Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1993, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- leyndar er gætt. Við tökum við frétta- skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 03 37 00 Frjálst,óháö dagblað MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 1993. Tveirteknir: Með krókódfla innan klæða - og önnur furðudýr Tveir menn á þrítugsaldri voru stöðvaðir í tollgæslunni á Keflavík- urflugvelli í gærdag við komuna frá Amsterdam. Við leit á mönnunum fundust 2 krókódílar, 6 tarantúla- kóngulær, 6 fenjafroskar, einn sporð- dreki og tvær mýs af sérstöku kyni. Dýrin uppgötvuðust í hefðbundnu tollskoðunarúrtaki en mennimir ætluðu að smygla þeim inn í landið og voru þeir með sum þeirra innan klæða og önnur í sérstökum umbúð- um í farangrinum. Annar mannanna var með krókódíl í sérstöku belti inni á sér og hinn hafði stungið krókódíl í buxnavasa sinn. Þeir sögðust ætla að eiga dýrin sjálfir. A Að sögn Gottskálks Ólafssonar, deildarstjóra í tollgæslunni, höfðu mennimir ekki reynt að fá leyfi fyrir dýrunum. „Okkur varð nú ekkert sérstaklega um þetta. Þetta em kvik- indi sem við þekkjum ekki en þeir gátu hins vegar meðhöndlað þetta eins og hver önnur gæludýr. Við reyndum að forðast að taka á þeim, settum þau í kassa og svo beint til meindýraeyðis," sagöi Gottskálk. Hann segir að stundum flnnist ein- hver smákvikindi við tollskoðun en ^ekkert sem jafnist á við þetta. -ból Ölvaðirbrutust innáLandspítala Tveir menn voru handteknir um íjögurleytiö í nótt eftir að þeir höfðu brotist inn á Landspítalann. Tahð er aö mennirnir hafi brotið rúðu á jarðhæð spítalans og þairnig komist inn á sjúkrastofu. Einn sjúkl- ingur var sofandi á stofunni og vakn- aði hann við umganginn og náði að hringja á aðstoð. Vaktmaður kom að vörmu spori og lét lögregluna vita. Ekki er vitað hvað mönnunum gekk til en þeir vom mjög ölvaðir. ^•IfcÞeir hvílast nú í fangageymslu lög- reglu og verða yfirheyrðir þegar hugsunþeirraskýrist. -ból Minkarskæðiri Svarfaðardal Heimir Kiistmsson, DV, Dalvilc Sex minkar hafa verið unnir síð- ustu vikur í Svarfaðardal. Þeir eru af þremur gerðum - vilhminkur, búrminkur og blendingur þar á mhh. Á einni nóttu drápu minkar 15 hænur á einum bæ og var það megn- ið af hænsnastofninum þar. Ehefu hænur voru drepnar á öðrum bæ og ' a þeim þriðja urðu 5 hænur og 5 end- ur minkinum að bráð. LOKI Geta krókódílar í buxnavösum ekki bitið íviðkvæm líffæri? 1 1 / n i / Stödd í verslun ■ ■ ■■■ Mt ■ DUUui licfllllU KiUlll Wr mm + S 4 ¥*\ Kona úr Reykjavik, 34 ára göm- ul, gekkst undir erflða iiirarskipta- aðgerö á Sahlgrenska-sjúkrahús- inu í Gautaborg í gærmorgun. Að- gerðin gekk framar öhum vonum. Konan var að vakna á gjörgæslu þegar rætt var við lækni seinni- partinn í gær. Þá var einnig ráð- gert að taka hana úr öndunarvél. Aðgerðina framkvæmdi Hans Persson sem er einn reyndasti sér- fræðingur heims á þessu sviði. Konan er annar íslendingurinn sem gengst undir lifrarskiptaað- gerö. Fyrir nokkru fór kona i slíka aðgerð í London. Gekk hún vel og er konan á lífi. Sjúkdómurinn, sem hrjáir kon- una, er mjög sjaldgæfur og lýsir sé í skemmdum i hfrarvefnum, lifrin snýst gegn sjáifri sér. Hann upp- götvaðist í konunni fyrir þremur árum en hún hefur verið á biðhsta eför lifrarskiptaaðgerð í rúmt ár. Hefur hún boríð símboða á sér ah- an þann tíma enda þarf snör hand- tök eigi að nýta þau iíffæri sem Konan var stödd i verslun seinni partinn á mánudag þegar símboð- inn pípti. Hún hringdi og var strax sagt að fasta og hafa sig til. Þá þeg- ar var þaulskipulagt ferh komið