Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Side 26
42
MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1993
Afmæli
Anna S.E. Bjömsdóttir
Anna S.E. Björnsdóttir húsmóöir,
Karlsrauðatorgi 10, Dalvík, er fimm-
tugídag.
Starfsferill
Anna fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hún lauk skyldunámi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar, vann
við Netagerð Útgerðarfélags Akur-
eyringa og síðan við pijónastofuna
Heklu til ársins 1961 er Anna flutti
til Dalvíkur. Þá vann Anna í nokkur
ár við barnaheimilið Kritakot jafn-
hliða húsmóðurstörfum.
Fjölskylda
Anna giftist 3.6.1962 Snorra
Snorrasyni, f. 14.2.1940, útgerðar-
manni og skipstjóra. Hann er sonur
Snorra Arngrímssonar sem er lát-
inn, og Kristínar Júlíusdóttur sem
nú er vistmaður á Dvalarheimili
aldraðraáDalvík.
Börn Önnu og Snorra eru Aðal-
björg, f. 7.9.1960, skrifstofustúlka á
Dalvík, en maður hennar er Hall-
grímur Benediktsson sjómaður og
eru synir þeirra Ingvar, f. 22.3.1979
ogBenedikt, f. 2.5.1989; Snorri, f.
20.5.1962, skipstjóri á Dalvík, en
kona hans er Valgerður Geirsdóttir
skrifstofustúlka og eru synir þeirra
Snorri Geir, f. 24.6.1983, og Elvar,
f. 30.6.1986; Guðrún, f. 17.6.1963,
húsmóðir á Dalvík, en maður henn-
ar er Halldór Reimarsson útgerðar-
maður og eru þeirra börn Ingibjörg,
f. 26.9.1980, ogHalldór, f. 22.5.1988;
Bergljót, f. 24.4.1966, þjónn og hús-
móðir í Reykjavík, en maður hennar
er Rúnar Dagbjartsson bifreiða-
stjóri og eru böm þeirra Kristinn,
f. 25.5.1981, Sandra, f. 3.5.1990 og
Rúnar, f. 29.9.1992; Björn, f. 21.2.
1973, nemi á Dalvík, og er unnusta
hans Krista Guttesen verkakona;
Baldur, f. 21.2.1973, nemi á Dalvík,
og er unnusta hans Heiðbjört
Ófeigsdóttir, starfsstúlka hjá Dal-
víkurbæ.
Systkini Önnu em Árdís, f. 10.4.
1940, húsmóðir í Reykjavík, gift
Ingvari Þorvaldssyni málarameist-
ara og eiga þau fjögur börn; Birna,
f. 4.12.1950, snyrtisérfræðingur á
Akureyri, gift Hólmgeiri Valdimars-
syni heildsala og eiga þau tvö böm;
Smári, f. 11.11.1956, búsettur á Ak-
ureyri og á hann þijú börn.
Foreldrar Önnu: Björn Friðriks-
son, f. 28.9.1920, d. 3.12.1975, bif-
reiðastjóri á Akureyri, og Geirþrúð-
ur Aðalbjörg Brynjólfsdóttir, f. 29.9.
1918, húsmóðir.
Ætt
Bjöm var sonur Friðriks Jóhann-
esar, b. á Þinghóli, Siguijónssonar
Jóhannessonar, b. á Nýjabæ í Flat-
ey, Guðmundssonar. Móðir Friðriks
var Þóra Friðrika Friðriksdóttir, b.
á Lækjarmóti í Þistilfirði, Gunnars-
sonar.
Móðir Björns var Baldvina Anna
Hallgrímsdóttir, vinnumanns í
Hörgárdal og víðar, Bjömssonar, b.
á Gullbringu, Jóhannessonar. Móð-
ir Baldvinu Önnu var Stefanía
Kristveig, systir Áma á Auðbrekku,
afa Stefáns Valgeirssonar alþingis-
manns, Gunnars Hilmarssonar,
framkvæmdastjóra Atvinnutrygg-
ingasjóðs, og Árna, föður Ólafs Birg-
is, hrl. á Akureyri. Annar bróðir
Stefaníu var Sigurður, faðir Þóris
Laxdal námsstjóra og Jóns í
Straumnesi. Stefanía var dóttir Jón-
atans, b. á Hömmm og Bergsstöð-
um, Eiríkssonar, og Guðrúnar Stef-
ánsdóttur frá Kaldbak.
Geirþrúður er dóttir Brynjólfs,
hreppstjóra í Efstalandskoti og á
Steinsstöðum í Öxnadal, Sveinsson-
ar, b. á Syðri-Bægisá. Bjömssonar,
b. á Miðhálsstöðum, Jónassonar.
