Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993.
Svipmyndin
Af hverri er
svipmyndin?
Samkeppnin í skemmtanaiönað-
inum er hörð. Það var auöveldara
að öðlast frægð áður fyrr. Þá nægði
stúlkum venjulega að vera ungar
og laglegar.
Sú sem svipmyndin er af sat og
drakk kaffi á veitingahúsi þegar
hún var uppgötvuð.
Þaö eru mörg ár síðan. En henni
heíur tekist að halda frægð sinni.
Hún er enn þá þekkt nafn í
skemmtanaiðnaðinum.
Hún fær mikið af aðdáendabréf-
um. Stór hluti þeirra er frá karl-
mönnum sem koma með ólíkar til-
lögur og tilboð. En flest eru bréfin
frá konum sem vilja hitta hana eða
skrifast á við hana.
Hluti kvennanna sem skrifar
henni heldur að hún sé einmana.
En þær hafa algerlega á röngu að
standa. Sú sem hér er lýst á mikið
af vinum. Hún er með mörg jám í
eldinum og sífellt á ferðalögum
milli höfuðborga.
Þeir sem þekkja hana halda því
fram að frægð henar hafi ekki stig-
ið henni til höfuðs. Hún sé sama
stúlkan og hún hafi alltaf verið.
Hún reykir ekki og hún drekkur
ekki áfengi. En það kemur fyrir að
hún borðar of mikið um tíma. Hún
er dálítið matglöð og þykir sælgæti
gott.
Góður matur í of miklum mæli
leiðir til þess að fólk fitnar. En sú
sem svipmyndin erafþekkir hætt-
una. Hún gætir þess því aö fitna
ekki um of og gerist þess þörf getur
hún tekist á við nýtt hlutverk með
nokkurra daga fyrirvara.
Hyggst leggja greiðslu-
kortið á hilluna
Sú sem hér er lýst hefur starfaö
í Bandaríkjunum í mörg ár. Hún
hefur stundum látið nokkuð hörð
orð falla um bandaríska leikara.
Hún segir þá oft lítt áhugaverða og
heldur leiðinlega í einkalífinu. Þá
hugsi þeir ekki nógu vel um líkam-
ann.
En svo seljist þeir í stólinn hjá
foröunarmanninum. Þar eigi sér
oft og tföum mikil umbreyting stað.
Bandaríkjamen vilji gjaman sjá
„tilbúnar brúður".
Stíll þeirrar sem svipmyndin er
af beinir henni á aðrar brautir. Hún
segir að feguröin eigi að koma ixm-
an frá, meðal annars með því að
fólk gæti þess að fá þá hreyfingu
sem líkaminn þarfhast.
Nýlega kom hún fram í sjón-
varpsþætti um spamað. Þar var
þefrri spumingu beint til hennar
hve mikið hún hefði í mánaöar-
kaup.
Því vildi hún ekki svara. En hún
skýröi frá því að hún keypti oft
geislaspilara, faxtæki, síma og út-
varpstæki. Oftast réði sterk löngun
til að kaupa eitthvað nýtt. Þegar
reiðuféð væri uppuriö gripi hún til
greiöslukortanna.
Hún sagðist nú vera farin að
íhuga að klippa greiðslukortin í
tvennt. Það gæti leitt til spamaðar
og hagkvæmni.
Þeim sem vildu sýna hagkvæmni
og skynsemi kvaðst hún geta gefið
gott ráð. „Vertu þér úti um pening-
ana áður en þú gengur í hjóna-
band. Þaö em meiri líkur á aö þaö
standist óveðrin ef fólk á eitthvað
í handraðanum."
Fyrrum fékk hún hundrað þús-
und dah fyrir að leika í kvikmynd.
Það var á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Nú borga kvikmyndaver-
in enn meira. Nú geta ungar stúlk-
ur fengið allt aö fimm milljónunm
dala fyrir hlutverk á við þau sem
hún tók þá að sér.
Þríggja bama móðir
Nýlega leysti sú sem hér er lýst
upp heimili sitt í Los Angeles. Þar
átti hún aUt sem hægt var að óska
sér. En hún vildi breyta til. Hún
sagðist ekki trúa á það lengur að
búa við hliðina á ríku og færgu
fólki.
