Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1992, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1992, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 1992. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11. 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Evrópuhagnaður okkar Fiskveiöisamningur íslands og Evrópusamfélagsins var staðfestur fyrir helgina. Þessi samningur er fram- bærilegur og veldur því, að nú er loksins óhikað hægt að fullyrða, að þátttaka íslands í Evrópska efnahags- svæðinu muni verða okkur gott tækifæri til framfara. Samningurinn ber greinileg merki orðaskaks, þar sem lagakrókamenn íslands hafa greinilega haft í fullu tré við starfsbræður sína hjá Evrópusamfélaginu. Hann felur meðal annars í sér ýmsa fyrirvara á, að evrópsk skip fái 3.000 tonna karfaveiði á íslandsmiðum. Islendingar geta haft gott eftirht með framkvæmd fiskveiðisamningsins. Við getum haft eftirlitsmenn um borð í skipunum á kostnað útgerðanna. Skipin geta ekki komið með afla frá öðrum miðum til veiða í fisk- veiðilögsögunni án þess að landa honum á íslandi. Þótt ekki hafi aíiar íslenzkar kröfur náð fram að ganga í þessum samningi, er hann miklu nær þeim kröf- um en hinum evrópsku. Hann kemur á varanlegum friði um nánast engin fiskveiðiréttindi af hálfu Evrópu í kjöl- far aðildar okkar að Evrópska efnahagssvæðinu. Að öllu samanlögðu mun aðildin færa okkur hag- sæld. Hún flytur með sér mikið af kostum Evrópusamfé- lagsins og lítiö af göllunum. Enda fjallar samningurinn um Evrópska efiiahagssvæðið mest um viðskipti og efnahag, en Evrópusamfélagið snýst um margt fleira. Við þurfum ekki að taka þátt í rándýrri landbúnaðar- stefnu Evrópusamfélagsins, enda eigum við fullt í fangi með okkar eigin. Við þurfum ekki að greiða skatta í digra sjóði Evrópusamfélagsins. Við þurfum ekki að hlíta sameiginlegri utanríkis- og vamarstefnu. Við munum njóta lækkunar á tollum á ýmsum fiskaf- urðum okkar, einkum saltfiski. Við munum líka njóta þess sem neytendur, að við lækkum tolla og leyfum innflutning á ýmsum vörum, sem munu verða til að lækka vöruverð hér á landi og bæta lífskjör fólks. Ekki er fráleitt að telja, að þátttakan í Evrópska efna- hagssvæðinu muni bæta þjóðarhag um 5%. Það kemur sér vel í aðvífandi kreppu, sem stafar annars vegar af ofveiði og aflaleysi og hins vegar af offjárfestingu í sjáv- arútvegi, landbúnaði og gæluverkefnum hins opinbera. Flestar eða allar aðrar þjóðir Fríverzlunarsamtak- anna munu ekki nema staðar við efnahagslegan ávinn- ing af Evrópska efnahagssvæðinu. Ráðamenn þeirra líta á svæðið sem biðstofu hreinnar aðildar að Evrópusamfé- laginu og hafa formlega sótt um hana. Eftir nokkur ár verður ísland líklega eina ríkið, sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið nær til. Önnur ríki Fríverzlunarsamtakanna verða gengin í Evrópusamfélagið. Þar með breytist fiölþjóðasamning- urinn formlega eða óformlega í tvíhhða samning okkar. Félagar okkar í Fríverzlunarsamtökunum munu ekki hafa mikinn áþreifanlegan ávinning af fullri aðild. Framleiðni kann að aukast vegna harðari samkeppni. En þau þurfa að greiða miklar fúlgur í sameiginlega sjóði, sem að mestu verða notaðir sunnar í álfunni. Finnar, Norðmenn og Svíar munu ekki græða pen- inga á að ganga í Evrópusamfélagið. Eins og hjá okkur kemur gróði þeirra að mestu fram í Evrópska efnahags- svæðinu. Með fullri aðild eru þessi ríki hins vegar að reyna að seilast til póhtískra áhrifa í Evrópu. Senn mun Alþingi samþykkja Evrópska efnahags- svæðið. Þá má hefja í alvöru umræður um, hvort rétt sé að stíga skrefinu lengra eins og nágrannar okkar. Jónas Kristjánsson í „dauðans alvöru" Alvarlegir atburðir liðinna vikna hafa orkað afar sterkt á hug manns. í fyrsta lagi verður manni hugsað til baka til bjórumræðunnar frægu þegar hver bruggverksmiðjan af annarri er uppgötvuð og þegar smyglmálin hafa verið aö koma upp á hðnum árum í engu minni mæh en áöur. Allt