Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, sími 673577
( sýningarsal og vinnustofum eru
til sýnis og sölu olíumálverk, pa-
stelmyndir, grafík og ýmsir leir-
munir. Opið er alla daga frá kl.
12-18.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber
yfirskriftina Bókmenntirnar í list
Ásmundar Sveinssonar. Jafnframt
hefur verið tekin í notkun ný við-
bygging við Ásmundarsafn. Safn-
ið er opið kl. 10-16 alla daga.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
Þessa dagana stendur yfir sýning
á lokaverkefnum nýútskrifaðra
arkitekta. Sýning þessi er árlegur
atburður og tilgangurinn með
henni er að gefa ungum arkitekt-
um kost á að kynna sig og hæfi-
leika sína fyrir kollegum sínum og
almenningi. Að þessu sinni sýna
6 arkitektar sem lært hafa í Dan-
mörku, Noregi, Englandi og
Bandaríkjunum. Sýningin er opin
daglega kl. 9-16 og um helgar kl.
13-17. Sýningin stendur til 17.
janúar.
Fold, listmunasala
Austurstræti 3
Opið er í Fold alla daga frá kl.
11-18.
Gallerí Borg
v/Austurvöll, s. 24211
Opiðallavirkadagafrákl. 14-18.
Gallerí Hlaðvarpinn,
Á morgun kl. 14 mun textíllista-
konan Heidi Kristiansen opna sýn-
ingu á 2. hæð í Gallerí Hlaðvarp-
anum. Heidi sýnir myndverk sem
eru vattstungin teppi unnin I app-
likasjon og quilt. Sýningin verður
opin alla virka daga kl. 12-18 og
um helgar frá kl. 12-16. Sýningin
stendur til 24. janúar.
Gallerí List
Skipholti, sími 814020
Sýning á listaverkum eftir ýmsa
listamenn. Opið daglega kl.
10.30-18.
Gallerí Port
Kolaportinu
Opið laugard. kl. 10-16 og
sunnud. kl. 11-17.
Geysishúsið
v/Vesturgötu
Á morgun kl. 18 verður opnuð
sýning á verkum eftir 26 skoska
grafíklistamenn og er sýning þessi
hluti af menningarhátíðinni Skott-
ís, skosk-íslenskum menningar-
dögum. Sýningin ber yfirskriftina
„Alter Ego". Sýningin stendur til
7. febrúar og er opin daglega kl.
10-18.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Á morgun verður opnuð sýning á
bandarískri utangarðslist. Sýningin
var skipulögð af Thord Thordeman
og hefur þegar verið sett upp víða
um Norðurlönd. Héðanfersýning-
in til meginlands Evrópu. Sýningin
stendur til 31. janúar.
Hótel Lind
Friðrik Róbertsson sýnir olíu- og
vatnslitamyndir. Opið á sama tíma
og veitingasalurinn kl. 8-22.
Lóuhreiður
Laugavegi 59
Jóhann Jónsson frá Vestmanna-
eyjum (oftast kallaður Jói listó)
sýnir vatnslitamyndir. Þetta er 4.
einkasýning Jóhanns en hann
hefur einnig tekið þátt I samsýn-
ingum. Myndirnareru allartil sölu.
Sýningin er opin virka daga kl.
9- 18 og á laugardögum frá kl.
10- 14. Sýningin stendur til 15.
janúar.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Þar stendur yfir sýningin Víkin og
Viðey, fornleifar frá landnámi til
siðaskipta I Reykjavík, á vegum
Árbæjarsafns.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg 3B
Á morgun kl. 16 verður opnuð
sýning á verkum eftir Elvu Jóns-
dóttur, Elsu D. Gísladóttur, Pétur
Örn Friðriksson, Ólöfu Nordal,
Ingileif Thorlacius og Rögnu Her-
mannsdóttur. Sýningin er sett
upp í tilefni 15 ára afmælis Ný-
listasafnsins. Sýningin verður op-
in daglega kl. 14-18 og lýkur
henni sunnudaginn 24. janúar.
