Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Page 23
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993.
23
Einstakur
afreksmaóur
- DV rifjar upp feril Jóns Páls sem lést aðeins 32 ára að aldri
Jón Páll Sigmarsson, kraftlyftinga-
og aflraunamaður, var án efa einn
mesti og besti íþróttamaður sem ís-
lendingar hafa eignast. Jón Páll vann
glæsilega sigra á mótum hérlendis
og erlendis. Frammistaða hans og öll
framkoma á stórmótum erlendis var
ómetanleg kynning fyrir land og
þjóð. Jón Páll stundaði íþrótt sína af
miklu kappi og eljusemi. Dugnaður
hans og keppnisharka var einstök
og öðrum til efflrbreytni.
Hér eru á efflr rakin helstu afrek
Jóns Páls Sigmarssonar sem aðeins
var 32 ára er hann lést. Af mörgu er
að taka þegar slíkur afreksmaður á
í hlut en hér er greint frá því helsta.
Kraftlyftingar
Jón Páll Sigmarsson hóf að keppa
í kraftlyftíngum árið 1978. Strax á
sínu fyrsta mótí, Jakabólsmótinu,
vann hann til gullverðlauna í 110 kg
flokki. Þetta mót markaði upphafið
að glæstum ferh Jóns Páls á kraft-
lyftingamótum næstu árin. Einnig
keppti hann á nokkrum mótum í
ólympískum lyftíngum (snönm og
jafnhöttun) og vann þar fyrst til verð-
launa á unglingameistaramóti ís-
lands 1978 í 110 kg flokki. Fljótlega
sneri hann sér nær alfarið að kraft-
lyftingum og hver sigininn rak ann-
an á kraftlyftíngamótum hér innan-
lands og ljóst að þar fór verðandi
afreksmaður.
Brátt fór Jón Páll að láta að sér
kveða á erlendum vettvangi. Hann
vann silfurverðlaun á Evrópumeist-
aramótínu í kraftlyftingum 1980 í
Sviss, lyfti samanlagt 787,5 kg en árið
áður hafði hann hlotið silfurverð-
laun á Norðurlandamótinu í Reykja-
vík. Nú var komið að gullverðlaun-
um en Jón Páh stóð efstur á verð-
launapahinum eftir Norðurlanda-
mótíð í Drammen í Noregi 1980, lyftí
samtals 845 kg. Silfurverðlaun vann
Jón Páh á Evrópumótinu í Parma á
Ítalíu 1981 og lyfti samtals 852,5 kg.
Hann bætti árangur sinn stöðugt og
á íslandsmótinu í kraftlyftingum
1981 lyftí Jón Páh í fyrsta sinn yfir
900 kg í samanlögðu, samtals 912,5
kg. Á Norðurlandamótinu í kraftlyft-
ingum 1981 vann Jón Páh guhverð-
laun og lyftí samtals 890 kg í +125
kg flokki.
Árið 1981 hélt Jón Páh ásamt fleiri
kraftlyftingamönnum á heimsmeist-
aramótíð í Indlandi og vann þar th
bronsverðlauna og lyftí samtals 912,5
kg. Silfurverðlaun urðu hlutskiptí
Jóns Páls á Evrópumótinu á Álands-
eyjum 1983 og þá lyfti hann 925 kg
samtals.
Á þessum árrnn vann Jón Páh
hvem sigurinn af öðrum á íslands-
mótum og innanfélagsmótum og
virtist ósigrandi í sínum þyngdar-
flokki.
Árið 1984, á Jötnamóti í Sjónvarps-
sal, náði Jón Páh sínum besta ár-
angri í kraftlyftingum. Þá lyftí hann
365 kg í hnébeygju, 235 kg í bekk-
pressu og 370 kg í réttstöðulyftu.
Samtals 970 kg og árangurinn nýtt
Evrópumet. Fleiri Evrópumet settí
Jón Páh á ferlinum, einnig Norður-
landamet og mikinn fjölda íslands-
meta.
Aflraunamót
Upphafið á ferh Jóns Páls á aflrauna-
mótum, hérlendis og erlendis, má
rekja til ársins 1982. Þá keppti hann
á alþjóðlegu móti í Svíþjóð, „Viking-
ur ’82“. Jón Páh hafnaði í öðru sætí
Jón Páll Sigmarsson í aflraunakeppni. Hann vann í keppninni um sterkasta
mann heims fjórum sinnum, árin 1984, 1986, 1988 og 1990.
íþróttamaður ársins árið 1981.
á mótinu og vakti feikiega athygh. í
kjölfarið var honum boðið að taka
þátt í keppninni um sterkasta mann
heims á Nýja-Sjálandi 1983. Þar hafn-
aði hann í öðru sæti, aðeins einu stigi
á eftír Bretanum Capes. í hönd fór
sérlega glæsheg sigurganga í keppni
við sterkustu menn heims. Jón Páh
varð sterkasti maður heims 1984, í
öðru sæti 1985, sigraði 1986 og 1988,
í þriðja sæti 1989 og árið 1990 varð
Jón Páh sterkasti maður heims í
flórða skipti. Árið 1987 fór fram
keppni sem köhuð var „Sterkasti
maður allra tíma“. Sigurvegari varð
Jón Páh Sigmarsson.
Auk þeirra afreka, sem greint hef-
ur verið frá hér að framan, vann Jón
Páh fjölmörg önnur stór aflrauna-
mót. Þar má nefna glæsilega sigra á
World Muscle Power Champion árin
1985,1986,1989,1990 og 1991 en þetta
mót er eitt af fjórum stærstu afl-
raunamótum í heiminum ár hvert.
Síðasta afrek sitt á aflraunamóti
vann Jón Páh á síðasta ári er hann
sigraði glæshega í keppni um sterk-
asta mann Finnlands.
Jón Páh Sigmarsson var kosinn
íþróttamaður ársins á íslandi af
Samtökum íþróttafréttamanna árið
1981 eftír að hafa unnið th margra
affeka það ár.
Hann lét einnig mikið að sér kveða
á íslandsmótum í vaxtarrækt og varð
tvívegis íslandsmeistari og sigraði
þá með yfirburðum.
Um Jón Pál Sigmarsson má segja,
með fullri virðingu fyrir öðrum af-
reksmönnum, að hann hafl skarað
fram úr á mörgum sviðum og í raun
verið einstakur íþróttamaður.
-SK
Kíi ei
Vertu með
draumurinn gæti orðið að veruleika !
GRAFlSK HÖNNUN: MERKISMENN HF