Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1993, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 1993 9 Svíar styðja hvalveiðar Norðmanna „Svíþjóð vill eins og aðrar þjóðir vemda dýrategundir í útrýmingar- hættu. En eftir því sem mér skilst era takmarkaðar hvalveiðar í lagi,“ sagði utanríkisráðherra Svíþjóðar, Margarethe af Ugglas á blaða- mannafundi í Ósló í gær. Johan Jörgen Holst, utanríkis- ráðherra Noregs, var afar ánægður með þessa stuðningsyfirlýsingu kollega síns sem þykir sú skýrasta hingað til af hálfu Svía í hvalveiði- málinu. TT EB um hvalveiðar: Fúsir til viðræðna „Ef baxm Evrópubandalagsins gegn hrefnuveiöum er byggt á röng- um forsendum erum við fúsir til að ræða máhð við Norðmenn og reyna að finna viðunandi lausn,“ segir Frakkinn Pierre Lataillade, formað- ur fiskveiðinefndar þings Evrópu- bandalagsins, í viðtali við norska blaðiö Bergens Tidende. „Viö megum ekki vera svo blindir að við vemdum dýrategundir fyrir öllum veiðum hvort sem þær era í útrýmingar- hættu eða ekki,“ hefur blaðið eftir formanninum. Bergens Tidende skrifar einnig að Lataillade sé þeirrar skoðunar að ástæða getir verið til að endurmeta bannið við selveiðum. „Samkvæmt þeim skýrslum sem við höfum fengið er svo mikill vöxtur í selstofnunum að þeir koma til með að ógna fisk- stofnum. Þetta er mál sem ég vil ræða við kanadísk yfirvöld," segir Lataillade. Norska blaðið Dagens Náringshv vitnar einnig í svipuð ummæli for- mannsins en blaðið minnir á að Frakkland sé eitt af þeim löndum sem áróður gegn hvalveiðum hafi ekki náð til. Ummæh Lataillade þýða ekki að Evrópubandalagið hafi skyndilega breytt um stefnu gegn hrefnuveiðum Norðmanna. Lataihade gagnrýnir Norðmenn fyrir að hafa tekið eigin ákvörðun í trássi við alþjóðlega samninga. Formaðurinn er hins veg- ar þeirrar skoöunar að Norðmenn og Evrópubandalagið geti rætt sam- anumhvalveiðimáhð. ntb Grænfriðungar með hótanir Grænfriðungar í Danmörku hvetja nú dönsk stjórnvöld til að lýsa yfir andstöðu sinni við hrefnu- veiðar Norðmanna. Segja samtökin að grænfriðungar í Þýskalandi, ít- aliu og Englandi séu að hefja áróð- ursherferðir gegn norskum vörum. Að sögn grænfriðunga hafa mörg bresk og þýsk fyrirtæki afpantað norskar vörur fyrir tugmhljónir króna. Grænfriðungar hóta að herða herferðina haldi Norðmenn áfram að virða að vettugi bannið við hval- veiðum. Fuhyrða þeir að Norð- menn hafi þegar tapað meira á út- flutningi en þeir komi til með aö þénaáhrefnuveiðum. Rítzau Bandarískur embættismaður: Reiknamámeð refsiaðgerðum - hefíi Norðmenn hvalveiðar Sérstakur ráðgjafi í bandaríska utanríkisráðuneytinu, Curtis Bo- hlen, segir í viðtali við blaðið Dagens Náringshv að bandarisk yfirvöld séu með lista yfir norskar vörur sem sætt geti viðskiptaþvingunum. „Ef Norðmenn hefja hvalveiðar í ágóða- skyni má reikna með refsiaðgerðum Bandaríkjamanna," segir Bohlen í viðtah við blaðið. Johan Jörgen Holst, utanrikisráð- herra Noregs, hitti nýlega að máli A1 Gore, varaforseta Bandaríkjanna, og Warren