Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ1993
Átökin 1 Sómalíu:
Friðargæsluliðar SÞ
skjóta tvo Sómali
Skothljóö heyrðust í miðborg borg-
arinnar Mogadishu í Sómalíu í nótt.
Skothljóðin heyrðust í u.þ.b. 15 mín-
útur en að sögn íbúanna var ómögu-
legt að sjá í myrkrinu og rigningunni
hver var að skjóta á hvern. Þyrlur
frá friðargæslusveitum Sameinuðu
þjóðanna sveimuðu um himininn eft-
ir skotárásina.
Skotárásin kom í kjölfar mikillar
spennu sem ríkt hefur í borginni þar
sem íbúar hennar biðu eftir að sjá
hvort hersveitir SÞ myndu ráðast á
stríðsherrann Mohamed Farah Aide-
ed sem talinn er bera ábyrgð á dauða
23 pakistanskra friðargæsluliða.
Sveitir Pakistana skutu til bana tvo
Sómah eftir að öryggisráðið hafði
krafist þess að morðingjar friðar-
gæsluliðanna yrðu fundnir og færðir
fyrir rétt. Útvarpsstöð Aideed hélt
því fram að friðargæsluliðar SÞ hafi
drepið 17 Sómali og sært 26 aðra er
þeir villtust inn á veg sem að hafði
verið lokað af friðargæsluliðum.
Erindreki SÞ sagði að Pakistanirn-
ir hefðu veriö skotnir er þeir voru
Stuttar fréttir
Gorazde
Serbar í Bosníu nota nú skrið-
dreka í árásum sínum á borgina
Gorazde sem þeir hafa setið um
í þrettán daga. Skriðdrekaárásin
hófst síödegis í gær og á Ieiðinni
til borgarinnar brenndu Serbar
niður íjögur þorp. Gorazde er eitt
af sex griðasvæðum múslima.
Króatarleitaskjólshjá
Serbum
Msundir króatískra hermanna
og óbreyttra borgara hafa leitað
skjóls hjá Serbum eftir árás músl-
íma á bæinn Travnik. Hundruð
manna eru sögö hafa fallið í árás-
inni.
Ráðherrarekinn
Nýr forseti Guatemala rak í gær
varnarmálaráðhetTann og skip-
aöi nýjan mann í staö starfs-
mannastjórans forsetaembættis-
ins sem studdi þingrof fyrrum
forseta landsins.
JeRsínfundar
Bqrís Jeltsín Rússlandsforseti
hitti í dag leiðtoga sjálfstjórnar-
héraða í Rússlandi til að reyna
að minnka spennuna sem ríkir
vegna nýrrar stjórnarskrár.
Kjamavopnrædd
Bandaríkin og Úkraína hafa
samþykkt að ræða tillögu um niö-
unif og geymslu kjarnavopna
fyrrum Sovétríkjanna á land-
svæði Úkraínu þrátt fyrir and-
stöðu Rússa.
Kosningar í Lettiandi
Bandalag fyrrum kommúnista
og landflótta Lettar uröu sigur-
vegarar kosninganna í Lettlandi
um helgina. Rússum sem settust
að í landinu er það heyrði undir
Sovétríkin var meinaö að greiöa
atkvæöi.
Stjómarandstaðan sigrar
Sósíalistar og kristilegir demó-
kratar biðu ósígur í sveitarstjórn-
arkosningum á ítalíu um helgina.
Hefur stjómarandstaðan krafist
nýrrar kosningalöggjafar og
þingkosninga í haust í kjölfar
úrslitanna.
að skoða vopnabúr í útvarpsstöö-
inni. Öryggisráðið hefur ekki sakað
Aideed beint um árásimar, en það
hefur lengi reynt að fá hann og aðra
stríðsherra til að koma saman á lýð-
Fylgjendur samningsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið era ánægðir
með að sósíalistar verða áfram stjóm-
arflokkur á Spáni. „Felipe Gonzales
forsætisráðherra hefur persónulega
lofað sænsku stjórninni að Spánn
verði ekki síðasta landið til að stað-
festa samninginn. Svo nú reiknum
við með að allt verði gert til að staðið
verði við loforðið," segir Ulf Hjertons-
son, sendiherra Svíþjóðar, í viðtali við
sænsku fréttastofuna TT.
Margaret Thatcher, fyrrum forsæt-
isráðherra Bretlands, réðst mjög
harkalega á núverandi forsætisráð-
herra, John Major, í ræðu sem hún
hélt í lávarðadeild þingsins í gær.
Sagði Thatcher að það væri til
skammar að Major vildi ekki leyfa
þjóðaratkvæðagreiðslu um Maas-
tricht-samninginn.
Jámfrúin hóf grimmilega árás á
stefnu Majors, sem er óvinsælasti
leiðtogi Breta í hálfa öld og þykir hún
hafa eyðilagt tilraunir hans til að
auka einingu innan íhaldsflokksins.
Thatcher, sem fór frá fyrir tæplega
þremur árum, sagði að hún hefði
aldrei nokkum tíma skrifað undir
Maastricht. Hélt hún því fram aö í
Maastricht fæhst nokkurs konar
evrópskt ofurríki sem gerði þjóð-
þingin að stofnunum.
„Enginn kjósandi í þessu landi hef-
ur getað greitt atkvæði gegn Ma-
astrict... þaö er til skammar ef við
neitum honum um það tækifæri,"
sagði Thatcher.
