Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1993, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1993, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 14. DESEMBER 1993 Afmæli Valgerður Ingvarsdóttir Valgerður Ingvarsdóttir, Sandlæk, Gnúpveijahreppi, er áttatíu og fnnmáraídag. Starfsferill Valgerður er fædd að Laugardals- hólum í Ámessýslu en ólst upp í Skipholti í Hrunamannahreppi í sömusýslu. Valgerður var húsfreyja í Tungu- felh 1931-45 og síðan matráðskona í Ásaskóla og síðar í Flúðaskóla í Hreppum um árabil. Valgerður var við ýmis störf í Reykj avík og á Sel- fossieftirl958. Valgerður hefur verið til heimihs' á Sandlæk hjá Guðrúnu dóttur sinni og manni hennar frá 1970. Hún hef- ur verið sjúkiingur á hjúkrunar- heimilinu Ljósheimum á Selfossi síðustu árin. Fjölskylda Valgerður giftist 14.6.1931 Helga Jónssyni, f. 22.4.1906, d. 17.6.1945, bónda í Tungufelh í Hrunamanna- hreppi. Foreldrar hans: Jón Árna- son, bóndi í Tungufelli, og Sigríður Ámadóttir. Böm Valgerðar og Helga: Guðrún, f. 17.8.1934, húsmóðir á Sandlæk, maki Erlingur Loftsson bóndi, þau eignuðust fjögur böm, Helga, f. 1956, d. 1981, Elínu, f. 1959, landfræðing, Valgerði, f. 1963, landfræðing, og Loft, f. 1968, söngnema í Englandi; Sigurjón, f. 16.4.1937, verkfræðing- ur í Reykjavík, maki Hildur Sólveig Amoldsdóttir kennari, þau eiga tvö böm, Helgu Guðrúnu, f. 1969, nema, og Hjalta, f. 1974, nema, Sigmjón átti son fyrir, Magnús, f. 1962, raf- eindavirkja. Barnabarnaböm Val- gerðarerusex. Systkini Valgerðar: Hildur, f. 1902, húsmóðir í Reykjavík, maki Ám- laugur Ámason; Sigríður, f. 1904, húsmóðir að Efri-Reykjum í Bisk- upstungnahreppi, maki Ingvar Ei- ríksson, þau eignuðst fjóra syni; Ragnheiður, f. 1905, húsmóðir á Stað í Hrútafirði, maki Jón Eiríksson; Stefán, f. 1906, bóndi í Laugardals- hólum, maki Hrefna Böðvarsdóttir, þau eignuðst tvö böm; Oddný, f. 1907, verkakona í Reykjavík. Systk- ini Valgerðar og makar þeirra em ölllátin. Foreldrar Valgeröar: Ingvar Grímsson, f. 21.8.1867, d. 1940, bóndi í Laugardalshólum, og Kristín Stef- ánsdóttir Stephensen, f. 1.1.1874, d. 1910. Fósturforeldrar Valgerðar: Guðmundur Erlendsson, bóndi í Valgerður Ingvarsdóttir. Skipholti í Hrunamannalireppi, og Þórunn Stefánsdóttir Stephensen en hún var móðursystir Valgerðar. Jónatan Stefánsson Jónatan Stefánsson, fyrrv. verka- maður, Skólastíg 5, Akureyri (áður Hlíðargötu 10 á Akureyri), er níræð- urídag. Starfsferill v Jónatan er fæddur að Þórðarstöð- um í Fnjóskadai í S-Þingeyjarsýslu og var þar búsettur til 1944. Jónatan var ellefu ára er hann hóf skólagöngu sína og var þá í bama- skóla þrjá vetur, átta vikur á vetri, en fullnaðarpróf tók hann þriðja veturinn, þá þrettán ára. Hann var ennfremur einn vetur í unglinga- skóla að Skógum í Fnjóskadal. Jónatan vann á búi foreldra sinna á Þórðarstöðum en faðir hans lést 1942 og móðir hans 1943. Hann flutti þá ásamt systkinum sínum frá Þórð- arstöðum og var í fyrstu í vinnu á ýmsum bæjum í Fnjóskadal og Eyjafirði en hefur búið á Akureyri frá 1946. Jónatan stundaði í fyrstu byggingarvinnu en fór fljótlega að vinna við ýmis störf hjá Mjólkur- samlagi KE A og vann þar fram til 1970 er hann hætti störfum. Fjölskylda Systkini Jónatans: Hannes, f. 9.2. 1893, d. 1981; Þorgerður, f. 25.12.1894: Rósa, f. 1.7.1897: Hólmfríður, f. 12.8. 