Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Page 14
14 MIÐVIKUDAGÍJR 3. MARS 1993 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÚNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁN'SSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÓMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SÍMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð I lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Vakna bændur til lífsins? Þessa dagana stendur yfir búnaðarþing. Þar kveður við nýjan og nokkuð óvanalegan tón. Bæði er að land- búnaðarráðherra hefur kastað upp boltanum og hreyft ýmsum hugmyndum, sem horfa til bóta fyrir bænda- stéttina og landbúnaðinri, og svo hitt að bændur sjálfir og forystumenn þeirra virðast vera opnari fyrir ýmsum breytingum sem áður máttu ekki heyrast. Halldór Blöndal landbúnaðarráðherra vék að stofn- ana- og stoðkerfi landbúnaðarins og vill endurskoða það. Hann vill leysa sauðfjárbændur undan kvöðum um framleiðslukvóta til að gera þeim léttara að snúa sér að öðrum störfum, svo sem landgræðslu og gróðurvernd og telur tímabært að Skógrækt ríkisins rifi seglin í þeim tilgangi að skapa svigrúm fyrir bændur að taka þau verkefni að sér. Ráðherrann virtist og meðmæltur því að afnema eða lækka virðisaukaskatt af matvælum og benti á að tekjur ríkissjóðs af skattinum jafngiltu nánast þeirri upphæð sem ríkið þarf að greiða í beina framleiðslustyrki. Aðal- atriðið í ræðu ráðherrans var þó sá boðskapur að bænd- ur geri sér grein fyrir þeirri gagnrýni sem opinber stuðningur við landbúnað mætir og beini umræðunni þess í stað í þann farveg að bændasamtökin sjálf skil- greini sig upp á nýtt og skipuleggi sig upp á nýtt. Mark- miðið er að bændur komi til móts við markaðinn með sérhæfingu, endurskoðun á innra kerfi, þjónustu, vinnslu og fækkun milliliða. Formaður Búnaðarfélagsins sem og formaður Stéttar- sambandsins gerðu að umtalsefni félagskerfi bænda og virtust sammála um að það kerfi væri flókið og bændum til trafala. Það dylst engum að samband bændasamtaka og hins opinbera hefur verið afar náið. Þar hefur ekki hnífurinn gengið á milh og þannig hafa bændur fyrst og frefnst treyst á opinbera forsjá og verið henni háðir. Kerfið sjálft hefur verið eins og frumskógur og til efs að nokk- ur maður hafi haft þar yfirsýn eða skilning á orsökum og afleiðingum. Stofnana- og stoökerfi landbúnaðarins er gjörsamlega úr takt við tímann, eða eins og Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambandsins, orðaði það: „Það er of dýrt, það er flókið og svifaseint. Boðleiðir innan þess eru óljósar og í stað þess að vinna saman finnst mér í vaxandi mæli gæta tilhneigingar til þess að menn stefni hver í sína áttina, eins og oft gerist þeg- ar að kreppir." Þetta er nýr tónn. Sannleikurinn er sá að það er ekki bændum að kenna hversu mjög hefur mætt á þeim sú gagnrýni að þeir séu baggi á samfélaginu í krafti úr sér gengins styrkjakerfis. Bændur hafa verið í íjötrum opin- berrar hagsmunagæslu og yfirbyggingar sem héfur lifað sjálfa sig. Umhverfið í þjóðfélaginu hefur breyst, bænd- ur hafa sjálfir aukið sérþekkingu sína og sérgreinar, bændur hafa sjálfir verið meðvitaðir um nauðsyn þess að framleiðslan tæki mið af markaðnum og neyslunni. En hin opinbera fyrirgreiðsla, stofnanakraðakið og hin fjölmenna stétt, sem hefur atvinnu af því að halda bændum í bóndabeygju, hefur komið í veg fyrir eðlilega þróun og aðlögun. Þess vegna er það góðs viti þegar bændaforystan sjálf og landbúnaðarráðherra hafa frum- kvæði að því að gagnrýna aldagamalt og íhaldssamt fyrirkomulag. íslenskir bændur eiga, vilja og geta bjargað sér sjálf- ir. Þeir eiga að fá svigrúm til þess með því að vera leyst- ir úr álögum forsjárhyggjunnar. Ellert B. Schram í skrifum hagfræðinga má viða finna umfjöllun um að tiltekið eða verulegt atvinnuleysi sé óhjákvæmilegt, segir hér m.a. Er atvinnuleysi náttúrulögmál? í kenningum og skrifum hag- fræðinga má víða finna umijöllun um atvinnuleysi sem gefur í skyn eða beinlínis fullyrðir að tiltekið og verulegt atvinnleysi sé óhjá- kvæmilegt. Nánast náttúrulögmál. Sumir hagfræðingar hafa gengið svo langt að nefna tilteknar pró- sentutölur í þessu sambandi, t.d. 2-4%. Viss fótur er fyrir hugmyndum af þessu tagi. Á hverjum tíma er tiltekinn fjöldi fólks, sem er að skipta um vinnu, atvinnulaus ein- faldlega vegna skiptanna. Aukið