Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.1993, Síða 4
30
FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
tfúnlist
DV
Sjálfstætt framhald
- U2 sendir frá sér plötuna Z00R0PA
Áhrífa frá tilvistarkreppu Evrópu um þessar mundir gætir á hinni nýju plötu U2.
Það telst til tíðinda þegar stjömur
á borð við írsku hljómsveitina U2
senda frá sér nýja stúdíóplötu. Það
hefur því vakið athygli hve hljótt
hefur farið um ZOOROPA sem er
heiti nýjustu afurðar hljómsveit-
arinnar (sjá plötudóm). Ástæðan er
ekki léleg plata heldur sú að kynning
á henni hefur verið í lágmarki og er
það viljandi gert. Vinnubrögö sem
stórstjömur geta leyft sér án þess að
það komi niður á sölu enda segja
meðlimir U2 að gerð ZOOROPA hafi
verið óumflýjanleg og fólk skUji
hversvegna ef það leggi við hlustir.
Erlendis hefur ZOOROPA verið
kölluða afkvæmi Achtung Baby á
sama hátt og Rattle and Hum var
skUgetið atkvæmi The Joshua Tree.
Tíminn einn leiöir í ljós hvort
ZOOROPA veröur minnst sem fylgi-
hnattar meistaraverksins og standi
þar með eUíflega í skugga þess.
Gerð plötunnar hefur ekki farið
hátt, eins og fyrr segir, enda átti hún
upphaflega aðeins að verða EP-plata
en endaði sem 10 laga breiðskífa.
ZOOROPA varð að stærstum hluta tU
Aerosmith - Get a Grip:
★ ★ ★ *
Get a Grip sannar að Aerosmith hefur
aldrei höfðað betur til fjöldans en ein-
mitt nú. -ÁT
á ZOO-TV hljómleikaferðalaginu,
ýmist á hótelherbergjum eða í sánd-
tékki, en einhverjir grunnar em þó
síðan Achtimg Baby var hljóðrituð í
Berlín árið 1991. Platan var hins
vegar hljóðrituð á írlandi í mars,
aprU og maí á þessu ári þegar hljóm-
sveitin fékk nokkurra vikna frí frá
hljómleikum.
Nafnið ZOOROPA er tilvísun í
yrkisefni plötunnar en það er sótt í
glundroða sem ríkir í Evrópu tíunda
áratugarins. SameiningartUburðir í
vesturhluta álfunnar með Maastricht
sáttmálanum hafa faUið íbúum
Evrópubandalagsríkjanna misjafn-
lega í geð eins og þjóðaratkvæða-
greiðslur sína. Og á meðan hin þró-
uðu lönd álfunnar þrátta um nánari
efnahagssamvinnu berast þjóðarbrot
á banaspjótum i Austur-Evrópu.
Þessar hugleiðingar eru einkum
áberandi á fyrri hluta ZOOROPA en
þó fer ekki á mUli mála að tUvist-
arkreppa Evrópu um þessar mundir
er sú þunga undiralda sem einkennir
plötuna.
Það var einmitt á pólitískum nót-
um sem U2 vakti fyrst á sér athygli í
byrjun síðasta áratugar með lögum
eins og Sunday Bloody Sunday sem
fjallaði um mannskæðustu átök í
baráttu breska hersins og IRA á N-
írlandi og New Years Day sem tók tU
baráttu Samstöðu í PóUandi gegn
stjóm kommúnista en sá bamingur
markaði einmitt upphaf að enda-
lokum kommúnismans í Austur-
Evrópu og hruni Sovétríkjanna.
Hvort tveggja á sinn þátt í krankleika
Evrópu i dag.
