Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1993, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1993
vikunnar
Bítlarnir:
Saman á ný
Loksins eftir 23 ára bió hafa þeir sem eftir lifa af hinum einu
sönnu Bitlum tekió upp samstarf á nýjan leik. Ekki er enn um
tónlistarlega samvinnu að ræöa heldur snýst málió u.ti geró
heimildarkvikmyndar og sjónvarpsþátta sem rekja feril þess-
arar vinsælustu popphljómsveitar allra tima. Paul McCartney,
George Harrison og Ringo Starr leggja allirtil efni í myndina og
Yoko Ono, ekkja Johns Lennons, mun sjá um hans hlió mála. I
myndinni veróur víóa leitað fanga og saga fjórmenninganna frá
Liverpool rakin alla leiö til skólaáranna. Þá veróur í myndinni
fjöldi viótala vió fólk sem tengist hljómsveitinni, jafnvel stúlkur
sem unnu í fatahenginu í Cavern-klúbbnum í Liverpool þar sem
Bítlarnir komu fyrst fram. Samtals verður myndin tíu klukku-
stundalöngogveróursýndísjónvarpiítíuþáttum. Frumsýningin
er ráðgerð næsta haust. -SÞS
Ný plata, Being Human, er væntanleg með Herbert Guðmundssyni:
tónli0t:
Vitum að við getum náð
útfyrir landsteinana
Dregið verður úr réttum lausnum
30. september og rétt svör verða birt
í tónlistarblaði DV. 7. október.
Hér eru svo birt rétt svör við
getrauninni sem birtist 2. september:
1.4
2. River of Dreams
3. Coneheads
Nýverið kom út plata með söngkonunni Mariu Carey.
„Ég er búinn að vera með þessa
plötu í smíðum í fjögur ár. Auðvitað
ekki samfleytt. Þeir sem gefa út
sjálfir verða að vinna þegar þeir eiga
peninga. Það er dýrt að taka upp og
hundraðþúsundkallinn er fljótur að
fara þegar maöur er í hljóðveri. En
þetta hafðist með þolinmæðinni."
Þetta segir Herbert Guðmundsson
söngvari, lagasmiður og sölumaður
sem lítið hefur heyrst frá á tón-
listarsviðinu undanfarin ár. Um
miðjan síðasta áratug lét hann hins
vegar mikið til sín taka, fyrst með
hljómsveitinni Kan og síðar þegar
hann gaf út plötu sína Dawn of the
Human Revolution. Nýja platan heit-
ir Being Human og kemur út eftir
rúman mánuð.
„Ég markaði mér þá stefnu strax
í upphafi að vera eingöngu með
lifandi undirleik á þessari plötu,“
segir Herbert. „Áður notaðist ég að
mestu leyti við hljóðgervla og hefði
svo sem getað farið sömu leiðina
aftur. En mér fannst alveg ómögulegt
að hjakka að því leyti í sama farinu.
Ég hef þess vegna fengið til liðs við
mig hóp af ágætu fólki sem hefur séð
um hljóðfæraleikinn.
Ég leitaði einnig til nokkurra laga-
höfunda sem tóku mér mjög vel,“
heldur Herbert áfram. „Þetta voru
þeir Jóhann G. Jóhannsson, Magnús
Þór Sigmundsson og Jóhann Helga-
son. Svo á ég einnig nokkur lög á
plötunni. Þeir Jóhann G. og Magnús
létu mig meira að segja hafa nokkur
lög eftir sig sem þeir höfðu geymt
handa einhverjum sem vildi hafa
textana á ensku.“
Plógfar Bjarkar
. „Auðvitað blundar alltaf í manni
sá draumur að ná út fyrir þann fimm
til sjö þúsund eintaka plötumarkað
sem sá íslenski er,“ svarar Herbert
Guðmundsson spurningunni um
hvers vegna hann hafi eingöngu
enska texta við lögin á nýju plötunni.
