Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1993, Blaðsíða 6
fyyy t
2 (1)^ Lethal Weapon 3
3(2) White Sands
5 (5) The Super
8 (■} Point Break
9(-) League of T
12 (6) Marked for Dead
Miklar sviptingar veröa á listanum þessa vikuna og koma fimm
nýjar myndir inn ó listann. Beint í fyrsta sæti fer flamanmyndin 14 (.)
Houaesitter en aðalhlutverkin í þeirri mynd leika Steve Martin
og Qoldie Hawn sem sjást hér á myndinni. 13 W
Englabærinn er ein þeirra kvikmynda sem keppa um vegleg verðlaun á
10. Norrænu kvikmyndahátíðinni. Hún hefur einnig verið tekin til sýningar
i Regnboganum.
DV-myndbandalistiim
Á slóð vopnasala
Þaö sem heldur
White Sands uppi '^íSs
er góður leikur *
Willem Dafoe,
Mary Elizabeth
Mastrantonio og
Mickey Rourke.
Þau eru hvert
öðru betra í ht-
skrúðugum hlut-
verkum. En þeg-
ar myndin er
skoðuðí heild hverfur mesti glansinn,
ósannfærandi og rétt sæmilega skrifaö
handrit er helsti gallinn. Dafoe leikur
lögreglumann sem neyddur er til að
gerast handbendi FBI þegar honum
mistekst að komast að því hver. myrti
FBI-mann sem haföi hálfa milljón doll-
ara undir höndum. Persónur koma og
fara án skýringa í þessari ruglingslegu
mynd en þrátt fyrir ýmsa annmarka
er White Sands sæmileg skemmtun
með góöum leikurum.
WHITE SANDS - Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: Roger Donaldson. Aðalhlutverk:
Willem Dafoe og Mickey Rourke.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 98 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára. -HK
Félagar í klípu
Tom og Eddie
eru fyrrverandi
lögreglumenn og
hafa báðir verið
reknir úr starfi,
Eddie vegna
óheiðarleika og
Tom vegna þess
að hann stóð með
honum. Þegar
Dirty Work hefsi
reka þeir saman
lögreglufyrirtæki og hefur Eddie orðið
manni að bana og stohð stórri fjárhæð
frá mafíunni. Til að bjarga sjálfum sér
reynir hann að koma öhu yfir á félaga
sinn en grefur sjálfum sér gröf í leið-
inni. Spennan helst allan tímann í
Dirty Work sem gerir það að verkum
að ýmsir gallar verða Utt áberandi.
Kevin Dobson og John Ashton ná góð-
um tökum á þeim tveimur persónum
sem eru þungamiðjan, engir stæltöff-
arar heldur ósköp venjulegir menn í
útUti sem hverfa í fjöldann.
DIRTY WORK - ClC-myndbönd.
Leikstjóri: John McPherson. Aðalhlutverk:
Kevin Dobson og John Ashton.
Bandarisk, 1992 - sýningartími 86 mfn.
Bönnnuð börnum innan 16 ára. -HK
FÖSTUDAGUR 26. MARS 1993
Kvikmyndahátíðin
í fullum gangi
Laugardagur
13.00 Stóri, feiti pabbi minn
13.00 Fórnin
13.00 Vofa Jaspers
15.00 Snúkurinn
15.40 EðU glæpsins
17.00 Freud flytur að heiman
17.00 Sódóma Reykjavik
17.30 Pólstjarnan
19.00 Fanny og Alexander
19.30 Týndi sonurinn
21.30 Svo á jörðu sem á himni
22.00 Hið fullkomna morð
23.00 Englabærinn
Nú eru tveir sýningardagar af fjór-
um Uðnir á 10. Norrænu kvikmynda-
hátíðinni og búið að sýna langflestar
kvikmyndanna einu sinni en kvik-
myndimar í keppninni og þær tíu
myndir sem valdar vora bestu kvik-
myndir á Norðurlöndum síðustu tíu
árin eru sýndar allan daginn og langt
fram á kvöld.