Ákvörðunin kom manni hennar
mjög á óvart. En sú sem svipmynd-
in er af er með bein í nefinu. Mað-
urinn átti ekki annars úrkosti en
aö flytjast með henni til London.
Hún hefur reynt mikið um ævina.
Hún viðurkennir að hún hafi gert
margt skrítið sem hún vfiji ekki
ræða í viðtölum.
Fyrir allmörgum árum gaf hún
út bók um ævintýri sín. Af hlaust
mikið umtal. Þess vegna hefur hún
ekki í hyggju að skrifa fleiri bækur
um lífsreynslu sína. Brennt bam
forðast eldinn.
Hún var gift áður og hefur átt í
ástarsamböndum við allmarga
menn. Hún hefur eignast þijú böm.
Það yngsta er sonur sem henni
fæddist fyrir fáum ámm en þá var
hún orðin fjörutíu og fimm ára.
Þaö er nokkuð hár aldur fyrir
móður en fæðingin gekk vel þvf að
sú sem hér er lýst var vel á sig
komin.
Mörgum finnst furðulegt hve vel
henni hefur tekist að varðveita
unglegt útlit sitt. Hún lítur næstum
því eins út í dag og fyrir tuttugu
árum.
Ein leiö til að halda í heilsu og
æskufegurö er að eiga sér yngri
mann. Sú sem hér er lýst er gift
manni sem er næstum tuttugu
árum yngri en hún.
En fegurð hennar og frægð valda
henni líka vandamálum. Þannig
getur hún ekki tekið hvaða hlut-
verki sem er.
Hún varö heimsfræg sem Bond-
stúlka. Og hún hefur haft sinn eig-
in sjónvarpsþátt.
Þar heftir henni gengið vel. En
hún ætti erfitt með að fara með
hlutverk í sorgarleik.
Hver er hún?
Svar á bls. 56
Matgæðingur vikurtnar
Sjavarretta-
góðgæti
- og heimskautalamb
„Heimskautalamb einangrað
með raspi“ heitir rétturinn sem
matgæðingur vikunnar býður upp
á að þessu sinni. Uppskriftin er
sótt um langan veg, eða allar götur
norður til Grímseyjar. Höfundur
hennar er Helgi Haraldsson sjó-
maður. Þessi réttur er feiknavin-
sæll á heimili hans og oft eldaður
ef gera á gestum sérlega gott.
En fyrst er það forréttur sem
Helgi býður gjaman upp á. Þannig
lítur uppskriftin að honum út:
Sjávarréttagóðgæti
25-30 humarhalar
200 g hörpudiskur
200 g rækjiu:
200 g sneiddir sveppir
1-2 laukar eftir stærð, saxaðir
2 hvítlauksrif, smátt brytjuö
1 msk. karrí
Salt og annað krydd eftir smekk
Fiskikraftur, soð
1/2 - 3/4 1 ijómi
2 dl hvítvín
Smjör og olía tfi steikingar
Aðferð
Takið frá einn humarhala fyrir
hvem disk. Takið hina úr skelinni,
brúnið skeljamar létt og sjóðið í
vatni ásamt fiskteningi. Síið síðan
soðið.
Setjið hvítvínið í pott og sjóðið
niður um helming, setjið út í soðið
ásamt ijómanum. Steikið sveppina,
laukinn og hvítlaukinn, athugið að
laukurinn má ekki brúnast. Setjið
út í soðið og látiö malla.
Steikið humarinn og hörpudi-
skinn, kryddið ríflega með karrí
og setjið út í soöið ásamt rækjun-
Helgi Haraldsson.
um. Saltið og kryddið eftir smekk.
Ausið á disk og setjiö einn hum-
arhala í skel ofan á. Berið fram
með heitu hvítu eða ristuöu brauði.
Athugið að í þennan rétt má nota
annan fisk en hér er nefndur. í
staðinn fyrir hörpudisk má nota
t.d. gellur eða annan fisk sem losn-
ar ekki of mikið í sundur.