upp í æðstu stöður Það er von aö manni veröi til þessa hugsað nú þegar brugg hefur aldrei blómstraö betur enda nú far- ið aö finna önnur „úrræði" til að stemma þar við stigu, þ.e. að lækka verð á áfengi svo að freistingin verði ekki eins yfirþyrmandi. Það er von að manni blöskri vit- leysan þegar hún svo úr hófi geng- ur. Annað alvöruefni ekki síður ugg- vænlegt varðar notkun ólöglegra vímuefna og um leið það hversu iha gengur ahtof mörgum aö átta sig á samhengi þeirrar neyslu og hinnar löglegu. Þó hggur þaö fuh- sannaö fyrir aö langt yfir 90% þeirra sem ólöglegra vímuefna neyta hafa byrjaö á áfenginu sem svo á einhveiju stigi hefir leitt hitt af sér. Og af hverju? Af þvi að svo fjöl- margir vhja í friði neyta sinna lög- legu vímugjafa án þess að þurfa að hugsa út í afleiðingar þess fyrir aðra og eins til að mega setja sig á háan hest og hneykslast á þessum óþjóðalýð sem ólöglegu efnanna neytir, nýtandi gömlu farisearétt- lætinguna um að þakka það að það sé nú ekki eins og annaö fólk í upphafinni áfengisdýrkun sinni. Á þessu hefur borið aht upp í æðstu stöður þjóðfélagsins þar sem menn hafa gjaman bariö bumbur og haft hátt um einarða baráttu sína gegn hinum ólöglegu vímuefnum en mætt svo í næstu opinberu veisl- una drekkandi ótæphega eins og þar er siður, haldandi glasi hátt á loft th fyrirmyndar sjáifsagt þeim sem falla í gryfju þess ólöglega. sem almennur hlustandi, lesandi og heyrandi skynjar í gegnum ahan fjölmiðlavaðalinn. Stundum gengur það svo langt að maður gæti haldið að lögreglan væri sú seka, hana þyrfö að taka á beiniö varðandi meðferð mála en ekki þá sem sannarlega eru í sök- inni - og þaö svo alvarlegri sök að auki. Er „frelsis“umræðan á liðnum árum virkhega orðin svo ærandi í ýmissa vitund að jafnvel lögbrot eigi að vera fijáls og sá sem skiptir sér þar af í raun hinn ihi skúrkur sem ekki á að vera að leggja bönd á einstaklingsfrelsið th athafna? Þarna ghda gróðalögmáhn yfir- þyrmandi og allt er leyfhegt þegar það iögmál er annars vegar eða svo sýnist manni fijálshyggjukenning- in óspart ýta að fólki. Er sú brengl- „Stundum gengur það svo langt að maður gæti haldið að lögreglan væri sú seka, hana þyrfti að taka á beinið varðandi meðferð mála en ekki þá sem sannarlega eru í sökinni - og það svo alvarlegri sök að auki.“ KjaUarínn Helgi Seljan form. Landssambandsins gegn áfengisbölinu Undarleg blæbrigði Hræsnin ríður ekki við einteym- ing. Og í beinu framhaldi af þessu öhu hefur áleitin orðiö spumingin um allt þetta ógæfufólk sem kann ekki að fóta sig á vímusvelhnu og ekki síður hina sem beinlínis vhja á ógæfu annarra græða - sölumenn dauðans munu þeir kahaðir og aö vonum. Vaxandi nofkun ólöglegra vímuefna og sterkari efna einnig er orðin uggvænleg staðreynd í samfélaginu. Þar er glöggt aö vak- andi þjóðarvitund ásamt aðhaldi og efhrhti geta ein megnaö að spoma nokkuð 1 mót. Undarleg em oft þau blæbrigði málsmeðferðar aöa hugsun farin að taka sér ból- stað hjá fólki jafnvel þegar slík dauðans alvara er á ferðum? Ég hlusta stundum hljóður á umfjöhun mála, m.a. nú upp á síð- kasöö, og spyr sjálfan mig shkra spuminga því mér ofbýður ef öhu er svo á haus snúið. Vel geri ég mér grein fyrir því að sá sem bæði neyör og selur er ekki með réöu ráöi og auðvitað geta ýmis hhðar- áhrif komið alvarlega inn í mynd- ina. Hins vegar er það oröin hræði- leg staða ef ekki á að vera unnt að taka á alvarlegustu lögbrotum að- eins af ýmsum shkum ástæðum. Helgi Seljan Styttri kjallaragreinar Kjaharagreinar í DV verða frá og með morgun- um. Þetta mundu vera um 50 línur á handritsblaði deginum, 2. desember, styttri en veriö hefur. ef 10 orö em að meðaltah í hverri línu. Texö kjaharagreina í blaðinu verður ekki lengri DV áskhur sér réö th að stytta aösendar kjahara- en 30 dálksenömetrar sem samsvarar um 3000 greinar niöur í þessa lengd. slögum (stafir plús bh milh orða) eða um 500 orð-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.