Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 I>V Vijpiingshafar Coke-lfnunnar: A tónleikum með Prince í Osló Um síðustu helgi lögðu þrír vinningshafar Coke-línunnar af stað til Oslóar í boði Vífilfells á ekki minni tónleika en með poppgoðinu Prince. Tónleikarnir voru haldnir í íþróttahöllinni Spektrum sem er í miðri Osló. Miðar á tónleikana höfðu selst upp mörgum mánuðum áður og fyrir utan mátti sjá fjöldann allan af fólki sem bauð margfalt verð fyrir selda miða. 10 þúsund áhorfendur Vinningshafar Coke-línunnar, þær Lýdía Sigurðardóttir, Elín Stefánsdóttir og Kristbjörg Jónsdóttir. Tónleikarnir hófust klukkan 20 um kvöldið en mikill fjöldi hafði staðið í biðröð frá þvi snemma um morguninn til að tryggja sér sem mesta nálægð við Prince. Stóra stundin rann loks upp og 10 þúsund manns biðu spenntir eftir að goðið birtist. Lagið My Name Is Prince hófst og dansarinn, ung og falleg stúlka, birtist á sviðinu, klædd eins og Prince og með grimu fyrir andlitinu. Áhorfendur vissu ekki betur en að þar væri sjálfur söngv- arinn á ferðinni þar til stúlkan byij- aði að fækka fötum og stóð að lokum á sviðinu í sjálflýsandi bleiku bikiníi. Prince er einmitt þekktur fyrir að- dáun sína á kvenlíkamanum og er oftast með fallegar stúlkur á sviðinu Það leið ekki á löngu uns Prince sjálfur kom fram á sviðið, hvít- klæddur frá hvirfli til ilja. Fagnaðar- látunum ætlaði aldrei að linna er hann hóf að syngja lagið Crazy Motherfucker. Kappinn var í hvít- um, háhæluðum skóm en sögur herma að hann nái rétt aðeins um 1,58 sentímetrum á hæð. Purple Rain Fyrsta klukkutímann voru spiluð öll bestu lögin af plötunni Purple Rain, sem kom út árið 1984 og varð geysivinsæl strax í upphafi. Það voru án efa þau lög sem nutu mestrar hylli áhorfenda og sköpuðu góða stemn- ingu í Spectrum-höllinni. Það var hrein unun að fylgjast með Prince flytja lögin Sign Of the Times, Beauti- ful Ones, Letos Go Crazy og síðan sjálft titillag plötunnar, Purple Rain. Seinna um kvöldið flutti hann svo t.d. lögin Seven, Kiss og 1999 sem hafa einnig orðið vinsæl. Gífurleg stemning var í höllinni og allmargir áhorfendur, aðallega stúlk- ur, voru bomir út af dyravörðum eft- ir að hafa fallið í yfirlið vegna troðn- ings og hita. Ljósasjóið var sérstakt út af fyrir sig og það var eins og áhorfendur hyrfu inn i einhvers konar töfraheim í þá tvo tíma sem tónleikamir stóðu yfir. Prince er sannkallaður snilling- ur í að hrífa áhorfendur með sér og halda uppi góðri stemningu. ,,Ég vil ekki heita neitt“ Þegar leið á tónleikana spurði Prince áhorfendur hvað hann héti og svarið „Prince“ glumdi í höllinni frá 10 þúsund áhorfendum. „Nei,“ sagði Prince. „Ég vil ekki heita neitt. Ég vil bara ykkur,“ sagði hann og brosti sinu sérstaka brosi sem hefur heillað margan kvenmanninn. í lok tónleikanna var kveikt á risastóru tákni (kvenmanstákni), sem hafði verið komiö fyrir hjá svið- inu, og Prince sagði: „Þetta er nafn mitt.“ Að því loknu hvarf hann af sviðinu og tónleikunum var lokið. Tónlistargetraun DV og Spors Tónlistargetraun DV og Spors er léttur leikur sem allir geta tekið þátt í og unnið geisladisk að launum. Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku verða birtar nokkrar auðveldar spumingar um tónlist. Fimm vinningshafar hljóta svo geisladisk í verðlaun frá hljómplötufyrirtækinu Sporihf. Að þessu sinni er það geisladiskurinn Bandalög-Algjört skronster sem er í verðlaun. Hér koma svo spumingamar: 1. HversyngurmeðJetBlackJoe í laginu Freedom? 2. Nefnið tvær þekktar hljóm- sveitir sem Sigurður Gröndal var í áður en hann gerðist gítarleikari Pláhnetunnar. 3. Hvað heita lögin sem Tod- mobile hefur átt á íslenska listanum í ár? Rétt svör sendist DV fyrir 19. ágúst merkt: DV, Tónlistargetraun Þverholti 11 105 Reykjavík Dregið verður úr réttum lausn- um 19. ágúst og rétt svör verða birt í tónlistarblaði DV 26. ágúst. Hér eru svo rétt svör við get- rauninni sem birtist 29. júlí: 1. Funheitur og Sólón. 2.11 flytjendur. 3. Stjómin, Rigg, Tvö líf, Eitt lag enn. Prince er engum líkur og það er sérstök lífsreynsla að fylgjast með honum á tónleikum. - >1 a tónli0t Prince ásamt dansaranum Mayte Garcia sem dansaði viltt og eggjandi á sviðinu allan tímann sem tónleikarnir stóðu yfir. Hann var klappaður upp en allt kom fyrir ekki. Það var greinilegt að áhorfendur töldu sig ekki hafa fengið nóg af honum. Snillingur á sínu sviði Prince gisti í Osló um nóttina og fyrir utan hótelið beið stór hópur aðdáenda í von um að fá að sjá söngvarann aftur, þótt ekki væri nema að sjá honum bregða fyrir örlitla stund. Það leikur enginn vafi á því að Prince er snillingur á sinu sviði og tónleikar með honum eru sérstök lífsreynsla sem gleymist seint. Þess má geta að Vifdfell aetlar að skipuleggja fleiri tónleikaferðir fyrir þátttakandur Coke-línunnar á næst- unni. -KMH -

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.