Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1992, Page 40
F R ÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00
Frjálst,óháÖ dagblað
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1992.
Sighvatur Björgvinsson:
Lækkar lyfja-
álagningu um
~ 17-20 prósent
„Ég reikna með að staðfesta tillög-
una sem gerð var um lækkun heild-
söluálagningar á lyfjum. Lækkunin
er á bilinu 17 til 20 prósent. Þetta er
hið besta mál,“ sagði Sighvatur
Björgvinsson heilbrigðisráðherra í
samtali við DV í morgun.
Sighvatur tekur formlega ákvörð-
un í dag um lækkunina. Ágreiningur
varð á dögunum í lyfjaverðlagsnefnd
um heiidsöluálagningu á lyf og fer
ráðherra því með úrskurðarvald.
Álagningin hefur að sögn Sighvats
verið um 20 prósent en lækkar um 4
til 5 prósentustig. Sparnaður ríkis-
.—-sjóðs viö þetta er á annað hundrað
milljónir og sparnaður neytenda
skiptir tugum milljóna. Samkvæmt
fjárlagafrumvarpi í haust stefndi
lyfjakostnaður ríkissjóös á næsta ári
í 2,5 milljarða.
Að sögn Jóns Bjömssonar, for-
manns Apótekarafélags íslands,
mun þessi ákvörðun leiða til mun
verri afkomu minnstu apótekanna
sem nú þegar séu rekin með tapi. Þol
þessara apótekara sé nú reynt til
hins ýtrasta. Jón segir líklegt aö
heildsalar þrengi verulega þau kjör
—'sem apótekurum hafi boðist og muni
það auka enn á vanda minnstu apó-
tekanna. -kaa
Leitaðaðmanni
á fólksbil
Björgunarsveitir á Djúpavogi og
Breiödalsvík leita nú að manni á
fólksbíl sem lagði af stað frá Stöðvar-
firði áleiðis til Reykjavíkur skömmu
fyrir miðnætti í gær í aftakaveðri.
Maðurinn ætlaði að gera vart við sig
á Djúpavogi en kom ekki fram þar.
Blindbylur og mjög hvöss norðanátt
r eráþessumslóðum. -ból
iM------------------------
Kvennaathvarf
í nýtt húsnæði
„Hér verður aðstaða fyrir tvöfalt
fleiri konur en á gamla staðnum og
aðstaðan fyrir börnin batnar,“ segir
Jenný Anna Baldursdóttir, starfs-
kona Kvennaathvarfsins, en það
flutti í stærra húsnæði í gær.
Húsið var keypt fyrir söfnunarfé
sem Kvennaathvarfinu barst í lands-
söfnun í októberbyrjun. Samtals
söfnuðust hátt á annan tug milljóna.
„Það fóru reyndar að berast rausn-
arlegar gjafir til okkar strax í sumar
-j<frá einstakhngum og samtökum um
leið og fréttist af fyrirhugaðri söfn-
un,“segir Jenný. -IBS
Kona brotin á læri
og handlegg
Starfsmaður einnar geðdeildar sjúklingur, karlmaður, á þeim stað sín. Þetta hafa starfsmenn rætt eft- svo vanmannað hjá okkur, fólki er
Landspítalans, kona um sextugt, á deildinni þar sem atburðurinn ir að atvikið kom upp, ekki sist i ekkigreittalmennilegtkaupogþað
Mggur á sjúkrahúsi í Reykjavík eft- átti sér stað á mánudag. Sjónar- ljósi þess að fólk telur sig ekki vera fæst ekki heimild til að ráða það
ir aðhafalærbrotnaðoghandleggs- vottar voru því ekki fyrir hendi en nægilega vel tryggt gagnvart svona fólk sem þarf. Ríkið er með allt í
brotnað þegar sjúkhngur réðst að hjálpmunhafaboristnokkuðfljót- atburðum þar sem sjúkhngar, sem sjálftryggingu eða hjá sjálfu sér,
henni á mánudag. Konan þurfti að lega til konunnar og hún var flutt eiga við geðræn vandamál að það eru ein vandræðin við að vera
fara í aðgerð eftir árásina. Hér er á sjúkrahús. Konan hefur ianga stríða, eru annars vegar. opinber starfsmaður, Það er alveg
um að ræða eitt alvarlegasta slys reynslu af störfum á geðdeild. „Fólk getur veriðþað veiktað það sama hvort fóik slasast á spítulun-
eða árás sem átt hefur sér stað á Mál þetta hefur velt upp þeirri veit ekki hvað það gerir eða hefur um eða hjá lögreglunni, það er
geðdeild á síðari árum. spurningu hvort það geti átt sér ekki stjórn á reiði sínni," sagði óendanlegt stríð sem fólk lendir í.
Samkvæmt heimildum DV voru stað að fækkun starfsmanna í heil- háttsettur starfsmaður Landspítal- Þetta er alveg óþolandi."
ekki aðrir en konan og umræddur brigðiskerfmu sé farin að segja til ans í samtali við DV. „Það er oft -ÓTT
Hér er verið að leggja síðustu hönd á eldhúsinnréttingu í nýju húsnæði Kvennaathvarfsins. Svölurnar, félag Flug-
freyja, gaf eldhúsinnréttinguna. DV-mynd GVA
Einbúi varð úti
Einbúi á sjötugsaldri varð úti
skammt frá bæ sínum Saurum á
vestanverðum Skaga í óveðrinu sem
gekk yfir Norðurland fyrr í vikunni.
Maðurinn, Benedikt Guðmunds-
son, 66 ára, fannst um hádegisbilið í
gær um 100 metra frá bænum. Talið
er að hann hafi ætlað að vitja kinda
sem voru í útihúsi skammt frá en
hrakið af leið í illviðrinu.
Farið var að óttast um manninn á
miðvikudaginn en þá höfðu nágrann-
arnir ekki séð til hans frá því á laug-
ardagsmorgni.
Um 30-A0 björgunar- og hjálpar-
sveitamenn á Blönduósi og Hvamms-
tanga hófu leit á miðvikudagskvöld
þegar veðurhamurinn fór að ganga
niður og héldu leit áfram í gærmorg-
unþartilmaðurinnfannst. -ból
Eldur í Rauðum sófa
Laust eftir miðnætti í gær var til-
kynnt um lausan eld í veitingahús-
inu Rauða sófanum við Hlemm.
Leigubílstjórar á bílastæði fyrir
neðan húsið sáu eld inn um glugga
og hringdu á slökkviliðið. Þegar það
kom á vettvang logaði glatt í af-
greiðsluborði og þurfti að brjóta sér
leið inn. Tveir reykkafarar fóru inn
og réðu niðurlögum eldsins.
Svo virðist sem eldurinn hafl kom-
ið upp í ruslakörfu undir afgreiðslu-
borðinu. Eldtungurnar höfðu brætt
í sundur vatnsslöngu sem lá að gos-
vél rétt hjá ruslafotunni og hafði
vatnið sem þar lak niður eitthvað
náðaðslááeldinn. -ból
LOKI
Úttekt Háskólanssýnir
ríkinu nýja sparnaðarleið:
að deila út sígarettum!
Veðriö á morgun:
Minnkandi
norðvest-
anátt
Á hádegi á morgun verður
minnkandi norðvestanátt um
landið austanvert en snýst síðan
í fremur hæga sunnan eða breyti-
lega átt. Stöku él norðaustan-
lands í fyrstu en annars bjart
veður og þurrt.
Veðrið í dag er á bls. 44
ÖRYGGI - FAGMENNSKA