Móðir Brynjólfs var Soffía Björns-
dóttir, b. í Ásgerðarstaðaseli, Bene-
diktssonar.
Móðir Geirþrúðar var Laufey
Sumarrós Jóhannesdóttir, en hann
Anna S.E. Björnsdóttir.
fór til Vesturheims, Magnússonar,
b. í Ytri-Hofdölum, Gíslasonar.
Móðir Laufeyjar var Guðrún Mar-
ía Friðbjömsdóttir, b. í Ytra-Dals-
gerði, Björnssonar. Móðir Guðrún-
ar Maríu var Sigríður Kristjánsdótt-
ir frá Hraunbæjarkoti.
SigurðurV.
Amþórsson
Sigurður Valgeir Amþórsson
verkstjóri, Búlandi 2, Djúpavogi, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Fáskrúðsfirði og
ólst þar upp. Hann var til sjós fram-
an af og starfaði um tíma hjá Pólar-
síld hf. á Fáskrúðsfirði.
Árið 1981 útskrifaðist Sigurður frá
Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfiröi
og fór þaðan til starfa í fsbiminum
þar sem hann gegndi stöðu verk-
stjóra næsta árið. Síðastliðin tíu ár
hefur Sigurður verið yfirverkstjóri
hjá Búlandstindi hf. á Djúpavogi.
Fjölskylda
Fyrri kona Sigurðar er Margrét
Andrésdóttir, f. 2.12.1945, húsmóðir.
Sigurður hóf sambúð 1983 með
Björgu Ólafsdóttur, f. 20.1.1954, hús-
móður. Hún er dóttir Ólafs Hall-
dórssonar, starfsmanns hjá ísal, og
Margrétar Reimarsdóttur, starfs-
manns á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Böm Sigurðar og Margrétar era:
Ólöf Linda, f. 1.7.1962, húsmóðir, í
sambúð með Ölveri Jakobssyni og
eiga þau þrjúbörn; Sólveig Þórlaug,
f. 27.5.1965, húsmóðir, gift Lars
Hallsteinssyni og eiga þau tvö böm;
Andrea, f. 7.10.1966, húsmóðir, í
sambúð með Agnari Sveinssyni og
eiga þau tvö börn; og Bragi Fannar,
f. 5.11.1976, nemi.
Böm Sigurðar og Bjargar em: Eva
Dögg, f. 21.5.1986; og Davíð Amar,
f. 15.12.1991. Fyrir átti Björg Mar-
gréti Rós Jósefsdóttur, f. 28.7.1972.
Systkini Sigurðar em: Árný, gift
Sigurður Valgeir Arnþórsson.
Inga Helgasyni og eignuðust þau
fjóra syni, einn þeirra er nú látinn;
Guðlaug, gift Jóhannesi Sigurðssyni
og eiga þau þrjú börn; Grétar,
kvæntur Dagnýju Elísdóttur og eiga
þau fjögur böm; og Jóhanna Kristín,
gift Benedikt Sverrissyni og eiga
þauíjögur böm.
Foreldrar Sigurðar eru Arnþór
Ámason, f. 17.5.1911, fyrmm sjó-
maður, frá Neskaupstað, og Sólveig
Sigurðardóttir, f. 29.6.1911, húsmóð-
ir. Þau hafa búið á Fáskrúðsfirði
allatíð.
Amþór er sonur Árna Árnasonar
og Signýjar Jóhannsdóttur húsmóð-
ur. Foreldrar Sólveigar eru Sigurð-
ur Þórðarson, Ámasonar, og Val-
gerður Mekkín Eiríksdóttir, Jóns-
sonar, Markússonar frá Hlíð í Lóni.
Sigurður verður erlendis á afmæl-
isdaginn.
Lussia Guðmundsdóttir,
Viðborðsseli 1, Mýrahreppi.
80 ára
SveinnG. Kristjánsson,
Fomastekk 12, Reykjavík.
Herbert S. Sigurjónsson, bakari,
Hvannalundi 5, Garðabæ.
EiginkonaHer-
bertserBjörg
Bergþóra Berg-
þórsdóttir hús-
móðir.
Þauverðaað
heimanáaf-
mælisdaginn.
Guðlaug Pálsdóttir,
Klúkkúrima 95, Reykjavik.
Valborg Guðrún Eiriksdóttir,
Þórufelli 14, Reykjavík.
Gilslaug Elíasdóttir,
Höföagmnd 9, Akranesi.
Björg Þorkelsdóttir, húsmóðir,
Nesvegi 57, Reykjavik.
Eiginmaður
BjargarerSig-
urðurÓlafsson
trésmiður. Þau
verðaaðheim-
anáafmælis-
daginn.
70 ára
Olga Kristjánsdóttir,
HJíðarendavegi la, Eskifiröi.
