Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1992, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992. Fréttir Að loknu þingi Alþýðusambands íslands: Alþýðusambandið hef ur aldrei verið veikara - Benedikt Davíðsson, nýkjörinn forseti þess, á mikið verk að vinna Alþýöusamband íslands hefur sennilega aldrei verið veikara en um þessar mundir. Það var talskur tónn i striðsyfirlýsingum verkalýðsforingja á þingi ASÍ f síðustu viku. DV-mynd GVA Á þingi Alþýðusambands íslands, sem haldið var á Akureyri í síöustu viku, komu í ljós mikiir veikleikar þessa fjölmenna og sterka þjóðfélags- afls sem ASÍ getur verið. Það er ekki bara að foringjakreppa hafi komið skýrt í Ijós heldur virðist sá kraftur, sem eitt sinn var í fulltrúum verka- fólks, vera horfinn. Það sást best á fyrsta degi þingsins. Þá um morgun- inn fréttu menn af efnahagsaögerð- um ríkisstjómarinnar. Fyrstu viö- brögðin voru lömun. Allan mánu- daginn var sem þingfulltrúar mættu vart mæla. Deyfð og dnmgi hvíldi yfir öllu. Enginn hinna 500 fulltrúa virtist hafa þann kraft, eða þá for- ingjahæfileika til að bera, að rífa þingheim upp úr drunganum. Næstu daga einkenndust viöbrögð manna af reiði. Kraftinn vantaði og enginn tók af skarið. „Þetta er daufasta og leiðinlegasta Alþýðusambandsþing sem ég hef set- ið,“ sagði Guðmundur J., formaður Dagsbrúnar, en hann hefur setið öll Alþýðusambandsþing síðan 1950. Fleiri af eldri kynslóöinni tóku undir meö Guðmundi. Hvað er að? Sú spuming, sem vaknar eftir að hafa orðið vitni að þessari deyfð, er hvað sé að hjá verkalýðsfélögunum. Hvers vegna þessi deyfð? Svarið er ef til vill ekki augljóst. Þó er tvennt sem hggur í augum uppi. Þaö fer ekkert á milli mála að það munstur samningageröar, sem verið hefur ríkjandi síðustu sex til átta árin, á stærsta sök á þessu. Alveg frá 1986 hafa kjarasamningar snúist um ahs konar félagsmálapakka og síðan 1990 um þjóðarsáttarsamninga. Örfá- ir toppmenn Alþýöusambandsins hafa séö um þetta aht og samið fyrir öh félögin í landinu. Félögin sjálf hafa þar hvergi nærri komið. For- ystumenn þeirra hafa varpað öUu yfir á Ásmund Stefánsson, fyrrver- andi forseta, og nokkra forystumenn sambandsins. Síðan hafa félögin ekki gert annað en samþykkja aUt sem að þeim er rétt að loknum samning- um. Vegna þessa hefur aUt starf félag- anna sjálfra legið niðri aö kalla má þennan tíma. Félagamir hafa ekki verið virkjaðir til eins eða neins. Þeir hafa vanist á að toppamir í ASÍ sjái um aUt, geri aUt fyrir þá. Yngra fóUdð í stjómum og ráðum verka- lýðsfélaganna þekkir ekki önnur vinnubrögð en þessi. Lítil endurnýjun Hitt atriðið, sem veldur deyíð inn- an verkalýðshreyfingarinnar, er UtU endumýjun í toppforystunni. Þótt Fréttaljós: Sigurdór Sigurdórsson það hafi átt að vera gamanmál var ákveðinn broddur í því, sem menn sögðu að^oknu miðstjómarkjöri, að næsta þiiíg ASÍ yrði haldið að Hrafn- istu. Vegna þessa hefur ekkert nýtt, enginn ferskleiki, komið inn í æðstu forystu hreyfingarinnar. Stjóm- málaflokkamir ráða öUu innan hreyfingarinnar þegar tíl kastanna kemur. Þeir kosta kapps um að halda gömlu þægUegu foringjunum við völd. Yfir þessu kvörtuðu fjölmargir þingfuUtrúar við undirritaðan á þinginu. Samt sem áður gerðu menn ekkert í þessu. Allir kusu eins og flokkamir sögðu þeim að gera þegar tíl alvömnnar kom. Atgervisflótti Þaö er einnig