i gang í Svíþjóö. Leiguþota, sem stödd var í Bergen á vegum Scan- dia Transplant-stofnunarinnar, flaug beint hingað th lands. Flaug l>otan héðan áleiðis til Gautaborgar klukkan átta á mánudagskvöld. Þá hafði aðgerðartiminn þegar veríð ákveðinn klukkan 6 morguninn eftir að íslenskum tíma. Lifrarskiptaaðgerð er töluvert flóknari og umfangsraeiri en hjanaskiptaaðgerð en mikið af erf- iðum æðum liggur th og frá lifr- inni Th að forðast stórkostlegar blæðingar þarf þvi að gera aögerö- ina mjög skipulega. Helstu vand- kvæðin tengjast þó ýmsum lyfjrnn sem notuð eru, til að mynda svefn- lyfjum, og lifrin sér um að brjóta niður undir eðlhegum kringum- um erfiðu aðgerðum er 4-5 timar en aögerðin á konunni tók hins vegar ekki nema um þrjár klukku- stundir. Áður en lifrarskiptaaö- gerðir komu til sögunnar voru eng- in úrræði gegn þessum sjúkdómi. Fólk liíði ekki lengi með hann. Eftir er að sjá hvort likami kon- unnar hafnar nýju lifrinni. Það skýrist þó strax næstu daga þar sem höfnunareinkenni koma fljótt fram. Gangi allt að óskum má bú- ast við að konan verði útskrífuð eftir tvær vikur. Þá tekur við eftir- ht og verður hún að fara nokkrum sinnum utan til þess. Veðriðámorgun: Tvær áttir á landinu Á morgun verður suövestanátt um lanchð sunnanvert en norð- austanátt norðan th. Rigning eða súld á Suður- og Suðausturlandi, skúrir eða slydduél suðvestan- lands en éljagangur á Vestfjörð- um. Norðanlands verður eiihiver rigning, einkum vestan th. Veðrið í dag er á bls. 44 Skákmótið í Lánares: Karpov kom- efstu manna Anatoly Karpov, sem tapaði i fyrstu umferð á stórmótinu í Linar- es, er nú kominn í hóp efstu manna. Hann vann Gelfand glæshega í 6. umferð í gær. Kramnik vann Ivanc- huk á svart, Kamsky vann Beljavsky á svart og Timman vann Ljubojevic. Jafntefli varð hjá Salov-Kasparov og Anand-Shirov. Biðskák hjá Jusupov og Bareev. Staðan nú. Kasparov, Karpov, An- and og Kamsky 4 v. Kramnik og Beljavsky 3 ‘A v. Shirov og Timman 3 v. Salov 2‘/i v. og biðskák, Bareev og Jusupov -2 v. og biðskák, Gelfand 2 v. Ivanchuk l 'A v og Ljubojevic l v.ogbiðskák. -hsím Flugvirkjarsemja Samkomulag náðist í gær í deilu flugvirkja og Flugleiða um vinnufyr- irkomulag í nýja flugskýhnu á Kefla- víkurflugvehi. Hófu flugvirkjar vinnustraxígær. -hlh Guðmundur J.: Skil ekki hvers vegna menn eru að rjúfa samstöðuna Brestir eru komnir i samflot verkalýðsfélaganna. Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dagsbrúnar, og ögmund- ur Jónasson, formaður BSRB, hittust í morgun til að ræða þau mál. DV-mynd GVA „Viö fórum af stað í þessa kjara- samninga undir merki samflots og samstöðu laimþegahreyfingarinnar. Dagsbrún samþykkti að taka þátt í því samfloti. Nú virðist þetta vera að sphttast upp. Mér er óskiljanlegt hvers vegna það er. Þess vegna er þessi fundur okkar Ögmundar Jón- assonar haldinn," sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Dags- brúnar, í samtali við DV. Þeir Ögmundur og Guðmundur J. hittust í morgun th að ræða samflot- ið í kjarasamningunum, sem þeir telja báðir að séu að koma brestir í. „Ég tel Dagsbrún vera sterkasta aflið í þessum málum hér í Reykja- vík og þess vegna vh ég ræða þetta mál viö Guömund J.,“ sagöi Ög- mundur Jónasson. Guðmundur J. sagði að sínir um- bjóðendur hefðu krafist þess að allir legðust á eitt í þessum samningum. Nú væri komin upp tortryggni og henni þyrfti að eyða. Samningafundur ASÍ og VSÍ hefst eftirhádegiídag. -S.dór ■ I ^Brook I Oon,Pton CESZQOI RAFMOTORAR PfittggCil SuAufiandabraut 10. 8. «6400. í I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.