Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1993, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1993
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7, sími 673577
i sýningarsal og vinnustofum eru til sýnis
og sölu olíumálverk, pastelmyndir, grafík og
ýmsir leirmunir. Opið er frá kl. 12-18.
Ásmundarsafn
Sigtúni, sími 32155
Þar stendur yfir sýning sem ber yfirskriftina
Náttúran i list Ásmundar Sveinssonar. Safn-
ið er opið kl. 10-16 alla daga.
dögum.
Gallerí 1 1
Skólavördustíg
Finnska myndlistarkonan Kaisu Koivisto
sýnir verk sín . í verkum sínum teflir Kaisu
saman ólíkum miðlum svo sem Ijósmyndum,
myndböndum, hefðbundnu temperamál-
verki og teikningum.
Gallerí Borg
Listamaðurinn Asgeir Smári hefur undan-
farin ár verið búsettur í Danmörku og unnið
þar að list sinni. Hann er nú kominn til lands-
ins með um það bil 25 ný málverk í fartesk-
inu og opnar sýningu í Galleri Borg á morg-
un kl. 16-18. Sýningin verður opin virka
daga kl. 12-18 en kl. 14-18 um helgar.
Henni lýkur 28. september.
Gallerí Fold
Austurstræti 3
Margrét Soffía Björnsdóttir, Sossa, sýnir
nýjar olíumyndir dagana 18. september til
2. október. Opið er í Gallerí Fold mánudaga
til föstudaga kl. 10-18 og laugardaga kl.
10-16. Allar mynditnar eru til sölu.
Galleriið Hjá þeim
Skólabörðustíg 6b.
Ingibjörg Hauksdóttir sýnir myndverkið sitt,
„Púðar og klukkustrengir". Opnunartími er
kl. 12-18 mánudaga til föstudaga og kl.
10-14 laugardaga.
Gallerí Hulduhólar
Arngunnur Ýr sýnir ný verk unnin á árinu
1993. Kallast verkin Himnar og eru olíumál-
verk unnin á ýmist striga, léreft eða tré. Alls
eru 26 verk á sýningunni. Sýningin er opin
kl. 16-19.
Gallerí List
Skipholti
Sýning á listaverkum eftir ýmsa listamenn.
Opið daglega kl. 10.30-18.
Gallerí Urnbra
Amtmannsstíg 1
Sýning pólsku grafíklistamannanna Laszek
Golinski og Maciej Ðeja hefur verið fram-
lengd til 22. september. Báðir eru þeir þekkt-
ir og viðurkenndir listamenn í sínu heima-
landi og víðar. Gallerí Úmbra er opið þriðju-
daga til laugardaga kl. 13-18 og sunnudaga
kl. 14-18.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9, s. 13470
Stefán Geir Karlsson sýnir tréskúlptúra, allt
æskuminningar, sérstaklega frá uppvaxtará-
rum hans í Keflavík. Sýningin stendur til 22.
september og er opin á virkum dögum kl.
10-18.
Gangurinn
Rekagranda 8
Nú stendur yfir sýning á verkum Janet
Passehl. Efniviðinn og fyrirmyndir í verk sín
sækir hún í nánasta umhverfi sitt, heimili,
nærliggjandi umhverfi og á gönguferðum í
bæinn en þetta blandast síðan eða tengist
bernskutilfinningum og æskuminningum.
Götu-grillið
Borgarkringlunni
kynnir verk eftir Húbert Nóa.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Á morgun verður opnuð glerlistasýning i
Hafnarborg. Að sýningunni standa Inga Elín
Kristinsdóttir, Lharne Tobias Shaw og Svafa
Björg Einarsdóttir. Sýningin spannar vítt
svið á meðhöndlun á gleri. Verða þar sýnd
m.a. glermyndir í glugga, glerskúlptúrar,
skálar, vasar og fleira. Þetta er fyrsta sýning
þeirra Lharne og Svöfu hér á landi en Inga
Elln hefur haldið fjölmargar sýningar hér-
lendis. Sýningin verður opin daga kl. 12-18,
lokað á þriðjudögum. Sýningunni lýkur 4.
október.
fslenska húsið
Fákafeni 9
Nú stendur yfir samsýning fjölda listamanna
á keramiki, gleri og myndlist. Opið alla virka
daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl.
10-14.
Kjarvalsstaðir
A morgun kl. 16 verða opnaðar þrjár sýning-
ar á Kjarvalsstöðum. Opnuð verður sýning
á 45 málverkum eftir Gunnlaug Blöndal í
tilefni af því að þann 27. ágúst sl. voru eitt
hundruð ár liðin frá fæðingu hans. Þá verð-
ur opnuð sýningin Fimm norrænir meistar-
ar. Á sýningunni eru kynnt verk eftir fimm
norræna arkitekta. Um er að ræða farands-
sýningu sem unnin er af Arkitektasafni Finn-
lands í Helsinki. Þá verður einnig opnuð
sýning á Ijóðum eftir Hannes Pétursson.
Sýningarnar verða opnar daglega kl. 10-18
og standa til 17. október.
