Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1992, Page 7
FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992. 23 Kvikmyndir HÁSKÓLABÍÓ Sími 22140 Boomerang ★★ 'A Gamanmynd í anda Eddie Murphy sem ristir ekki djúpt. Fer ágætlega af stað en missirflugið I síðari hlutanum. -IS Night on Earth ★★'/2 Jarmusch hefur húmor, góða leikara og snjallt frásagnarform. Myndin skiptist i fimm misgóða kafla en heildin er skemmtileg tilbreyting. -GE Bob Roberts ★★ Potað aðeins I stjórnmálin vestra I heim- ildarmyndastil líkum og í „Spinal Tap". Margt fyndið en ádeilan er ekki nógu beitt og formið vinnur gegn myndinni. -GE Háskaleikir ★★★ Spennumyndir eins og þær gerast bestar. Mikill kraftur og mikill hraði, raunsæ þrátt fyrir ýktan endi. Harrison Ford er góður JackRyan. -HK Svo á jörðu sem á himni ★★★ Kvikmyndataka, sviðsetning og tónlist er með því besta sem gerist i íslenskum kvik- myndum. Álfrún H. Örnólfsdóttirer senu- þjófurinn. -ÍS Steiktir grænir tómatar ★★★ 'A Stórgóð mynd sem fjallar um mannlegar tilfinningar, vináttu og áhrifamátt frá- sagna. Toppleikur I öllum hlutverkum. -is LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075 Tálbeitan ★★/2 Svöl löggumynd frá heitum handritshöf- undi. Sagan er stemningsrík en ekki alltaf þétt. Goldblum stelur senunni frá annars ágætum leikhópi. -GE Eitraða Ivy ★★ /2 Lítur út fyrir að vera spennumynd en er í raun vitrænt sálfræðilegt drama sem verður spennandi af því að persónurnar eru lifandi. Endirinn er veiki punkturinn en Barrymore sá Ijósasti. -G E Lygakvendið ★★ Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti ekki við þvi að gugna á endasprettinum. -GE REGNBOGINN Sími 19000 Leikmaðurinn ★★★'/2 Mikið kvikmyndaverk frá Robert Altman. Eitrað háð á Hollywood og óvenjulegt sakamál gerir það að verkum að það er eitthvað nýtt sem heillar hverja einustu minútu. -HK Sódóma Reykjavík ★★ A Skemmtileg og bráðfyndinn mynd á köfl- um sem lýsir ferð saklauss pilts I gegnum spillingu og undirheimalif borgarinnar. Vel kvikmynduð og klippt. Einnig sýnd í Háskólabiói. -HK Ógnareðli ★★★★ Siðlaus ..., spennandi.... æsandi.... óbeisluð.... óklippt.... ógeðsleg ..., óafsökuð .... glæsileg ... tælandi.... spennandi..., frábært... (Nei, ég fæ ekki prósentur). -GE Lostæti ★★ A Skemmtileg framtíðarsýn frá tveimur teiknimyndahöfundum. Myndin er meiri stilæfingennokkuðannað. -GE Henry ★★★ Gálgahúmor og ofbeldi I bland meltist misvel en myndin er vissulega óþægilega raunveruleg og situreftir lengi. -GE SAGA-BÍÓ Sími 78900 Blade Runner ★★★★ Besta kvikmynd síðustu tíu ára verður enn betri. Myndin hefur ekki elst og brottnám sögumannsins gerir hana grimmari og enn meira seiðandi. Ómissandi tækifæri fyrir aðdáendur og þá sem ekki hafa séð hanaíbíó. -GE Lygakvendið ★★ Nokkuð lunkin gamanmynd sem mátti ekki við því að gugna á endasprettinum. -GE STJÖRNUBÍÓ Sími 16500 Bitur máni ★★★ Mikil sálfræðikönnun á tveimur persón- um hjá Roman Polanski að þessu sinni. Áleitinn texti um kynferðislega niðurlæg- ingu verður magnaður I meðförum Peter Coyote. Minniráfyrstu myndir Polanskis. -HK Ofursveitin ★★ Dolph og Ván Damme eru báðir daufir en það kemur ekki í veg fyrir hasar og læti. Sagan er glórulaus en góður leik- stjóri og slatti af peningum halda uppi fjöri. -GE Börn náttúrunnar ★★★ Enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum með Börn náttúrunnar. Friðrik Þór hefur gert góða kvikmynd þar sem mikilfeng- legt landslag og góður leikur blandast mannlegum söguþræði. _[_| ^ Valsmenn standa í ströngu um