-SMS
Blur - Modern Life Is Rubbish:
* ★ ★ ★
Platan er meistaraverk... betri kaup
finnast vart í nýútgefnu efni þessa
dagana. -PJ
Stjórnin - Rigg:
★ ★★
Fiutningur er allur fyrsta ílokks en
það vantar spennu, lögin líða í gegn án
þess að nokkur hápunktur sé. -HK
Björk - Debut:
★ ★ ★ ★
Án efa það persónulegásta sem frá
höfundinum hefur komið. Debut er
einstök, rétt eins og Björk sjálf. -SMS
Sting-Ten Summoner’s Tales:
★ ★ ★
Vandaöri og fágaöri popptónlist er
leitun að, hvert smáatriði virðist þaul-
hugsað og slípað þar til allt fellur saman
í eina heild þar sem ekkert er of eða van.
-SþS
Pláhnetan - Speis
★ ★ *
Pláhnetan hefur alla burði til að gera
stóra hlutíog má vel við þessa plötu una.
-SÞS
The Waterboys - Dream Harder:
★ ★ ★
Mike Scott leikur tiltölulega hráa
rokktónlist með þéttum takti og kröft-
ugum sólógitar . . . hér er um fyrsta
flokks rokktónlist að ræða. -SþS
Bogomil Font -Ekki þessi leiðindi:
★ ★ ★
Sannkallaður gleðigjafi sem á eftir aö
hressa iund landans. -SMS
pltútugagnrýni
Tina Turner
- What's Love Gotto do with It:
r ★ ★ i
Ovenju
fjölbreytt
Það em ekki margir listamenn sem
verða þess heiðurs aðnjótandi að gerð
sé leikin kvikmynd sem byggð er á
ævi þeirra en Tina Tumer er heldur
engin venjuleg stórstjarna í popp-
heiminum. Hún á að baki fjölskrúð-
ugan æviferil þar sem skipst hafa á
skin og skúrir. í dag er hún metin og
virt. Þaö hefur samt ekki alltaf verið
svo. Tina leikur ekki sjálf í kvik-
myndinni sem byggð er á æviminn-
ingum sem hún skráði sjálf en hún
syngur öll lögin og What’s Love Got
to do with It, sem er nafn kvik-
myndarinnar og plötunnar, er eftir
hennar þekktasta lagi sem skaut
henni aftur upp á stjömuhimininn
eftir að hafa verið í mikilli lægð.
Annars er það sem maður fyrst
tekur eftir við hlustun hve fjölbreytt
lagavalið er en síðustu plötur Tinu
hafa verið frekar einhæfar og flatar.
Hér syngur hún gamla slagara af
öllum gerðum ásamt einstaka nýju
lagi. Og á plötunni kemur í ljós að
Tina Turner er hörkugóð blús-
söngkona þegar hún er á þeim bux-
unum. í heild sýnir Tina mikil tilþrif
í söng og greinilegt er að hún á nóg
eftir af kraftinum sem hefur ávallt
einkennt hana. Útsetningar eru
hressilegar og má þar sérstaklega
nefna gömlu smellina Disco Infemo
og Proud Mary. Þá má geta þess að á
plötunni syngur Tina Tumer í nýjum
útsetningum lög sem hún geröi þekkt
með fyrrum eiginmanni sínum, Ike
Tumer, sem hlýtur að vera vondi
karlinn í myndinni. í heild er What’s
Love Got to do with It hressilegasta
plata sem komið hefur frá Tinu
Turner síðan hún sendi frá sér
tímamótaplötuna Private Dancer.
Hilmar Karlsson
flö PIOMEER
The Art of Entertainment
Rod Steward '
- Unplugged ... and seated:
★ ★ ★
Gamli
Sjarmurinn í
stuði
Þá er Rod Steward kominn í hóp
þeirra stjama sem MTV hefur fengið
til að troða upp rafmagnslaust og þvi
er hnýtt aftan við nafn plötunnar að
Rod sitji en hann hefur hingað til
verið eins ög ótemja á tónleikum. En
þrátt fyrir hið hrjúfa yfirborð rokk-
arans er Rod sniðinn fyrir þetta óraf-
magnaða tónlistarform, enda ball-
öðumar og rólegu lögin mýmörg sem
hann hefur flutt um dagana.