ljóst að ákveöinn at- gervisflótti hefur átt sér stað úr verkalýðshreyfingunni á síðustu áratugum. Þar er ekki sama mannval og var. Flestir eiga núorðið kost á langskólanámi. Þeir sem hafa áhuga hafa farið í nám og koma ekki inn í verkalýðshreyfinguna. Eftir situr þar fólk sem annaðhvort nennir ekki að læra eða getur það ekki. Vissulega em nokkrir mjög hæfir foringjar enn til innan verkalýðs- samtakanna. Og það er gleðiefni fyr- ir samtökin að nokkrir mjög hæfir ungir em að koma upp. Þá skortir enn reynslu. Eða eins og Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sagði í viðtaU í DV. Það verður enginn skortur á forsetaefnum á næsta þingi, vandinn verður að velja úr hópi hæfra manna. Þetta er rétt. Hins vegar er hér um fáa menn að ræða. Það er aftur á móti skortur á foringjum í hinum almennu verkalýðsfélögum vítt og breitt um landið. Blásið í lúðra Það vantaði ekki að harðorð kjara- málaályktun væri samþykkt á þing- inu. Ýmsir foringjar töluðu digur- barkalega og boðuöu stríð tíl að svara árásum ríkisstjómarinnar á kjörin. Menn vom beðnir að nota tímann vel fram tíl 1. mars að samningar eru lausir. Hefla þegar í stað undirbún- ing að fundahöldum um aUt land eft- ir áramót. Móta kröfur og leggja til orrustu 1. mars. Einhvern veginn fannst mér falsk- ur tónn í þessum hvatningarhrópum. Eins og blómi Alþýöusambands ís- lands talaði á þinginu í síðustu viku hef ég ekki trú á að tíl neinnar orr- ustu komi. Stríðstónninn var ekki hreinn. Ég hef þá trú að einhvers konar sáttaleið veröi farin. Ekki þjóðarsáttarleið en einhver útfærsla á henni. Ég hef ekki trú á því, eftir að hafa setiö síðasta ASÍ-þing, að afli verkalýðssamtakanna veröi breytt. Klofningur Hættan á aö Alþýðusambandið klofni er fyrir hemU. Það áttu sér stað mikU mistök við miðstjómar- kjör. Þau mistök em stjómmála- flokkunum aö kenna. Þeir þurftu hver og einn að fá sinn kvóta. Þegar upp var staöið frá að útfylla kvótann höfðu nokkrir gamhr fulltrúar neit- að að hætta í miðstjóm og víkja fyrir yngra fólki. Útkoman varð sú að stórt kjördæmi eins og Vestfirðir fékk eng- an fuUtrúa í miðstjómina og Norður- land eystra aðeins einn mann. Kosið var um 18 manns. Auðvitað var megn óánægja meðal fuUtrúa úr þessum kjördæmum með niðurstöðuna. Þeir kalla nú ASÍ Alþýðusamband suð- vesturhomsins. Menn höfðu orð á úrsögn, hvort sem nú af þvi verður eða ekki. Niðurstaða mín af þessu þingi er sú að Alþýðusambandið hafi aldrei verið veikara en nú. Hvort hinni gömlu kempu, Benedikt Davíðssyni, tekst að hífa sambandið upp tfi fyrri vegs og virðingar og virkja það afl, sem í þessu 75 þúsund manna sam- bandi býr, skal ósagt látið. Svo mikið er víst að hann kann þaö og getur, ef það er ekki bara orðið of seint. í dag mælir Dagfari____________________ Framsókn lærir af Kvennalistanum Framsóknarmenn vom í hálfgeröri tilvistarkreppu á flokksþingi sínu um helgina. Þeir vissu eiginlega ekkert hvemig taka ætti á stærsta póUtíska viðfangsefni dagsins, að- Ud íslands að Evrópska efnahags- svæðinu, EES. Formaður flokksins, Steingrímur Hermannsson, hefur nýverið skip- aö sér fremst í fylkingu andstæð- inga þessa samnings sem var þó að mestu leyti frágenginn þegar hann var sjáífur forsætisráðherra landsins. Hann hafði samiö drög að ályktun flokksþingsins þar sem aðUdinni var afdráttarlaust hafnað þar sem hún bryti í bága við