Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1993, Síða 1
Þjóðleikhúsið frumsl
Merl
texfl
- segirÞórhallurSig
„Þetta er mjög skemmtilegt leik-
rit sem gerist í nútímanum. í þvi
eru mikil átök og dramatík auk
þess sem textinn er mergjaður,
bæði skemmtilegur og dramatisk-
ur. Steinunn notar fallegasta
kvæði Jónasar, Ferðalok, sem
kjarna í leikritið og persónumar
heita reyndar sömu nöfnum og í
kvæðinu,". segir Þórhallur Sig-
urðsson leikstjóri um leikritið
Ferðalok eftir Steinunni Jóhann-
esdóttur sem frumsýnt verður á
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins
annað kvöld kl. 20.30.
í Ferðalokum segir frá viðureign
ungrar menntakonu við skáldið
Jónas og manninn Jónas. Þar er
fjallað um ástina sem yrkisefni
annars vegar og hins vegar sem
viðfangsefni í lífinu. Halldóra
Björnsdóttir leikur menntakonuna
og Sigurður Sigurjónsson leikur
Jónas, manninn sem ekki er hægt
annað en að elska, þótt ómögulegt
sé að elska hann. Leikritið kemur
út á prenti í fyrsta skipti um svipað
leyti og það er frumsýnt.
„Ég vona að fólki finnist leikritið
spennandi. Það hefur alla vega
mjög mikla möguleika til þess að
skila sér sem spennandi leikhús-
verk,“ segir Þórhallur.
em Halldóra Björnsdóttir og Sigurður Sigurjónsson i hlutverkum sinum i Ferðalokum.
Assyríufræðingurinn er fullur af
þversögnum. Hann er barnalegur,
karlalegur og einfaldur en samt
miög fróður. Hann er rajög
skemmtilegur persóniúeiki. Maöur
reynir sem leikari að finna hjá
sjálfum sér einhverjar hliðstæöur.
Eg held það hafi tekist í einhveijum
tilfellum,“ segir Þorsteinn Guð-
mundsson leikari sem leikur stórt
lúutverk í farsanum Spanskflug-
unni hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Frumsýnt verður í Borgarleikhús-
inu í kvöld kl. 20.
Þorsteinn Guðmundsson er son-
ur leikkonunnar Helgu Þ. Stephen-
sen og leikur hann sitt fyrsta al-
vöru blutverk hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Þorsteinn útskrifað-
ist fyrir tveimur árum og hefur síð-
an unnið hjá Þjóöleikhúsinu og
Andleikhúsinu. Einnig hefur hann
fengist við leikstjóm. Þorsteinn
hefur auk þess leikið í sjónvarps-
mynd sem verður frumsýnd bráð-
lega. Hann kemur áreiöanlega til
meö að vekja athygli fyrir þetta
hlutverk sitt. -em
Ánæstu
grösum
- sjábls. 18
írsk og
skosk
þjóðlaga-
tónlist
- sjábls. 19
Bragi
Ásgeirsson
í Iistasafni
íslands
- sjábls. 20
Skúlptúr
í Nýlista-
safninu
- sjábls. 20
Glerlistar-
sýning í
' Hafnar-
borg
- sjábls. 20
Kristal-
gler í Iist-
húsinu
- sjábls. 20
Yfirlits-
sýning að
Kjarvals-
stöðum
- sjábls. 20
Stand-
andi pína
í Tjamar-
bíói
- sjábls. 21