Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1993, Blaðsíða 4
FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 1993 Hörð samkeppni á dans- leikjamarkaðinum í sumar - SSSól hefur vinninginn, segir Grétar Orvarsson úr Stjórninni rétar Örvarsson, hljómsveitar- stjóri Stjómarinnar, segir að hörð samkeppni sterkustu hljómsveita landsins hafi sett mark sitt á sumarið. Hann telur að dansleikjagestum hafi ekkert fækkað þrátt fyrir bágt efna- hagsástand. Gestimir séu hins vegar orðnir vandlátari en fyrr. Þannig fái vinsælustu hljómsveitimar næstum alla aðsóknina. Hinar sitji uppi með hálftóm hús. „Við í Stjóminni merkjum að þetta sumar er ekki alveg eins gott hjá okkur og þau síðustu," segir Grétar. „Þannig held ég að því sé farið hjá flestum. SSSól má þó sennilega best við una. Hún hefur fengið stærstu sveitaböllin, í Ýdölum og Miðgarði. Já, ég fullyrði að Sólin sé vinsælasta hljómsveit sumarsins og þar á eftir koma Stjórnin og Pláhnetan með svipaða aðsókn að dansleikjunum. Þessi útkoma er reyndar sú sama og ég spáði í upphafi sumarsihs,11 heldur Grétar áfram. „Sólin styrkti stöðu sína með því að koma með ferskustu plötu sumarsins. Breskur útsetjari var fenginn til að útsetja tónlistina ogfyrir bragðiö skín í gegn að hljómsveitin er að gera aðra hluti en hinir. Við í Stjóminni völdum að gera ailt sjálf að þessu sinni, halda niðri kostnaði og geta fyrir vikið selt plötuna á fimm hundruð krónum lægra verði heldur en ef ekkert heföi verið til sparað." Uppstokkun Stjórnin hættir um áramót um lengri eda skemmri tíma. Grétar Örvarsson telur að allir sem þátt tóku í slagnum í sumar þurfi aö setjast niður í haust og endurskoða reksturinn. Kostnaður viö að halda úti hljómsveit sé orðinn allt of mikill og yfirbyggingin vaxi stöðugt. Vin- sælustu hljómsveitimar hafa reynt að styrkja reksturinn með því að leita til fyrirtækja um kostun. Þannig aug- lýsa SSSól og GCD Pepsí í sumar, Pláhnetan er á mála hjá SS, Kók og Bylgjunni og Stjómin er í samvinnu við Sjóvá/Almennar og er raunar að fara aö gera lag fyrir það fyrirtæki. Á sama tíma og kostnaður hefur vaxið hefur miðaverð á dansleiki staðið í stað. „Verðið hefur haldist það sama í tvö ár,“ segir Grétar. „Það þyrfti raunar að lækka ef eitthvað er. Hljóm- sveitimar eru velflestar eingöngu að leika eigið efni og því er óverjandi að virðisaukaskattur skuli lagður á skemmtanirnar sem eru raunar ekk- ert annað en hljómleikar. Við erum eina þjóðin í heiminum sem býður upp á það form sem hér er. Æskilegast væri að hljómsveitir byrjuðu að spila klukkan níu og væm búnar klukkan eitt. Síðan gæti tekið við diskótek fyrir hþá sem vilja halda áfram.“ Grétar segir að þrátt fyrir harða samkeppni í sumar hafi lítið ver ið um undirboð. Hins vegar hafi nokkrar hljómsveitir fallið í þá gryfju að taka miklu lægri tilboðum en þær hefðu átt að gera og nú nagi menn sig í handarbökin yfir þeim mistökum. „Annars er talsverðra breytinga að vænta á næstunni,“ segir Grétar. „GCD hættir í haust, hef ég frétt, Atli fer úr SSSól eftir nokkrar vikur og Stjórnin starfar ekki lengur en til áramóta. Þá hættum við - kannski um tíma, kannski alveg. Framtíð hljómsveitarinnar er með öllu óljós.