Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1993, Side 30
42
MÁNUDAGUR 22. MARS 1993
Afmæli
Torfi Þorkell Guðbrandsson
Torfi Þorkell Guðbrandsson, fyrr-
verandi skólastjóri, til heimilis að
Bogahlíð 12, Reykjavík, er sjötugur
ídag.
Starfsferill
Torfi fæddist að Heydalsá í
Strandasýslu og ólst þar upp fyrstu
5 árin. Hann lauk héraðsskólaprófi
frá Reykjaskóla í Hrútafirði 1939,
gagnfræöaprófi frá Gagnfræðaskóla
Isafjarðar 1940 og ktnnaraprófi frá
KÍárið 1951.
Torfi var kennari í Hrófbergs-
skólahverfi í Steingrímsfirði
1941-44, Kirkjubóls- og Fellsskóla-
hverfi í Strandasýslu 1944-48 og
1953-55, Gagnfræðaskólanum v.
Hringbraut í Rvík. 1951-52 og við
Barnaskóla Hafnarfiarðar 1952-53.
Hann gegndi síðan starfi skólastjóra
heimavistarskólans að Finnboga-
stöðum 1955-83 og var starfsmaður
við Aðalbanka Búnaöarbanka ís-
lands 1984-93.
Torfi átti lögheimili á Heydalsá í
Kirkjubólshreppi til 1956, frá þeim
tíma í Ámeshreppi til 1984, en síðan
í Reykjavík að Bogahlíð 12. Torfi var
formaður ungm.fél. Hvatar í Kirkju-
bæjarhreppi 1946-48 ogungm.fél.
Leifs heppna í Árneshr. 1958-66.
Hann hefur verið formaöur slysa-
vamad. Strandasólar í Árneshreppi
frá 1970. Torfi var endurskoðandi
Kaupf. Steingrímsfi. og Sparisjóðs
Kirkjubóls- og Fellshrepps 1944-48
og Kaupf. Strandamanna í tvo ára-
tugi. Torfi hefur einnig sinnt rit-
störfum, skrifað sögu Heydalsár-
skólans, Finnbogast. skólans og
fleiri þætti í byggðasögu Stranda-
sýslu, Strandirlogll.
Fjölskylda
Torfi kvæntist 15.6.1957 Aðal-
björgu Albertsdóttur.f. 1.5.1934,
skólaráðskonu og nú starfsmanni
hjá Félagsmálastofnun Rvíkurborg-
ar. Hún er dóttir Alberts Vcdgeirs-
sonar og Óskar Samúelsdóttur af
BæíÁmeshreppi.
Börn Torfa og Aðalbjargar eru:
Björn Guðmundur, f. 14.11.1956,
bóndi á Melum í Árnesheppi,
kvæntur Bjarnheiði Fossdal sjúkra-
liða og eiga þau fimm börn; Óskar
Albert, f.26.6.1958, vélvirkiá
Drangsnesi, kvæntur Guðbjörgu
Hauksdóttur og eiga þau fiögur
börn; Snorri, f. 22.7.1959, vélvirki í
Reykjavík, í sambúð með Ingu Dóm
Guðmundsdóttur og eiga þau eitt
barn, fyrir átti Snorri einn son með
Erlu Ríkharösdóttur; Ragnar, f.
18.4.1963, trésmiöur í Rvík, kvæntur
Ernu G. Gunnarsdóttur og eiga þau
3 böm; Fríða, f. 4.7.1965, kennari í
Rvík, gift Jóni M. Kristinssyni
viðsk.fr. og eiga þau 2 böm; Guð-
brandur, f. 18.12.1966, trésmíða-
meistari í Rvík, kvæntur Dóm
Björgu Jónsdóttur og eiga þau eitt
barn.
Systkini Torfa eru: Guðmundur,
f. 26.11.1915, bóndi á Heydalsá, nú
látinn, kvæntur Ragnheiði Aðal-
steinsdóttur, f. 19.8.1916, þau áttu
Hinrik Guðmundsson
Hinrik Guðmundsson verkfræðing-
ur, til heimihs að Heiðargerði 13,
Reykjavík, er 75 ára í dag.