framtak og fyrirhyggja Þaö sem hér hefur verið nefnt er ekki sagt til að hafna algerlega þeim hugmyndum um atvinnuleysi sem skotið hafa rótum innan hag- fræöinnar. Viss sannleikskjami er í þeim. Það sem mestu skiptir á hinn bóginn er að menn geri sér grein fyrir því að atvinnustig er háð mannlegum vilja. Það er ekki náttúrulögmál sem við eigum að umgangast sem veður og vinda eða óumbreytanlegan gang himintunglanna. Við getum staðið okkur langtum betur en við gerum við að halda öllum vinnu- fúsum höndum að arðbærri verð- mætasköpun í þjóöfélaginu. Við megum ekki láta svæfa okkur með óljósum hugmyndum um það að þetta verk sé okkur of erfitt eöa að atlaga að því sé nánast atlaga að óhrekjanlegu náttúrulögmáli. Hugmyndir um „eðlilegt atvinnu- leysi" og hugmyndir um það að atvinnuleysi sé eitthvert stórkost- lega torleyst vandamál eru skað- valdar sem útrýma þarf úr hngunu almennings og valdhafa. Þegar á það er htiö hve máttlítil tök manna hafa verið á þessum Kjallariim Jón Erlendsson yfirverkfræðingur Upplýsinga- þjónustu Háskólans vanda og hve htihar fyrirhyggju hefur gætt th að fyrirbyggja hann þá er stutt í aö dregin sé sú ályktun að við getum náð langtum betri árangri með auknu framtaki og fyrirhyggju. Svipa óttans í Danmörku hefur verið verulegt atvinnuleysi um hríð. Danir eru hægt og bítandi að vinna sig út úr efnahagsvandamálum sínum. Sumir hafa hengt þessar tvær stað- reyndir saman í einhhtt orsaka- samband og eru nú famir aö tala um atvinnuleysiö sem nauðsynlega forsendu batans! Hér er á ferðinni skelfileg rökviha. Viss sannleiks- kjami kann að vísu að vera fólginn í því að þeir sem hafa vinnu fari að vinna betur á tímum atvinnu- leysis og sætta sig við lægri laun vegna þess að þeir verða hræddir um störf sín. Hehdarafköst þjóðfé- lagsins og hagnaður fyrirtækjanna aukist af þessari ástæðu. Svipa óttans er keyri sem getur dugað th að auka afköst. Reynsla fyrirtækja og miklar rannsóknir sýna á hinn bóginn að th eru fjöl- margir aörir hvatar sem eru bæði betri og manneskjulegri en óttinn við atvinnumissi. Allt eðhlegt fólk kýs fremur að vinna af áhuga að jákvæðum og framsæknum markmiðum en að hrekjast í ótta undan harðræði. Meðan th staðar er skipulag sem sér þeim atvinnulausu fyrir nauð- þurftum og meðan þjóðfélagið er yfirfuht af aökallandi verkefnum sem þörf er á að leysa, þá er óþarfi að útfæra aöstoðina við hina at- vinnulausu með því að halda þeim í niðurlægjandi og mannskemm- andi einangrun frá vinnumarkað- inum. Jón Erlendsson „... hugmyndir um það að atvinnu- leysi sé eitthvert stórkostlega torleyst vandamál eru skaðvaldar sem útrýma þarf úr huga almennings og valdhafa.“ Skoöanir annarra Norrænt samstarf og EES „Það er almennur skhningur að stjómmálaflokk- ar til hægri og vinstri séu sammála um, að samning- ininn um Evrópska efnahagssvæðið sé stærsta skref- ið sem náðst hefur í norrænu samstarfi undanfarin 20 ár. EES-samningurinn býður upp á tækifæri th aukinnar efnahagslegrar samvinnu meðal Norður- landanna, sem nálgast mjög þær hugmyndir sem voru uppi um samnorrænan markað fyrir mörgum áratugum, en því miður náðu ekki fram ð ganga þá.“ Skúli G. Johnsen, Ósló, í Alþýðubl. 2. mars. Galdurinn við sparnað „Listin við að safna aurum á bók er að byrja ntjög smátt. Það er gert th að þjálfa þolinmæðina. Síðan er ágætt að færa út kvíamar, hætta einhveij- um ósóma og leggja andvirði hans inn á aðra bók. Þegar tölurnar fara að stækka, eykst sjálfstraustið og öryggið, jafnvel þótt upphæðin sé hlæghega lág í augum efnamanna. Vextir á sparisjóðsbókum hækk- uðu um áramótin, th dæmis hækkuðu vextir á Kjör- bók Landsbankans úr rúmum 3% í 5%. Ef upphæðin liggur óáreitt um tíma geta þeir farið upp í 7%. Fyr- ir safnara þýðir það blóm í haga.“ Kristín Marja Baldursdóttir í Mbl. 28. febr. Fortíðarvandinn „Fortiðarvandinn var alveg örugglega mikið ýkt- ur. Það er alveg augljóst að hann er miklu minni en stjómvöld höíðu áætlað, sem kemur mér á óvart þegar tekið hefur verið tilht th þess að rekstrar- grundvöllur atvinnuveganna hefur verið gífurlega skertur með háum vöxtum og öðrum kostnaði. . . Ef ekki verður breytt hér um stefnu og rekstrargrund- vöhur tryggður fyrir sjávarútveginn, þá munu þess- ar tölur hækka, svipað og er að gerast hjá bönkunum í dag.“ Steingrimur Hermannsson í Timanum 2. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.