Nýlistasafnið
Vatnsstíg
Á morgun kl. 16 verða opnaðar tvær skúlpt-
úrsýningar. Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir á
fyrstu hæðinni og ber sýningin yfirskriftina
Strandhögg en þarna eru hlutir úr undirdjúp-
um sem gengnir eru á land. Á efri hæðum
safnsins sýnir bandarísk listakona frá New
York, Tína Aufiero, hún sýnir innsetningar
(installations) sem hún nefnir The Chicken
Theory. Sýningin stendur til 4. október og
verður opin daglega kl. 14-18.
Mokkakaffi
v/Skólavörðustig
Opnuð hefur verið á Mokka sýning á verkum
eftir Þorvald Þorsteinsson, „Svipmyndir úr
safni ímyndaðrar heildar". Hér er um að
ræða sýnishorn úr nýjum flokki Ijósmynda-
verka sem Þorvaldur hefur unnið að síðan
á miðju siðasta ári og var fyrst sýndur I Riga
í Lettlandi I mai sl. Sýningin stendur til 10.
október.
Sýningar
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Lækningaminjasafn sem sýnir áhöld og
tæki sem tengjast sögu læknisfræðinnar á
Islandi. Stofan er opin á sunnud., þriðjud.,
fimmtud. og laugardögum frá kl. 12-16.
Aðgangseyrir er kr. 200.
Norræna húsiö
Margrét Jónsdóttir listmálari sýnir í Norræna
húsinu. Margrét sýnir oliu og aquarelle verk
frá árunum 1990-1993. Sýningin stendur
til 19. september og er opin á milli kl. 14
og 19 alla daga.
Katel
Laugavegi 20b, sí mi 18610
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og erlenda
listamenn: málverk, grafik og leirmunir.
Listasaf n ASÍ
Grensásvegi 16a
Á morgun kl. 14 opnar Páll Reynisson,
Ijósmyndari og kvikmyndatökumaður,
Ijósmyndasýningu. Á sýningunni eru 65
svart-hvitar Ijósmyndir og litljósmyndir
sem Páll hefurtekið og unnið á undanförn-
um 4 árum, bæði innanlands og utan.
Sýningin er opin frá kl. 14-22, lokað á
miðvikudögum. Síðasti sýningardagur er
3. október. Hér er um sölusýningu að
ræða og er vakin athygli á því að aðeins
eitt eintak er af hverri mynd.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, sími 13797
Opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-18.
Listasafn íslands
Á morgun verður opnuð yfirlitssýning á graf-
íkmyndum Braga Ásgeirssonar á efri hæð
Listasafnsins. Er þetta fyrsta sýningin í nýj-
um flokki sérsýninga sem Listasafnið hyggst
standa fyrir á næstu árum. Á sýningunni
verða u.þ.b. 80 þrykk frá 1952 til 1993.
Listasafn íslands er opið daglega nema
mánudaga kl. 12-18. Sýningunni lýkur 31.
október.
Listhús í Laugardal
Engjateigi 17, s. 680430
Sjofn Har. Vinnust. er oftast opin virka daga
kl. 15-18 og kl. 14-16 laugardaga eða eftir
samkomulagi. Jónas Bragi Jónsson opnar
sýningu á skúlptúrverkum úr kristalgleri
laugardaginn 18. september. Sýningin nefn-
ist „Öldur" og þar má meðal annars sjá sam-
nefnt verk sem hlaut fyrstu verðlaun á gler-
listarsýningu í Englandi árið 1992. Sýningin
stendur til 3. október og er opin daglega
kl. 10-18, nema sunnudaga kl. 14-18.
Listinn
gallerí - innrömmun
Síðumúla 32, sími 679025
Uppsetningar eftir þekkta íslenska málara.
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl.
10-18 og sunnudaga kl. 14-18.
Listasafn Háskóla Íslands
íOdda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á nýjum
verkum í eigu safnsins. Opið er daglega kl.
14- 18. Aðgangur að safninu er ókeypis.
Portið
Strandgötu 50, Hafnarfirði.
Á morgun kl. 15 verður opnuð sýning á
vatnslitamyndum Jónínu Bjargar Gísladótt-
ur. Sýningin ber nafnið „Utan seilingar".
Sýningin er opin daglega kl. 14-18 nema
þriðjudaga. Henni lýkur 10. október.
Saf n Ásgríms Jónssonar,
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Opnuð hefur verið sýning á vatnslitamynd-
um Ásgríms Jónssonar i safni hans við
Bergstaðastræti. i vetur verður safnið opið
á laugardögum og sunnudögum kl.
13.30-16. Lokað í desember og janúar.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 654242
Sjóminjasafnið er opið alla daga frá júni út
september kl. 13-17.
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði v/Suðurgötu
Handritasýning opin alla virka daga i sumar
kl. 14-16.
Stöðlakot
Bókhlöðustíg 6
Jón Reykdal sýnir í Stöðlakoti. Á sýning-
unni eru aðailega ýmsar smámyndir unnar
í gvass og pastel. Sýningin verður opin dag-
lega kl. 14-18 til 19. september.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu11, Hafnarfirði, sími
54321
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverf isgötu 59, sími 23218
Þar eru til sýnis og sölu postulinslágmynd-
ir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á
verslunartíma þriðjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og föstudaga kl. 12-18 og á
laugardögum kl. 12-16.
