Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Page 4
4
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993.
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Fylgismenn f lokka klof nir
um niðurstöðu EES-málsins
Flestir flokkamir eru talsvert
klofnir í EES-málinu. DV kannaði í
skoðanakönnim sinni hvemig stuðn-
ingsmenn flokkanna skiptast í af-
stöðu til spumingarinnar um hvort
þeir séu sáttir eða ósáttir við niður-
stöðuna í EES-málinu. Þá reynast 70
af hundraði framsóknarkjósenda
ósáttir við niðurstöðu málsins. Um
68 prósent stuðningsfólks Sjálfstæð-
isflokksins era sátt við niðurstöðu
EES-máisins.
Fylgismenn flokkanna skiptast á
eftirfarandi hátt. 78,4 prósent af kjós-
endum Alþýðuflokksins segjast vera
sátt við niðurstöðu EES-málsins.
Aðeins 8,1 prósent er ósátt við niður-
stöðuna og 13,5 prósent óákveðin.
70,5 prósent framsóknarkjósenda
em ósátt við niðurstöðu EES-máls-
ins. En 17,9 prósent em sátt við nið-
urstöðuna og 11,5 prósent óákveðin.
67,9 prósent kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins era sátt við niðurstöðu
EES-málsins. En 16 prósent em ósátt
og önnur 16 prósent óákveðin.
70,8 prósent kjósenda Alþýðu-
bandalagsins em ósátt við niður-
stöðu EES-málsins. En 12,3 prósent
em sátt við niðurstöðuna og 16,9 pró-
sent óákveðin.
60,5 prósent Kjósenda Kvennalist-
ans em ósátt við niðurstöðu EES-
málsins. En 23,3 prósent af kjósend-
um Kvennalistans era sátt við niöur-
stöðu EES-málsins og 16,3 prósent
em óákveðin.
Loks skiptast þeir, sem segjast vera
óákveðnir um hvaða flokk eða lista
þeir mundu kjósa, þannig í afstöðu
til EES-málsins: 50 prósent þeirra em
ósátt við niðurstöðuna um EES. 26,4
prósent þeirra era sátt við niður-
stöðu EES-málsins og 23,6 prósent
em óákveðin.
-HH
Björgunarsund æft f Kópavogslaug. Það er nauðsynlegt að kunna að synda
og ekkl sföur að bjarga öörum ef þörf krefur. DV-mynd GVA
Verð á augndropum
meira en þref aldast
Regína Thorarenaen, DV, Selfoesi:
Ég fór á sunnudagsmorgun, 17. jan-
úar, í Selfoss Apótek til að sækja
augndropa fyrir manninn minn. Sig-
ríöur apótekari fékk mér glasiö og
ég rétti henni þúsund krónur.
Þá sagði hún. Áttu ekkert smærra,
þetta kostar ekki nema 61 krónu. Jú,
ég átti það í smáu og þá sagði Sigríð-
ur mér að þetta litla glas myndi kosta
manninn minn 196 krónur daginn
eftir, mánudaginn 18. janúar. Ég varð
alveg hissa á þessari veröhækkun og
ef öll meðul hækka svona mikið þá
getur fólk ekki keypt þau lengur.
Afstaða kjósenda til niðurstöðu EES-máisins
Alþýðuflokkur Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur
11,5% 17,9%
13,5%
8,1
78,4%
Alþýðubandalag
16,9% 12,3%
| | Sáttir
16,0%
16,0
Kvennalisti
16,3% 23,3%
67,9%
Óákveðnir um flokk
23,6% 26,4%
Ósáttir
Óákveðnir
Þetta er ekkert annað
en pólitísk misnotkun
- segir reglugerðarbreytingu ráðherra pólitískt stórmál
„Ég vil ekki una því að vera settur
af öðrum stjómarflokknum í nefnd
til þess að endurskoða reglugerð til
að koma í veg fyrir hugsanlegt slys.
Síðan komi félagsmálaráöherra í
bakið á mér og láti slysið verða. Það
er rétt að ég hef íhugað aö segja mig
úr nefndinni. Ég bíð eftir skýringu
frá félagsmálaráðherra. Ákvörðun
mín um framhaldið fer eftir við-
brögðum ráðherra. Ég tel að þarna
sé um pólitíska misnotkun meiri-
hluta alþýðuflokksmanna í bæjar-
stjóm Hafnarfjarðar aö ræða,“ segir
Sturla Böðvarsson alþingismaður.
Það sem Sturlu mislíkar er að Jó-
hanna Siguröardóttir félagsmálaráð-
herra breytti reglugerðinni einhliða
og án samráðs við nefndina tfl þess
að Hafnarfjörður fengi úthlutun úr
jöfnunarsjóðnum og um leið varð að
úthluta til Mosfellsbæjar.
„Það er ekkert launungarmál að
hlutverk okkar í nefndinni var að sjá
um að stóm sveitarfélögin, Kópavog-
ur, Garðabær, Hafnarljörður, Mos-
fellsbær, jafnvel Seltjarnames,
tækju ekki bróðurpartinn úr jöfnun-
arsjóðnum eins og nú hefur gerst.
