Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993.
Skák
Áskorendaeinvígið á Spáni:
Byrjendabragur á
taflmennsku Shorts
- og drottningin varð að láta líf sitt fyrir riddara
Áskorendaeinvígi Timmans og
Shorts í smábænum San Lorenzo
de Escorial nálægt Madrid er nú
vel hálfnað, tefldar hafa verið átta
skákir af fjórtán. Alit bendir til
þess að lokaskákir einvígisins
verði afar spennandi. Málsháttur-
inn góði: „Sá vinnur sem leikur
næstsíðast af sér“ gæti átt vel við
ef reynt væri að spá fyrir um úr-
sht. Taflmennska kappanna hefur
fram til þessa verið í slöku meðal-
lagi og ekki þarf að koma á óvart
aö heimsmeistarinn Kasparov telji
þá auðvelda bráð í fjöltefli.
Níunda skákin verður tefld í dag,
laugardag, en að loknum átta skák-
um er staðan jöfn, 4-4. Timman
tókst loks að jafna í sjöundu skák-
inni og gerði það á hraustlegan
Umsjón
Jón L. Árnason
hátt. Sömu sögu er þó að segja um
þá skák eins og fyrri vinningsskák-
ir í einvíginu að sigurinn byggðist
frekar á mislukkaðri taflmennsku
andstæðingsins en snilldartöktiun
sigurvegarans.
Short var greinilega vankaður
eftir að hafa misst forystuna í ein-
víginu og hann tók þann kostinn
að fara sér að engu óðslega í átt-
undu skákinni sem tefld var á
fimmtudag. Timman átti ekki í
vandræðum með að jafna taflið og
eftir 28 leiki sættust þeir á skiptan
hlut.
Athyglisvert er að í sjöundu
skákinni fór Timman í smiðju til
Fischers og beitti svonefndu upp-
skiptaafbrigði af spænskum leik.
Þetta leiðir óneitanlega hugann að
einvigi Fischers og Spasskíjs í Sveti
Stefan og Belgrad sl. haust. Eftir
því sem Short og Timman tefla
fleiri skákir kemur æ betur í Ijós
hve Fischer og Spasskíj tefldu í
raun og veru vel!
Byijendum hættir til að gæta
drottningarinnar ekki nægilega
vel, stundum þvælast þeir með
hana um borðiö en gleyma öðrum
mönnum. Þegar áskorandi gerir sig
sekan um slík mistök hlýtur eitt-
hvað mikið að vera að. En þessi
urðu örlög drottningar Shorts í sjö-
undu skákinni - hún varð að láta
líf sitt fyrir riddara.
Sjöunda einvígisskákin
Hvítt: Jan Timman
Svart: Nigel Short
Spænskur leikur
1. e4 eS 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Bxc6 dxc6 5. 0-0 Dd6
Spasskíj hafði annan háttinn á í
einvíginu við Fischer, lék 5. - fB,
sem er annar viðurkenndur leik-
máti.
6. Ra3 Be6
Algengara er 6. — b5 til að hindra
í eitt skipti fyrir öll að hvíti riddar-
inn komist á c4-reitinn. Leikur
Shorts þykir þó einnig standa fyrir
sínu, t.d. eftir 7. Rg5 h6 8. Rxe6
Dxe6 9. d3 Bxa310. bxa3 Re7 o.s.frv.
Næsti leikur Timmans er nýr af
nálinni.
7. De2!? f6 8. Hdl g5?
Eftir 40 mínútna umhugsun legg-
ur Short á vafasamar brautir - á
kostnað liðsskipunar. Short átti
ýmissa annarra kosta völ, s.s. 8. -
0-0-0 eða 8. - c5 og treysta stöðuna.
9. d4!
„Sókn á væng skal svaraö með
sókn á miðborði," segir gamalt lög-
mál sem enn er í fullu gildi.
9. - g4 10. Rel 0-0-0
Ef 10. - exd411. c3 og vinnur peð-
ið strax aftur.
11. Be3 h5 12. d5! cxd5 13. exd5 Bf7
14. c4
Hvítu peðin eru komin á skrið og
myljandi sókn er í uppsiglingu.
Ekki gekk áðan 13. - Bxd5? vegna
14. c4 og biskupinn fellur. Nú hótar
hvítur 15. c5 og næst 16. c6 og bijóta
upp kóngsstöðuna.
14. - Dd7 15. d6!?
Baráttan stendur um hvort svart-
ur nær að skorða hvitu peðin eða
hvort hvítur nær að opna línur að
kónginum. Enn er sama stef á ferð-
inni - ef 15. - Bxd6? 16. c5 og vinn-
ur biskupinn. En 15. - cxd6 hlýtur
að vera eini raunhæfi kosturinn.
Hvítur gæti þá haldið áfram sókn-
inni með 16. b4, eða reynt 16. c5 d5
17. c6 bxc6 18. Hacl með sterku
frumkvæði.
15. - Dc6? 16. c5 Rh6 17. b4 Da4
Svartur reynir af veikum mætti
að trufla áform hvíts en drottning-
in má sín lítils óstudd.
18. Rc4 Hd7 19. Ra5! c6
Þar með eru örlög drottningar-
innar ráðin en hvítur hótaði 20. c6!
með skjótum sigri.
20. Rd3 Rf5 21. a3! Kb8
ABCDE FGH
22. Rb2 Db5 23. Del!
Svartur á ekki svar við hótuninni
24. a4 sem fangar drottninguna.
