Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1993 Fréttir Formaður BSRB vill breytt lög um verkfaUsrétt opinberra starfsmanna: Fáránleg lög sem færa þarf í nútímalegt horf - pólitískar fylkingar innan ASI takast á um stuðning við BSRB „Það var löngu vitað að þessi lög væru fráleit og fáránleg en nú þeg- ar við sjáum þau í reynd verður öllum sú staðreynd ljósari en áður. Það er ljóst að fyrr eða síðar þarf að þreyta þessum lögum og færa þau í nútímalegt horf. Verkfalls- rétturinn á að vera fyrir hendi en það á ekki að setja honum jafn þröngar og ómöglegar skorður og gert er í gildandi lögum,“ segir Ogmundur Jónasson, formaður BSRB. Atkvæðagreiðsla fer nú fram í öllum stærstu aðildarfélögum BSRB og Kennarasambandi ís- lands um boðun verkfalls frá og með 22. mars næstkomandi. Tví- sýnt er um niðurstöðuna og í for- ystusveit BSRB gætir ótta um að félög hafni verkfallsleiðinni. Skiptar skoöanir í ASÍ Innan ASÍ eru mjög skiptar skoö- anir um hvort efna eigi til verk- fallsaðgeröa með BSRB og er tekist á um málið. Dagsbrún og Verka- mannasambandið hafa hvatt BSRB-félaga til dáöa í atkvæða- greiðslunni en frá Verslunar- mannafélaginu og Sókn hafa heyrst efasemdir um vilja sinna félaga til verkfalls. Samkvæmt heimildum DV takast pólitískar fylkingar á um málið innan ASÍ. Forystumenn úr röðum Alþýðuflokks og Sjálfstæðistlokks vilja semja á rólegu nótunum en alþýðubandalagsmenn eru með mun harðari afstöðu. Annars er allt málið í mikilli biðstöðu innan ASÍ þar til séð verður hvemig at- kvæðagreiðsla um verkfall fer hjá BSRB-félögunum og kennurum. Afgerandi atkvæðagreiðsla Verkfallsaðgerðum opinberra starfsmanna eru settar verulegar skorður samkæmt lögum. Verk- fallsrétturinn einskorðast við ein- stök félög sem kemur í veg fyrir formlegt samflot. Hvert félag verð- ur að samþykkja verkfaUsaðgerðir með minnst 15 daga fyrirvara og getur sfjórn viðkomandi félags ekki afboðað aðgerðir þó skriður sé kominn á samningaviðræður. ■Hafi verkfall veriö samþykkt eru aðgerðir óumflýjanlegar og þeim lýkur ekki fyrr en með allsherjar- atkvæðagreiðslu um nýjan samn- ing. Innan BSRB hafa menn þó vilj- að túlka lögin þannig að hægt sé að fresta aögeröum hafi samningar verið undirritaðir með fyrirvara. Til að verkfallsaðgerð teljist lög- leg verður hvert einstakt félag að samþykkja verkfaU gagnvart öUum viðsemjendum sínum en dæmi eru um að eitt og sama félagið hafi tugi viðsemjenda. TU að verkfaU geti hafist hjá einstökum viðsemjanda þarf meirihluti starfsmanna á við- komandi staö að samþykkja verk- faU. Fuil eindrægni og samstöðu þörf Að sögn Ögmundar hefur fuU ein- drægni verið meðal BSRB-félaga á þeim fundum sem forysta samtak- anna hefur haldið víðs vegar um landið að undanfómu. Á þaö bæði við kröfugerðina og þá stefnu sem hefur verið fylgt. „Við vitum ekki hver niðurstað- an verður í atkvæðagreiðslunni. Það er hvers félaga að vega og meta þá áhættu sem fylgir annars vegar verkfaUi og hins vegar þvi að gera ekki neitt og leggjast undir valtarann. Að mínu mati er það miklu meiri áhætta að sætta sig viö skerðinguna. Því fyrr sem menn horfast í augu við að fólk þarf að sameinast, til að snúa þessari öfug- þróun við, því betra.“ -kaa Höfii: Mikil vinna í loðnunni Júlía Imsland, DV, Höfn; Loðnuveiðiskipin Húnaröst og Þórshamar hafa landað á Höfn um 10.700 tonnum af loðnu í bræðslu. 160 tonn hafa farið í frystingu hjá Borgey og 30 tonn í frystingu hjá Skinney. Óvenju fátt aðkomufólk er hjá Borgey í vetur enda hefur gengið mjög vel að fá heimafólk í fiskvinnsl- una og hjá Skinney er eingöngu heimafólk. „Alltaf sami góði hópur- inn,“ sagði Kristján Ragnarsson verkstjóri. Unnið er frá kl. 6 á morgnana til kl. 17 á daginn og um síðustu helgi var unnið aUan sólarhringinn við loðnufrystinguna. k. DV-mynd Ragnar Húnaröst drekkhlaðin við bryggju á Höfn og Skógey á siglingu inn, I dag mælir Dagfari Eyðileggst verkfallið? Nú er Ult í efni. Sagt er að Alþýðu- sambandiö og Vjnnuveitendasam- bandið séu að semja. BSRB-mönn- um er bölvanlega við þessi tíðindi. Það þýðir að BSRB kemst ekki í verkfaU. Eða fer eitt 1 verkfall. Það má ekki gerast. BSRB hefur boðað tíl atkvæðagreiðslu meðal félags- manna og forystumennimir mæla ákaft með heinúldinni sem gengur nánast út á það að fara í verkfaU. Félagsmenn eiga sem sagt