Pétur Kristjánsson,
Búöavegi 48, Fáskrúðsfirði.
60ára
BáraDavissen,
Hlíðargötu 46, Sandgerði.
Auður Vordis Jónsdóttir,
Reynihvammi 21, Kópavogi.
Brimhólabraut 15, Vestmannaen-
um.
Sigurður Sigurðsson,
Laugarholti 3b, Húsavík.
urðarerHQör-
dísBjamadótt-
ir.Þautakaá
mötigestumá
heimilisínueft-
irkl. 18laugar-
dagjnn6.mars.
Elín Lára Ingólfsdóttir,
Guðrúnargötu 8, Reykjavík. ?
40 ára
50 ára
Sigríður Bragadóttir,
Sogavegi 122, Reykjavik.
Sjöfn Stefánsdóttir,
Fossvegi 13, Siglufirði.
Bjarni H. Baldursson,
Rósa Bachmann,
Sigtúni 7, Patreksfirði.
Magnús Jónsson,
Þóristúnil9,Selfossi.
George Jiri Grosman,
Búðagerði 1, Reykjavík.
Sigurbjöm Júlíus Halisson,
Heiðarbakka 7, Keflavik.
Margrét Guðmundsdóttir,
Baösvöllum 11, Grindavík.
Þórdís Friðriksdóttir,
Álfheimum 9, Reykjavík.
ÞórðurVilhjálmsson
NISSAN PATROL TURBO DÍSIL,
árg. '87, björgunarsveitaútgáfa, háþekja, skráður 9
manna, með spili o.fl. Einn eigandi.
Verð kr. 1.750.000,- stgr.
ÞILASALA
^^R£/KJAVÍKUR
Skerfunni 11 - simi 678888
Þórður Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Ryðvöm hf.( Hrís-
holti 4, Garðabæ, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Þórður fæddist á Akureyri en ólst
upp á Hrollaugsstöðum á Langa-
nesi. Hann stundaði sjómennsku á
sínum yngri ámm en var svo alfariö
til sjós á bæði fiski- ogfarskipum á
árunum 1958-61. Næstu tólfárinþar
á eftir var Þórður vinnuvélastjóri
og starfaði við það á hinum ýmsu
stöðum, ýmist sjálfstætt eða hjá öðr-
um.
Árið 1973 réð hann sig svo til Ryð-
vamar hf. og gerðist eigandi þess
árið 1984 ásamt Jóhanni Oddgeirs-
syni.
Fjölskylda
Þórður kvæntist 21.7.1973 Guð-
munduHaraidsdóttur, f. 8.5.1956,
húsmóður. Hún er dóttir Haralds
Guömundssonar, fyrrv. verkstjóra,
i og Höllu Hafliðadóttur húsmóður.
I Þau búa í Hafnarfirði.
Börn Þórðar og Guðmundu eru:
Haraldur, f. 13.2.1978, nemi í gagn-
fræðaskóla; Vilhjálmur.f. 19.4.1983,
grunnskólanemi; og Halla, f. 31.10.
1986.
Systkini Þórðar eru: Hólmfríður,
f. 11.9.1944, starfsmaður á Sólvangi,
gift Skúla Geirssyni; Magnús, f. 5.11.
1946, b. á Syðra Hvoli í Mýrdal,
kvæntur Guönýju Sigurðardóttur;
Sæmundur, f. 25.5.1948, útgerðar-
maður í Hafnarfirði, kvæntur Þóru
Björgvinsdóttur; Kristín, f. 21.9.
1949, húsmóöir í Grindavík, gift
Guðlaugi Gústafssyni; Helga, f. 17.1.
1953, húsmóðir og starfsmaður á
sjúkrahúsi Húsavíkur; Eva, f. 6.1.
1955, húsmóðir og vinnuvélástjóri í
Hafnarfirði, gift Jóni Ámasyni; og
Ingólfur, f. 2.9.1958, útgerðarmaður
í Hafnarfirði, kvæntur Ástu Jóns-
dóttur.
Hálfsystkini Þórðar em: Agnar
Vilhjálmsson, útgerðarmaður á
Þórshöfn, og Hrönn Pétursdóttir,
hárgreiðslumaður á Selfossi.
Foreldrar Þórðar era Vilhjálmur
Magnússon, f. 4.6.1917, fyrrum b.
Þórður Vilhjálmsson.
»
Hrollaugsstöðum og síðar starfs-
maður Kaupfélags Húsavíkur, og
Guðrún Þórðardóttir, f. 18.8.1915,
húsmóðir. Þau bjuggu lengst af að
HroUaugsstöðum á Langanesi en
búanúáHúsavík.
Þórður tekur á móti gestum á
heimiU sínu laugardaginn 6. mars á
miUikl. 17 og20.