Og það er á rólegu nótunum sem
Rod heldur sig á þessari plötu, hér
eru lög á borð við Tonight’s The
Night, Reason To Believe, Have I Told
You Lately, Tom Traubert’s Blues og
The First Cut Is The Deepest, svo að
einhver séu nefnd, en svo eru hér lika
þekktir rokkslagarar eins og Hot
Legs, Maggie May og Stay With Me.
Allt flýtur þettafram áreynslulaust
en það sem lyftir þessu upp í hæmi
hæðir er flutningurinn sem Rod og
félagar leggja líf og sál i. Rod er algjör
snillingur í að ná til áheyrenda, sér-
staklega kvenfólks, og það er að heyra
á viðbrögðunúm að hann vefúr þeim
um fingur sér öllum sem einum.
Hjálparkokkamir em ekki heldur
af lakari endanum og nægir þar að
nefha Jeff Gloub hljómborðsleikara
og svo gamla Faces felaga Rods, Ron
Wood, sem augljóslega nýtur þess
fram í fingurgóma að koma fram með
Rod og spila þessi gömlu lög.
Það er einmitt spilagleðin og ein-
lægnin á þessari plötu sem setur hana
í flokk aUra bestu Unplugged platna
hingað til.
Sigurður Þór Salvarsson
U2
-Z00R0PA
★ ★ ★★
Fínn fyrirburi
Flestir þeir sem með rokktónlist
fylgjast em sammála um að U2 sé sú
rokksveit sem hæst hafi risið á
síðasta áratug. Af sex breiðskífum
sem hljómsveitin sendi frá sér á 9.
áratugnum þótti sú síöasta, Rattle
and Hum, síst. Það vom því ýmsir
sem töldu að hljómsveitin væri að
missa fótanna og þegar fréttist af
útgáfu nýrrar plötu á haustmánuðum
ársins 1991 hlakkaði í poppskríb-
entum sem höfðu látið velgengni
hljómsveitarinnar fara í taugamar á
sér. Svo vissir vom þeir um að nú
myndi U2 mistakast. Achtung Baby
kom á markað í nóvember og þaggaði
snarlega niður í efasemdarmönn-
unum. Platan, sem hafði verið lengi
í smíðum opinberaði, tólf frábærar
lagasmíðar, og það sem vakti mesta
hrifningu, nýtt U2 sánd, gróft og
ruddalegt en þó svo aðlaðandi.
í byrjun mánaðarins kom ný U2
plata á markað sem ber heitið
ZOOROPA. Hún sýnir U2 í hörku-
formi og þrátt fyrir að hljómsveitin
hafi verið saman á erfiðu hljóm-
leikaferðalagi í meira en ár er ekki
hægt að greina þreytumerki eða
hugmyndafátækt á nýju plötunni.
ZOOROPA leiðir þá sándbreytingu
sem varð með Achtung Baby á þró-
aðri brautir ásamt því að hljóm-
sveitin bryddar upp á vel lukkuðum
nýjungum. Johnny Cash er t.d.
gestasöngvari í frábærlega útsettu
lokalagi plötunnar, Lemon er sungið
í skemmtilegri falsettu sem brotnar
upp í Bowie-legu viðlagi og Numb er
véh'ænn bragur þar sem Bono syngur
mónótðnískr i röddu um það sem ekki
má. Texti sem auðvelt er að túlka sem
skot á reglugerðafargan kontórista
Evrópubandalagsins. Sameining
Evrópu er U2 reyndar ofarlega i huga
á ZOOROPA og eins og titill plöt-
unnar og umslag bera með sér eru
tilfinningar í hennar garð blendnar.
í safni frábærra platna U2 verður
ZOOROPA vafalaust talin með hin-
um athyglisverðari. Sjálfir hafa U2
menn gefið í skyn að þeir hafi misst
tök á atburðarásinni og ZOOROPA
hafi þröngvað sér í heiminn líkt og
fyrirburi. Góðu heilli segjum við
unnendur metnaðarfullrar rokk-
tónlistar.
Snorri Már Skúlason