“ Grétar segir að enn sé óljóst hvað hann fari að gera þegar Stjómarsam- starfinu lýkur. Enn eru rúmlega fjórir og hálfúr mánuður til áramóta og nægur tími til að íhuga framtíðina. Hann segist svo sem alveg til í að vera með í dansleikjaslagnum næsta sum- ar ef þvi verður að skipta. „Það jafnast ekkert á við það að spila á góðu sveitaballi," segir Grétar. „Því er þó ekki að neita að eftir þvi sem maður keyrir hringinn í kring- um landið oftar verður hringurinn hversdagslegri með hverri ferðinni. En Stjómin er einfaldlega búin að starfa lengi og það er kominn tími til að breyta til.“ -ÁT- pl@tugagnrýni ► ▼ * Ekki veit ég hvemig sambandi þessara Landvætta-hljómsveita er háttað en eitthvert val hlýtur að hafa farið fram því þrátt fyrir marga flytjendur er tónlistin keim- lík. Hér er ekkert rapp, hard core eða heavy metal heldur bara létt, útjaskað, melódískt rokk og popp. Og þó svo að lagasmíðamar séu margar hverjar hvorki fugl né fiskur og sumar óttalegar klisjur er aðdáunarvert hversu vel þetta er yfirleitt flutt. Það er greinilega til mýgrútur af efnilegum hljóðfæra- leikurum hér á landi og ef við horfum á þá hlið málsins em plötur eins og Landvættarokk mikill gleðigjafi. Vafalaust leynast ein- hvers staðar þarna inn á milli stjömur morgundagsins. Sigurður Þór Salvarsson. The Posies - Frosting On The Beater ★ ★* Platan er í heild mjög heilsteypt verk en um leið svolítið einstrengingslegt. -PJ Blur - Modern Life Is Rubbish: ★ ★ ★ ★ Platan er meistaraverk... betri kaup finnast vart á nýútgefnu efni þessa dagana. -PJ Tina Turner - What's Love Gotto Do with It ★ ★ i. Tina sýnir mikil tilþrif í söng og greinilegt er að hún á nóg eftir af kraftinum sem hefur ávallt einkennt hana. -HK Björk - Debut: ★ ★ ★ ★ Án efa það persónulegasta sem frá höfundinum hefur komið. Debut er einstök, rétt eins og Björk sjálf. -SMS Ýmsir - íslensk tónlist 1993: ★ ★* Platan gefur þokkalega raunsanna mynd af því sem er að gerast í íslenskri tónlist á þvi herrans ári 1993. -SÞS U2-Z00R0PA ★ ★★★ 1 safni frábærra platna U2 veröur ZOOROPA vafalaust talin með hinum athyglisverðari. -SMS Neil Young - Unplugged: ★ ★ ★ Platan er skyldueign allra gamalla sem nýrra Neil Young aðdáenda. -SþS Landvættarokk - Lög um landið: ★ Plús fyrir viðleitni Allur sá aragrúi af hljómsveitum á íslandi sem eiga plötutækt efni tilbúið er hreint með ólíkindum. Alls kyns plötur, sem samanstanda af efni þessara athyglisveltu bíl- skúrssveita, streyma inn á mark- aðinn. Ein þessara platna er Landvætta- rokk þar sem 11 ó- og líttþekktar hljómsveitir hleypa héimdraganum. Tólfta hjólið undir vagninum er svo Sniglabandið með lag hljóðritað á Gauki á stöng sem stingur mjög í stúf við annað efni plötunnar. Hvað þetta lag er að gera þama veit ég ekki en kannski er þetta hugsað sem stuðningur við lítilmagnana og hreinræktuð góðgerðarstarfsemi. Harry Connick jr. — 25: ★ ★ * Uppáhalds- lög Harry Connick jr. vakti mikla athygli aðeins tvítugur að aldri þegar hann gaf út einleiksplötu sína sem hann nefndi einfaldlega 20. Þar sýndi hann bæði hæfileika og kannski fyrst og fremst sjálfstraust með því að gefa úr plötu þar sem hann var einn á ferð, lék og söng klassísk djass- og dægurlög og