ís- lensku sflómarskrána. Varaformaður Steingríms, HaU- dór Ásgrímsson, hafði hins vegar samið aðra ályktun fyrir þingið. Þar vom tíundaðir margir kostir þess að gerast aðiU að Evrópska efnahagssvæðinu. Þessum viöhorf- um fylgdi HaUdór svo eftir með ít- arlegri ræðu á sjálfu þinginu. Fór ekki fram hjá neinum að HaUdór er fylgjandi þeim samningum sem EFTA-ríkin hafa náö við Evrópu- bandalagiö. Varaformaðurinn hefur sem sagt ekki fylgt formanni sínum í að skipta um skoðun bara vegna þess að hann er kominn í sflórnarand- stöðu, enda er HaUdór sem kunn- ugt er hinn eini sanni, óbifanlegi klettur Framsóknarflokksins. Það var því úr vöndu að ráða fyr- ir framsóknarmenn á flokksþing- inu. Formaðurinn á móti, vara- formaðurinn með og báðir með eit- ilharða stuðningsmenn á þinginu. Steingrimur hafði tíl dæmis Bjama Einarsson Samstöðuforingja og byggðasflóra í farteskinu. Almennum fundum á flokksþing- inu var sjónvarpað beint. Þess vegna voru aUar deUur færðar aö flaldabaki. Slegist var á lokuðum nefndafundum og það svo um mim- aöi. Þung orð féUu á báða bóga og ekkert gefiö eftir. Það stefndi því í meiri háttar uppgjör á sjálfu þing- inu. En þá varð reynsluheimur kvenna framsóknarmönnum tíl sáluhjálpar. Skammt er síðan kvennaUsta- konur stóðu í nákvæmlega sömu sporum. Þar logaði aUt í deUum um aöUdina að Evrópska efhahags- svæðinu eftir að Ingibjörg Sólrún frelsaðist. Á landsþingi, sem haldið var á Laugarvatni, ákváðu konum- ar að hafa enga sameiginlega stefnu í þessu stórmáU. Hver þing- kona yrði bara að dansa eftir sínu höfði. Framsóknarmenn fengu þessa sniUdarlausn kvennanna að láni. Flokksþingið ályktaöi eitthvað í þá vem að kannski og ef til vUl væri samningurinn um EES í andstöðu við sflómarskrá lýöveldisins. Það væri þó aUs ekki víst. Eftir flokksþingið segjast þing- menn Framsóknarflokksins hafa alveg frjálsar hendur um hvemig þeir greiði atkvæði á Alþingi um aðUdina að EES. Sumir hyggjast vera á móti. Aðrir ætla að sifla hjá. Og kannski veröa fáeinir með samningnum. Alveg eins og hjá Kvennó. Meginviðfangsefni Framsóknar- þingsins var þannig að ákveða að hafa enga sameiginlega stefnu varðandi Evrópska efnahagssvæö- ið. Og allir vom ánægðir meö þessa niðurstöðu, enda er hún í besta já já og nei nei stU flokksins. Ekki síst flokksformaðurinn sem taldi sig hafa unnið mikinn sigur. Hitt stórmáUð á flokksþinginu var kosning varagjaldkera. Þing- fuUtrúar vissu fyrirfram að ekki mátti hrófla viö neinum í alvöru- forystu flokksins. Slík ókurteisi er nánast óþekkt í Framsóknar- flokknum að skipta um foringja fyrr en hann hefur sjálfur ákveðiö að draga sig í hlé og vahð sér erfða- prins. Margir hvísluðu aö vísu sín á milU aö Steingrímur ætti nú að fara aö hætta en af því verður ekki í bráð. Hann telur sig enn ómiss- andi fyrir flokkinn og þjóðina. Þess í stað fengu þingfuUtrúar að berjast um stöðu varagjaldkera flokksins. Tekist var á um fram- bjóðendur til þessa merka embætt- is af mikiUi grimmd, ekki síst með- al kvennablóma flokksins. Haldnir vom margir og strangir fundir og plottað í hverju horni dag eftir dag. Það sérkemúlega er að hér vom blessaðar konumar ekki að beijast við vondu karlrembusvínin. Nei, þær tókust á innbyrðis af fullri hörku. Sem sýnir auðvitað að í póUtíkinni em konur konum verst- ar. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.