Þjóðminjasafn íslands
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17.
Minjasafnið á Akureyri
Aðalstræti 58, sími 24162.
Opið daglega kl. 11-17.
Listasaf nið á Aku reyri
Opið alla daga kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Opnunarsýningin
stendur til mánaðamóta.
Listasafn íslands:
Yfirlitssýning
á grafíkverkmn
Braga Ásgeirssonar
Kj arvalsstaðir:
Verk Gunn-
f
laugs
Blöndal
Á morgun kl. 16 verður opnuð sýn-
ing á Kjarvalsstöðum á 45 málverk-
um eftir Gunnlaug Blöndal. Tilefnið
er að eitt hundrað ár eru liðin frá
fæðingu hans. Gunnlaugur hreif
gagnrýnendur og hstunnendur og
tókst að skapa sér rými í frönsku
listalífi. Hann var viðurkenndur sem
virtur þátttakandi í Parísarskólan-
um og átti verk á frægri sýningu á
franskri samtímalist sem send var
til Tokyo 1926. Á fjórða áratugnum
sýndi Gunnlaugur víða um Evrópu.
„Við erum að opna yfirlitssýningu
á verkum eftir Braga Ásgeirsson á
morgun. Þetta eru um áttatíu verk
og þau elstu eru frá 1952. Sýningin
er í tveimur sölum. Þetta er fyrsta
sýningin í nýjum flokki sérsýninga
sem Listasafnið hyggst standa fyrir
á næstu árum þar sem tekið verður
saman úrval verka eftir íslenska
myndlistarmenn af eldri kynslóð,“
segir Bera Nordal hjá Listasafni ís-
lands í samtali við DV.
Meðan á sýningunni stendur verð-
ur grafíklistin mjög í brennidepli í
safninu. Grafíkverkstæði verður sett
upp í kjallara þess en þar verða
skólanemum kynntar ýmsar hliðar
grafíklistarinnar.
„Bragi hefur verið brautryðjandi í
grafíklist og kennt grafík í Mynd-
hsta- og handíðaskólanum. Margir
af þekktustu grafíklistamönnum á
íslandi eru einmitt nemendur hans,“
segirBera. -em
Nýlistasafnið:
Tvær
skúlptúr-
sýningar
Nýlistasafnið stendur fyrir tveim-
ur skúltúrsýningum á morgun.
Brynhildur Þorgeirsdóttir sýnir á
fyrstu hæðinni og ber sýningin yfir-
skriftina Strandhögg en á henni eru
hlutir úr undirdjúpunum sem gengn-
ir eru á land. Á efri hæðum safnsins
sýnir bandaríska listakonan Tina
Aufiero en hún sýnir innsetningar
sem hún nefnir The Chicken Theory.
Sossa í
Gallerí Fold
Margrét Soffía Bjömsdóttir, Sossa,
sýnir nýjar ohumyndir í Gallerí Fold,
Austurstræti 3. Sossa hefur haldið
einkasýningar bæði hérlendis og er-
lendis, nú nýlega í Danmörku og
Noregi, og tekið þátt í samsýningum.
Vatnslita-
myndir
íPortinu
Á morgun verður opnuð sýning
Jónínu Bjargar Gísladóttur í Port-
inu, Strandgötu 50. Á sýningunni eru
vatnslitamyndir og ber hún nafnið
Utan seilingar. Sýningin er opin dag-
lega frá kl. 14 til 18 nema þriðjudaga.
Gunnlaugur málaði aðallega konumyndir DV-mynd Brynjar Gauti
Hafnarborg:
Gler-
þrenna
Á morgun verður opnar gler-
Ustarsýning í Hafnarborg, menn-
ingar- og hstastofnun Hafnar-
fjarðar. Að sýningunni standa
Inga Ehn Kristinsdóttir, Lhame
Tobias Shaw og Svafa Björg Ein-
arsdóttir. Sýningin spannar vítt
svið í meðhöndlun á gleri. Þar
verða meðal annars sýndar gler-
myndir í glugga, glerskúlptúrar,
skálar, vasar og fleira. Þetta er
fyrsta sýning þeirra Svöfu og
Lhame á íslandi en Inga Ehn
hefur haldið fjölmargar sýningar
hérlendis.
Listhúsið í Laugardal:
Skúlptúr-
verkúr
kristal-
gleri
Jónas Bragi Jónasson opnar sýn-
ingu á skúlptúrverkum úr kristal-
gleri í Listhúsinu í Laugardal á
morgun. Sýningin nefnist Öldur og
þar má meðal annars sjá samnefnt
verk sem hlaut fyrstu verðlaun á
glerlistarsýningu í Englandi árið
1992. Öldur er fyrsta einkasýning
Jónasar Braga en áöur hefur hann
tekið þátt í samsýningum, bæði hér
og erlendis.
Bragi Ásgeirsson er brautryðjandi í grafiklist á íslandi. DV-mynd ÞÖK