Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1993, Side 47
LAUGARDAGUR 23. JAIý.ÚAfi 1993. ,
59
Afmæli
Gísli Alfreðsson
Gísli Alfreðsson, skólastjóri Leiklist-
arskóla íslands, Asparfelii 4, Reykja-
vík, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Gísli fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Keflavík. Hann lék ííjölda
útvarpsleikrita á bemsku- og ungl-
ingsárunum, stundaði nám í Leik-
listarskóla Ævars Kvaran jafnframt
menntaskólanámi, lauk stúdents-
prófi frá MR og stundaði nám í raf-
magnsverkfræði í tvö ár við Techn-
ische Hochschuie í Munchen. Þá
stundaði hann leiklistamám við
Leiklistarskóla Kammerspieleleik-
hússins í Miinchen.
Að námi loknu starfaði Gísli við
Residenz-Theater í Miinchen í eitt
ár auk þess sem hann var aðstoðar-
leikstjóri við þáttagerð í sjónvarpi.
Hann var ráðinn leikari við Þjóð-
leikhúsið 1962 og hefur verið þar
leikari og leikstjóri í þrjátíu ár. Þá
hefur hann leikstýrtfjölda leikrita
í útvarpi og sjónvarpi.
Gísli var ritari Félags íslenskra
leikara 1967-75, formaður félagsins
1975-63, þjóðleikhússtjóri 1983-91 og
er skólastjóri Leiklistarskóla ís-
landsfrál992.
Gísli hefur þýtt á annan tug leik-
rita fyrir leiksvið og útvarp. Hann
er heiðurfélagi Félags íslenskra
leikarafrál992.
Fjölskylda
Gísli kvæntist 16.4.1967 Guðnýju
Árdal, f. 18.3.1939, ritara. Hún er
dóttir Inga Árdal, kaupmanns í
Reykjavík, sem er látinn, og Helgu
Bjömsdóttur tannsmiös frá Karls-
skála. Guðný var áður gift Þórði
Úlfarssyni flugmanni sem lést 1963.
Gísli var áður kvæntur Juliane Mic-
hael leikkonu en þau skildu.
Böm Gísla og Guönýjar eru Anna
Vigdis Gísladóttir, f. 22.8.1967, full-
trúi, en hennar maöur er Sveinbjöm
Kristjánsson, nemi við Tækniskóla
íslands, og eiga þau eina dóttur,
Guðnýju Osk, tveggja ára; Alfreð
Gíslason, f. 16.10.1975, nemi í for-
eldrahúsum.
Stjúpbörn Gísla eru Helga Elísabet
Þórðardóttir, f. 30.10.1956, sölumað-
ur í Reykjavík, gift Páli Kr. Pálssyni
forstjóra en sonur þeirra er Þórður
Páll, eins árs; Úlfar Ingi Þórðarson,
f. 6.11.1959, veitingamaður í Reykja-
vík, kvæntur Anne Katherine Hame
verslunarmanni og er dóttir þeirra
Sara Ehsabet, tveggja ára; Einar
Sveinn Þórðarson, f. 5.11.1961, ball-
ettdansari í New York; Þórður Jón
Þórðarson, f. 25.7.1963, skógtæknir
íMosfellsbæ.
Dóttir Gísla frá því áður er Elfa
Gísladóttir, f. 24.4.1955, leikkona í
Vancouver, var gift Kristjáni Vík-
ingssyni lækni sem er látinn og er
sonur þeirra Karl Axel, íjórtán ára.
Systir Gísla er Anna Jóhanna Al-
freðsdóttir, f. 15.6.1948, deildarstjóri
í Reykjavík, gift Finni Björgvinssyni
arkitekt og eiga þau þijú böm.
Foreldrar Gísla: Alfreð Gíslason,
f. 7.7.1905, d. 30.5.1976, bæjarfógeti
og sýslumaður í Keflavík, og kona
hans, Vigdís Jakobsdóttir, f. 14.12.
1906, píanókennari.
Ætt
Systkini Alfreðs vom Óskar ljós-
myndari og Sigrún, móðir Æ vars
Kvaran. Alfreð var sonur Gísla,
búfræðings og fasteignasala, Þor-
bjömssonar, b. á Bjargarsteini,
Gíslasonar. Móðir Alfreðs var Jó-
hanna, systir Hannesar, ritstjóra,
alþingismanns og þjóðskjalavarðar,
og Þorsteins hagstofustjóra, föður
Geirs, fyrrv. forstjóra Ræsis, og
Hannesar, fyrrv. aðalgjaldkera
Landsbankans. Jóhanna var dóttir
Þorsteins, b. á Brú í Biskupstung-
um, Narfasonar, og Sigrúnar Þor-
steinsdóttur, systur Steinunnar,
móður Tómasar Guðmundssonar
skálds.
