Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1993, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993
13
Neytendur
Flug og bíll í Evrópu:
Tryggingin fellur úr gildi
í sumum löndum Evrópu
- reynum að vara fólk við, segir sölufulltrúi Flugleiða
„Viö tókum flug og bíl til Hamborgar
á vegum Flugleiða og uröum fyrir
því að bílaleigubílnum var stolið þeg-
ar við vorum stödd í Schwerin í A-
Þýskalandi. Við höfðum brugðið
okkur frá í tvo tíma til að skoða kast-
ala og lögðum bílnum á stæði á með-
an,“ sagði Helga Þórarinsdóttir, at-
vinnurekandi í Grindavík.
Helga var heppin því skyldfólk
hennar í Þýskalandi hafði ráðlagt
henni að kaupa aukalega slysa- og
þjófatryggingu á bílaleigunni og
þurfti hún því einungis að borga
12.000 kr. í sjálfsábyrgð af bílnum.
„Ef ég hefði ekki tryggt mig auka-
lega hefði ég þurft að borga tæpa
milljón fyrir bílinn því ég komst aö
því að tryggingin, sem ég keypti hjá
Flugleiðum, fellur úr gildi ef maður
ekur inn í A-Þýskaland. Þetta finnst
mér að Flugleiðir eigi að segja fólki
því sjálf hef ég ferðast mikið og aldr-
ei vitað af þessu.
Ég veit til dæmis um hjón sem fóru
með flug og bíl tfl Lux og keyrðu yfir
til Ítalíu. Þar var bílnum stolið og
þau töpuðu öllu sínu,“ sagði Helga.
Nýjarreglur
bílaleiga
„Þetta er alveg nýtilkomið. Við
fengum tilkynningu frá Hertz-bíla-
leigunni um miðjan júlí þar sem er
hsti yfir lönd sem bannað er að aka
til á bílaleigubíl frá Hertz en við
skiptum eingöngu við þá bílaleigu í
Evrópu," sagði Ingibjörg Sverrisdótt-
ir, sölufulltrúi í markaðsdeild Flug-
leiða, aðspurð hvers vegna Flugleiðir
vöruðu fólk ekki við því að ef farið
er á bílaleigubíl inn í viss lönd í Evr-
ópu falla allar tryggingar úr gildi.
„Meginreglan er sú að ef fólk ekur
til þeirra landa, sem eru á listanum,
er þaö ekkert tryggt og getur ekki
tryggt sig þar nema viðkomandi bíla-
leiga sé með einhverja undanþágu
fyrir t.d. ódýrari bílana eða eitthvað
slíkt. Þetta kemur fram í bæklingum
okkar og eins reynum við að vara
fólk við,“ sagði Ingibjörg.
Hún sagði að flestar bflaleigur byðu
slysa- og þjófavamartryggingu auka-
lega þegar komið er á staðinn en svo
væru í gangi alls kyns undanþágur
hjá hverri og einni leigu.
„Ástæðan fyrir þessu er sú að 65
þúsund bílaleigubílum var stolið í
A-Evrópu á síðasta ári og tryggingar-
félögin neita orðið að tryggja bíla-
leigubílana þar.“
Aðspurð sagði Ingibjörg að sölu-
menn Flugleiða ættu að upplýsa
kaupendur mn þetta en hún ráðlagði
fólki einnig að kynna sér betur þær
tryggingar sem það kaupir.
-ingo
flVW’
Að mörgu er að hyggja þegar keyptar eru sólarlandaferðir og betra að vera með tryggingarnar á hreinu
REIÐHJOLAUTSALA - STORLÆKKAÐ VERÐ
FJALLAHJÓL
16” með fótbremsu kr. 11.210 stgr. Áður kr. 15.735
20" með fótbremsu kr. 13.700 stgr. Áður kr. 17.100
24" 10 gíra m/brettum, Ijósum og bögglabera kr. 16.055 stgr. Áður kr. 28.935
24" 18 gíra Shimano smellugírar kr. 18.900 stgr. Áður kr. 26.650
26" 18 gíra m/brettum, Ijósum og bögglabera kr. 21.375 stgr. Áður kr. 32.200
26" 21 gírs Shimano Altus kr. 26.885 stgr. Áður kr. 37.600
20" Verð frá kr. 13.870 stgr. Áður kr. 18.320
24" Verð frá kr. 14.155 stgr. Áður kr. 18.850
26" Verð frá kr. 13.205 stgr. Áður kr. 19.640
26" 3 gíra frá kr. 15.390 stgr. Áður kr. 23.200
28" 10 gíra kr. 14.860 stgr. Áður kr. 31.400
DÖMUHJÓL
20-50%
AFSLÁTTUR
NOTIÐ
TÆKIFÆRIÐ
VERSLIÐ
ÓDÝRT
TILBOÐ Á
HJÁLMUM OG
BARNASTÓLUM
L
FULLKOMIN VARAHLUTA- OG VIÐGERÐAÞJONUSTA.
ÁRS ÁBYRGÐ Á NÝJUM HJÓLUM OG UPPHERSLA.
NOTUÐ HJÓL Á FRÁBÆRU VERÐI
ALGENGT VERÐ KR. 4-6.500
FJALLAHJÓL fyrir 6-7 ára
DIAMOND ROCKY 20" 6 gíra
með átaksbremsum og álgjörðum
verð aðeins kr. 15.100 stgr.
Áður kr. 21.300
Ármúla 40.
Símar 35320 - 688860
Ifeislunin