Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1993, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1993, Side 4
30 K.Í FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1993 DV Lífið tekur nýja stefnu - Stefán Hilmarsson sendir frá sér plötuna Líf Stefán Hilmarsson segist eiga erfitt með að skilgreina nýju plötuna sina, Líf, sem kom út í síðustu viku. Hann segist hins vegar hafa haft það að leiðarljósi að búa til einlæga og heið- arlega plötu - heiðarlega gagnvart sjálfum sér - og honum fmnst það hafa tekist. „Mig hefur til dæmis oft langað til að leyfa minni eigin persónu að koma betur fram í textum en í þessum popptextum sem ég hef samið hingað til og að þessu sinni lét ég það eftir mér,“ segir Stefán. „Mér finnst ég geta kallað textana „sálríka". Já, kannski er platan einmitt „sálrikari" en þær sem ég hef átt þátt í að gera hingað til. Það er sennilega meiri sál í henni en hinum.“ Hingað til hefur Stefán Hilmarsson birst hlustendum á plötum sem hluti af heild - liðsmaður I hljómsveit - einn af fimm eða sex manna hópi sem tekur ákvarðanir i sameiningu um hvemig platan skuli hljóma. A plöt- unni Lífl er hann sjálfs sín herra og getur gert það sem hann langar til. „Þarna fannst mér þess vegna tækifærið komið til að vera dálítið persónulegri en hingað til,“ segir hann. „Ýmsar breytingar í lífi minu urðu til þess að ég fann mig nánast knúinn til að tjá tilfinningar mínar í textimum. Stærsta breytingin fylgdi því að verða faðir. Maður sér lífið í öðra ljósi en fyrr . . . fer að hugsa öðruvísi. Þeir þekkja þetta sem reynt hafa. Að mínu mati hef ég ekki gert betri texta en nú og er sáttur við útkomuna.“ Breiðari hópur? Með hljómsveitinni Sálinni hans Jóns míns höfðaði Stefán fyrst og fremst til hlustenda á aldrinum tíu til 25 ára. Hann segist alls ekki vera að Hörður Torfason - Gull: Lifandi plata sem óhætt er að mæla með, skemmtileg blanda af leiftrandi lifsgleði og ljúfsárum trega. -SMS Herbert Guðmundsson - Being Human: ★ ★ ★ Being Human sannar að Herbert er sprelllifandi. Hann mætti að skaðlausu láta líða færri ár þar til næsta plata kemur. -ÁT Steve Vai - Sex and Religion: ★ ★ ★ Tónlistin á Sex and Religion er kraftmikið rokk, hvergi gefið eftir frá fyrsta lagi til hins síðasta. -ÁT Boo Radleys - Giant Steps: ★ ★ ★ ★ Hér er komin ein af betri plötum ársins 1993 og ómögulegt að gera upp á milli laganna 17 sem prýða Giant Steps. -SMS Ýmsir- Diskóbylgjan: ★ ★★■*. Diskóbylgjan er sennilega sú plata sem gefur heillegasta mynd af því sem gekk á diskótekum landsins á þessum um- deilda tíma. -ÁT Bubbi Morthens - Lífið er Ijúft: ★ ★ ★ Lífið er Ijúft er trúarjátning Bubba Morthens. Hún sýnir trú hans á lífið, ástina og fegurðina í tilverunni. -SMS Dave Grusin - The Firm: ★ ★ ★ Lög Grusin eru djass og blús. Það kemur á óvart að tónlistin missir ekki hirrn myndræna kraft þegar eingöngu er hlusuyj á hana. -HK Ham-Saga rokksins: ★ ★ ★ Sú blanda, sem hér er hrist saman, er góð viðkynningar fyrir þá sem hafa vilja og nennu til að kynnast Ham. -SÞS yfirgefa sinn gamla aðdáendahóp með nýju plötunni. „Ég hef ekki trú á því að þótt ég sé ekki á alveg sömu nótunum og með Sálinni hætti það fólk að hlusta á mig sem hafði gaman af mér áður. Fólk er ekki svo einstefnulegt. Nei, ég ætlaði alls ekki fyrirfram að gera plötu til að breikka hlustendahóp minn. Mig langaði bara til að gera plötu sem ég yrði sjálfur ánægður með. Þama eru engar alvarlegar músík- tilraunir á ferð,“ bætir hann við. „Ég hef alltaf staðið og fallið með meló- dískri tónlist og finn mig best í henni. Ég er ekkert fyr ir torf og fmnst réttast að láta öðrum það eftir í nafni framsækinnar tónlistar." Stefán semur sjálfur bróðurpart laganna á Lífi í samvinnu við Friðrik Karlsson