Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1993, Qupperneq 9
MIÐVIKÚDAGUR 11. ÁGÚST 1993
9
Utlönd
Nor$kur„Dana-
r/rinsu neitar að
borga fyrir sig
Norskur maöur á fertugsaldri
neitaði tvívegis að borga fyrir
máltiðir sem hann hafði pantað
sér í sænsku borginni Uddevalla
um helgina á þeirri forsendu að
hann væri danskur prins. í bæði
skiptin hljóöaði reikningurinn
upp á tæpar sex þúsund krónur.
Lögreglan handtók manninn í
bæði skiptin og færöi hann til
yfirheyrslu. Það var ekki fyrr en
eftir síðari veitingaMsferðina að
i Ijós kom að maðurinn var
norskur ríkisborgari. Sænska
lögreglan ók honum þvi til landa-
mæranna og afhenti hann norsk-
um kollegum sinum.
Judif Polgarog
Bobby Fischer
heyja einvígi
Ungverska
skákkonan
Judit Polgai-
hefur staðfest
að hún og
Bobby Fischer,
; fyrrum heíms-
meistari, séu
að undirbúa
skákeinvígi.
Faðir hennar, Lazlo Polgar,
sagði að verið væri að leita aðila
til að standa straum af kostnaðin-
um við einvígið.
„Við áttum viðræður við Fisc-
her um einvígið. Við urðum sam-
mála um það ef við fáum ein-
hvern til að kosta það,“ sagði
Lazlo fyrir hönd dóttur sinnar
þegar þau komu til Boston í
fyrrakvöld.
Judit Polgar er af mörgum talin
geta orðið fyrsta konan til að
verða heimsmeistari í skák.
Rútameð
sænskapen-
sjónista í
árekstri
Tveir sænskir eftirlaunaþegar
hlutu alvarleg meiðsl og átta aðr-
ir slösuðust lítillega þegar rúta
sem þeir vora í ók aftan á kyrr-
stæðan fiutningabíl vestan við
Silkiborg i Danmörku í gær.
{rútunni voru 26 eftirlaunaþeg-
ar frá Gustavsberg á leið í frí til
Legolands.
Eftir áreksturinn fór rútan út
af veginum og haftiaði niðri í
skurði. Alls voru sendir 23
sjúkrabflar á slysstaðinn.
FidelCastro
hvatturtilað
segjaafsér
Frammámenn í stjórnmálum í
Evrópu, Rómönsku Ameríku og
í ríkjum við Karíbahafíð hafa
hvatt Fidel
Castro Kúbu-
forseta til að
segja af sér
embætti og
efna til ftjálsra
kosninga.
Stjórnmála-
mennirnir
birtu tvær auglýsingar í dagblöö-
um á öörum degi óvæntrar heim-
sóknar Castros til hafnarborgar-
innar Cartagena í Kolumbíu þar
sem hann ræðir við Cesar Gavir-
ia forseta um framtið Kúbu.
Fyrri auglýsingin er undirrituö
af mönnum á borð viö Hans Di-
etriech Genscher, fyrrum utan-
ríkisráðherra Þýskalands, og
Paddy Ashdown, leiðtoga Frjáls-
lyndra demókrata á Bretlandi.
Hina siðari undirrita um 250
þingmenn úr Rómönsku Amer-
íku, Karíbahafi og Spáni. Reuter
Stjamfræðingar spá miklum ljósagangi á himni 1 kvöld:
Sannanirnar
Enginn hef ur séð
ámóta Ijósadýrð
- næst gerist þetta árið 2126 og þá ferst jörðin
„Þetta verður einstakur ljósagang-
ur. Núlifandi menn hafa aldrei séð
neitt þessu líkt,“ spáir James Hart-
field, fréttafulltrúi bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar, um dýrðina
sem væntanlega blasir við mönnum
þegar jörðin fer í gegnum slóð hala-
stjömu í kvöld.
Fyrirbæri sem þetta hefur ekki
komið fram á himninum frá árinu
1862. í fyrra fór halastjama fram hjá
jörðinni og nú er komið að því að
braut jarðar Uggi þvert á halann. í
slóð halastjörnunnar er ís og grjót
sem brennur upp í himinhvolfinu.
Séð frá jörðu lítur fyrirbærið út eins
og milljónir stjarna brenni upp.
Sumir stjarnfræöingar vilja þó
vara menn við að búast við of miklu.