Systir Vigdísar er Guðrún Jakobs-
dóttir Watson, í Skotlandi. Vigdís
er dóttir Jakobs, útgerðarmanns á
Seyðisfirði, Sigurðssonar og Önnu
bamakennara, systur Jósefs, fóður
Guðmundar Vignis, fyrrv. gjald-
heimtustjóra. Anna var dóttir
Magnúsar, snikkara í Reykjavík,
bróður Sæmundar, langafa Björg-
Gísli Alfreðsson.
vins, föður Sighvats heilbrigðisráð-
herra. Magnús var sonur Áma, ljós-
föður í Stokkhólma, Sigurðssonar,
og Margrétar Magnúsdóttur, systur
Pálma, langafa Jóns, fóður Pálma í
Hagkaupi, en Pálmi var einnig lang-
afi Helga Hálfdánarsonar skálds og
Péturs, föður Hannesar skálds.
Móðir Önnu barnakennara var Vig-
dís Ólafsdóttir, prests í Viðvík, bróð-
ur Þuríðar, langömmu Vigdísar for-
seta. Ólafur var sonur Þorvalds,
prófasts og skálds í Holti, Böðvars-
sonar, prests í Holtaþingum, Högna-
sonar prestafoður Sigurðssonar.
Gísli verður flarverandi á afmæl-
isdaginn.
Jón Guðmundur Bergsson
Jón Guðmundur Bergsson vélvirki,
Hjallavegi 15, Reykjavík, verður
sextugur þann 26. janúar næstkom-
andi.
Starfsferill
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hann lauk prófi í vélvirkjun frá
Iðnskólanum í Reykjavík og lærði
fagiö einnig hjá Landssmiðjunni í
Reykjavík.
Jón hefur starfað víða um ævina,
hjá Vegagerð ríkisins, við köfun og
járnsmíði í vélsmiðjunni Hamri og
við uppbyggingu Búrfellsvirkjunar.
Jón var einnig starfsmaður Viðlaga-
sjóðs í Vestmannaeyjum og starfaði
við kæhngu við eldgosið í Eyjum.
Árið 1974 réð hann sig sem viðgerð-
armann á vélaverkstæði álversins í
Straumsvík og hefur starfað þar síð-
an.
Fjölskylda
Jón kvæntist 16.4.1961 Guðrúnu
Bjömsdóttur, f. 28.5.1940, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Bjöms Guðmunds-
sonar, f. 27.12.1910, d. 12.1.1983,
fýrrv. stýrimanns og síðar verk-
stjóra hjá Eimskip, og Sigríðar
Hansdóttur, f. 8.12.1916, d. 12.12.
1983, húsmóður.
Börn Jóns og Guðrúnar em: Sig-
ríður Ágústa, f. 23.8.1961, meðferð-
arfulltrúi, búsett í Sandgerði, gift
Marteini Ölafssyni, f. 4.1.1959, sjó-
manni og eiga þau Þórdísi, Jón Guð-
mund, Hafstein Alexander og Val-
geir Elís; Bjöm, f. 25.9.1963, við-
skiptafræöingur, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Sigríði Bendsen, f.
13.8.1965, og eiga þau Karl Birgi og
Guðrúnu Söndru; Sigrún, f. 14.7.
1965, verkakona, búsett í Reykjavík;
og Páll, f. 16.9.1973, verkamaður,
búsettur í Reykjavik, í samúð með
Rebekku Rós Ellertsdóttur, f. 12.7.
1974.
Hálfsystkini Jóns, sammæðra,
em: Guðríður Valtýsdóttir, f. 2.3.
1945, skrifstofumaður, gift Sverri
Berg Guðjónssyni, f. 20.4.1945,
starfsm. álversins í Straumsvík; og
Sigurður Rúnar Valtýsson, f. 16.10.
1951, rafvirki, í sambúð með Bimu
Jóhannsdóttur, f. 25.4.1952, skrif-
stofumanni.
Hálfbræður Jóns, samfeðra, em:
Sveinn, f. 5.7.1932, kvæntur Randi
Bergsson og búsettur í Noregi; og
Sigurður, f. 5.12.1944, vélstjóri,
kvæntur Jónu M. Sighvatsdóttur, f.
Jón Guömundur Bergsson.
13.4.1947, sjúkraliða.
Foreldrar Jóns vom Bergur
Sveinsson, f. 5.10.1910, d. 5.8.1978,
vélstjóri og Ágústa Ragnheiður
Pálsdóttir, f. 10.8.1913, d. 21.7.1963,
húsmóðir í Reykjavík.
Fósturfaðir Jóns var Valtýr Niku-
lásson, f. 20.7.1911, d. 17.10.1972,
verkamaður.
Jón tekur á móti gestum á heimili
sínu í kvöld, laugardaginn 23. jan-
úar,eftirkl. 19.
Fanný Siguróardóttir
Fanný Siguröardóttir húsmóðir,
Birkivöllum 1, Selfossi, verður 80
ára á morgun, sunnudag.
Fjölskylda
Fanný fæddist í Varmahlíð undir
Eyjaíjöllum en ólst svo upp í Vest-
mannaeyjum. Framan af ævinni
vann hún ýmis störf til sjávar og
sveita en hefur verið húsmóðir á
Selfossi frá árinu 1956 er hún gekk
íhjónaband.
Samhliða húsmóðurstörfunum
hefur Fanný lítillega fengist við rit-
störfumævina.