helgina - mæta Maistas Klaipeda í tvígang í Evrópukeppni bikarhafa Handboltamenn Vals standa í ströngu um helgina en þá etja þeir kappi við Maistas Klaipeda frá Lithá- en í Evrópukeppni bikarhafa. Vals- menn sömdu við htháíska hðið að báðir leikirnir yrðu leiknir hér á landi. Fyrri viðureignin verður í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 20.30 en sú síðari verður á sama stað á sunnudagskvöldið. f 1. umferð keppninnar slógu Vals- menn norska hðið Stavanger út úr keppni á sannfærandi hátt. Maistas Klaipeda sigraði finnsku bikarmeist- arana BK 49. Þegar andstæðingar Valsmanna eru nánar skoðaðir ættu möguleikar þeirra að teljast nokkrir. Þó verður að hafa í huga að almennt séð er ekki vitað nógu mikið um styrkleika htháíska hðsins nema það að hðið leikur hinn dæmigerða bolta sem loðað hefur við sovéska hand- boltann í gegnum tíðina. Maistas Klaipeda hefur tekið þátt í sovésku deildarkeppninni en aldrei farið í úrsht, oftast lent í sætum fyr- ir neðan sex en 12 hð keppa í deild- inni. Einn leikmaður hðsins hefur leikið með sovéska landshðinu áður en það leið undir lok. Meðalaldur leikmanna hðsins er um 25 ár. Valsmenn hafa mikla reynslu í Evrópukeppni og það á örugglega eftir að reynast hðinu vel í komandi leikjum. Valsmenn hafa sterku hði á að skipa um þessar mundir en þó er skarð fyrir skildi að Jakob Sigurðs- son getur ekki leikið með en á dögun- um sleit hann krossbönd. Það yrði óneitanlega glæsilegur árangur ef Valsmönnum tækist að ‘ komast í 8-liða úrsht keppninnar en um síðustu helgi tryggðu FH-ingar sér sæti í 8-liða úrshtum Evrópu- keppni meistaraliða. íslenskur hand- bolti er í sókn og ef hlutirnir ganga eðliiega eiga Valsmenn að ná tak- marki sínu. -JKS Geir Sveinsson og félagar hans í Valsliðinu mæta Maistas Klaipeda í tvígang um helgina. Geir Sveinsson á að baki yfir 20 Evrópuleiki með Val og spænska liðinu Avidesa. íþróttir Körfubolti: Stórleikurí Njarðvík á sunnudags- kvöld Heil umferð verður í Japis- deildinni í körfuknattleik um heigina. ( kvöld leika Breiða- blik og Valur í Digranesi og Njarðvíkingar mæta Skalla- grími í Njarðvík. Báðir leikirn- ir hefjast klukkan 20. Á morgun, laugardag, leika Haukar gegn Tindastóli i íþróttahúsinu við Strandgötu klukkan 14. Á sunnudag ieíka Skallagrímur og Grindavík í Borgarnesi klukkan 16 og um kvöldið klukkan 20 leika Njarðvíkingar gegn nágrönn- um sínum í Keflavík og KR og Valur leika á Seltjarnar- nesi. Keflvíkingar hafa unnið alla leíkin sína til þessa á mótinu. Toppsíagur f blakinu Toppslagur verður á islands- mótinu í blaki um helgina. HK og ÍS mætast í Digranesi i Kópavogi á sunnudags- kvöldið og hefst viðureignin klukkan 19. Ferðafélag fslands: Tröllafoss - Stardalur Á sunnudag verður farið í tvær dagsferðir á vegum Ferðafélags ís- lands. Önnur ferðin verður að Star- dal og Tröhafossi. Ekið verður að Stardal og gengið þaðan niður með Leirvogsá að Tröhafossi sem er foss í Leirvogsá en móts við Haukafjöll fehur áin niður í djúpt og hrikalegt klettagljúfur sem myndar einstak- lega fahega umgjörð um Tröhafoss. Hin ferðin er ganga á Stardals- hnjúk. Gengið verður frá Stardal upp Kinnargil og þaðan á hnjúkiim, áfram verður haldið um Þríhnúka og Haukafjöll og komið niður hjá Hrafnhólum. í báðum þessum ferð- um er gengið í um 3 klukkustundir. Ferðalangar eru minntir á að vera í hlýjum fatnaði, þægilegum skóm og með nesti. Brottför í ferðimar er frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin, og Mörkinni 6.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.