Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1993, Blaðsíða 5
MIÐVIKUPAGUR;ð. MAÍ1993
23
Hús og garðar
XníAH/VDMFJOUBVUS H íiS “
<= 5AFNfftAU6UR
í © _5 Q S 'V fiWEkfr epoti *;r. d . frfVvs, kalarós
- ttuspVftMBuföx^, mouj)
E5 S [5L 4 fifcÆ-NT T-P- eRÆNfYVErtSAFfiAN&AR,
____________^ V J2A?0ARDAftABlÖJ>
D Ejj^ j^j B. \ EU0HIu5AUSaN<S7M?
o 1® a *Y*U««I
^R£1Sf.im n$ u
UA6-SKIPT/M& SAFMHAUÖ5 FL^TIR
FVftlR- ROTMUMl/MMt .__________
Sláum tvær flugur í einu höggi:
Ánamaðkarækt
Áhugi eykst stöðugt á endur-
vinnslu úrgangsefha. Mikilvægt er
að lífrænn úrgangur úr garðinum og
eldhúsinu endi ekki á sorphaugunum
engum til gagns. Margir garðeigend-
ur hafa nú safnhauga í görðum sín-
um og sum sveitarfélög eru að koma
sér upp moldarbönkum.
Ánamaðkar - vinmi-
menn garðeigandans
Ánamaðkar hafa löngum verið
notaðir til að flýta niðurbroti líf-
ræns garðaúrgangs og ummynda
þannig lífrænan úrgang í fijósam-
an jarðveg.
Állir þurfa að losna við úrgang
frá eldhúsinu og garðinum. Garð-
eigendumir nýta sér ævafornar
heimildir um hringrás náttúrunn-
ar; „Af moldu ertu kominn og að
moldu skaltu aftur verða." Þetta
þýðir að lífrænn úrgangur verður
að mold með tímanum. Ánamöðk-
um finnast rotnandi lífrænar leifar
algert lostæti. Það þýðir að maðkar
sækjast eftir að búa um sig í safn-
haugum.
Anamáðkar - beita
veiðimannsins
Með hækkandi sól fara veiði-
menn að huga að veiðarfærum sín-
um. Þá er ekki úr vegi að fara að
hugsa fyrir beitu líka. Sumir hnýta
flugur, aðrir kaupa sér bara hrogn
eða rækju í flskbúðinni en hinir
skynsömu ræktamaðka. Skynsam-
ir veiðimenn eru orðnir leiðir á því
að læðast um garða nágranna
sinna með vasaljós að næturþeli í
leit að feitum og pattaralegum
ánamöðkum. Þeir sem búa svo vel
að eiga garð geta því slegið tvær
flugur í einu höggi.
Safnhaugurinn
Ákjósanlegasti staðurinn fyrir
safnhauginn er oft hom garðsins,
skuggsæll og htt áberandi.
Síðla vetrar þarf að khppa og
snyrta trjágróður í garðinum. Þær
afldippur eru lagðar neðst í haug-
inn tíl þess að tryggja nægilegt frá-
rennsh úr haugnum. Góð loftun og
húsdýraáburður eru gulltrygging
þess að rotnunin í haugnum gangi
hratt fyrir sig. Auðvelt er að nálg-
ast hann og hann ætti alls ekki að
vera af skornum skammti.
í vorhreingemingunni fellur svo
ýmislegt til, svo sem hálfrotnuð
laufblöð frá haustinu áður, sölnuð
blóm, mosi og sina úr grasflötum.
Yfir sumarið þarf að stússa heil-
mikið í garðinum, slá grasflötina,
snyrta tré og runna og reyta arfa.
Þetta má allt fara í hauginn nema
það illgresi sem þegar er farið að
mynda fræ. Þegar haustar á ný
falla laufin af tijánum og er tilvahð
að raka þeim saman og leggja þau
í hauginn.
Úr eldhúsinu má svo nota eggja-
skum, kafflkorg, grænmetisafganga,
rabarbarablöð, kálgrös og smátt nið-
urrifinn dagblaðapappír. Ekki er ráð-
legt að hafa aUt of mikið af mataraf-
göngum því það getur laðað til sín
óæskilega gesti eins og mýs.
Þegar hitna fer í safnhaugnum
flykkjast ánamaðkarnir á svæðið
og vegna þess að þeim Uður svo vel
í hlýjunni íjölga þeir sér í gríð og
erg. Líf þeirra verður þó ekki ein-
tóm skemmtun heldur vinna þeir
markvisst að því að breyta hráefn-
inu í safnhaugnum úr hálfrotnandi
jurtaieifum í úrvals gróðurmold.
Fæðið er sérvaUð og einstaklega
næringarríkt og því verða ána-
maðkamir mjög feitir og pattara-
legir, sem sagt gimilegasta fiska-
fæði.
Höfum ávallt fyrirliggjandi:
Gosbrunna, úti og inni,
styttur, dælur og Ijós,
garðdverga, fugla o.fl. til
garðskreytinga.
Vörufell hf.
Heiðvangi 4, Hellu
Sími 98-75870
Opið 14-18
eða eftir samkomulagi.
Lokað þriðjudaga.
GÆÐAMOLD
í GARÐINN
Grjóthreinsuð
mold, blönduð
áburði, skeljakalki
og sandi. Þú sækir
eða viðsendum.
Afgreiðslaágömlu
sorphaugunum í
Gufunesi.
GÆÐAMOLD
MOLDAR3LANDAN - GÆÐAMOLD HF.
Pöntunarsími 67 49 88
Garðaúrgangur er ekki sorp
Úrgangurinn úr garðinum er í raun mikilvæg
verðmæti fyrir hringrás náttúrunnar.
Fleygðu honum því ekki í sorptunnuna
láttu náttúruna um að endurvinna hann.
Þeir sem ekki hafa aðstöðu til að koma á fót
endurvinnslu í garðinum hjá sér geta snúið sér
til SORPU sem safnar garðaúrgangi í moldar-
banka.
Á gámastöðvum SORPU getur þú lagt inn í
moldarbankann en mundu að henda umbúð-
unum ekki - nýttu þær aftur!
Gámastöðin þín er í næsta nágrenni:
OPIÐ
A sumrin
13:00 - 22:00
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 67 66 77
ÁNANAUSTUM (lokað mánudaga)
GARÐABÆ, Miðhrauni 20 (lokað mánudaga)
SÆVARHÖFÐA (lokað fimmtudaga)
GYLFAFLÖT (lokað miðvikudaga)
KÓPAVOGI v/Dalveg (lokað miðvikudaga)
JAFNASELI (lokað þriðjudaga)
MOSFELLSBÆ (lokað mánudaga)
OPIÐ Á MORGNANA:
SÆVARHÖFÐA 8.00-13.00 alla virka
daga nema fimmtudaga
Vetrartími: 30. september -15. apríl kl.13-20
Fyrirtækjum er bent á að kynna sér
breyttar reglur og gjaldskrá vegna losunar
á gámastöðvar.
Upplýsingar um þjónustuaðila í dagbók Mbl. oghjá Guiu línunni sími 626262