Christopher utanríkis- ráðherra th að ræða hvalveiðar. Eftir þann fund var litið svo á máhð að refsiaðgerðir væru ólíklegar. Því hafa ummæh Bohlens valdið áhyggj- um í Noregi. „Við höfum enga ástæðu til að taka sérstakt tillit th yfirlýsinga frá emb- ættismanni í bandaríska utanríkis- ráðuneytinu um að Bandaríkin ráð- geri refsiaðgerðir gegn Noregi vegna hvalveiða," segir norski sendiherr- ann Kjeld Vibe í Washington í við- tah við norsku fréttastofuna NTB. Aðrir heimhdarmenn fréttastof- unnar segja að Bohlen sé ekki lengur mikhvægur hlekkur í myndun stefnu Bandaríkjanna gegn Noregi í hvalveiðimálum. ntb Útlönd Kvikmyndaleikstjórinn Woody Allen var miður sín eftir að dómari í New York hafði dæmt fyrrum elskhuga hans, Miu Farrow, forræði þriggja barna þeirra. Símamynd Reuter Forræðisdeilu Allens og Farrow lokið: Miafær forsjá þriggja barna Kvikmyndaleikstjórinn frægi Woody Ahen fékk í gær verstu gagn- rýni sem hann hefur nokkurn tíma fengið á ævi sinni er fyrrum elsk- hugi hans og leikkonan Mia Farrow fékk forræði yfir börnum þeirra þremur. Dómarinn í máhnu, Elliott Wilk, neitaði Allen svo að segja gjör- samlega um að sjá börnin. Auk þessa fær Ahen ekki að sjá fósturdóttur sína Dylan næsta hálfa árið á meðan hún er í meðferð. Hann getur hins vegar tekið þátt í sér- stakri meðferð með Dylan og geð- lækni. Hafði Ahen farið fram á að fá forræði yfir tveimur ættleiddum ■■ börnum sínum, Moses 15 ára, Dylan sjö ára og eigin syni, Satchel, sem er fimm ára. Úrskurður dómarans var upp á 33 síður og er þar farið ófógrum orðum um Ahen. Farrow haföi sakað Allen um að misnota Dylan, en í greinar- gerð sérfræðinga viö Yale-háskólann segir að ekkert hafi komið fram sem styður þær ásakanir. í dómi Wilks, aftur á móti, segir að aldrei verði vitað með vissu hvað gerðist á milli Ahens og Dylan. Whk bætti því einn- ig við að vegna þessara ásakana muni Allen aldrei geta séð börn sín án þess að aðrir séu nærstaddir. Whk ávítaði líka Allen harðlega fyrir að hafa hafið samband við fóst- urdóttur Farrows, Soon-Yi Previn. Dómarinn var hneykslaður yfir því að Ahen skyldi ekki skhja að með því að eiga í ástarsambandi við syst- ur fósturbarna sinna myndi hann valda fjölskyldunni erfiðleikum. Þó að Farrow hafi fengið forræðið er málinu ekki lokið þvi að á morgun verða Ahen og Farrow aftur mætt fyrir rétti þar sem Farrow fer fram á að ættleiðing Ahens á Moses og Dylan verði ógild. Reuter HJOLABRETTI OG HJOLASKAUTAR #__# 1. Hjólaskautar, stærðir 29-39 kr. 3.675 Hjólabretíi, lausar skrúfur kr. 3.500 Hjólabretfahjólmar, verð fró kr. 1.312 Hné- og olnbogahlífar, verð fró kr. 625 Stór hjólabretti, Skate Rats Itr. 1.990 Skate Rats með músík kí. 2.700 Auk þess miki jolabrettum, hlífum. dekkiu 2. Hjólabretti, sverð og slanga kr. 2.900 Hjólabretti, San Diego kr. 4.900 Hjólabretti, Edips kr. 4.900 Varahlutir og viðgerOir. Vandiö valið og verslið í Markinu. olabrettabuðin L WK Armúla 40. MG Auglýstu í smáauglýsingum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.