Þótt fyrirbærið sé einstakt þá geti svo
farið að sýningin veröi ekki ýkja til-
komumikil og þar sem skýjað er sést
að sjálfsögöu ekkert.
Halastjaman verður næst á vegi
jarðarinnar árið 2126. Þá verður
árekstur og jörðin ferst ef afiir út-
reikningar eru réttir. Stjarnfræðing-
ar deila um hvort þessi heim-
sendaspáfáistaðist. Reuter
Geimvisindamenn hafa mikinn viðbúnað vegna þess sem koma skal í
kvöld. í síðasta mánuði varð að fresta geimskoti vegna komandi stjörnu-
regns. Simamynd Reuter
gegnTreholt
vorusvindl
Bengt Calmeyer, menningarrit-
stjóri norska blaðsins Arbeider-
bladet, heldur því fram í nýrri
bók að sannan-
irnar sem urðu
til þess að Arne
Treholt var
dæmdur fyrir
rtjósnir hafi
verið svindl og
að dómurinn
yfir honum
hafi einnig veriö uppgjör við arf
Einars Gerhardsens i Verka-
mannaflokknum.
Calmeyer segir að framið hafi
veriö réttarmorð í máU Treholts.
Það hafi verið heihd kalda stríðs-
ins yfir Gerhardsen og „bami"
Gerhardsens.
Þekkturdjöfla-
dýrkandifinnst
myrtur í Noregi
Öystein Aarseth, 25 ára gamall
fyrrum eigandi djöfladýrkenda-
plötubúðarinnar Helvítis í Ósló,
fannst látinn af völdum fjölda
hnifstungna í gærmorgun.
Lögreglan segir að allt bendi tfi
þess að maðurinn hafi verið
myrtur en viU þó ekkert fullyrða
um þaö fyrr en skýrsla réttar-
lækna liggur fyrir.
Lík plötusalans fannst í stiga-
uppgangi viö Töyengötu i Ósló.
NTB
aryfirJohn
Demjanjuk
Yosef Harish, ríkissaksóknari ísra-
els, sagðist í morgun leggja tíl að
John Demjanjuk, sem var sýknaður
af ákæra um að vera ívan grimmi,
fangabúðavörður nasista í Tre-
blinka, yrði ekki sóttur til saka fyrir
frekari stríðsglæpi.
Hæstiréttur ísraels kom saman í
morgun tíl að ræða fjölmargar beiðn-
ir um að rétta yfir Demjanjúk fyrir
aðra stríðsglæpi.
Aðstoðarmaður
Clintonssvipti
sig lífi
Vincent Foster, ráðgjafi BiUs Clin-
ton Bandaríkjaforseta, svipti sig Ufi
eftir að hafa skrifað biturt bréf um
útbreiddar lygar í Washington þar
sem væri „talið tU íþrótta að eyði-
leggja fólk“. Lögreglan í Washington
skýrði frá þessu í gær.
í bréfinu sakar Foster bandarísku
alríkislögregluna, FBI, repúblikana
og ritstjóra blaðsins WaU Street Jo-
umal um lygar af ýmsu tagi og lét
að því Uggja að uppi væri samsæri
innan Hvíta hússins um að koma
HUlary CUnton í vandræði.
Dómsmálaráðuneytiö er að ljúka
rannsókn á ásökununum en hefur
ekki komist aö neinu glæpsamlegu
athæfi. Reuter
Átti að reyna að koma Hillary Clint-
on í bobba? Simamynd Reuter
15-70% VERÐLÆKKL N
A MORGL'N HKFST
STÓRÚTSALA
TEPPI - MOTTUR - DÚKAR - FLÍSAR - PARKET
Teppi úr rúllum: 15-35%
afsl.
Stór teppastykki: 25—50% afsi.
Smá stykki og teppabútar: 40—70% afsi.
Stök teppi og mottur: 20—50% afsi.
. Gólfflísar og veggflísar: 15—30%
afsl.
Gólfdúkar 20—30% afsi.
Korkflísar 20% afsi.
_________________________a_
Boen parket 12—20% afsl. af 1. fl. parketi.
Bjóðum einnig takmarkað magn af eikarparketi í B-flokki á aðeins
kr. 2.730,- og 2.795,-
EUR5
KREDIT
Alltað 18mán.
greiðslukjör.
Öll gólfefni og þjónusta á einum stað
TEPPABÚÐIN
OPIÐ FRÁ Kl.. 10-16
GÓLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950