Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994
Móeiður Júníusdóttir og Eyþór
Amalds eru langt írá því að vera
óþekkt tónlistarfólk eins og alþjóð
veit. Nú fyrir jólin gaf Móeiður út
plötuna „Móa syngur lögin við
vinnuna" og Eyþór hefur um árabil
verið einn liðsmanna hljómsveit-
arinnar Todmobife sem er nú ný-
hætt störfum:
„Maður er óneitanlega frelsinu
feginn og uppfullur af orku til að
takast á við nýja hluti í framtíðinni,"
segir Eyþór aðspurður.
Bong er ekki beinlínis nýtt fyrir-
bæri, heldur varð hugmyndin til
fyrir rúmlega ári. „íslendingar eiga
það til að ofhlaða sig vinnu og þau
verkefni sem ekki hafa tímatakmark
eiga það til að verða útundan. Það
er ekki fyrr en fyrst núna að við
Móeiður getum farið út í þetta af
einhverjum krafti og það er einmitt
það sem við ætlum að gera.“ Bong
hefur nú þegar gefið út tvö lög á
safnplötum fyrst á „Núlli og nix“
diskinum og nú síðast á plötunni Ýkt
stöfif.
„Okkur fannst við hæfi að byrja á
núíli og vinna okkur síðan upp. Það
er eins með allt, fólk þarf tíma til
þess að venjast nýrri tónlist og við
stefnum ekki á heimsyfirráð með
þessu verkefni, okkar markmið er
einungis að gera góða tónlist.“
Landkönnun
Og hvernig tónlist spilar svo
dúettinn Bong?
„Við erum leitandi“ samsinna
þau. „Þetta er eins konar land-
könnun fyrir okkur. Við erum með
áttavitann og stefnum ákveðna átt í
þeirri trú að við finnum eitthvað
gott. Aðalmarkmiðið er i raun og
veru að gera sem best.“ Verður
dúettinn ballhljómsveit? Spurn-
ingin vekur kátínu aðspurðra.
„Nei,“ segja þau í kór. „Það er
eiginlega þannig á íslandi að þú ert
annaðhvort í ballspilamennskunni
tónli0l
Bong. Eyþór Arnalds og Móeiður Júníusdóttir.
DV-mynd GVA
Eyþór Arnalds og Móéiður Júníusdóttir skipa Bong:
Landkönnun á nýju ári
eða ekki og við höfum ákveðið að vera
ekki með. Okkur finnst ball-
spilamennska líka móta íslenskar
hljómsveitir mjög mikið, kannski á
þann hátt sem við viljum forðast.
Nú eru lögin meira og minna unnin
á tölvum og hljóðgervlum, á að leggja
almennum hljóðfærum í bili?
„Nei, nei, langt frá því. Núna um
daginn vorum við til dæmis að taka
vikunnar
upp strengjakvartett í Réttarholts-
skóla sem við ætlum að nota í nýtt
lag sem kemur út á safnplötu innan
skamms. Fjölbreytileiki hljóðfæra er
okkur mikið mál og það er líka bara
svo skemmtilegt að blanda saman
hinum og þessum hlutum, nokkurs
konar tilraunaeldhús."
Samstarfið og
sambúðin
„Þetta fer vel saman,“ samsinna
þau. „Að sjálfsögðu eru alltaf ein-
hveijir árekstrar en þetta er eins og
með margar aðrar hljómsveitir.
Bjuggu Bítlamir ekki saman?“ Eftir
þvi sem undirritaður best sá var
mikill sannleikur í þessum orðum
parsins og samstarfsaðilanna og þau
virtust tilbúin að takast á við næstum
hvað sem er.
Hver er svo stefnan, hvað ber
framtíðin í skauti sér? „Það er að
sjálfsögðu markmið hverrar
hljómsveitar að búa tilstóra plötu og
það er það sem við vinnum að. Lögin
á safnplötunum eru mikið til að
kanna jarðveginn og þróa stíl,“
Nú er efnið á ensku, er sérstaklega
stefnt á erlendan markað?
„Enskan er alþjóðamál og eign
allra sem hlusta á dægurtónlist jafnt
íslendinga sem Nýsjálendinga.“
Bong er sem sagt kominn á fullt
skrið eftir að önnur verkefni hafa
verið sett til hliðar og á næstunni má
búast við lagi á safnplötu og síðan
stórri plötu ef efnið fellur í góðan
jarðveg. Bong má því kallast rísandi
afl í islensku tónlistarlífi og á ég þeim
Móeiði og Eyþóri bestu þakkir fyrir
spjallið og kaffið.
GB
Tónlistargetraun DV og Spors
Tónlistargetraun DV og Spors er
léttur leikur sem allir geta tekið þátt
í og hlotið geisladisk að launum.
Leikur inn fer þannig fram að í hverri
viku eru birtar þrjár léttar spurn-
ingar um tónlist. Fimm vinnings-
hafar hljóta svo geisladisk í verð-
laun frá hljómplötufyrirtækinu
Spori hf. Að þessu sinni er það
geisladiskurinn Ýkt stöfif, saffiplata,
sem er í verðlaun.
Hér koma svo spurningarnar:
1. Beint í 14. sæti íslenska listans
kemur lagið Rússinn með
Todmobile. Hvað hafa mörg lög
af plötunni Spillt farið inn á
listann?
2. í 39. sæti íslenska listans kemur
lagiö Small Song með Pís of keik.
Hvað heitir platan með þeim
sem kom út fyrir síðustu jól?
3. Meat Loaf er í 13. sæti listans.
Hvað heitir söluhæsta platan
hans?
Meat Loaf er i 13. sæti Islenska listans.
DV, Tónllstargetraun Hér eru svörin úr getrauninni sem
Þverholti 11 birtist 30. desember:
105 Reykjavík
1. Tvær.
Rétt svör sendist DV fyrir 27.
janúar, merkt:
Dregið verður úr réttum lausnum
27. janúar og rétt svör verða birt í
blaðinu 3. febrúar.
2. Automatic for the People.
3. Both Sides.