að sam- þykkja að fara í verkfall í þessum mánuði og ef þeir gegna því sem forystumennimir segja skellur þetta verkfaU á, hvort sem félags- mönnum likar betur eða verr. í raun og vem skeUur það á þótt við- ræður standi yfir og þótt líkur séu á samkomulagi innan fárra daga. Ef menn hafa samþykkt verkfaU þá verður verkfaU og tU þess er leikurinn gerður. SjúkraUðar hafa aö vísu skorist úr leik. En þeir em svikarar og eins þeir allir hinir sem hafa vogað sér að hafa þá skoðun að verkfaU geti beðið og verkfaU borgi sig ekki. Þeir eru allir á móti því að fátæka fólkiö fái kjarabætur og em svikar- ar viö málstaðinn. Hver sú rödd sem heyrist og er á móti verkfaUi er á móti láglaunafólkinu og á móti 'BSRB. Það er að minnsta kosti aö heyra á foringjum BSRB og rík- isstjómin er verst vegna þess að hún er veruleikafirrt og veit ekki hvað BSRB á bágt. Það er nógu slæmt að ríkisstjóm- in sé á móti BSRB og fjölmiðlarnir séu á móti BSRB þótt Alþýðusam- bandiö verði ekki líka í hópi þeirra sem em á móti BSRB. Alþýöusam- bandið er aö svíkjast undan merkj- um og reynir aö semja við vinnu- veitendur og það án þess að láta BSRB vita um hvað er verið að semja. Samningar miUi ASÍ og VSÍ koma sér afar Ula og era rothögg fyrir BSRB sem er að fóma sér fyr- ir verkalýðinn og efna til verkfalls. Ef verkalýðurinn hættir síðan við aö fara í verkfaU en lætur BSRB eitt fara í verkfall verður lítið sem ekkert gagn að verkfaUi BSRB. Þess vegna má BSRB ekki til þess hugsa að samiö verði. Það má aUs ekki semja því það er verkfaU sem BSRB stefnir að en ekki samningar. Kaupmátturinn hefur lækkað og krónunum í launaumslögunum hjá BSRB hefur fækkað. Ogmundur veit það. Hann hitti eldri mann á fundi um daginn sem sagði honum það. Þetta gengur auðvitað ekki og þess vegna viU Ögmundur fara í verkfaU. Það er alveg sama hvað gengur á í þjóðfélaginu og það er sama þótt þjóðartekjur dragist saman, BSRB-fólk verður að hafa sitt á þurm og halda kaupmættin- um. Jafnvel þótt aUur þorskur hverfi af miðunum og atvinnuleys- iö fari hér upp í 20% þá er það for- senda fyrir því að BSRB fari ekki í verkfaU að kaupmátturinn verði bættur hjá BSRB. Annars fer BSRB í verkfaU. BSRB verður að komast í verkfaU og þess vegna má ekki undir neinum kringumstæðum gerast þaö þjóðar- slys að samkomulag náist á vinnu- markaðnum um nýja kjarasamn- inga. Það eyðUeggur samstöðuna. Það eyðUeggur verkfaUið sem Ög- mundur og BSRB vUja komast í tíl að geta farið í verkfaU. Samningar geta verið góðir út af fyrir sig. En þeir verða að koma á réttum tíma og verkalýðshreyfing- Vélarvana skip Danska skipið SkanUth varð vélar- vana skammt frá Grindavík í fyrra- dag. Björgunarsveit fór á vettvang til aðstoðar þar sem hætta var taUn á að skipið ræki á land. Áhöfnin gerði sjálf við skipið eftir að það náði ank- erisfestu. Skipið er um þúsund tonn ogsiglirmeðsalt. -kaa Kennslborinálík Borin hafa verið kennsl á lík sem kom í vörpu báts frá ísafirði fyrir skömmu. Líkið var af Ólafi Ægi Ól- afssyni skipstjóra sem fórst með rækjubátnum Dóra þann 14. febrúar, 1989. Áður var búið að bera kennsl á annað lík sem kom í vörpu báts frá Bolungarvík. Það var Vagn Hrólfs- son skipstjóri sem tók út af Hauki þann 18. desember 1990. -ból in má ekki misskUja samninga eins og þeir hafi einhvern tilgang í sjálfu sér. Það era verkfóUin sem hafa tílgang og verkfóU em markmið í sjálfu sér. Þetta ætti ASÍ að skUja en Alþýðusambandið er hrætt við verkfaU og fær ekki sitt fólk i verk- faU eins og BSRB. BSRB hefur nefnUega svo góð lög um sín mál að þótt fólk vUji ekki fara í verk- faU og vUji beita verkfaUsvopninu tíl að knýja fram samninga þá skeUur verkfaU á félagsmenn í BSRB, hvort sem þeir vUja eða ekki, ef þeir hafa á annað borð sam- þykkt verkfaU. Þetta er kosturinn við verkfaUsvopnið hjá BSRB og það yrðu hroðaleg mistök ef menn ætluðu ekki að beita þessu vopni með því að fara aö semja áður en verkfaU skeUur á. Við skulum vona tíl Guðs að samningar klúðrist og samningar sUtni svo BSRB geti fengið að vera í friði með sitt verkfaU. Það versta sem gæti komið’fyrir verkalýðinn í landinu er aö svo óheppUega vUdi tíl að menn semdu áður en verk- faU skeUur á. Þá verður BSRB að hætta við að fara í verkfaU. Það eyðUeggur samningsstöðuna. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.