Hafnfirðingarnir töldu í fyrra að þeir
ættu rétt á fé úr jöfnunarsjóönum
og gerðu ráð fyrir því í fjárhagsáætl-
im sinni. Þeir fengu hins vegar ekki
úthlutun og þá fóm þeir að hamast
í Jóhönnu Sigurðardóttur til að fá
úthlutun nú. Hún gaf eftir og breytti
reglugerðinni einhliða, þrátt fyrir
þaö að nefndin væri að vinna að
málinu. Hún hafði ekkert samband
við okkur,“ segir Sturla.
Sturla segist líta á þetta sem póli-
tískt stórmál. Hann segir að á milli
stjómarflokkanna hafi þetta verið
grafalvarlegt mál vegna þess að þeg-
ar nefndin var stofnuð var verið að
fjalla um ýmislegt sem sneri að sveit-
arfélögunum.
„Þá var mikið rætt um að nýta sér
hagkvæmni stærða sveitarfélag-
anna. Við trúðum því ýmsir að stóru
sveitarfélögin þyrftu ekki jafn háar
meðaltekjur og þau litlu. Þess vegna
væri óþarfi að jafna úr jöfnunarsjóði
þannig að stærstu sveitarfélögin, þar
sem hagkvæmnin er mest í rekstri,
heíðu sömu meðaltekjur á íbúa og til
að mynda þúsund manna sveitarfé-
lag,“ sagði Sturla Böðvarsson alþing-
ismaður.
-S.dór
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjamamesi:
Áhætta tekin með fjárhagsáætlun
- mbinMutinn vill hraða landakaupum til friðunar
„í krónutölu er fjárhagsáætlunin
nánast sú sama og í fyrra. Með
þessu tökum viö vissa áhættu því
tekjumar era ekki tryggar. Við
reynum hins vegar eftir bestu getu
að halda uppi verklegum fram-
kvæmdum. Eina lánið, sem við fyr-
irhugum aö taka, er frá Norræna
flárfestingarbankanum. Um er að
ræða 10 mifljónir króna sem á að
nýta tfl að fjármagna holræsafram-
kvæmdir meðfram fjömnni," segir
Sigurgeir Sigurðsson, bæjarsljóri á
Seltjamamesi.
Bæjarsljóm Seltjamamess gekk
frá fjárhagsáætlun þessa árs á
fundi í vikunni. Samkvæmt henni
er gert ráð fyrir aö skatttekjur
bæjarins verði um 402 milljónir á
árinu.
„Fjárhagsstaðan er ágæt en viö
erum komin með skuldamörkin
heldur ofarlega. Við höfum fjárfest
grimmt í dým landi sem að ein-
hveiju leyti átti, og á kannski efdr,
að skila sér í kassann aftur. Við
erum samt ekki í nokkurri hættu."
Siv Friöleifsdóttir og Guðrún
Þorbergsdóttir, fiflltrúar minni-
hlutans, sátu hjá viö afgreiðslu
fj árhagsáætlunarinnar. Þær létu
hins vegar bóka að þær teldu brýnt
aö þegar á þessu ári verði hafin
undirbúningsvinna að fjármögnun
þess hluta vestursvæðis Selfjam-
amess sem enn er ekki í eigu bæj-
arins. Um þetta hafa verið miklar
deilur meðal íbúa bæjarins. Af
hálfu bæjarstjórans er vflji til að
nýta hluta þessa svæðis undir
íbúöabyggð en margir íbúar og
hluti bæjarstjómar vflja friða það.
í bókun minnihlutans em ýmsar
hækkanir á þjónustugjöldum bæj-
arins sagðar óheppilegar. í því
sambandi er bent á að lækka á
systkinaafslátt á leikskólum úr 50
prósentum í 25 prósent og hækka
sorphiröugjald um 33 prósent.
Þá er þátttöku bæjarins í bygg-
ingu hjúkrunarheimflisins Eirar í
Grafarvogi mótmælt í bókuninni.
Æskilegra sé að bærinn reisi heim-
fli á Seltjamamesi í æskilegri
stærð. Bent er á að undanfarin ár
hafi 17 prósent af ráðstöfunartekj-
um bæjarins farið í þessar fram-
kvæmdir. í ár sé gert ráð fyrir að
framlagið verði 23 milljónir og aö
hlutfalliðhækkií34prósent. -kaa
Selfyssingur 1 Virginíu:
17 ára skipti-
nemi lést
í bílslysi
17 ára íslenskur skiptinemi, Guð-
mundur Árnason frá Selfossi, lést í
bílslysi í bænum Waynesboro í Virg-
iníufylki í Bandaríkjunum á þriðju-
dag.
Guðmundur var á leið í skóla með
skólasystur sinni þegar slysið varð.
Þau vom tvö í bílnum. Stúlkan, sem
ók bílnum, slasaðist, þó ekki lífs-
hættulega, en Guðmundur, sem sat
í framsæti, lést þegar komiö var með
hann á sjúkrahús.
Guðmundur hafði dvalið sem
skiptinemi hjá fjölskyldu í Waynes-
borofráþvísnemmaíhaust. -ÓTT