Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS1993
9
Starfsfólk kjarn-
orkuvers vill
ráðherra burt
Starfsmcnn Barsebáck kjam-
orkuversins í Svíþjóð kreíjast
þess að Olof Johansson umliverf-
isráðherra verði látinn víkja úr
embætti. Starfemennirnir segja
aö ráðherrann standi fyrir einka-
herferð um að ioka kjarnorku-
verinu.
Gagnrýnin á Johansson kom
fram í bréti sem 244 starfemenn
Barsebáckversins sendu Carli
Bildt, forsætisráðherra Svíþjóð-
Það voru einkum þau ummæli
ráðherrans að þeir sem ættu
efnahagslegra hagsmuna að gæta
hcfðu áhuga á að keyra áfram þar
til eitthvað gæfi sig sem vöktu
reiðí starfsmanna kjamorku-
versins.
Mannbjörg eftir
skipsbrunaí
Skagerralc
Sex manna áhöfn flutninga-
skipsins Norient var bjargað
heilii á hiifi eftir að eldur kvikn-
aði i skápinu þegar það var á sigl-
ingu í Skagerrak seint á mánu-
dagskvöld. Skipið var dregið til
lands i gær.
Norient var á leiö frá Noregi tíl
Rotterdam með manganfarm
þegar eidur kom upp í vélarrúm-
inu. Áliöftúnni tókst ekki að ráða
niðurlögum eidsins og sendi út
neyðarkall.
Seaking hjörgunarþyrla var
send á vettvang og tókst henni
að bjarga öllum mönnunum frá
borði. Skipið er skráö í Panama
en útgerðarfyrirtæki í Bergen sér
um rekstur^þess.
Einsettimaður
gefurlítiðfyrir
Maður nokkur í Litháen, sem
var 1 feium úti í skógi í 29 ár til
að fiýja undan yfirráðum Sovét-
manna, hefur alls ekki í hyggju
að snúa aftur til siðmenningar-
innar, þrátt íýrir nýfengið sjálf-
stasði heimalandsins.
„Ég veit að við eigum okkar eig-
in þrílita fána með riddara á. En
við eigum enn marga óvmi,“
sagði Vinlrns Maila í viðtali við
Reuters. „Ég vil ekki að atburð-
irnir frá 1917 endurtakí sig (bylt-
ing bolsérika). Ég vO ekki fleiri
þrælaái-. Ég ætla að lifa áfram á
mínum stað.“
Maila ók út í skóg nærri pólsku
landamærunura árið 1964. Hann
fannst svo fyrir tilviljun á dögun-
um þegar lögreglan var að leita
að strokuföngum. Hann býr í
subbulegum spýtukofa og hefur
ekki síma, rafmagn eöa útvarp.
Hann er með tvær svartar hænur
og eina kanínu.
Leyniþjónustan
CIAsökuðum
Manuel Contreras, fyrrum yfir-
maður leynilögreglunnar í Chíle,
þrætti fyrir það á mánudag að
hafa myrt Orlando Letelier, út-
lasgan leiðtoga sósíalista i Chiie,
í Washington D.C. árið 1976.
Hann sagði iyrir rétti að banda-
ríska leyniþjónustan CIA bæri
ábyrgð á verknaðinum.
Contreras er nú fyrir rétti í
Chile vegna morðsins. Hann
sagðist ekki hafa haft hugmynd
um morðið fyrr en það hafði ver-
ið framið.
Hann hefði farið að rannsaka
moröið eftir að hann var sakaður
um að standa fyrir því og þá hefði
liann komist aö raun um hlut-
deOdCIA. TT.NTBogReutfcr
Hlauparinn Ben Johnson er fallinn á lyflum aftur
Rekinn úr lands-
liðinu með smán
Kanadíski spretthlauparinn Ben
Johnson er fallinn á lyfjaprófi öðru
sinni og er búið að reka hann úr
landsliði Kanada í frjálsum íþróttum.
Johnson gaf sýni eftir innanhússmót
í janúar og var niðurstaðan úr þvi
opinber gerð í gærkveldi.
Þar kom í ljós að hlauparinn hafði
tekið lyf til að bæta árangur sinn.
TO stendur að endurskoða úrskurð-
inn til að taka af allan vafa.
Johnson varð uppvís að lyfianeyslu
á ólympíuleikunum í Seoul árið 1988
og sviptur guOverðlaunum og heims-
meti í 100 metra hlaupi. Þá olli mál
hans miklu hneyksli og varð tO að
auka um mun umræðu um lyfianotk-
un íþróttamanna.