1899: Björg, f. 24.6.1901. Af systkin- um Jónatans er Hólmfríður ein á lífi. Sonur Rósu er Guðsteinn Þeng- ilsson læknir. Maður Bjargar var Þormóður Sveinsson en böm þeirra em Rannveig, Ingólfur og Eiríkur, bókavörður á Landsbókasafni. Foreldrar Jónatans vom Stefán Jónatansson, b. á Þórðarstöðum, f. 24.11.1860, d. 16.4.1942, ogkona hans, Friðrika Hannesdóttir hús- freyja, f. 27.8.1863, d. 5.11.1943. Ætt Stefán var sonur Jónatans Þor- lákssonar, b. og fræðimanns á Þórð- arstöðum, Þorsteinssonar og konu hans, Rósu, dóttur Jóns Jónssonar, alþingismanns á Munkaþverá, og konu hans, Þorgerðar Jónsdóttur, b. í Lögmannshlíð, Jónssonar. Móð- Jónatan Stefánsson. ir Þorgerðar var Þórey Stefánsdótt- ir. Bróðir Þorgerðar var Stefán Jónsson, alþingismaðúr á Steins- stöðum í Öxnadal. Foreldrar Jóns alþingismanns vom Jón, b. að Úlfá og Hrísum, Stefánsson, b. á Guðrún- arStöðum, Jónssonar og kona hans, Rósa Pálsdóttir, b. í Gulibrekku í Eyjafirði, Jónssonar. Friðrika var dóttir Hannesar Frið- rikssonar, Gottskálkssonar frá Garðsá. Helga Metúsalemsdóttir Helga Metsúsalemsdóttir, fyrrv. húsfreyja á Egilsstöðum í Vopna- firði, nú til heimilis að Dalbraut 27, Reykjavík, er níræð í dag. Fjölskylda Helga er fædd að Svínabökkum í Vopnafirði og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal í S-Þingeyjar- sýslu. Helga starfaði lengst af sem húsfreyja á Egilsstöðum í Vopna- firði. Helga giftist 27.12.1930 Sæmundi Grímssyni, f. 12.2.1896, d. 22.5.1961, bónda. Foreldrar hans: Grímur Grímsson og Margrét Sæmunds- dóttir. Böm Helgu og Sæmundar: Bjöm Metúsalem, f. 30.3.1931, bóndi, maki Ingigerður Jóhannsdóttír, húsmóð- ir, þau eiga fimm böm; Ólafur, f. 12.5.1932, húsasmíðameistari, maki Laufey Magnúsdóttir, fulltrúi, þau eiga þijú böm; Guðlaug, f. 14.6.1933, fulltrúi, maki Rolf Ámason, tækni- fræðingur, þau slitu samvistir 1982, þau eiga eina dóttur; Sigríður Elísa- bet, f. 16.8.1934, fulltrúi, maki Egg- ertEllertsson, d. 8.8.1991, búfræð- ingur, þau eignuðust þrjá syni; Baldur, f. 13.4.1936, rafvirkjameist- ari, maki Hlíf Theodórsdóttir, bankaritari, Baldur var áður kvæntur Huldu Gígju Geirsdóttur og á með henni fjögur böm, Huida Gígja átti þijú börn fyrir og ólust tvö þeirra upp hjá þeim Baldri; Stein- grímur, f. 19.4.1939, húsvörður, maki Guðný K. Valdimarsdóttir, starfsm. á Heilsustofhun NLFÍ; Hiimar, f. 3.9.1944, rafvirkjameist- ari, maki Jóhanna Einarsdóttir, húsmóðir, þau eiga fimm böm; Sæ- mundur Helgi, f. 17.5.1950, fram- kvæmdastjóri, maki Rósa Haildórs- dóttír, ritari, þau eiga þijú böm. Sljúpböm Helgu og böm Sæmundar og fyrri konu hans: Jóhanna, f. 28.8. 1919, fyrrv. handavinnukennari, Helga Metsúsalemsdóttir. maki Björgvin Sighvatsson, fyrrv. skólastjóri, þau eiga einn son; Stein- grímur, f. 28.8.1919, látinn. Systkin Helgu: Bjöm V., bóndi; Margrét, saumakona; Páll, bóndi; Stefán, bóndi. Þau em öll látín. Foreldrar Helgu: Metúsalem Jós- efsson, bóndi, og Guðlaug Pálsdótt- ir, húsfreyja, þau bjuggu á Svína- bökkum í Vopnafirði. Efemía Gísladóttir Efemía Gísladóttir kennari, Stekkj- arhvammi 9, Hafnarfirði, er fertug ídag. Starfsferill Efemía er fædd á Dalvík en ólst upp á Sauðárkróki. Hún var í Sam- vinnuskólanum á Bifröst, lauk stúd- entsprófi frá Framhaldsdeild Sam- vinnuskólans í Reykjavík 1977 og námi frá Kennaraháskóla íslands 1987. Efemía hefur unnið við skrifstofu- störf og kennslu í Grunnskóla Sauð- árkróks og Víðistaðaskóla og Set- bergsskóla en tveir þeir síðamefndu era báðir í Hafnarfirði. Fjölskylda Efemía giftíst 28.8.1976 Skúla Ragnarssyni, f. 15.7.1954, tækni- manni hjá Ratsjárstofnun. Foreldr- ar hans: Ragnar Guðmundsson og Elín Kristjánsdóttír. Böm Efemíu og Skúla: Elín Sandra, f. 23.8.1977; Steinunn, f. 10.11.1980; Ragnar, f. 17.10.1982; Þorgeir Gísli, f. 26.1.1989. Bræður Efemíu: Einar, f. 13.12. 