Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Page 10
10
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993.
Myndbönd
Blindmóðurást
HONOUR THY MOTHER
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: David Greene.
Aðalhlutverk: Sharon Gless og Brian
Wimmer.
Bandarisk, 1992 - sýningartími 92 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Honour Thy Mother, sem byggð
er á sönnum atburðum, sýnir okk-
ur að móðurástin getur leitt hvaða
konu sem er í blindgötur. Sharon
Gless leikur konu sem er ham-
ingjusamlega gift. Nótt eina er ráð-
ist inn í svefnherbergi þeirra hjóna,
maður hennar myrtur og hún al-
varlega særð. Lögregluna grunar
fljótt að sonur hennar frá fyrra
hjónabandi sé viðriðinn morðið
enda hefur sannast á hann eitur-
lyfjaneysla, en móðirin ver soninn
með klóm og kjafti og segir lögregl-
una vera á villigötum og hefur það
ekkert að segja þó reynt sé að gera
henni grein fyrir að vitnisburður
og sannanir bendi aUavega til að
hann hafi vitað um árásina...
Honour Thy Mother er áhrifa-
mikil kvikmynd og sýnir enn einu
sinni að sannleikurinn er oft ótrú-
legri en skáldskapurinn. Aftur á
móti er myndin ekki vel leikin,
nema hjá Sharon Gless sem er nán-
ast óþekkjanleg í hlutverki mömm-
unnar.
Sveitarómantík
PALOMINO
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Míchaes Miller.
Aðalhlutverk: Lindsay Frost, Lee Hors-
ley og Eva Marie SainL
Bandarísk, 1991 -sýningartími 90min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Danielle Steel er sjálfsagt vinsæl-
asti rithöfundur heims, af þeim
sem skrifa rómantískar sögur.
Hafa nokkrar bækur hennar verið
gefnar út hér á landi, þar á meðal
er Palomino sem mynd sú sem hér
er til umfjöllunar er gerð eftir.
Sagan er dæmigerð rómantík þar
sem fjallað er um sambandi tveggja
persóna. Hún er frægur ljósmynd-
ari sem missir fótfestuna þegar eig-
inmaðurinn fer frá henni. Hún fer
í heimsókn til vinkonu sinnar sem
býr á stóru sveitabýli. Þar hittir
hún draumaprinsinn í líki kúreka
en erfiðlega gengur þeim að ná
saman...
Það er fullt af fólki sem hefur
gaman af myndum sem þessum og
veitir hún þessum hóp örugglega
góða skemmtun en ég hefði viljað
sjá betri vinnubrögð, metnaðurinn
er enginn og leikur í flestum tilfell-
um afleitur.
Örlagasaga úr fortíðinni
FRIED GREEN TOMATOES
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Jon AvneL
Aðalhlutverk: Kathy Bates, Jessica
Tandy, Mary Stuart Masterson og
Mary-Louise Parker.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 130 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Fried Green Tomatoes er einstak-
lega ljúf og mannleg kvikmynd. í
myndinni eru sagðar tvær ólíkar
sögur sem tengjast þótt þær gerist
með löngu millibili.
Kathy Bates leikur óánægða eig-
inkonu sem borðar aUtaf of mikið.
Hafa allir megrunarkúrar hennar
verið árangurslausir hingaö til og
kemur meðal annars óánægja
STEiKTIR
TÓMATAR
Idgie (Mary Stuart Masterson), Sipsey (Cicely Tyson) og Ruth (Mary-
Louise Parker) fyrir framan veitingastaðinn Whistle Stop Café.
hennar með eiginmanninn fram í
ofáti. Dag einn, þegar hún er í
heimsókn á dvalarheimih fyrir
aldraða, hittir hún gamla konu,
Lfty sem byijar að segja henni sögu
úr fortíðinni um tvær stúlkur sem
tengjast órjúfanlegum böndum
þegar bróðir annarrar þeirra deyr.
Gamla konan segir síðan söguna
í nokkrum hlutum á heimsóknar-
DV-myndbandalistinn
My Cousin Vinnie er i fimmta saeti þessa vikuna. I myndinni leikur
Joe Pesci lögfræðing sem kemurfrá New York til smábæjar í Suður-
rikjunum til að verja frænda sinn sem hefur verið ákæröur fyrir morö.
1(3) FarandAway
2(1) Fried Green Tomatoes
3 (2) Stop, or My Mom Will Shoot
4(4) LiveWlre
5(8) My Cousin Vmnie
6(7) The Mambo Kings
7(6) HoiroAlone
8(5) Wayne’s Worid
9 (12) Quicksand: No Escape
10 (10) Batman Returns
11 (-) Grand Canyon
12(-) Unhrersal Sokiier
13 (11)
14(9}
15 (■) Straith Talk
★★
©
Veijandi með enga reynslu
MY COUSIN VINNIE
Útgefandi: SAM-myndbönd.