Allir aðalflokkar þingsins styðja
Maastricht en skoðanakannanir hafa
ræðisleguþingi. Stríðsherrarnir hafa
þegar samþykkt að geyma þunga-
vopn sín á sérstökum svæðum sem
eftirlitsnefndir á vegum SÞ gætu
skoðað. Þeir samþykktu einnig að
Stjórnarmyndunarviðræður hefj-
ast strax í dag. Talið er líklegt að
Gonzalez taki minnihlutastjóm fram
yfir samsteypustjóm. Mögulegir
samstarfsflokkar sósíahstaflokksins
era þjóðernisflokkar Katalóníu-
manna og bandalag vinstri manna.
Ef Gonzalez velur samvinnu við
Katalóníumenn mun stjórnarstefnan
snúast til hægri. Ef forsætisráðherr-
ann velur samstarf við vinstri menn
veröur hann að draga í land með
sýnt að mjög margir kjósendur eru
á móti samningnum. Thatcher og
aðrir andstæðingar Evrópubanda-
afvopna hersveitir sínar á ákveðnum
tíma.
Reuter
ýmis áform sín á efnahagssviðinu
sem að hans mati eru nauðsynleg til
að Spánn verði ekki annars flokks
land í Evrópubandalaginu.
Nýkjörið þing Spánar kemur sam-
an 29. júní og reiknaö er með að ný
stjórn taki við völdum um miðjan
júlí. Eftir það fara þingmenn í frí til
7. eða 14. september.
Reuter
lagsins era þeirrar skoðunar að Bret-
ar myndu hafna Maastricht í kosn-
ingum. Reuter
Spánn:
Minnihlutastjórn líkleg
Bretland:
I Maastricht felst
evrópskt of urríki
- segir Margaret Thatcher
Tveir þingmenn breska íhaldsflokksins sem styðja þjóðaratkvæðagreiðslu
um Maastricht, Bill Cash og Teddy Taylor, við upphaf veggspjaldaherferð-
ar. Á veggspjaldinu stendur „Maastricht gerir heilar byggingar óþarfar“.
Simamynd ReutJU
Sektirviðaug-
lýsingumá
ensku
Fyrirtæki, sem nota erlent
tungumál í götuauglýsingum í
Djakarta í Indónesíu, geta átt von
á að verða sektuð eða starfsmenn ;
þeirra fangelsaðir. Að sögn emb-
ættisraanna er tilgangurinn með
aðgerðinni að skapa tungu lands-
mamia meiri virðingarscss meðal
þeirra.
Mörg fyrirtæki hafa notað er-
lend orð, nær undanteluiingar-
laust ensku, í auglýsingum; sín-
um. Leyft verður að nota erlend
tungumál frá og meö 7. júlí en það
verður að vera með smáu letri
undir indónesískum orðum.
Bóndi lýsiryfir
Ástralskur bóndi hefur lýst jörð
sina í Queensland sjálfstætt ríki
eftir að bankinn hans hafði tckið
hana til skiptameðferðar. Bónd-
inn, George Muirhead, segir
hundruð annarra bænda vera í
sams konar hugleiðingum.
„Fólk er fariö að gera sér grein
fyrir að það er til valkostur gegn
þessari harðstjóm," segir bónd-
inn sem um helgina sendi aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna í
New York sjálfstæðisyfirlýsingu
sína. Muirhead hefur útnefnt
sjálfan sig sem hertogann af
Marlborough. Hann flaggar
skoska fánanum vegna uppruna
síns, fána_ frambyggja þar sem
hann er Astrali í fimmta lið og
fána Sameinuðu þjóðanna.
Voninútð
umháarskada-
bætur
Ættingjar fómarlamba elds-
voðans á Scandinavian Star far-
þegaferjunní 1990 verða nú að
gefa upp vonina um svimandi
háar skaöabætur. Tryggingafé-
lagið Lloyds, sem samþykkti ör-
yggisaðstæður um borð, hefur
unnið mál sem um 400 Norðmenn
og Danir höfðuðu fyrir banda-
rískum dómstóli í þeirri von að
fá hærri skaöabætur en ella.
Dómstóllinn úrskurðaði að eft-
irlifendur og ættingjar verði að
höfða málið fyrir norskum eða
dönskum dómstóli vilji þeir bæt-
ur umfram þaö sem þeir hafa
fengið.
AUs létu 158 manns lífið þegar
eldur kom upp í Scandinavian
Star á leiðinni milli Óslóar og
Fredrikshavn.
Geislamengun
afvöldum
kjamaspreng-
ingaiiðnaði
Mikill hluti þeirra kjarnavopna
1 Rússlandi, sem útrýma á sam-
kvæmt afvopnunarsamningum,
verður ef til vill notaður í iðnaði.
Þetta fullyrðir Boris Golubov,
þingmaður og sérfræðingur í
neðanjaröarsprengingum.
Golubov, sem situr í rússnesku
visindaakademíunni, undirbýr
nú lagafrumvarp gegn sprenging-
um á vegum iðnaöarins. í fyrrum
Sovétríkjunum vora fram-
kvæmdar 115 kjamorkuspreng-
ingar í friðsamlegum tilgangi,
flestar við jarðfræðilegar mæl-
ingar eða við gas- og olíuvinnslu.
Hingað til hafa þær verið sagö-
ar árangursríkar og ekki valdið
neinni geislamengun. Golubov
hefur nú á kiarnorkuvopnaráö-
stefnu í Sviþjóð lagt fram gögn
sem sýna hið gagnstæða. Sjálfur
hefur hann rannsakað mörg
svæðí þar sem sprengingar hafa
farið fram og fullyröir að jarð-
vatnið hafi mengast
Reuter, TT, Ritzau