Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1993, Page 3
MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR1993
29
Ferðir
Stefnan tekin á nýja staði:
Bhutan inni-
staður
þotuliðsins
- straumur til Slóveníu
Konungsríkiö Bhutan í Hi-
malajaíjöllum er innistaðurinn í ár
hjá þotuhðinu. Meðal þeirra sem
nýkomnir eru þaðan eru Mick
Jagger, John Cleese, Koo Stark og
Robert Elms.
Feröamálaráð Bhutans hefur ný-
lega verið einkavætt og leyfilegur
fjöldi ferðalanga til landsins er nú
fjögur þúsund. Áður máttu ekki
fleiri en tvö þúsund og fimm
hundruð erlendir ferðalangar
heimsækja Bhutan ár hvert. Einn
höur í því að takmarka fjölda ferða-
manna til landsins var að hafa hót-
elgistingu dýra.
Flugfloti ríkisflugfélagsins í
Bhutan hefur verið tvöfaldaður,
flugvélamar em nú orðnar tvær.
Það em greinilega breytingar í
gangi og því er um að gera að flýta
sér þangaö á meðan landið er enn
tiltölulega ósnortið af ferðamanna-
iðnaðinum. Kvikmyndaleikstjór-
inn Bertolucci hefur nýlega verið í
Bhutan og Nepal við gerð kvik-
myndar um líf Búdda. Er sýningar
heflast á þeirri mynd má búast við
auknum ferðamannastraumi th
þessara ríkja.
Nepal vinsælthjá
bakpokaliðinu
Fyrir tuttugu ámm voru hipp-
arnir fjölmennir á götum Kath-
mandu í Nepal í Himalajafjöllum.
Nú er það bakpokafólkið sem arkar
eftir götunum. Hassbúhur hafa
verið baimaðar en í staðinn hefur
verið opnaður íjöldi lítilla kaffl-
húsa og matsölustaða þar sem aðal-
rétturinn kostar ekki nema sextíu
til áttatíu krónur.
Verð á fatnaði, bókum og mii\ja-
gripum er einnig mjög lágt. Auð-
velt er að prútta og það liggur við
að ferðamenn skammist sín stund-
um fyrir verðið sem þeir greiða.
Eins og sardína
ídós
í og við Kathmandu er fjöldi gam-
aha haha, klaustra og hofa. Faheg-
ar skreytingar skomar úr tré em á
mörgum húsum. Thvahð er að
leigja sér hjól í skoðunarferðir.
Venjulegt hjól kostar um 100 krónur
á dag en fjallahjól um 300 krónur.
Æth menn lengri vegalengdir þykir
hentugra að semja um ferð við
leigubílstjóra en ferðast með rútum
sem oft eru yfirfuhar. Sumum þykir
það hins vegar upphfun að ferðast
um í rútu eins og sardína í dós.
Margar danskar ferðaskrifstofur
bjóða pakkaferðir th Nepal. Verð á
íjórtán daga ferð með útsýnisferð-
um og gistingu á góðu hóteh mið-
Bærinn Piran á Adríahafsströnd Slóveníu.
svæðis í Kathmandu er um 140
þúsund krónur.
Búistvið straumi
til Slóveníu
í Slóveníu, sem var í júgóslav-
neska ríkjasambandinu þar th fyrir
skömmu, rfldr friður. Búist er við
að ferðamenn streymi þangað og
th Makedóníu þegar fer að vora,
ekki síst vegna þess hversu fahegt
og ódýrt er á þessum slóðum.
Slóvenar eru ákaflega gestrisnir og
ferðamenn verða að varast að dást
of mikið að eigum þeirra því þá verða
þeim gefnir hlutimir um leið.
Andrúmsloftið í Slóveníu þykir
minna á það sem ríkti á Vesturlönd-
um á sjöunda áratugnum. Verðlag
er í sth við þá tíma en óttast er að
það eigi fljótt eftir að hækka.
Matur í Slóveníu þykir einkar
ljúfíengur. Engin ástæða er til að
setjast inn á lúxusveitingahús.
Góðan mat er að fá á mjög fábrotn-
um stöðum.
Algengt verð á tveggja manna
herbergjum á góðum hótelum er
frá 2.500 krónum. Mælt er með því
að staðnæmast ekki við fyrsta hótel
sem maður sér á þjóðveginum
heldur aka inn í bæina og kanna
verð á fleiri gistihúsum.
Albania er einnig ofarlega á blaði
þeirra sem búnir eru að sjá „aht“.
Hún er jafn ósnortin og Grikkland
var fyrir þrjátíu árum, að því er
kunnugir fullyrða.
ELDRI
BORGARAR
Kanaríeyjar
Ferðir 18. og 25. febrúar.
I Yfirfararstjóri Rebekka Kristjánsdóttir.
Örfá sæti eftír á tilboðsverði til
FEB-félaga.
ÚIVALÚTSÝN
.... /Mjódd: sími 699 300; við Austurvöll: sími 2 69 00
í Hafnarfirði: sími 65 23 66; við Ráðbústorg á Akureyri: sími 2 50 00
- og bjá umboðsmönnum um land allt
NÝR OC CLÆSILECUR
FERÐABÆKLINCUR FLUCLEIÐA,
ÚT í HEIM, ER KOMINN ÚT
84 síður afótal ferðamöguleikum austan hafs og vestan.
Flug og sól, flug og bíll, flug og borg. Heillandi ævintýri,
hagstætt verð. Liggur frammi á söluskrifstofum okkar,
hjá umboðsmönnum FLUGLEIÐIR
ogá ferðaskrifstofum. Traustur íslemkurfirSafélagi ‘