og Friðrik Sturluson. Jón Ólafsson er höfundur titillagsins, Guðmimdur Jónsson á annað og loks er á plötunni eitt erlent lag. Tals- verðurfjöldi hljóðfæraleikara kemur við sögu í undirleiknum og heil söng- sveit syngur með Stefáni í nokkrum lögum. „Það þróaðist nokkuð í vinnslunni hvaða tónlistarmenn ég fékk til að spila með mér,“ segir Stefán. „Hins vegar var ákveðið strax í byrjun að Stefán Hilmarsson verður með bróðurpart þeirra rúmlega tuttugu listamanna sem tóku þátt í gerð plötunnar Lífs með sér á útgáfutónleikunum í Borgarleikhúsinu. hafa bakraddakór í nokkrum lögum. Ég hef alltaf raddað sjálfur það sem ég hef gert hingað til og langaði að breyta til. Yfirbragð plötunnar er nokkuð svipað og ég hafði heyrt fyrir mér í upphafi. Ég talaði þá um að gera rólega plötu og meinti með því að ég ætlaði að hafa hana afslappaðari en það sem ég hef gert til þessa. Það tókst. Þótt raddsvið mitt sé ekki mik- ið niður á við þá er ég að syngja á nokkuð öðru registri en venjulega. Mér frnnst sjálfum að minnsta kosti að ég sé mun afslappaðari í flestum lögum plötunnar en oft hingað til.“ Stefán Hilmarsson ætlar að fylgja útkomu plötunnar Lífs eftir með stórtónleikum í Borgarleikhúsinu fyrsta desember. Það verða hans einu tónleikar að sinni. Kjaminn í hóp undirleikaranna verður hlj ómsveitin Pláhnetan sem hann hefur sungið með síðan í vor. Einnig kemur við sögu bróðurpartur þeirra listamanna sem tóku þátt í gerð plötunnar. „Það bíður félaga minna heilmikið streð að æfa þessa tónlist. Hingað til hefur það verið litið mál að taka lög af nýrri plötu og æfa til að spila á tónleikum en að þessu sinni er það talsvert meira en að segja það,“ segir Stefán Hilmarsson. -ÁT- Prince -The Hits/The B-Sides: Einstök snilli Afkastameiri listamönnum en Prince Roger Nelson, Symbol Man, Victor eða hvað hann kallar sig nú- orðið er leitun að. Þeir eru ekki marg- ir tónlistarmennimir sem eftir 15 ára feril geta gefið út tvær pakkaðar plöt- ur með eintómum smellum og er þá ekki allt meðtalið því alltaf verða ein- hver lög útundan á svona safnplötum. Samtals 36 lög, segi og skrifa. Og þetta er ekkert rusl heldur mörg af bestu popplögum undanfarinna ára. Ekkert minna. Slík er stærð þessa litla risa sem sífellt vekur á sér at- hygli með alls kyns uppátækjum og skringilegheitum. Hér er hins vegar ekkert verið að fiflast heldur spannar þessi pakki 15 ára samfellda sigurgöngu sem enn er langt frá því lokið. Til að gefa þessu frábæra lagasafni enn aukið gildi er svo þriðja geisla- platan látin fljóta með en hún inni- heldur lög sem sett voru á B-hliðar litlu platnanna sem höfðu að geyma alla stórsmellina. Þetta eru lög sem erfltt hefur verið að nálgast gegnum árin en eru hér komin saman á eina plötu Prince-aðdáendum til mikillar ánægju. Og rúsínumar í pysluend- anum eru svo fimm áður óútgefm lög, þar á meðal lagið Nothing Compares 2 U sem Sinead O’Connor sló í gegn með um árið en það er ekki síðra f meðfórum höfundarins. Eiginlega er ekkert mikið meira hægt að segja um þetta samsafn af bestu lögum Prince annað en að þetta er stórkostleg heimild um stórkost- legan listamann. Sigurður Þór Salvarsson Móeiður Júníusdóttir - Lögin vió vinnuna: ★ ★ ★ Söngur á heimsmæli kvarða Fáar íslenskar söngkonur hafa lagt jasssöng fyrir sig í gegnum fíðina. Þess vegna er það mikið gleðiefni þegar skyndilega stekkur fram á sjónarsviðið jafnfjölhæf söngkona og Móeiður Júníusdóttir en henni virðist falla einkar vel að syngja djass. Móeiður hefur feiknamikla og sjarmerandi rödd og raddsviðið er mikið. Það leika til dæmis ekki marg- ar söngkonur það eftir að taka á einni og sömu plötunni lög sem konur eins og Billy Holiday, Marlene Dietrich og Edit Piaf hafa sungið. En fyrir utan þessa miklu og