Leikstjóri: Jonathan Lynn.
Aðalhlutverk: Joe Pesci, Ralph Macchio
og Marisa Tomei.
Bandarisk, 1991 -sýningartiml 114 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Joe Pesci hefur skotist upp á
stjömuhimininn á örskömmum
tíma, þökk sé snaggaralegum leik
hans í nokkrum vel heppnuðum
kvikmyndum, sérstaklega er eftir-
minnilegur leikur hans í The Good-
fellas. My Cousin Vinnie er fyrsta
myndin þar sem hann er í aðaihlut-
verki og kemur þaö nokkuð á óvart
að það skuli vera gamanmynd en
Pesci stendur sig samt ágætlega
þótt handritið hefði mátt vera
betra.
Pesci leikur lögfræðinginn Vinny
sem varla veit hvernig réttarsalur
lítur út. Þegar frændi hans og vinur
em teknir og ákærðir fyrir morð í
hjarta Suðurríkjanna er hann feng-
inn til að veija piltana. Lendir hann
strax í útistöðum við dómarann
sem er íhaldssamur og hefur engan
skilning á hvaða fatnaöur er í tísku
í New York. Vinny kemur sér í
hvert klandrið á eftir öðru og em
hinir ákærðu, sem að sjálfsögðu
em saklausir, orðnir vonlausir um
að þeir sjái nokkum tímann dags-
birtu aftur en Vinny á hauk 1 horni
sem er kærasta hans og reynist hún
betri en enginn þegar á reynir.
My Cousin Vinny rennur ljúflega
í gegn en er ekkert stórafrek og þaö
verður aö segjast eins og er að Joe
Pesci er mun betri í hlutverki
skúrksins en hetjunnar. Aðrir leik-
ara em í frekar litlausum hlutverk-
um fyrir utan Marisu Tomei sem
leikur kæmstuna með miklum
ágætum.
-HK
tímum. Sagan hefur mikil áhrif á
hina óhamingjusömu húsmóður og
gerir það að verkum að hún fer að
hugsa meira um sjálfa sig og tekur
sig virkilega á í ofáti sínu og sam-
skiptum við eiginmann og aðra, oft
á kátbroslegan hátt.
Sagan inni í sögunni er samt
þungamiðja myndarinnar og birt-
ast þar afar áhugaverðar persónur.
Samband Idgie og Ruthar er mjög
náið og er ekki laust við að maður
renni grun í að vinskapur stúlkn-
anna tveggja hafi verið meira en
vinskapur og á einum stað viður-
kennir Ruth ást sína til Idgie.
Fried Green Tomatoes er mjög
vel leikin af þeim íjórum leikkon-
um sem fara með aðalhlutverkin,
Jessicu Tandy, Kathy Bates, Mary
Stuart Masterson og Mary-Louise
Parker og erfitt að gera upp á milli
þeirra.
í heild er Fried Green Tomatoes
sérstaklega góð mynd en það sem
helst má finna að henni er að sög-
umar eru slitróttar í framsetningu.
-HK
Súperhermenn
UNIVERSAL SOLDIER
Útgelandi: Skifan.
Leikstjóri: Roland Emmerich.
Aðalhlutverk: Jean-Claude Van Damme
og Dolph Lundgren.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi 101 min.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
Jean-Claude Van Damme og
Dolph Lundgren eru þekktir af af-
rekum í miklum hasarmyndum
sem ekki hafa kostað mikið hingað
til. Það er aftur á móti mun meira
lagt í Universal Soldier en þeir eiga
að venjast en sá kostnaður liggur
aöallega hjá tæknideildinni sem
stendur sig vel. Van Damme og
Lundgren eru aftur á móti við sama
heygarðshomið, eru bestir þegar
þeir opna ekki munninn.
í myndinni leika þeir hatursfé-
laga úr Víetnam-stríðinu sem eru
frystir til geymslu. Rúmum tuttugu
árum seinna birtast þeir sem liðs-
menn Alþjóðahersveitar. Þá á að
vera búið að svipta þá allri hugsun,
þeir eru orðnir að vélum sem eng-
inn ræður við þegar þeim er beitt.
Þrátt fyrir það er ekki búið að
drepa niður allt sjálfstæði og smátt
og smátt gera þeir gert sér grein
fyrir hveijir þeir eru.
Van Damme leikur góða töffar-
ann sem gerir sér grein fyrir
hversu hættulegur hann er en
Lundgren þann vonda sem truflast
og heldur að hann sé enn í Víetnam
og að allir sem verða á vegi hans
eru óvinir.
Universal Soldier er ágæt
spennumynd fyrir þá sem vilja
mikið ofbeldi. Það er alltaf eitthvað
aö gerast en heldur fmnst mér
langt lokaatriði vera í slæmu mót-
vægi við það sem á undan er geng-
ið. Fyrsti hálftíminn er besti hluti
myndarinnar.
-HK