Eitt af verkum Heidi á sýningunni.
Gallerí Hlaðvarpinn:
Vattstung-
in teppi
Á morgun, laugardag, klukkan 14
mun textíllistakonan Heidi Krist-
iansen opna sýningu í Galleríi HQað-
varpanum, 2. hæð. Heidi sýnir mynd-
verk sem eru vattstungin teppi unnin
í applikasjon og quilt. Þetta er þriðja
einkasýning Heidi á íslandi en hún
hefur einnig haldið einkasýningu í
Þrándheimi auk þess sem hún hefur
átt verk á samsýningum bæði hér og
í Noregi. Sýningin verður opin alla
virka daga frá kl. 12-18 og um helgar
frá kl. 12-16. Síðasti sýningardagur
verður sunnudaginn 24. janúar.
Geysishúsið:
Skoskir
grafíklista-
menn sýna
Á morgun, laugardag, verður opn-
uð sýning í Geysishúsinu við Vestur-
götu á verkum 26 skoskra graflklista-
manna. Sýning þessi er hluti af
menningarhátíðinni Skottís, skosk-
íslenskum menningardögum. Sýn-
ingin ber yfirskriftina Alter Ego og
er viðfangseefni hennar sjálfsmynd
hstamannsins og það hvernig ungir
myndhstarmenn í dag hta á sjálfs-
myndagerð mitt í hringiðu þeirra
flölda hststefna sem hvarvetna má
lita.
Sýningin er sett saman að frum-
kvæði Glasgow Print Studio sem er
í senn sýningaraðstaöa og vinnustofa
fyrir grafíkhstamenn. Frá Skotlandi
koma tveir hstamenn og verða við-
staddir opnunina, þær Ashley Cook
og June Carey en auk þess verður
forstöðumaður Glasgow Print
Studio, Katherine Shaw, viðstödd.
Sýningin í Geysishúsinu stendur til
17. febrúar. Hún verður opin daglega
frá kl. 10-18.
Nýlistasafnið:
Fimmtán
ára afmæl-
issýning
Á morgun, laugardag, klukkan 16
verður opnuð í Nýhstasafninu sýn-
ing á verkum eftir Elvu Jónsdóttur,
Elsu D. Gísladóttur, Pétur Öm Frið-
riksson, Ólöfu Nordal, Ingheif
Thorlacius og Rögnu Hermannsdótt-
ur. Sýningin er sett upp í filefni 15
ára afmælis Nýhstasafnsins, en það
var stofnsett 5. janúar 1978. Þá var
þrengingartími og hstasöfn þjóðar-
innar og einkasafnarar sváfu þymi-
rósarsvefni, hstgagnrýnendur vora
með augun í hnakkanum og htu með
söknuði til kreppu og eftirstríðshst-
ar.
Nýhstasafnið er að innsta kjama
sígild og lifandi hst. Það dregur til
sín allt hið ferskasta og besta og
varpar ljóma sínum inn í framtíðina.
Samsýningin í Nýlistasafninu er op-
in daglega frá kl. 14-18 og henni lýk-
ur sunnudaginn 24. janúar.
Samsýningin í Nýlistasafninu er haldin í tilefni 15 ára afmælis safnsins.
Hafnarborg:
Sýning opnuð á banda-
rískri utangarðslist
Sýning verður haldin í janúar í Hafnarborg,
menningar- og hstastofnun Hafnarfíarðar, á
bandarískri utangarðshst. Sýningin var skipu-
lögð af Thord Thordeman og hefur þegar verið
sett upp víða um Norðurlönd. Héðan fer sýningin
th meginlands Evrópu.
