Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1993, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1993, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Meiming 19 r Starf sffólk segir frá I formála bókarinnar segir höfund- ur: „Bókin er skrifuð að tilhlutan Eimskipafélags íslands í því augn- amiði að varðveita reynslu fólks, sem sumt hefur unnið hálfa öld samfleytt hjá félaginu, bregða upp myndum af starfi þess en þó eink- um myndum af fólkinu sjáifu, minna á að þegar grannt er skoðað er fyrirtæki hvorki skip, húseignir né bókhaldsvélar heldur fólkið sem vinnur þar.“ Á bókarkápu segir: „Þessi bók er um fólk, líf þess og störf, skoðanir og tilfinningar.“ í bókinni segja frá lífshlaupi sínu þau Kristján Aðalsteinsson skip- stjóri, Gísli Hafliðason yfirvél- stjóri, Helgi Gíslason hryti, Viggó E. Maack skipaverkfræðingur, Jón Kristjánsson verkstjóri, Trausti Kristinsson bfistjóri, Sigríður Guð- mundsdóttir bókari, Guðni E. Guðnason aðalbókari, Sigurlaugur Þorkelsson deildarstjóri, Valtýr Hákonarson framkvæmdastjóri og auk þeirra „tveir útlendingar sem hafa verið í viðskiptum við Eim- skip“ sem segja frá kynnum sínum af Islendingum og ævi sinni. Bókin er öll hin vandaðasta og hana prýða margar myndir. AUir Bókmenntir Guðmundur G. Þórarinsson þessi einstaklingar segja frá í fyrstu persónu og þannig tekst Jón- ínu að gera alla frásögnina per- sónulegri en ef um samræðu eða viðtalsform væri að ræða. Hún segir sjálf: „Hér er um ólíka einstaklinga að ræða en mér finnst þeir eiga það sameiginlegt að vera háttvísir, vandir að virðingu sinni, flestir hlédrægir og framúrskar- andi vel gerðar manneskjur." Og Jónínu tekst að láta frásögn- ina lýsa einstaklingunum. Frá- sögnin er látlaus og lýsir lifi fólks sem ekki á síður erindi á blöð skrif- aðrar bókar en þeir sem lifað hafa mestallt líf sitt á forsíðum blaðanna eða framan við ljóskastarana. Hér er íjallað um fólk sem man þá stórkostlegu breytingu þegar hætt var að nota pennastöng og sjálfblekungamir komu, sagt frá mönnum sem óttuðust að hand- snúnu reiknivélamar, þessi tækni- bylting, mundi gera næstu kynslóð að hálfvitum sem kynnu ekki að leggja saman tvo og tvo og mönnum sem töluðu um tallerken og kak- kelovne. Skipstjórinn sagði við skipaverk- fræðinginn: „Þú veist ekki hvað 400 hestar em margir." Sagt frá dag- legu lífi venjulegs, áhugaverðs fólks. Það er myndarlegt hjá Eim- skipafélagi íslands að láta rita sögu starfsfólks síns á þennan hátt. Þaö er rétt sem stendur á bókarkápu: „Þetta er bók um fólk... “ Milli sterkra stafna Fólkið hjá Eimskip Jónina Michaelsdóttir Almenna bókafélagið hf. 288 bls. Allar jólagjafir á einum stað á markaðsverði Opið mánudaga - fimmtudaga föstudaga laugardaga sunnudaga 21. des. 22. des. 23. des. kl. 13.00-18.00 kl. 13.00-18.30 kl. 11.00-18.00 kl. 13.00-17.00 kl. 11.00-22.00 kl. 11.00-22.00 kl. 10.00-22.00 Einn þeirra sem segir frá í bókinni er Kristján Aðalsteinsson skipstjóri. Ath.! Alla laugardaga og sunnudaga ★ Jólasveinn ★ Tónlistarflutningur ★ Tilboð á ýmsum vörum Meðal Grímseyinga Bókin er frásagnir af ævi Aðalheiðar Karlsdóttur. Fyrstu kaflarnir segja frá þáttum úr lífi hennar sem ungrar stúlku, en síðan fjallar hún um þau 10 ár sem hún dvaldi í Grímsey og segir frá lífinu þar. Fyrstu kaflamir em ekki í beinu samhengi við sjálfa frásögnina um lífið í Grímsey, en Aðalheiður tekur fram í formálanum: „Og vera má, að fólki finnist að í þeim sé ónauðsynleg frásögn, en það finnst mér ekki.“ Þessi bók er 'að mörgu leyti vel skrifuð, einkum er tekur að líða á frá- sögnina. Aðalheiður flytur til manns síns, Þorleifs, út í Grímsey og þau fá prestssetrið Miðgarða til afnota, því prestlaust var. Þetta var kostajörð miðað við búskap í Grímsey, eggja- og fuglatekja, húsið tvilyft timburhús Bókmenntir Guðmundur G. Þórarinsson með kjallara og tólf ær fylgdu jörðinni. „Hvergi í Grímsey var jafnveg- lega byggt sem á Miðgörðum." Höfundur segir frá daglegum störfum í eynni, bjargsigi og sjósókn. Hún lýsir og mörgum þeim er hún átti samneyti við. Oftast var mikill matur í eynni. Grímseyingar versluðu við útlendinga er lágu á skipum við eyjuna, mest við Færeyinga og Norðmenn. En hart líf hefur verið þama og öðruvísi en nú er umhorfs í eynni. Höfundur lýsir vel hve erfitt var um vik ef veikindi bar að garði og er saga hennar af veikindum dóttur sinnar í senn átakanleg og erfið. Margt hefur á daga þessarar konu drifið og í henni verið sterkar taugar að tak- ast á við það allt. Hún segir frá þjóðhetju þeirra Grímseyinga, Daniel Willard Fiske, en á þessum tíma voru þrír drengir í Grímsey er báru þetta nafn og segir það nokkuð um hug Grímseyinga til þessa ameríska prófessors enda þjóðhá- tíðardagur Grínseyinga 11. nóvember, fæðingardagur hans. Höfundur segir frá loftbardaga yfir Grímsey seinni part sumars 1943. Henni tekst vel að lýsa því hvemig skiptust á skin og skúrir í lífi hennar. Mér liggur við að segja að á köflum sé þessi bók hugljúf og spennandi. Það eykur mönnum þrek að kynnast því hvaða raunir fólk við nyrsta haf stendur af sér. Erfiöleikar í rekstri frystihússins urðu til þess að margir Grímseyingar fluttu í land og Aðalheiður og Þorleifur fluttu til Ólafsfjarðar með böm sín. Nú er langt um hðið og aðstæður í Grímsey aðrar en þá vom; flugvöll- ur kominn, höfnin endurbætt, fastar ferðir til eyjarinnar og reisuleg íbúð- arhús mynda smáþorp. Það hefði gert bókina líflegri og komið lesendum betur í tengsl við fólk- ið og atburðina að skreyta hana með myndum. Aðalheiður Karlsdóttir frá Garði Bókaútgáfan Skjaldborg hf. 248 bls. jounm mia \Jt ímritfyrir alla Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA (ÁSKRIFT j SllHA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.