gerði þaö betur en flestir aðrir. Síðan eru liöin fimm ár og mikið vatn runnið til sjávar. Harry Connick jr. er um þessar mundir sjálfsagt einn allra vinsælasti djasspíanisti nútímans og hefur þá sérstööu meðal jafn- ingja að hafa góða söngrödd, auk þess sem hann hefur smátt og smátt verið að hasla sér völl sem kvik- myndaleikari. Á tónlistarsviðinu hefur Hariy Connick ávallt stefnt fram á við og er skemmst að minn- ast metnaðarfullrar plötu frá hon- um þar sem hann flutti eingöngu eigin verk í útsetningum fýrir stór- sveit. í dag er Harry Connick jr. 25 ára og minnist þess áfanga með því að gefa út plötuna 25 sem er nánast endurtekning á því sem hann gerði á 20. Hann er nánast einn síns liðs, syngur og leikur þekkta standarda. í heild er 25 mjög ánægjuleg hlust- un en frumleikinn er horfinn. í ágætum texta, sem fylgir plötunni, lýsir Connick þvi af hverju hann f H A K K Y < ] O N N I C K , J K . > valdi þetta og þetta lag og gefur það plötunni mjög persónulegan blæ. Hæfileikar Connicks í píanóleik eru ótvíræðir en gallinn við hann er að hann hefur ekki persónulegan stíl. Þegar grannt er hlustað má segja að hann hafi leitað meira en góðu hófi gegnir í smiðju til Errols heitins Gardners í leik sínum og hrifning hans á Frank Sinatra leyn- ir sér ekki. 25 er fyrst og fremst skemmtileg plata, lögin kunnugleg og i meðferð Connicks eru þau fersk, engin lög samt ferskari en vestraslagarinn I'm an Old Cowhand, sem öðlast nýtt líf i meðförum Connicks, og góð útsetning hans á Ellington klassíkinni Caravan. Hilmar Karlsson. Dire Straits - On The Night: ★ ★ ★ Fagmennska án leikgleði Liðsmenn Dire Straits reiknuðu með að verða tvö ár á hljómleika- ferð eftir að On Every Street kom út í september 1991. Þeir ætluðu að flö PIOIMEEiT The Art of Entertainment halda yfir þrjú hundruð tónleika og spila fyrir rúmlega sjö milljónir áheyrenda. Þeir reiknuðu skakkt. Áhugi á On Every Street var lítill miðað við fyrri plötur hljómsveit- ai’innar, ferðin varð stutt og fyrr í sumar kom út tíu laga plata, On The Night, með upptökum frá henni. Reyndar er hægt að fá fleiri lög með því að kaupa smágeislann Encores. Samtals gerir það þrettán lög því að eitt lagið, Your Latest Trick, er á báðum plötunum. Léleg brella það. Dire Straits er að sjálfsögðu öryggið uppmálað á On The Night. Níu manns eru á sviðinu og allir vinna þeir vel fyrir kaupinu sínu. Hins vegar er lítið um ævintýra- mennsku og sjaldan brugðið á leik. Ég er ekki frá þvi að meiri spila- gleði hafi verið að finna á Alchemy plötunni sem kom út árið 1984 án þess að það hafi bitnað nokkuð á fagmennskunni. Á On The Night eru fiögur lög af On Every Street: Calling Elvis, Heavy Fuel, You And Your Friend og titillagið. Hin eru gamlir kunn- ingjar. Walk Of Life, Your Latest Trick, Brothers In Arms og Money For Nothing af næstsíðustu plöt- unni og loks Romeo And Juliet og Private Investigations. Svo sem ágætis safn en mikið hefði maður viljað gefa fyrir að heyra gömlu goðin koma með eins og eitt lag sem þeir hafa ekki gefið út á plöt- um, til dæmis Private Dancer sem ekki komst á plötu hér um árið og Tina Tumer fékk lánað. Ásgeir Tómasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.