Bandarísk utangarðshst hefur vakið mikla at-
hugh undanfarin ár enda er hér um fíölbreytileg
og óvenjuleg hstaverk að ræða. Listamennimir,
sem eiga verk á sýningunni, era ahir ómenntaðir
en eiga fátt annað sameiginlegt. Verk þeirra allra
túlka afar persónulega sýn á raunveruleikann
en era um leið bæði opinská og thgerðarlaus,
margræð og hehlandi. Sumir hstamannanna era
þegar orðnir þekktir og eiga verk í almennings-
og einkasöfnum en aðrir era htt eða ekki kunnir
almenningi. Raunar er einn hstamaðurinn
óþekktur með öhu og gengur undir nafninu
Phhadelphia Wireman. Verkin hans era búin th
úr rafmagnsvír og ýmsum raftækjahlutum sem Listaverk eflir Minnie Evans sem fór að teikna árið 1935 eftir
fundust í raslagámi í Fhadelfíu. sýnum sem birtust henni í draumum.
Sýningar
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 9. janúar hefst
menningarhátíðin Skottís, skosk-
íslenskir menningardagar, á því að
opnuð verður sýning að Kjarvals-
stöðum á verkum eftir lan Hamil-
ton Finlay. Sýningin stendur til 7.
febrúar.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustíg
Þar stendur yfir sýning á hefð-
bundnum japönskum tréristum frá
19. og 20. öld. Vegna áskorana
verður Refillinn hengdur upp aftur
11. jan. og prýðir veggina næstu
2 vikurnar.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Nýtt lækningaminjasafn sem sýnir
áhöld og tæki sem tengjast sögu
læknisfræðinnar á íslandi. Stofan
er opin á sunnud., þriðjud.,
fimmtud. og laugardögum frá kl.
12-16. Aðgangseyrir er kr. 200.
Katel
Laugavegi 20b, sími 18610
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og
erlenda listamenn, málverk, grafík
og leirmunir.
Listhús í Laugardal
Engjateigi 17, s. 680430
Sjofn Har. Vinnustofan er oftast
opin daglega kl. 15-18 virka daga,
laugardaga kl. 14-18 eða eftir
samkomulagi. Olíumyndir og
myndir unnará handgerðan papp-
ír, til sýnis og sölu. Verkstæði lista-
manna og verslanir hússins eru
opin á sama tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 13.30-16. Höggmyndagarður-
inn er opinn daglega kl. 11-18.
Listasafn islands
Opið alla daga nema mánudaga
kl. 12-18. Kaffistofa safnsins opin
á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Sýning á verkum í eigu safnsins.
Opið laugardaga og sunnudaga
kl. 14-17. Kaffistofan er opin á
sama tíma.
Listinn
gallerí - innrömmun
Síðumúla 32, simi 679025
Uppsetningar eftir þekkta íslenska
málara. Opið virka daga kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-18 og sunnu-
daga kl. 14-18.
Listasafn Háskóla íslands
i Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning
á nýjum verkum í eigu safnsins.
Opið er daglega kl. 14-18. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Listmunahúsiö,
Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu
Þar stendur yfir sýning á litlum
verkum íslenskra myndlistar-
manna. Þeir sem taka þátt eru: Ása
Ólafsdóttir, Eyjólfur Einarsson,
Guðrún Einarsdóttir, Gunnar Örn
Gunnarsson, Hringur Jóhannes-
son, Hulda Hákon, Jóhannes Jó-
hannsson, Jóhann Geir Jónsson,
Jón Axel Björnsson, Jón Óskar
Hafsteinsson, Magnús Kjartans-
son, Magnús Tómasson, Sigríður
Ásgeirsdóttir, Sigurður Örlygsson
og Willem Labey. Opið virka daga
kl. 12-18, um helgar kl. 14-18.
Lokað mánudaga.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s.
654242
Safnið er opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, sími 54321
Opið á sunnudögum og þriðju-
dögum kl. 15-18. Aðgangur
ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulín-
slágmyndir, málverk og ýmsir litlir
hlutir. Opið er á verslunartíma
þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtu-
daga og föstudaga kl. 13-18 og á
laugardögum kl. 15-16.
Þjoðminjasafn Islands
Opið laugardaga, sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga kl.
12-16.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162
Opið daglega kl. 11-17.