Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Blaðsíða 28
LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 1993.
40
Helgarpopp
Málaferli vegna
útgáfusamnings
Bubba og Steina hf. ?
Pyrstu sólóplötu Bjarkar Guð-
mundsdóttur er beðið með tals-
verðri eftirvæntingu bæöi hér á
landi og erlendis. Björk hefur
verið að vinna að plötunni meira
og minna síðastliöið ár. Uppliaf-
lega stóð til að gripurinn kærai á
markaö í febrúar eða mars en nú
bendir flest til að útgáfunni seinkí
fram í maí eða í versta falli fram
á haustið. Björk er að klára að
hljóðblanda síðustu lögin á plöt-
una þessa dagana úti í Bretlandi
þangað sem hún er flutt búferl-
um.
Það er útgáfufyrirtæki Bjarkar
sjálfrar sem gefur plötuna út en
One Little Indian dreifir henni.
Deilur hafa risið milh Bubba Mort-
hens og hijómplötuútgáfunnar
Steina. Bubbi hefur lýst yfir áhuga á
að færa sig um set en Steinar Berg
forstjóri segir Bubba eiga eftir að
skila einni stúdíóplötu upp í þriggja
platna samning sem gerður var árið
1990. „Tónleikaplatan Ég er... var
ekki inni í þeim samningi, um hana
var samið sérstaklega eins og reynd-
ar plötu GCD,“ segir Steinar Berg.
Bubbi Morthens segist hins vegar hta
svo á að Ég er... platan standi innan
þriggja platna samningsins.
Bubbi og Rúnar
semja í Hollandi
En deilumar ná ekki einungis til
sólóplatna Bubba Morthens. GCD er
gengin í endumýjun lífdaga og kem-
ur plata hljómsveitarinnar út hjá
Skífunni í sumarbyrjun. Steinar
Berg er afar óhress með að samningi
við fyrirtæki sitt skuh rift einhliða.
Hann segir að vorið 1991 hafi verið
gerður samningur við Bubba og Rún-
ar um þrjár GCD plötur en aðeins
einni hafi verið skilað. í þessu máh
lV> greinir Bubba og Steinar einnig á.
Bubbi segir það mat sitt, Rúnars Júl-
íussonar og Óttars Felixsonar að
GCD sé laus alira mála hjá Steinum.
í síðustu viku héldu Bubbi og Rún-
ar til Hohands þar sem þeir sömdu
efni á nýju plötuna en hún verður
tekin upp í mars.
Eins og fyrr segir hefur Bubbi
Morthens hugsaö sér til hreyfings og
er útgáfusamningur GCD við Skíf-
una fyrsta skrefið í þá átt að hann
færi sig um set með sólóplötur sínar.
Bubbi gekk til hðs við Steina fyrir
tveimur og hálfu ári eftir að hafa
verið á samningi hjá Gramminu í
tæp fimm ár. Þar áður gerði hann
eina plötu hjá Iðunni, eina hjá Skíf-
unni og nokkrar hjá Steinum. Sam-
** kvæmt heimildum poppsíðunnar
hggur útgáfusamningur milh Bubba
og Skífunnar á borðinu og er fátt
annað eftir en að skrifa undir. Um
stóran samning er aö ræða og tals-
verðar fjárhæðir, en viðræður milh
Skífunnar og Bubba hafa staðið síðan
í október.
Bubbi Morthens.
Grundvöllur sam-
starfsins brostinn
Steinar Berg segir að farið verði
með þetta mál fyrir dómstóla ef þurfa
þykir. „Við getum ekki unað því að
samningum sé rift einhliða eins og
Bubbi ætlar sér að gera. Ég geri mér
grein fyrir að Bubbi kemur ekki til
Umsjón
Snorri Már Skúlason
með að gera fleiri plötur íyrir Steina
því grundvöllur samstarfsins er
brostinn. Fyrirtækið vih fyrst og
fremst leita réttar síns því þó Bubbi
sé stór í tónhstinni þá leyfist honum
ekki að komast upp með svona sið-
leysi“, segir Steinar Berg.
Bubbi Morthens segist ekki hafa
nema fátt eitt gott um Steinar Berg
og hans fyrirtæki að segja. Hann
harmar aö samstarfinu skuh ljúka á
þennan hátt því hann hafi búið til
mikla peninga fyrir Steina og því
bundið vonir við að kveðjan yrði
öðruvísi.
Plata
Bjarkar
útgefin
í maí
KK rokkari ársins og
Bein leið besta platan
Dagskrárgerðamenn á rás 2 fengu
á milli 30 og 40 tónlistarmenn, fjölm-
iðlamenn og grúskara til að leggja
mælistiku á tónhstarárið 1992. Ur
niðurstöðunum voru búnir til hstar
yfir bestu erlendu og íslensku plötur
síðasta árs.
íslenskarplötur
1. KK - Bein leið
2. Bubbi Morthens - Von
3. Ný dönsk - Himnasending
4. Megas - Þrír blóðdropar
5. Jet Black Joe - Jet Black Joe
6. Egill Ólafsson - Blátt blátt
7. Júpiters - Tja tja
8. Orghl - Orgih
9. Sykurmolar-Stickaroundfor Joy
10. Kolrassa krókríðandi - Drápa
KK var valinn rokkari ársins í könn-
uninni, Jet Black Joe bjartasta vonin
og hljómleikaferð Sykurmolanna
með U2 töldu pælarar merkasta tón-
hstarviðburð ársins.
Erlendarplötur
1. REM - Automatic for the People
2. Eric Clapton - Unplugged
3. Peter Gabriel - So
4. BobDylan-GoodasIBeentoYou
5. Neh Young - Harvest Moon
6. Lou Reed - Magic and Loss
7. PJ Harvey - Dry
8. Arrested Development - 3 years, 5
months, 2 days in the Live of AD.
9. -10. Leonard Cohen - Future
9.-10. Nick Cave - Henrys Dream
Pattiá
kreik
Maðurinn sem margir vilja
kaha fyrsta pönkarann, Iggy Pop,
skríður úr fylgsni sínu í aprh og
í farteski hans verður ný plata.
Iggy er nú í hljóðveri í New Orle-
ans sem er í eigu galdramannsins
Daniel Lanois. Lanois er frægur
fyrir samstarf sitt við U2, Peter
Gabriel og Robbie Robertson.
Ekki fylgir sögunni hvort tví-
mennmgarnir rugla saman reyt-
umáplötunni.
Annar tónlistarmaður, sem
ekki hefur heyrst í lengi, er Patti
Smith. Lítið hefur farið fyrir
henni síðan platan Dream of Life
kom út árið 1988 en nú verður
bót á því. Spúsan er i New York
þar sem hún vinnur að nýrri
plötu en ekki er vitað nákvæm-
lega hvenær afraksturinn verður
opinberaður.