Fanný giftist 1956 Halldóri Áma-
syni, f. 25.2.1909, d. 5.6.1986, skrif-
stofu- og iðnverkamanni. Hann var
sonur Ama Tómassonar, hrepp-
stjóra á Stokkseyri, og Guðnýjar
Ólafsdóttur, vinnukonu á Reyðar-
vatni, á Rangárvöllum og víðar.
Sonur Fannýjar og Halldórs er
Ómar Þór, f. 26.5.1954, rithöfundur
á Selfossi, var kvæntur Elísabetu
Guðmundsdóttur, þau skildu, og
eiga þau Aþenu, f. 1973, sem nú á
einn son. Seinni kona Ómars var
Margrét Einarsdóttir, þau skildu,
og eiga þau Urði, f. 1981, og Höllu,
f. 1989.
Dætur Halldórs og fyrri konu
hans, Ásdísar Árnadóttur, d. 1949,
em: Ema, f. 16.1.1946, húsmóðir á
Selfossi, gift Viðari Zophaníassyni
skipstjóra og eiga þau Halldór Krist-
in, f. 1965, sem nú á einn son, Ásdísi
Hrönn, f. 1967, sem nú á tvö böm,
óg Atla Rafn, f. 1981; og Ásdís Guð-
rún, f. 18.7.1948, húsmóðir á Sel-
fossi, gift Ágústi Magnússyni fram-
kvæmdastjóra og eiga þau Sonju
Freydísi.f. 1968.
Hálfbróðir Fannýjar, sammæðra,
er Sigþór Sigurðsson, fyrrv. skip-
stjóri og útgerðarmaöur í Vest-
mannaeyjum.
HálfsystkiniFannýjar, samfeðra,
em: Sigríður; Gunnbjörg, nú látin;
Kristjána; Gunnar; Ámi, nú látinn;
Sigurbjörg; Lilja; Alfreð, nú látinn;
Haraldur; Sigrún Alda; og Unnur,
dóung.
Fanný Sigurðardóttir.
Foreldrar Fannýjar vom Sigurður
Gunnarsson, f. 6.6.1891, d. 19.4.1924,
sjómaður á Seyðisfirði, og Svein-
björg Sveinsdóttir, f. 11.10.1882, d.
25.1.1976, verkakona í Vestmanna-
eyjum.
80 ára
Sigríður Sigurbjörnsdóttir,
Laugarbrekku 20, Húsavík.
.januar
50ára
Jóhannes I. Friðþjófsson,
Hraunbæ 22, Reykjavík.
Ásbjörn Guðmundsson,
Þorgrímsstööum, Kirkjuhvamms-
hreppi.
Guðiaug Elín Úlfarsdóttir,
Gautlandi 13, Reykjavík.
Elísabet Sveinsdóttir,
Álfalandi 12, Reykjavík.
70ára
Sigriður Þorsteinsdóttir,
Giljahlíð, Reykholtsdalshreppi.
40 ára
60 ára
Sigurgeir Amorson,
Bólstaðarhlíð 52, Reykjavik.
Valdimar Leifsson,
Ægisíðu 72, Reykjavik.
Sigurður G. Þórarinsson,
Boðaslóð 25, Vestmannaeyjum.
Sigrún Hlif Gunnarsdóttir,
TjamarJundi lOf, Akureyri.
Árni Ragnar Rósantsson,
Lyngholti 12, AkureyrL
Jón Bjami Jónsson,
netagerðar-
meistari,
Grenigrand24,
Akranesi.
EiginkonaJóns
erSigurlínaE.
Kristinsdóttir.
Þauverðaaö
heimanáaf-
mælisdaginn.
Aragerði 17, Vogum.
Drekagili 3, Akureyri.
HrafnkelIS. Gísiason,
Fífuhvamroi 19, Kópavogi
KrsysztofWoskresinski,
Snæfellsási7, Helhssandi.
Helgi Hermannsson,
Heiðarbraut lc, Keflavík.
Gunnar Gunnarsson,
Miklubraut46, Reykjavík.
Jóhanna Helgadóttir,
Stigahlíð22,Reykjavík.
Húsafriðunarsjóður
Húsafriðunarnefnd ríkisins auglýsir eftir umsóknum
til Húsafriðunarsjóðs sem starfar samkvæmt lögum
nr. 88/1989 og reglugerð nr. 316/1990.
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
- undirbúnings framkvæmda, áætlanagerðar og
tæknilegrar ráðgjafar - framkvæmda vegna viðhalds
og endurbóta á friðuðum húsum og húsum sem
hafa menningarsögulegt og listrænt gildi, enda sam-
þykki nefndin þær áætlanir sem unnið verður eftir -
byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
Umsóknir skulu sendar eigi síðar en 1. mars 1993
til Húsafriðunarnefndar ríkisins, Þjóðminjasafni ls-
lands, pósthólf 1489, 121 Reykjavík, á eyðublöðum
sem þar fást. Frekari upplýsingar eru veittar í síma
91-622475 milli kl. 10 og 12 virka daga.
Húsafriðunarnefnd ríkisins
4