Johnson stóð sig vel á mótum í
upphafi árs. Seinast sigraði hann í
50 metra hlaupi í Frakklandi í síð-
asta mánuði og var þá rétt við heims-
metið.
Fleiri verðlaun hafa fallið honum
í skaut á þessu ári en líklegt er að
hann missi þau í fiósi nýjustu tíð-
inda.
Reuter
Ben Johnson hefur fallið öðru sinni
á lyfjaprófi. Símamynd Reuter
Tina Turner, rokkamman góðkunna, tók höndum saman við Kanadamanninn Bryan Adams á rokktónleikum í New
York í nótt. Tilefnið var að minna fólk á að regnskógarnir eru að eyðast smátt og smátt. Fjöldi frægðarfólks skemmti
á tónleikunum og var leikarinn Dustin Hoffman meðal þeirra. Simamynd Reuter
Útlönd
„Þetta er spuming um pólitísk-
an vofia og sanngimi, ekki lög,"
segir Lars Emil Johansen, for-
inaður landstjórnarinnar á
Grænlandi, um tregðu Noröur-
landaþjóða til að samþykkja
Sama sem sérstaka þjóð og rétt
þeirra tíl setu á þingi Norður-
landaráðs.
Grænlendingar, Færeyingar og
Áiendingar sifia í Norðurlanda-
ráði en ómögulegt hefur reynst
að fá sama rétt fsTÍr Sama enda
hafa þeír ekkí heimasfiórn þótt
þeir séu viðurkenndur minni-
Wutahópur í Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi.
Ríkissfiórair þessara landa
tefia að sfiórnskipulega hafi Sam-
ar ekki rétt til setu í ráðinu.
Víkingamirog
HvítiKrisfurá
sviðíKaup-
mannahöfn
í vikulokin hefiast í Þjóðminja-
saftúnu í Kaupmannahöfn sýn-
ingar á leikriti um víkingana, trú
þeirra og kristnitöku á Noröur-
löndum.
Það er sænskur leikhópur sem
annast sýninguna og byggir liana
á Eddunum og frásögnum. Sýn-
ingin varir í klukkustund hvert
kvöld og vonast menn til að ferða-
menn komi og skoði.
Sýningin á að heflast á sköpun
heimsins og enda í ragnarökum
þegar ailt ferst. HeimOdir eru
flestar íslenskar.
Undirbúastríð
viðhvalavini
Hvalveiðimenn i Norður-Nor-
egi búa sig undir stríð við hópa
hvalavina í sumar. Ætlunin er
að halda áfram veiðum á iirefnu
en Paul Watson og fleiri friöunai'-
hópar hóta að beita öllura brögð-
um tO að stöðva veiðarnar.
Norðmennirnir segja að ekki sé
von á góðu þvi Watson og menn
hans hafi um jólin reynt að
sökkva hvalbátnum Nybrána við
Lofoten. Þeir muni örugglega
reyna aftur. Bátnum var bjargáð
en töluvert fión varð á honum.
Hvalveiðimenn segja að ura
menningarbaráttu sé að ræöa.
Annars vegar standi lífefirrtir
borgarbúar og hins vegar veiði-
menn.
Ritzau og NTB
Escobar gefst
upp gegn aðstoð
Bílaréttingar G.Á.K
Kólumbíski eiturlyfiakóngurinn
Pablo Escobar, einn mest eftirlýsti
glæpamaður í heiminum, hefur boð-
ist tO að gefa sig fram við yfirvöld
ef bandarísk sfiórnvöld veita fiöl-
skyldu hans vemd.
Escobar sagði þetta í bréfi sem
hann skrifaði til blaðsins New York
Times og birt er í dag. Þar var hann
að svara spumingum blaðsins sem
lögfræðingur hans kom til skOa.
Blaðið sagði að Escobar hefði sent
bréfið símleiðis og hefði fingrafar
þumalfingurs hans verið á öllum síð-
unum þremur. Aö sögn blaösins
staðfesti kólumbískur embættismað-
ur að bréfið væri frá Escobar.
Eiginkona hans og tvö böm reyndu
að komast til Bandaröfianna í febrú-
ar en þeim var meinað að fara úr
landi. Vegabréfsáritun þeirra var
síðan afturköOuð. Hann sagði fiöl-
skylduna vera að reyria að flýja frá
Kólumbíu vegna morðhótana frá lög-
reglU. Reuter
Réttingar, Ijósastillingar, almennar
bílaviðgerðir og sprautun.
Bílaréttingar G.Á.K.,
Laufbrekku 4, aðkeyrsla frá Dalbrekku. Sími 45411