Heimskautalamb
einangrað með raspi
1 lambalæri, u.þ.b. 2 kg
8 hvítlauksrif, afhýdd
50-100 g smjör, Unt
11/2 bofii brauprasp, helst úr tví-
bökum eða hvítu brauði
4-5 msk. fínt söxuð steinselja eða
mynta, estragon eða annað grænt
kiydd
Salt og nýmalaður svartur pipar
Aðferð
Setjiö lærið í ofnskúffu, kljúfið
tvö hvítlauksrif í fernt, stingið
beittum hníf í lærið neðanfrá á
tveimn stöðum inn að beini, stingið
einum fjórða af rifi í hvort sár.
Nuddið afgangnum af rifjum vand-
lega á lærið ofanvert. Smyijið síðan
smjörinu vandlega á allt Iærið.
Meijið hin sex rifin og blandið
þeim saman við brauðraspið ásamt
steinselju, salti og pipar. Hnoðið
þannig að raspið taki í sig raka úr
hvítlauknum. Dreifið þessari
blöndu síðan yfir lærið. Setjið inn
í 200 gráða heitan ofn í 1 1/2 - 2
klst. Lækkið hitann eftir u.þ.b. 40
mínútur í 170 gráður.
Sósan
7 msk. rauðvínsedik
3 hvítlauksrif, afhýdd og marin
5 msk. sjóðandi vatn
Sósukraftur
Rjómi
Sósujafnari
Setjið edikið og hvítlaukinn í pott
og sjóðið niður þar til 1/4 er eftir.
Síið og hendið hvítlauknum. Setjið
sjóðandi vatn, edik og safann úr
ofnskúffunni ásamt öllu hrati í só-
supott og kryddið ef vill. Sósuna
má auka með sósukrafti. Einnig
má jafha hana og setja í hana ijóma
en það er alls ekki nauösynlegt.
Athugið að skafa þarf allt úr
ofnskúffunni út í sósuna. Ekki þarf
að sigta hana.
Þetta má bera fram með bökuð-
um kartöflum, snöggsoðnum gul-
rótum með smjöri og/eða agúrku-
salati. Uppskriftin er fyrir 6.
Helgi skorar á Sæmund Ólafsson
sem einnig er sjómaður í Grímsey.
Hinhliðin
Ætla að spila eins
mikið golf og ég get
- segir Júlíus Tryggvason, knattspymumaður á Akureyri
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Það var ákaflega ljúft að vinna
þennan titil, enda kominn tími til
aö við færum að sýna eitthvað af
viti í innanhússboltanum," segir
Júlíus Tryggvason, einn af nýbök-
uðum íslandsmeisturunum Þórs á
Akureyri í knattspymu innanhúss.
„Þetta er bara byrjunin á árinu en
vonandi tekst okkur aö fylgja þessu
eftir og gera góða hluti í sumar,“
segir Júlíus sem sýnir lesendum
DV hina hhðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Júlíus Þór Tryggvason.
Fæóingardagur og ár: 22. október
1966.
Maki: Gyða Jóna Gunnarsdóttir
húsmóðir.
Bam: Davíð Hólm, 8 ára.
Bifreið: Mazda 323, árgerð 1991.
Starf: Bakari.
Laun: Þokkaleg.
Áhugamál: íþróttir og aftur íþrótt-
ir.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Spila knattspymu.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Vaska upp.
Uppáhaldsmatur: Svínakjöt.
Uppáhaldsdrykkur: RC-Ck>la, diet.
Júlíus Tryggvason, knaRspymu-
maður I Þór á Akureyri.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Michael
Jordan.
Uppáhaldsblað: DV, ég les ekkert
annað.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefiir séð fyrir utan maka? Sigrún
Aðalsteinsdóttir.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjóminni? Andvígur auðvitað.
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Bjöm S. Bjömsson, mark-
vörð KA í handbolta.
Uppáhaldsleikari: Laddi.
Uppáhaldsleikkona: Sharon Stone.
Uppáhaldssöngvari: Láms Sigurðs-
son.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng-
inn.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Högni hrekkvísi.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Íþróttir.
Ertu hlynntur eða andvigur vem
vamarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigurður
Hlöðversson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjami
Fel.
Uppáhaldsskemmtistaður: Hamar,
félagsheimili Þórs.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Þór
Akureyri.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
íþróttum? Að halda haus og lifa líf-
inu.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Spila eins mikið golf og ég get
og æfa fótboltann af krafti.