Starfsferill
Hinrik fæddist á Þórarinsstöðum
í Hrunamannahreppi og ólst þar
upp. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR, prófi í bruggunarfræði frá TH
í Munchen 1942, prófi í verkfræði
við Stralsundische Vereinsbrauerei,
Stralsund, Þýskalandi 1942-43, hjá
De Forenede Bryggerier A/S Khöfn
1943-45. Hann var verksmiðjustjóri
hjá Ölgerðinni Agh Skallagrímssyni
hf. í Rvík 1946-53, frkstj. VFÍ frá 1953
og annaðist jafnframt daglegan
rekstur SV, LVFÍ til 1980 og TVFÍ.
Hinrik varð sérfræðingur í bmgg-
unarfræði, fyrstur íslenskra verk-
fræðinga og vann á því sviði um 11
ára skeið. Hann var í stjóm lífeyris-
sjóðs VFÍ1954-79, félagi í Club
auslándischer Weihenstephaner, fé-
lagi erlendra stúdenta í bruggunar-
fræði við TH Munchen og bruggun-
arverkfræðinga þaðan um heim all-
an frá 1940, formaður 1941-42. Geröi
stofnkostnaðar- og rekstraráætlanir
fyrir sykurhreinsunarstöð á íslandi
með hagnýtingu jarðvarma fyrir
augum á áranum 1962-75. Hinrik
beitti sér fyrir nánari athugun þessa
möguleika 1975-78. Stofnaði ásamt
öðmm Áhugafélag um sykuriðnað
hf. 1978 til þess að vinna að fullnað-
arathugun þessa máls í samvinnu
við Finska socker AB. Formaöur
stjórnar Áhugafélags um sykuriðn-
að hf. frá 1978.
Hinrik hefur einnig sinnt ritstörf-
um, skrifaði m.a. bækur um Áfenga
drykki, öl, vín, brennda drykki og
vínblöndur útg. 1953, Launamál
verkfræðinga útg. 1954, Úr hvaða
stéttum koma verkfræðingar? útg.
1958, Endurskoðun menntaskóla-
námsins útg. 1964, Verkfræðingar á
íslandi og nýting þeirra útg. 1968 og
mörgfleiririt.
Fjölskylda
Hinrik kvæntist 19.2.1944 Judith
Amahe, f. 12.6.1917 á Skipanesi,
Færeyjum. Foreldrar hennar eru
Joen Frederik Skibenæs, kaupmað-
ur þar, og Jóhanna f. Jacobsen.
Börn Hinriks og Judith eru: Guð-
mundur, f. 14.6.1944, hstmálari,
kvæntur Ósk Axelsdóttur kennara
Hinrik Guðmundsson.
en þau era skilin; Jóhann, f. 28.11.
1945, bókasafnsfræðingur á ísafirði,
kvæntur Sigríði Steinunni Axels-
dótturkennara.
Foreldrar Hinriks vom Guð-
mundur Kristinn Ögmundsson, f.
29.7.1888, d. 20.5.1952, málarameist-
ari í Rvík, og Margrét Hinriksdóttir,
f. 6.10.1892, d,19.3.1963. Faöir Guö-
mundar var Ögmundur Svein-
bjömsson, bóndi á Þórarinsstöðum.
Faðir Margrétar var Hinrik Magn-
ússon, bóndi á Orrastöðum og síðar
Tindum á Ásum, A.-Húnavatns-
sýslu.
Sviðsljós
Húsfyllir hjá Stanga-
veiðifélaginu
„Þetta var skemmtileg byijun
og það var fuht út úr dyrum,“
sagði Bjami Júhusson um
fyrsta „opna húsið“ sem ný
skemmtinefnd Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur hélt fyrir
skömmu. Bjami er nýtekinn th
starfa í nefndinni ásamt Sigurði
Jenssyni og Ingólfi Ásgeirssyni.
„Ásgeir Heiðar, einn fremsti
laxveiðimaður landsins, sagði
frá því hvemig á að veiða á
maðkinn og það féh í góðan
jarðveg. Næst verður Ingvi
Hrafn Jónsson, fréttasfióri
Stöðvar 2, með ahan leyndar-
dóminn í kringum Portlands-
bragðið. Rætt hefur verið um
að hafa opin kvöld, jafnvel eitt-
hvert fimmtudagskvöldið, og
ræða þá um Hítará á Mýrum,“
sagði Bjami ennfremur.
G.Bender
Bjami Júlíusson, Ingólfur Ásgeirsson og Sigurður Jensson sitja í skemmti-
nefnd Stangaveiðifélagsins. DV-mynd G.Bender
eitt bam; Björn Halldór, f. 8.8.1917,
bóndi Heydalsá, nú látinn, var
ókvæntur og barnlaus; Sigrún, f.
