Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGUST 1993
Fréttir
Enga þýðingu að bæta við mönnum sem ætla að vera stikkfrí:
Fangavörðum að kenna en
pólitíkusar bera ábyrgðina
- viðtal við Gústaf Lilliendahl, fangelsisstjóra á Litla-Hrauni
„Miðað við aöstæður og ástand
bygginga má vissulega segja að ef
tryggja á gæsluna langt umfram það
sem nú er, sem full ástæða er til, þá
er mikill mannafli auðvitað alltaf til
bóta en það er náttúrlega grundvall-
aratriði að þeir menn, sem eru að
störfum, sinni þeim eins og hægt er,“
segir Gústaf Lilliendahl, forstjóri
Litla-Hrauns, í kjölfar flótta fimm
fanga á tveimur vikum.
„Það hefur enga þýðingu að bæta
við mönnum sem ætla að vera
stikkfrí við gæsluna. Ég á viö ef.
menn ætla að vera á vakt bara til
þess að sitja og án þess að fylgjast
með nokkrum."
Gústaf segir að skortur á fanga-
vörðum hafi orðið til þess að ráöa
hafi þurft sumarafleysingamenn til
fangavörslu sem fari fyrirvaralítið
inn á vaktir. Fjórir menn voru á vakt
á næturnar þegar fangarnir flúðu og
segir hann ljóst að fangaverðimir
hafi ekki staðið í stykkinu. „Það eru
vissulega ámæhsverð atriði sem hafa
komið ljós. Umferð um húsið hefur
ekki verið nægjanleg. Það er náttúr-
lega á ábyrgð varðstjóra hverju sinni
hvernig hann skipar sínum vöktum
A myndinni má sjá stiga sem er innan girðingar fangelsisins á Litla-Hrauni sem hæglega væri hægt að nota til
að komast yfir girðinguna. Gústaf segir að stiga sé ekki þörf til að komast yfir girðinguna.
til gæslustarfa og það er hlutur sem
verður að fara vel ofan í saumana á
annað veifið og er verið að gera núna.
Það er sjálfsagt eitthvert misræmi á
niilh vakta í þessu eins og ýmsu
öðru,“ segir Gústaf.
Aðspurður um hvort fangaverðirn-.
ir bæm ábyrgð á flóttanum sagði
hann: „Það er náttúrlega ákveðinn
trúnaður sem mönnum er sýndur
með því að vera varðstjórar. Rétt eins
og sumum er sýndur sá trúnaður að
vera forstjórar eða yfirfangaverðir
og eitthvað slíkt,“ segir Gústaf. Ann-
ars segist hann sammála dómsmála-
ráðherra um að menn hafl sofið á
verðinum í afar langan tíma og ef
rætt væri um ábyrgð í þessum tilfeh-
um þá væri það pólitísk ábyrgð.
Viðbygging ekki rammbyggð
í kjölfar Geirfinnsmálsins var
byggð ný álma við gamla fangahúsið
á Litla-Hrauni. Á sínum tíma var
fangelsið talið rammgert en Gústaf
segir það liðna tíð enda hafi aldrei
verið gengið frá því eins og til var
ætlast. Fangar haíi strokið úr þeirri
álmu líka.
„Hún var á tímabili notuð sem ein-
angrunardeild fyrir þá sem voru úr-
skurðaðir í einangrun vegna aga-
brota. Síðan var það mikill þrýsting-
ur á að fullnýta fangelsið að farið var
að vista menn í þessum klefum í af-
plánun án þess að þeir hefðu brotið
reglurfangelsisins," segirGústaf. -pp
Strokufangarnir: mm---;---------
Viðurkenna ekki ®s É R H Æ F T
að haf a sammælst
Samkvæmt heimildum DV hafa
hvorki fangarnir þrír, sem struku
fyrir verslunarmannahelgi, ekki við-
urkennt að hafa sammælst um flótt-
ann. Yfirheyrslur standa enn yfir
yflr Donald M. Feeney og Jóni Gesti
Ólafssyni.
Samkvæmt ghdandi lögum eru
refsingar fyrir skipulagðan flótta úr
fangelsi aht frá sex mánaða fangels-
isvist en ef flóttinn er ekki skipulagð-
ur er refsað fýrir með einangrunar-
vist og fangar eru sviptir réttindum
sem þeir njóta.
Einn viðmælenda DV sagði að þeg-
ar tveir eða fleiri fangar strykju þá
kæmu þeir sér saman um frásögn af
strokinu, það er að þeir hafi hist fyr-
ir thviljun fyrir utan fangelsið og
hafi á engan hátt unnið saman að
flóttanum.
Fyrir hálfu öðru ári féh dómur í
máh fimm fanga sem struku sama
kvöld af Litla-Hrauni og voru þeir
allir sýknaðir af ákæru um saman-
tekin ráð. Við yfirheyrslur og fyrir
dómi báru fangarnir ýmist fyrir sig
minnisleysi vegna ölvunar þegar
strokið fór fram eða þeir hafi „bara
hist af thvhjun nálægt fangelsinu
eftir að þeir struku" og fleira í þeim
dúr. -pp
s KRIFSTOFUTÆKNINÁM
HNITMIÐAÐRA
ÓDÝRARA
VANDAÐRA
STYTTRI NÁMSTÍMI
Suðumes:
Sveitarf élögin sameinist
Umdæmanefnd Sambands sveitar-
félaga á Suðumesjum hefur fengið
fyrirtæki í Reykjavík til að kanna
kosti og gaha þess að sameina sveit-
arfélögin á Suðumesjum í eitt.
Kristján Pálsson, formaður um-
dæmanefndarinnar, segir aö nefndin
hafi komist að þeirri niðurstöðu að
byija á því að kanna sameiningu
allra sveitarfélaganna í eitt áður en
formleg thlaga nefndarinnar verður
ákveðin og lögð fram. Umdæma-
nefndirnar hafa frest fram í miðjan
september th að móta thlögur sínar.
„Þetta þarf aht að ákveöast í sam-
ráði við sveitarstjómimar og því vhj-
um við skoða hvemig sameining í
eitt sveitarfélag kæmi út ef af yrði.
Við forum svo að ræða við sveitar-
stjómimar í næstu viku,“ segir
Krisfján.
-GHS
Verð á námskeið
er 4.956,-krónur
á mánuði!*
KENNSLUGREINAR:
- Windows gluggakerfi
- Word ritvinnsla fyrir Windows
- Excel töflureiknir
- Áætlanagerð
- Tölvufjarskipti
- Umbrotstækni
- Teikning og auglýsingar
- Bókfærsla - o.fl.
Sérhæfð skrifstofutækni er markvisst
nám fyrir alla, þar sem sérstök áhersla
er lögð á notkun tölva í atvinnuhfinu.
Nýjar veglegar bækur fylgja með náminu.
Engrar undirbúningsmenntunar er krafist.
Innritun fyrir haustönn er hafin.
Hringdu og fáðu sendan bækling
eða kiktu til okkar í kaffi.
Tölvuskóli Reykiavíkur
BORGARTÚNI 28. 105 REVKJAUÍK. sími 616699. fax 616696
*Skuldabréf í 20 mán. (19 afborganir), vextir eru ekki innifaldir.
UTSALA
20-60% afsláttur!
« hummel
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA 40, REYKJAVÍK, SÍMI813555