Lokaathöfnin og verðlaunaafhend-
ing fer fram í Háskólabíói á morgun
kl. 19.00 og verður henni sjónvarpað
beint til aUra Norðurlandanna. Þá
verður vaUn besta kvikmynd á Norð-
urlöndum sem komið hefur fram síð-
ustu tvö árin. Dagskráin í dag og
morgun fer hér á eftir:
Föstudagur
15.15 Leiðsögumaðurinn
17.00 Loftskeytamaðurinn
17.15 Sódóma Reykjavík
19.00 Sofie
19.15 Handfylli af tíma
21.00 Freud flytur að heiman
22.00 Týndi sonurinn
23.00 Hundalíf
**11
Konur í karlaleik
íþróttadýrkun
er mikil í Banda-
ríkjunum sem og
á öörum Vestur-
löndum. Eins og
gefur að skilja
var ekki mikið
um keppni í
þróttum meðan á
síðari heims-
styijöldinni stóð.
Til að fyUa upp í
eyðurnar var stofnuð kvennadeUd í
hafnabolta sem naut töluverðra vin-
sælda hjá almenningi. í A League of
Their Own er sögð á gamansaman
hátt feriU eins slíks kvennaliðs. AUt frá
því konurnar byrja að æfa undir stjórn
drykkfeUds þjálfara og þar tíl þær
komast í úrslitaleikinn. Myndin er vel
heppnuð skemmtimynd, Tom Hanks,
Geena Davis og Madonna bera af í
ágætu leikaraliði. Það er helst í lokin
að farið er að örla á væmni.
A LEAGUE OF THEIR OWN - Útgef.: Skífan.
Leikstjóri: Penny Marshall. Aðalhlutverk:
Tom Hanks og Geena Davls.
Bandarisk, 1992 - sýningartimi 123 min.
Leyfð öllum aldurshópum. -HK
★★
Við dyr dauðans
í byijun Deadly
Relations fylgj-
umst við með
þegar reynt er að
myrða Claudiu
Parr, ríka og
fagra konu. Ekki
tekst tilræðis-
manninum ætl-
unarverk sitt en
Claudia fellur í
dauðadáogvakn-
ar ekki fyrr en tveimur árum seinna.
Þá bregður mörgum, sérstaklega þegar
Claudia fer að reyna að púsla saman
í huga sér nóttinni þegar reynt var aö
myrða hana. Lindsey Wagner leikur
Claudiu og gerir það vel, en þessi
ágæta leikkona er stöðnuð í hlutverk-
um á borð við það sem hún leikur hér.
Þegar á heildina er litið er Deadly Re-
lations sæmileg afþreying en ekkert
meira. Þrátt fyrir ýmsar fléttur er aldr-
ei hægt aö leyna hver tilræðismaður-
inn er og slakar það á spennunni.
DEADLY RELATIONS - SAM-myndbönd.
Lelkstjórl: Warrls Husseln. Aðalhlutverk:
Lindsay Wagner og Davld Dukes.
Bandarísk, 1992 - sýnlngartfmi 93 mfn.
Bönnuð börnum innan 12 ára. -HK
★★'/2
Óeðlilegur bamadauði
Sannleikurinn getur stundum
verið ótrúlegri en skáldskapur og
sú staðreynd kemur óneitanlega
upp í huga manns þegar horft er
á Hættuleg lyf (Deadly Medicine).
Myndin er byggð á sönnum at-
burðum um dularfull dauðsföll
ungbarna á spítala og leikur
grunur á að þau hafi verið myrt.
í byrjun myndarinnar kynn-
umst við barnalækninum Kathy
Holland (Veronica Hamel) sem er
að hefla sjálfstæðan atvinnu-
rekstur í smábæ. Á stórum spít-
ala, sem hún hefur unnið á, starf-
ar einnig hjúkrunarkonan Gen-
ene Jones (Susan Rutton) og
hrífst Kathy af störfum hennar
og býður henni að gerast hjúkr-
unarkona hjá sér.