18.9.1918, húsmóðir í Rvík, nú látin,
var kvænt Torfa S. Sigurðssyni, f.
5.4.1921 ogeignuðustþauþijár
dætur; Sverrir, f. 26.3.1921, starfs-
maður hjá Kaupfélagi Steingrímsfi.,
kvæntur Sigurrósu G. Þórðardótt-
ur, f. 3.2.1924 og eiga þau sjö böm;
Matthhdur Ása, f. 26.8.1926, hús-
móðir að Smáhömrum, gift Birni
H. Karlssyni, bóndaþar, f. 30.12.
1931 og eiga þau tvo syni; Vigdís, f.
24.5.1929, húsmóðir á Reyðará í
Lóni, gift Þorsteini Geirssyni bónda
þar, f. 8.4.1926 og eiga þau tvo syni,
Vigdís átti áður son með fyrri manni
sínum, Jóhanni Guðmundssyni;
Aðalbjörg, f. 10.11.1930, húsmóðir í
Rvík, gift Ölafi Thoroddsen raf-
virkjameistara, f. 29.7.1918, þaueiga
fiögur börn; Bragi, f. 21.9.1933, bóndi
á Heydalsá, kvæntur Sólveigu Jóns-
dóttur, f. 3.8.1934 og eiga þau tvo
syni; Sigurgeir, f. 3.4.1936, bóndi á
Torfi Þorkell Guðbrandsson.
Heydalsá, nú látinn, kvæntur Hah-
dóru Guðjónsdóttur og áttu þau
fiórasyni.
Foreldrar Torfa voru Guðbrandur
Björnsson, f. 14.5.1889, d. 2.7.1946,
oddviti og útvegsbóndi, og Ragn-
heiður Sigurey Guðmundsdóttir, f.
24.8.1894, d. 24.10.1972, húsmóðir.
Þau bjuggu lengst af á Heydalsá í
Kirkjubólshreppi.
. mars
Ingibjörg Kristmundsdóttir,
Skjólbraut la. Kópavogi. ; /
Óskar Þorsteinsson,
EyjahrauihlO. Vestmamiaeyjum.
Guðmundur Kristjánsson,
Einarsnesi 44, Reykiavík.
Laufey Guðlaugsdóttir,
Hlíðargötu 6, Neskaupstað.
Jenný Jónsdóttir^
Ránargötu3,
Grindavík.
Eiginmaöur
Jennýjarer
ReynirJó-
hannsson. Þau
takaámóti
gestum kL 19 á
afmæhsdaginn
í veitingahúsinu við Bláa lónið.
IngólfurÁmason,
Reykjaheiðarvegi 10, Húsavík.
Hjördís Indriðadóttir,
Skeiösfossi 1, Fijótahreppi.
40ára
70 ára
Agnar Tómasson,
Laxagötu 8, Akureyri.
Guðlaug Helga Mey vantsdóttir,
Vesturgötu 77, Akranesi.
60 ára
Helgi Jónsson,
Asvegi 12, Dalvík.
Torfi Kristján Stefánsson,
Möðmvöhum 1, Araarneshreppi.
Helga Jónsdóttir,
Sunnubraut 8, Kópavogi.
Hjálmar Brynjúlfsson,
Búhamri33, Vestmannaeyjum.
Sigurður Frostason,
Skagfirðingabraut 9a, Sauðár-
króki.
Sigurbjörg J. Alfreðsdóttir,
Melagerði, Kjalarneshreppi.
Páll Óskarsson,
Skólavegi46a, Fáskrúösfirði.
Jón Helgi Bjarnason,
Norðurtúni 4, Keflavík.
Ásgeir GuðniHjólmarsson,
Munkaþverárstræti 40, Akureyri.
Svidsljós
Olíu- og þurrpastelmyndir
Sýning á olíu- og þurrpastelmyndum eftir Rut Rebekku Sigurjónsdóttur
stendur nú yfir í FÍM-salnum. Listakonan sýnir litlar landslagsmyndir
en hún er einkum þekkt fyrir myndir sínar af fólki og þá sérstaklega
ungum hljóðfæraleikurum. Á meðal þeirra sem litið hafa inn i FÍM-
salinn til að skoða verkin eru Hilmar Pétur Þormóðsson, Björg Atla og
Erla Axelsdóttir sem hér sjást. DV-mynd JAK