Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Qupperneq 1
Áeiginvegumí
austurrísku Ölpuniun
Þeir eru margir sem kjósa aö
feröast á eigin vegum til austur-
rísku Alpanna. Sumir kjósa að
sameina slíka ferð verslunarferö til
Þýskalands og taka þá gjarnan bíl
á leigu í Lúxemborg. Þeir sem ekki
vilja eyða tíma í akstur geta flogið
til Innsbruck eða Salzburg þaðan
sem stutt er á mörg skíðasvæði.
Skíðasvæðin í Austurríki skipta
hundruðum svo úr nógu er að velja.
Stutt er á milli margra þeirra þann-
ig að séu ferðalangar á bílaleigubíl
er tilvalið að skoða fleiri en eitt áður
en ákvörðun er tekin um dvalarstað.
Það er að minnsta kosti hægt að
gera í upphafi og lok skíðatímabils-
ins þegar ferðamenn eru fáir. Oft er
að finna ágætis brekkur á litlum og
óþekktum stöðum. Þar er verð á gist-
ingu og lyftukortum lægra en á
stærri og þekktari stöðum.
Snjóöruggur staður
Eitt af snjóöruggustu svæðunum
í Austurríki er Obertauem sem er
fremur óþekktur staður utan Aust-
urríkis þótt hann sé nokkuð stór.
Svæðið er um 90 kílómetra sunnan
við Salzburg. Rútuferð frá þessari
fallegu borg til skíðasvæðisins tek-
ur um tvær klukkustundir.
Obertauern hggur í fjallaskarði
og snúa brekkurnar á skíðasvæð-
inu bæði í suður og norður. Sjálfur
bærinn, sem er í um 1700 metra
hæð, er á miðju skíðasvæðinu og
tekur það því skamman tíma að
komast í brekkumar. Burðargeta
skiðalyftanna er 30 þúsund manns
á klukkustund. Frábært göngu-
skíðasvæði er í Obertauem.
Ódýr bændagisting
Sjö daga gisting með morgun-
verði og sex daga lyftukorti kostar
frá 18 þúsund krónum á ódýrasta
tímabilinu í Obertauem. Vilji
menn vera í bændagistingu í ná-
ééB
S>ilSí8gs&fe»v.
Oft er að finna ágætis brekkur á litlum og óþekktum stöðum í Austurríki.
grenninu má gera ráö fyrir mjög
ódýrri gistingu en þá er lyftukort
ekki innifalið. Sjö daga lyftukort á
vinsælasta tímabilinu kostar um 8
þúsund en um 6 þúsund á ódýrasta
tímabilinu. Böm fá afslátt. Leiga á
skíðum, stöfum og skóm í sjö daga
kostar frá rúmum 5 þúsund krón-
um fyrir fullorðna.
Taki maður bíl á leigu er mikil-
vægt að taka það fram í pöntun að
skíðagrind þurfi aö vera á bílnum.
Hafi gleymst að panta skíðagrind
getur reynst erfitt að fá hana sé til
dæmis komið til Lúxemborgar um
helgi.
Akstur að vetrarlagi
Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, bendir á að hjólbarðar á bílum
í Lúxemborg séu ekki grófmunstr-
aðir og því þurfi að sýna ýtmstu
varkámi við akstur. Hentugast er
að fá leigðar keðjur hjá bílaleigunni
því að þó hægt sé að fá leigðar keðj-
ur á bensínstöðvum þarf að skila
þeim aftur á sömu stöð. Það hentar
ekki alltaf ferðaglöðum íslending-
um sem vilja fara aðra leið heim.
Þegar ekið er um Þýskaland þarf
að hafa í huga að lífsnauðsynlegt
er að halda góðu bih á milh farar-
tækja þar sem hraði er mikih á
hraðbrautum.
Á þröngum fjallvegum í Austur-
ríki á sá sem er á niðurleið að víkja.
Mismimandi reglur ghda um keðju-
notkun og geta menn átt á hættu
að fá ekki að aka síðasta spölinn til
ákvörðunarstaðar hafi þeir ekki
keðjur. Það getur komið sér iha ef
menn em á ferð að kvöldi til og
ekki hægt að nálgast keðjur. Vega-
toUar em almennt ekki á vegum í
Austurríki. í lengri jarðgöngum og
fjaUaskörðum em þeir þó algengir.
Heimihsfang ferðamálaráðs í
Obertauem er Fremdenverke-
hrsverband Obertauem, A-5562
Obertauem, Austurríki. -IBS
—
—
—
—
VIÐ BJOÐUM HANDHÖFUM FARKORTA EÐA GULLKORTA VISA-ISLANDS
■ :í -
.
W1:
li
------
GARFERÐ TIL LONDON
frá fimmtudegi til sunnudags
Innifalið: flug, gisting á White House hóteli, skoöunarferð, íslensk fararstjórn
og akstur til og frá flugvöllum erlendis.
(Flugvallarskattur, kr. 1.200, er ekki innifalinn.)
Kr. 22.900,-
Neðangreindir taka við pöntunum:
Atlantik, Ferðabær, Feróamiðstöð Austurlands, Ferðaskrifstofan Alís, Ferðaskrif-
stofa stúdenta, Guðmundur Jónasson hf., Land og Saga, Ratvís, Samvinnuferðir-
Landsýn, Úrval-Útsýn, söluskrifstofur Flugleiða, Ferðaskrifstofa Reykjavíkur, Ferða-
skrifstofa íslands og Ráðstefnur og fundir.
Greiðslukort með fríðindi
BROTTFÖR11. FEBRÚAR. TAKM ARKAÐUR SÆTAFJÖLDI.