1952, tæknifræðingur á Sauðár- króki, maki Soffia Þorfinnsdóttir, þau eiga flögur böm; Ómar Logi, f. 1.7.1958, heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík, maki Ingibjörg, þau eiga þijúböm. Foreldrar Efemíu: Gísli Felixson, f. 15.6.1930, og Erla Einarsdóttir, f. Efemía Gísladóttir. 4.3.1930. Þau em búsett á Sauðár- króki. Ætt Gísh er sonur Felix Jósafatssonar og Efemíu Gísladóttur. Erla er dóttir Einars Erlendssonar og Þorgerðar Jónsdóttur. 90 ára Þórunn A. Byjólfsdóttir, Ásbúð46, Garðabæ. Laugarvegi 36, Siglufiröí. Margrét Kristjánsdóttir, Kjarrhólma 14, Kópavogi. : 50 ára Kristján Sigurðsson, Hjallalandi24, Reykjavík. Hafsteinn Guðjónsson, Austurströnd 14, Selijamamesi. Friðrik Friðbjörnsson, Gautsstöðum, Svalbarðsstrandar • hreppi. Halldóra Egilsdóttir, Þingvallastræti 30, Akureyri. Magnús Jónsson, Tjarnarbraut25, Halhárfirði. KristjanaKristjánsdóttir, , , Kírkiubraut21.Seltjarnarnesi. T',“ „55; Reykiavík. Anna Kareisdóttir, Skúiagötu 19, Borgarnesi. 70 ára Sigrún Haraldsdóttir, Gnoöarvogi 14, Reykjavík. Bjarni Bjarnason, Áshamri 26a, Vesttnannaeyjum. 40 ára 60 ára Einar Þorsteinsson, Skólastig 8, Ðolungarvík. Gunnar Pétur Ólason, Urðarvegi 52, ísafiröi. Anton Sigurbjörnsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Boðagranda 4, Reykjavík. Guðni Kristján Ásgrímsson, Fagrahjalla 18, Vopnafiröi. Karl Magnússon, Skólagerði 44, Kópavogi. Heiga María Carisdóttir, Bjargarstíg 2, Reykjavík. . Eiríkur Einar Eiríksson, i Háuhh'ð6,Akureyri. Sigrí ður Atladóttir Sigríður Atiadóttir húsfreyja, Laxa- mýri H, Reykjahreppi, varð sextug ígær. Fjölskylda Sigríður er fædd á Hveravöhum í Reykjahverfi í S-Þingeyjarsýslu og ólst upp á garðyrkjubýlinu Hvera- vöhum. Hún stimdaði nám í Al- þýðuskólanum á Laugum í Reykja- dal og við Húsmæðraskólann á Blönduósi. Sigríður hefur setíð í stjóm Kvenfélags Reykjahrepps og er meðhmur í kvennakómum Lissý sem er samkór þingeyskra kvenna. Maður Sigríðar er Vigfús B. Jóns- son, f. 8.8.1929, bóndi á Laxamýri. Foreldrar hans: Jón H. Þorbergsson, bóndi, og Elín Vigfúsdóttir, hús- freyja, þau em bæði látin. Þau bjuggu á Bessastöðum á Álftanesi og á Laxamýri frá 1928. Böm Sigríðar og Vigfúsar: Elín, f. 20.3.1952, snyrtifræðingur, gift Albert Ríkharðssyni, kennara og vélfræðingi, þau era búett í Reykja- vík og eiga einn son, Vigfús Bjama, nema; Ath, f. 23.5.1956, kennari, bóndi og rithöfundur, búsettur á Laxamýri; Sigríður, f. 5.5.1962, sjúkrahði og nemi, búsett á Húsa- vík; Jón Helgi, f. 19.9.1964, búfræð- ingur og fiskeldisfræðingur, búsett- uráLaxamýri. Sigriður Atladóttir. Systkini Sigríðar: María, f. 25.10. 1935, húsfreyja, gift Unnsteini Jó- hannssyni, fyrrv. lögreglumanni í Keflavík; Ólafur, f. 27.9.1941, fram- kvæmdastjóri, kvæntur Öldu Páls- dóttur, garðyrkjufræðingi, þau em búsett á Hveravöhum í S-Þingeyjar- sýslu; Baldvin, f. 8.6.1945, garð- yrkjufræðingur, búsettur í Reykja- vík. Foreldrar Sigríðar: Ath Baidvins- son, f. 31.10.1905, d. 17.8.1980, bóndi og hreppstjóri, og Steinunn Ólafs- dóttir, f. 27.9.1904, d. 25.9.1988, hús- freyja. Þau bjuggu á garðyrkjubýl- inu Hveravöhum í S-Þingeyjar- sýslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.