sunnudag ki. 14.
Hafíð
laugardag kl. 20
Kæra Jelena
föstudag kl. 20
Litla sviðið:
Ríta gengur
menntaveginn
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
sunnudag ki. 20.30
Borgarleikhúsið
Sími 680680
Stóra sviðið:
Dunganon
föstudag kl. 20
Heima hjá ömmu
laugardag kl. 20
Litla sviðið
Platanov
laugardag kl. 17
sunnudag kl. 17
Vanja frændi
föstudag kl. 20
laugardag kl. 20
sunnudag kl. 20
íslenska óperan
Sími 21971
Lucia Di Lammermoor
föstúdag kl. 20
sunnudag kl. 20
Alþýðuleikhúsið
Hræðileg hamingja
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Nemendaleikhúsið
Ciara S
föstudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Leikbrúðuland
Sími 622920
Bannað að hlæja
sunnudag kl. 15.00
Sjóminjasafn-
ið opnað á ný
Sjóminjasafn íslands við Vest-
urgötu 8 í Hafnarfirði verður
opnað á ný um helgina eftir
skipulagsbreytingar. Sjóminja-
safhið er nú deild í Þjóðminja-
safni íslands og nýir starfsmenn
hafa tekið við daglegum rekstri
þess. Þeir eru Bjöm G. Bjömsson,
sem annast rekstur safnsins, og
Jón Allansson, fomleifafræðing-
ur og safnvörður.
Sjóminjasafn íslands tók til
starfa árið 1986 í Brydepakkhúsi,
stóm 130 ára gömlu timburhúsi
í hjarta Hafnarfjarðar, við hliðina
á húsi Bjama riddara og veitinga-
húsinu A. Hansen. Safnið er opið
laugardaga og sunnudaga í vetur
klukkan 14-18 og á öðrum tímum
eftir samkomulagi.
Spoex 20 ára
Samtök psoriasis- og exem-
sjúklinga verða 20 ára um miðjan
þennan mánuð. Af því tilefni efna
samtökin ttí afmælis- og fræðslu-
fundar í Höfða, Hótel Loftleiðum,
laugardaginn 14. nóvemþer
klukkan 13-18.
Fjöldamargt verður á dagskrá
fundarins sem Níels Ámi Lund
stjómar. Kynning verður á starf-
semi Spoex, flutt verður erindi
um Bláa lónið, erindi um lyfiagjöf
og margt fleira.