fallegu rödd er tölu- verður gáski í söng Móeiðar sem skil- ar sér vel þar sem við á þó að á stundum jaðri við ofleik. Lagavalið á plötunni er afar breitt, kannski of breitt til að góður heildar- svipur náist. Þannig eru á plötunni lög sem ekki passa alveg inn í plötu- myndina þó þau kunni að gera sig á tónleikum. Þar á ég við lög eins og Mah-na-Mah-na, úr Prúðuleikaraþátt- unum, Vögguvísuna hennar Hall- bjargar Bjamadóttur og lagið Við gengum tvö. Eina islenska lagið sem mér finnst gera sig vel á plötunni er gamla popp- ballaðan hans Gunnars Þórðarsonar, Bláu augun þín. Þeir sem sjá um undirleik á plöt- unni gera það af mikilli smekkvísi og glæsibrag. Þeir eru Þórður Högnason kontrabassaleikari, Kjartan Valdi- marsson píanóleikari, Matthías Hemstock trommuleikari og Jóel Pálsson saxófónleikari en nafh hans hefur fallið niður á plötuumslagi sem þar fyrir utan er afskaplega fátæklegt. Lögin við vinnuna er sérstaklega þægileg og ljúf plata og rétt að óska okkur öllum til hamingju með að hafa eignast jáfh stórgóða söngkonu og Móeiði Júníusdóttur. Sigurður Þór Salvarsson Andrew Strong - Strong: Raddmikill íri Andrew Strong var bara villuráf- andi írskur unglingur sem hafði gam- an af að syngja þegar honum var kippt inn í hljómsveitina The Commitments sem var uppistaða hinnar ágætu kvikmyndar sem bar sama nath. Þar var Strong aðalsöngv- ari og gaf frá sér mikinn kraft og má svo sannarlega segja að hann hafi slegið í gegn með líflegum og kröft- ugun söng sínum í klassískum soul- lögum. Enginn var í vafa um að þama væri kominn framtíðarsöngv- ari sem ætti eftir að gera garðinn frægan. Eftir að hafa ferðast með The Commitments um tima var kominn tími á það sem allir biðu eftir, að Strong færi i hljóðver og tæki upp sólóplötu. Afraksturinn er Strong sem inniheldur tíu lög sem í útsetningum minna áð sumu leyti á lögin sem gerðu Strong þekktan en eru ekki jafngóð. Strong heldur sig enn við soul og blús en sú einlæga leikgleði sem einkenndi The Commmitments er ekki hér fyrir hendi. Platan er tekin upp í New York þar sem boðið er upp á það besta. Og ekki vantar að hljóð- færaleikur er pottþéttur en einhveija hráa tilfinningu vantar. Rödd Strongs hefur batnað ef eitthvað er óg gerir hann yfírleitt lögunum góð skil en samt er það svo að ekkert laganna stendur upp úr þegar upp er staðið, það er helst að lengri útgáfan af Ain’t Nothin’ You Can Do veki smáfíðring. Hilmar Karlsson Pís of keik- Doit: Iðurtiífóta Diskódanstónlist ársins 1993 minn- ir um fátt á það hvemig diskóið hljómaði upphaflega - fyrir nítján ár- um. Og hún á svo sem ekki margt sameiginlegt með þeirri danstónlist sem vinsælust var þegar diskóæðið reis sem hæst 1979. Það var einmitt um það leyti sem Máni Svavarsson, prímus mótor tríósins Pís of keik, féll fyrir danstón- listinni. Hann hefur fengist við hana síðan. Á Doit býður hann upp á eitt lag sem sver sig í ætt við þessa gömlu tíma. Það er lagið Quere Me sem hefði sómt sér vel innan um diskótónlist með suður-amerískum keim fyrir hálfum öðrum áratug. Að öðru leyti er danstónhstin á Doitl anda dagsins í dag: vélræn og ópersónuleg og hentar fyrst og fremst til að hljóma á háum sfyrk á troðfull- um dansstað. Máni virðist vera talsvert meló- dískari en ýmsir aðrir danstónlist- arhöfundar. Hann bryddar einnig upp á einu og öðru óvæntu, svo sem þrumuræðu Jimmys Swaggarts sjón- varpsprédikara í einu lagi. Þá fer vel að heyra í saxófóni Sigurðar Flosa- sonar í tveimur lögum. Slíkt gefur tónlistinni lit. Þá er hraður dánstakt- urinn brotinn upp með lögunum Quere Me sem fyrr var getið og Small Song sem gefa plötunni íjölbreyttara yfirbragð en ella og hækka á henni standardinn. Ásgeir Tómasson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.