„Nú vitum við Islendingar að við
getum náð út fyrir landsteinana.
Björk er aldeilis að gera það gott og
hefur gert gott plógfar í erlenda
markaðinn og nú er tækifærið fyrir
okkur hin að koma í farið. Samn-
ingurinn um Evrópskt efnahags-
svæði er á næstu grösum og hann
þýðir að allt opnast mun meira en
hingað til og ég er sannfærður um að
við eigum eftir að láta enn meira til
Herbert Guðmundsson í hljóðveri í Lundúnum ásamt upptökustjóranum Ken Thomas og bakraddasöngkonunum Jackie
Challenor og Lorenzu Johnson.
okkar taka erlendis á næstunni en
hingað tilsegir hann.
Platan Being Human er aðallega
unnin hér á landi. Hún er þó hljóð-
blönduð í Bretlandi. Herbert fékk
upptökustjórann Ken Thomas til að
vinna það verk. Thomas hefur á
undanfömum árum komiö við sögu
hjá Sykurmolunum og hljómsveit-
inni Nýdönsk. Þá hefúr hann unnið
fyrir margt heimsfrægra manna
ytra. Herbert söng einnig nokkur lög
upp á nýtt í Bretlandi og fékk
söngkonumar Jackie Challenor og
Lorenzu Johnson til að annast
bakraddir í nokkrum lögum. Sú
síðamefnda kom hingað til lands á
áttunda áratugnum og söng þá með
hljómsveit Jakobs Magnússonar,
Hvítárbakkatríóinu.
Sjöunda plata
Herbert segir að Being Human sé
sjöunda platan sem hann vinnur að.
Eiginlegar sólóplötur hans eru
orðnar þijár. Sú fýrsta, Á ströndinni,
kom út árið 1978. Herbert hyggst
endurútgefa allt sitt efni á geisla-
plötum á næsta ári.
„Ég er svo heppinn að eiga útgáfu-
réttinn að öllu sem ég hef látið frá
mér fara,“ segir hann. „Þess vegna
get ég ráðið því sjálfur hvenær ég
endurútgef og þess háttar. Reynslan
af því að standa í þessu sjálfur gerði
það að verkum að ég bauð ekki einu
sinni útgefendum að taka nýju plöt-
una að sér.“
Dawn of the Human Revolution
seldist á sínum tíma í rúmlega fimm
þúsund eintökum. Herbert segist
bjartsýnn á að nýja platan seljist ekki
síður.
„Ég reyndi að hafa hana aðgengi-
lega fyrir sem flesta. Hún spannar
eiginlega allan minn feril hvað
stefnur varðar. Þama er rokk, popp,
soul og fónk og ég var heppinn með
lög. Góð melódía stendur alltaf fyrir
sínu.“ Hann hefur enn ekki ákveðið
endanlega hvemig plötunni verður
fylgt eftir. „Ef einhverjii' hljóðfæra-
leikarar verða á lausu er aldrei að
vita nema við stofnum hljómsveit.
En að minnsta kosti kem égfram með
undirleikinn af bandi ef ekki verður
af hljómsveitarstofnuninni."
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri
viku verða birtar þrjár spumingar
um tónlist. Fimm vinningshafar
hljóta svo geisladisk í verðlaun frá
hljómplötufyrirtækinu Spori hf.
Að þessu sinni er það geisla-
diskurinn Ten með Pearl Jam sem er
í verðlaun.
Rétt svör sendist DV fyrir 30.
september, merkt:
Hér koma svo spumingamar:
1. Þann 11. október kemur út ný
plata með Pearl Jam. Hvaða ár
kom platan Ten út?
2. Hvað heitir nýja platan frá
Mariu Carey?
3. Nýverið kom út nýtt lag með
Paul Young af væntanlegri
plötu. Hvað heitir lagið?
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Tónlistargetraun DV og Spors