Eitt af fyrstu verkum Kathy
sem sjálfstæður barnalæknir er
að lækna smábarn af smávægi-
legum kvilla. Ekki tekst betur til
en svo að bamið deyr í höndum
þeirra og er enga skýringu að
finna. Rannsókn leiðir í ljós að
baminu hefur hkast til verið gef-
ið lyf sem er hættulegt bömum
og fellur strax gmnur á lækninn.
Kathy veit að hún er saklaus þótt
enginn trúi henni og þá er aðeins
einn möguleiki eftir. Hjúkmnar-
kona hennar er sek.
Hafin er nákvæm rannsókn á
ferh þessara tveggja kvenna og í
þeirri rannsókn kemur í ljós að
allt að þrjátíu ungbörn hafa dáið
á dularfullan hátt á skömmum
tíma á þeim spítala sem þær stöll-
ur störfuðu saman á. Spítala-
stjórnin hafði komist að þessu en
frekar en að komast til botns í
málinu haföi verið reynt að
hylma yfir voðaverkin.
Hefst nú mikil barátta Kathy
fyrir réttlæti og að sanna sekt
Genene. Er þar við ramman reip
aö draga þar sem hjúkrunarkon-
an reynir hvað hún getur til að
koma sökinni á lækninn...
Eins og áður segir er myndin
Hættuleg lyf byggð á sönnum at-
burðum en helsti galh hennar er
samt hve erfiðlega hefur gengið
að koma sögunni á raunsæjan
hátt í handrit. Liggur við að mað-
ur haldi að eitthvað sé farið
kringum sannleikann, einkum
vegna þess hve endirinn er settur
fram á ósannfærandi hátt. Að
öðru leyti er Hættuleg lyf ágæt-
lega gerð mynd og aðalleikkon-
urnar Veronica Hamel og Susan
Rutton fara sérlega vel með hlut-
verk sín.
HÆTTULEG LYF
Útgefandl: Bergvík.
Leikstjóri: Richard Colla.
Aðalhlutverk: Veronica Hamel, Susan
Rutton og Stephen Toblowsky.
Bandarísk, 1992 - sýningartimi 90
mín.
Leyfð öllum aldurshópum. -HK
Laugarásbíó hefur frumsýnt Tvíf-
arann (Doppelganger) sem er með
Drew Barrimore í aðalhlutverki.
Leikur hún unga konu, Hohy Good-
ing, sem stundum er hæg og lítillát
en á það einnig til að lifa viUtu lífi.
Hún gæti einnig verið morðingi.
Annaðhvort hefur hún eða einhver
sem er tvífari hennar drepið móður
hennar. Lögreglan getur samt ekki
sannað verknaðinn á hana og HoUy
flytur burt tU Los Angeles þar sem
Drew Barrymore leikur tvö hlutverk
i Tvífaranum.
hún hittir ungan rithöfund sem
hrífst af henni en kemst að því að
hún er ekki öU þar sem hún er séð.
Það hefur mikið vatn mnnið tfl
sjávar frá því Drew Barrimore lék
Utlu telpuna í E.T. Þessa dagana leik-
ur hún aðaUega stúlkur sem tæla
karlmenn og má nefna auk Tvífarans
Poison Ivy. Leikstjóri myndarinnar,
Avi Nesher, er fæddur í ísrael en
flutti eUefu ára gamaU til Bandaríkj-
anna. Hefur hann aðaUega fengist við
gerð spennumynda bæöi í ísrael og
í Bandaríkjunum og hafa hinar ísra-
elsku myndir hans, The Troupe og
Rage and Glory, vakið mesta athygli.
-HK
Laugarásbíó:
Tvífarinn