Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1993
5
Fréttir
Hrafn Oddsson, skipstjóri á Sjöfn VE, landaði 10 tonnum af stórum og góð-
um þorski á sunnudag. DV-mynd Ómar
Eyjabátar í þorski
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Eyjabátar hafa verið að fá þokka-
legan afla síðustu daga og vikur og
er það mikil breyting til batnaðar frá
því sem verið hefur á vertíðinni.
Bæði neta- og togbátar hafa landað
og þorskur er orðinn meira áberandi.
Netabáturinn Gandi VE landaði 85
tonnum fyrir helgi, uppistaðan
þorskur. Togbáturinn Bergvík VE
landaði 30 tonnum á sunnudag eftir
stutta útiveru.
Hænsnabú brann til kaldra kola:
1500varphænur
brunnu inni
„Tengdamóðir mín vaknaði og sá
að hænsnahúsið var í ljósum logum.
Hún hringdi í okkur og þegar við lit-
um út var húsið logandi stafnanna á
milli og veggir þess að byija að falla.
Það var ekkert sem hægt var að
gera,“ segir Kristný Vilmundardóttir
á Kambshóli í Svínadal í Hvalfjarðar-
strandarhreppi.
Hátt í 200 fermetra hænsnahús með
um 1500 varphænum brann til kaldra
kola snemma í gærmorgun. Ekki
tókst að bjarga neinu úr húsinu en
það hrundi alveg um 15 mínútum
eftir að heimilisfólkið á Kambshóli,
sem er tvíbýh, vaknaði. Þegar
slökkviliðið kom var ekkert annað
að gera en að slökkva í glæðunum.
Að sögn Kristnýjar er húsið tryggt
en ekki er vitað nákvæmlega hversu
mikið tjónið var.
„Þetta er gífurlegt tjón fýrir okkur.
Þama inni voru búr og öh áhöld og
allt fuðraði þetta upp,“ sagði Kristný.
Tahð er að kviknað hafi í út frá
rafmagni. -ból
Óvenjulegar pantanir 1 hópferð til íslands:
Tuttugu og f imm
Þjóðverjar bíða
eftir Kötlugosi
- reiðubúnir að fara með litlum fyrirvara ef gos hefst
Tuttugu og fimm Þjóðveijar hafa
lagt inn pöntun í hópferð th íslands
í gegnum ferðaskrifstofuna Island
Tours - en aðeins á þeim forsendum
að Katla byiji að gjósa.
Hér er um að ræða áhugafólk um
eldgos, fólk búsett víða í Þýskalandi.
Ef Katla byijar að gjósa mun ferða-
skrifstofan koma á ferð th íslands
með eins skömmum fyrirvara og
hægt er og verður þá hgft samband
við þá sem eiga pantað far. Ætlunin
er að efna til hópferðar á gosstöðv-
arnar.
Að sögn Guðmundar Kjartansson-
ar, framkvæmdastjóra hjá Island
Tours, komu pantanirnar inn hjá
söluskrifsfofu fyrirtækisins í Frank-
furt. Þar hefur ljósmyndari sýnt ht-
skyggnur af eldgosum á íslandi og
segir hann að rekja megi áhuga Þjóð-
verjanna að miklu leyti til þeirra
sýninga.
-ÓTT
Ökumaður bifhjóls fótbrotnaði
Létt biíhjól og bíh rákust saman á
Akranesi seint í fyrrakvöld með þeim
afleiðingum að ökumaður bifhjólsins
fótbrotnaði.
Bifhjólið og bíllinn voru á leiö í
sömu átt eftir Kirkjubraut. í þann
mund sem ökumaður bifhjólsins ætl-
aði að taka vinstri beygju, inn Merki-
gerði, reyndi bíllinn að aka fram úr
og varð þá áreksturinn. Ökumann
bílsins sakaði ekki en hann reyndi
að afstýra árekstrinum. Við það ók
hann á ljósastaur og þurfti að draga
bíhnnafvettvangi. -hlh
Okkar vinsæli útsölumarkaður opnaður
á morgun kl. 1.00 að Suðurlandsbraut 6.
Opið kl. 1.00-6.00 mánud. til föstud., 10.00-1.00 laugard.
ÚTSÖLUMARKAÐUR VERÐLISTANS