Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1993, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR 1993. Messur Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Sunnudagaskóli I Árbæjarkirkju, Árt- únsskóla og Selásskóla á sama tíma. Fyrirbænastund miðvikudag kl. 16.30. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu. Arni Bergur Sigurbjörnsson. Breiöholtskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14. Altarisganga. Org- anisti Daníel Jónasson. Kaffisala kirkju- kórsins að messu lokinni. Samkoma „Ungs fólks með hlutverk" kl. 20.30. Bænasamkoma með altarisgöngu þriðjudag kl. 18.30. Sr. Gisli Jónasson. Bústaöakirkja: Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.00. Einsöngvari Magnea Tómasdóttir. Fiðluleikur Lau- fey Sigurðardóttir. Pálmi Matthíasson. Digranesprestakall: Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastig kl. 11. Guðsþjónusta I Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur sr. María Ágústsdóttir. Dómkórinn syngur. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Helgi- stund kl. 17. Prestur sr. Ingólfur Guð- mundsson. Forsöngvari Bergljót Sveinsdóttir. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Elliheimiliö Grund: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Ölafur Jóhannsson. Eyrarbakkakirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11 árdegis. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestursr. Hreinn Hjartarson. Org- anisti Guðný M. Magnúsdóttir. Barna- guðsþjónusta á sama tíma í umsjón Sigfúsar og Guðrúnar. Fyrirbænastund mánudag kl. 18. Helgistund I Gerðu- bergi fimmtudag kl. 10.30. Prestarnir. Fríkirkjan í Hafnarfiröi: Guðsþjónusta og barnastarf fellur niður. Barnastarfið hefst að nýju sunnudaginn 24. janúar. Einar Eyjólfsson. Frikirkjan i Reykjavik: Laugardag 9. jan. kl. 14.00 Flautudeildin í Safnaðar- heimilinu. Kl. 15.00samvera eldri barn- anna í Safnaðarheimilinu. Sunnudag kl. 11.00 barnaguðsþjónusta, kl. 14.00 guðsþjónusta. Miðvikudag 13. jan. kl. 7.30 morgunandakt. Grafarvogssókn: Barna- og fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11 I Félagsmiðstöð- inni Fjörgyn. Guðfræðinemarnir Sveinn, Elínborg og Guðmunda að- stoða. Organisti Sigurbjörg Helgadótt- ir. Vigfús Þór Árnason. Grensáskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Yngri börn niðri og eldri börnin uppi. Mikill söngur, fræðsla og leikræn tján- ing. Messa kl. 14. Prestur sr. Gylfi Jóns- son. Organisti Árni Arinbjarnarson. Hallgrimskirkja: Barnasamkoma og messa kl. 11.00. Mótettukór Hallgríms- kirkju syngur. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Kl. 17.00. Aftansöngur með Mótettu- kór Hallgrímskirkju. Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10. Sr. Tómas Sveinsson. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um Hlíðar og Suðurhlíðar á undan og eftir messu. Hámessa kl. 14. Sr. Arngrímur Jóns- son. Hjallaprestakall, messusalur Hjalla- sóknar, Digranesskóla: Barnaguðs- þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ingólfur Guðmundsson messar. Organisti Oddný Þorsteinsdóttir. Kristj- án Einar Þorvarðarson. Keflavikurkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Fermingarundirbúningur hefst að nýju 13. og 14. janúar. Sóknarprest- ur. Kársnesprestakall: Fyrsta samvera barnastarfsins á nýju ári verður í safn- aðarheimilinu Borgum sunnudag kl. 11. Guðsþjónusta I Kópavogskirkju kl. 11. Organisti Stefán R. Gíslason. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kór Langholtskirkju syng- ur. Þóra Einarsdóttir syngur einsöng. Guðrún Guðmundsdóttir leikurá selló. Barnastarf á sama tíma. Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Ingólfur Guðmundsson. Organisti Ronald Turner. Barnastarf á sama tíma I umsjá Þórarins Björnsson- ar. Heitt á könnunni eftir guðsþjónustu. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11.00. Munið kirkjubilinn. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Guðsþjónusta kl. 14.00. Prestur sr. Ölafur Jóhannsson. Orgel- og kórstjórn Reynir Jónasson. Guð- mundur Óskar Ólafsson. Seljaklrkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Guðsþjónusta í Seljahlið laugardag kl. 11. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Org- anisti Hákon Leifsson. Prestur sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir. Barnastarf hefst á nýju ári. Umsjón hafa Bára, Eirný og Erla. Tunglið í kvöld: Tískusýning á heims- mælikvarða Hér á landi er nú staddur tísku- hönnuðurinn Alonzo sem er mörg- um landanum að góðu kunnur. Al- onzo starfar að staðaldri í New York og má finna flíkur hans í mörgum þekktum versltmum sem marka lín- umar í tískuheimium. Verk Alonzos hafa einnig prýtt fólk úr fréttum og þá helst þekkt nöfn úr dægurlaga- heiminum. í kvöld mun Alonzo halda sýningu í Tunglinu við Lækjargötu á sam- kvæmisfatnaði sem hann hefur hannað. Sýning þessi mun verða íburðarmeiri en gengur og gerist á tískusýningum almennt hér á landi og hefur geysileg vinna verið lögð í undirbúning hennar. Stjómandi sýningarinnar er Edda Guðmunds- dóttir sem starfað hefur sem módel og dansari í New York undanfarin ár. Umrætt kvöld verða einnig fram- kvæmdir ýmsir gjömingar og ör- stuttir leikþættir í tengslum við þessa sýningu. Alonzo ætlar að kynna nýjustu sam- kvæmislínuna í Tunglinu ð föstu- dagskvöld. DV-mynd Jim Smart Frá þrettándagleði Fáks í fyrra. Þrettándabrenna Fáks og Iionsklúbbsins Týs Þrettándabrennu Fáks og Lions- klúbbsins Týs var frestað frá mið- vikudegi fram á laugardag. Um hálf- fimmleytið kemur fólk saman í Reið- höliinni og þar geta bömin fengið andhtin skreytt. Krakkarnir verða náttúrlega í einhverjum skemmtileg- um búningum og einnig geta þeir fengið að kaupa blys. Það verður óvænt uppákoma í höliinni og um fimmleytið koma álfakóngurinn og -drottningin ásamt fylgdarhði sínu og ríða frá Reiðhöllinni niður á skeið- völlinn þar sem kveikt verður í bál- kesti. Jólakílóin á bak og bnrt - námskeið um reglulegt mataræði Námskeið um reglulegt mataræöi verður haldið í húsnæði íþróttasam- bands íslands í Laugardal um helg- ina. Námskeiðið hefst klukkan níu í kvöld, fóstudagskvöld, og heldur síð- an áfram á laugardagsmorgun klukkan níu og lýkur seinna um dag- inn með OA-fundi. Þátttakendur borða saman í hádeginu á laugardag. Farið verður eftir kerfinu í bókinni Það er ahtaf hægt vinur eftir Ásgeir Hannes Eiríksson. Námskeiðsgjald er aðeins 6500 krónur og er bókin innifahn. Ahar upplýsingar eru gefn- ar í síma 74811 og farsíma 985-21453. Asgeir Hannes Eiríksson ætlar að leiðbeina fólki í sambandi við reglu- legt mataræði. 21 Þjóðíeikhúsíð sími 11200 Stóra sviðið My Fair tady föstudag kl. 20 Stræti laugardag kl. 20 Litla sviðtð Rita gengur menntaveginn föstudag kl.20.30 laugardag kl.20.30 Smíðaverkstæðið Drög að svínasteik. föstudag kl. 20.30 Borgar- leikhúsið sími 680680 Stóra sviðið: Heima hjá ömmu laugardag kl. 20 Ronja ræningjadóttir sunnudag kl. 14. og 17 Litla sviðið Sögur úr sveitinni laugardag Vanja frændi laugardag kl. 20 íslenska óperan sími 21971 Lucia di Lammermoor föstudag kl. 20 sunnudag kl. 20 Alþýðu- leikhúsið Hræðileg hamingja föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Leikfélag Akureyrar Útlendingurinn föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30. Kolaportið: Bóka- markað- urinn byrjarum helgina Kolaportið verður opnað aftur um helgina eftir jólafrí og verður þar mikið um að vera. Má þar sórstaklega nefna hinn árlega bókamarkað þar sem boðið verð- ur upp á um 1000 titla frá 22 bóka- forlöguro,, Mikið verður um nýja bókatitla sem ekki hafa áður sést á bókamörkuðum enda leggja bókaútgefendur nú raikla áherslu á að losa sem mest um bókalagera sína áður en væntanlegur virðis- aukaskattur á bókum kemur til framkvæmda og þess verður sennilega langt aö bíöa að bóka- orraar fái jafn mikið fýrir aurana sína. Auk bókamarkaöarins verða um 200 seijendur í Kola- bjóða ótrúlegt vöruúrval á sann- kölluðu Kolaportsverði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.