23. - Rxe3 24. fxe3 Bh6 25. Khl h4
26. a4 Dxa5 27. bxa5 g3 28. h3 Bg5
29. Rd3 Ka8 30. Habl He8 31. Hb6
Bd5 32. e4
7 Og Short gafst upp.
í áttundu skákinni beitti Short
sjaldgæfri leið gegn opna afbrigði
Timmans af spænskum leik en
Hollendingurinn var vel með á nót-
unum:
Áttunda einvígisskákin:
Hvítt: Nigel Short
Svart: Jan Timman
Spænskur leikur.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
RfB 5. 0-0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5 8.
Rxe5
Sjötta einvígisskákin tefldist
þannig: 8. dxe5 Be6 9. De2 Be7 10.
Hdl 0-0 11. c3 Rc5 12. Bc2 Bg4 13.
b4 Ra4 14. Bf4 Dd7 15. Dd3 g6 16.
Dxd5 Dxd5 17. Hxd5 Rb6 18. Hdl
Had8 19. Hel Rd5 20. Bh6 Hfe8 21.
a4 Bxf3 22. gxf3 Bf8 23. BxfB KxfB
24. e6 f6! og Timman náði von bráð-
ar peði sínu aftur og Short mátti
taka á öllu sínu til að halda jafn-
vægi.
Leikur Shorts nú er vel þekktur
en þykir ekki sérlega skeinuhættur
svörtum. Timman jafnar taflið auð-
veldlega.
8. - Rxe5 9. dxe5 c6 10. Rd2 Rxd2 11.
Bxd2 Be7 12. Dh5 Be6 13. c3 Dd7 14.
Bg5 Bf5 15. Hfel Bg6 16. Dh4 Bxg5
17. Dxg5 0-0 18. Hadl Hfe8 19. He3
Df5 20. Dxf5 Bxf5 21. h3 h5 22. Hdel
Had8 23. Bdl g6 24. b4 c5 25. bxc5
Hc8 26. a4 Hxc5 27. axb5 axb5 28. g4
ABCDEFGH
- Jafntefli.
Tuttugu ára biðskák
Þótt skákmenn láti sjaldnast
trufla sig við tafliðkan sína verða
þeir þó að lúta í lægra haldi fyrir
náttúruöflunum. Eldgosið í Heima-
ey 1973 setti þannig öllum að óvör-
um skákþing Vestmannaeyja úr
lagi. Nú er loks fyrirhugað að ráða
bót á því.
Aö kvöldi 22. janúar 1973 fór skák
Helga Ólafssonar, síðar stórmeist-
ara, og Andra Hrólfssonar, nú hjá
Flugleiðum og stjómarmanns í
Skáksambandi íslands, á skákþingi
Vestmannaeyja í bið. Tefla átti bið-
skákina áfram næsta dag en af því
gat af skiljanlegum ástæðum ekki
oröið.
í tilefni þess að í dag eru tuttugu
ár hðin frá upphafi goss ætla þátt-
takendur á skákþinginu að halda
áfram þar sem frá var horfið og
ljúka mótinu. Hvort hugmyndin er
komin frá Fischer, sem tók sér tutt-
ugu ára hlé eins og alkunna er,
skal ósagt látið. En staðan á skák-
þinginu er sú að Helgi Ólafsson
hefur hlotið 9 v. af 9 mögulegum
og á biðskákina frægu við Andra.
Honum nægir jafntefli til þess að
hljóta nafnbótina „Skákmeistari
Vestmannaeyja 1973.“ Össur Krist-
insson hefur einnig 9 vinninga en
hann hefur lokið skákum sínum á
mótinu.
Biðstaðan í skák Helga og Andra
er þessi:
ABCDEFGH
Andri, sem hefur hvítt, lék bið-
leik í 41. leik. Helgi telur sig eiga
unnið tafl en ef náttúruöflin eru á
bandi Andra gæti oröið tvísýnt um
úrslit.
Skákþing
Reykjavíkur
Guðmundur Gíslason er efstur á
Skákþingi Reykjavíkur er tefldar
hafa verið fimm umferðir af ellefu.
Hann hefur unnið allar skákir sín-
ar, síðast vann hann Dan Hansson
á miðvikudagskvöld. Þröstur
Ámason er í 2. sæti með 4,5 v. en
4 v. hafa Dan Hansson, Þröstur
ÞórhaUsson, Páll Agnar Þórarins-
son, Ólafur B. Þórsson, Friðrik
Egilsson, Sævar Bjamason, Stefán
Briem og Hrannar Baldursson. Jón
Viktor Gunnarsson hafði 3,5 v. og
óteflda skák við Braga Þorfinnsson
sem hafði 3 v. Sjöttu umferð móts-
ins átti að tefla í gærkvöldi en sjö-
unda umferð verður tefld á sunnu-
dag og hefst í Faxafeni 12 kl. 14.
Alls tefla 69 keppendur í opnum
flokki sem er svipuð þátttaka og í
fyrra. Flensan, sem heijar á íbúa
höfuðborgarsvæðisins, hefur sett
nokkurt strik í reikninginn. Fresta
þurfti sjö skákum í 3. umferð af
hennar völdum.
Keppni í unglingaflokki hefst í
dag, laugardag, kl. 14. -JLÁ
i