Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Side 3
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
29
Ægir saman rappi
og reggae
, - Bubbi Morthens tilbúinn með efni á nýja plötu
Þegar Bubbi Morthens lýsir þvi
yfir aö hann ætli að vera með plötu
fyrir jól 1994 kemur það fæstum á
óvart. Á síðustu tveim árum hafa
komið út fjórar plötur með Bubba og
má með sanni kalla hann einn
afkastamesta listamann landsins. Á
löngum ferli hefur hann komið víða
við hvað varðar tónlistarstefnur.
Plötur hans hafa spannað allt frá
því að vera harðasta rokk í að vera
ljúfasta kántrý en meginhluti þeirrar
nýjustu var samin í helgarferð til
Amsterdam. „Platan á að vera ívaf
rapps og reggae-tónlistar," segir mað-
urinn, kokhraustur, eins og ekkert sé
sjálfsagðara. „Það sem heillar mig í
dag er ekki þetta taktfasta tölvu-
reggae. Það verður að vera svona
gangandi swing, kannski tveir tónar
undir og vaðandi melódía,
vélbyssukjaftur og svo er fræsað við
svona eldgömlum Hollywoodstönd-
urdum.“ Þetta er sem sagt.formúlan
að næstu plötu.
Rammpólitískt eða
beint frá hjartanu?
En verður hún pólitísk? „Aðal-
ástæðan fyrir því að ég fer út í rappið
núna er að það er alveg ótrúlega kraft-
mikið auk þess sem enginn er að gera
þetta hér á landi.“ Textana segir
Bubbi vera úr öllum áttum. „Þetta er
ekki endilega pólitískt heldur finnst
mér ég hafa mikið að segja. Tökum
sem dæmi tvo texta. Annar er um
atvinnuleysi, hinn um illa notkun á
ensku í þjóðfélaginu. Ég er að bauna
á íslenskar hljómsveitir sem syngja
á ensku en þó sérstaklega er ég að
bauna á Versló sem setur upp verkið
Jésús Kristur Mannssonur á ensku
þegar til eru tvær íslenskar þýðingar.
Allir vita hvemig atvinnuástandið er
í þjóðfélaginu í dag.“
Rappið alíslenskt
Ertu ekkert hræddur við að
breyta svona oft um tónlistarstefhur?
„Mér finnst það ekki skipta svo
miklu máli meðan minn hljómur og
minn stíll skín í gegn.“
_ Hvað með rappið, er islenskan
ekki afleit í þetta?
„Nei. Þetta form hefúr lengi verið
til hér á íslandi. Líttu bara á Bólu-
Hjálmar, hann hlýtur að hafa verið
einna fyrstur til að rappa. Þetta er
eins íslenskt og það gerist,“ segir
maðurinn og kippir fram bók með
Hjálmari og byijar að rappa og mikið
rétt, það stenst, Bólu-Hjálmar var án
Suede
Ofsótt af lögreglunni
Suede á í baráttu á mörgum vígstöðvum eins og kemur fram hér
á síðunum. Nú síöast bættist breska lögreglan í hóp þeirra sem
hafa horn í síðu hljómsveitarinnar. Fyrir skömmu voru liðsmenn
Suede á leið heim til Lundúna eftirtónleikahald í Worthing þegar
lögreglubíll stöðvaði för þeirra. Engin skýring var gefin á þessu
framferði lögreglunnar en hún gerói nákvæma leit í bílnum án
þess að finna nokkuó óvenjulegt. Suede var síðan leyft að halda
för sinni áfram. Talsmenn hljómsveitarinnar segja aó lögreglan
hafi ekki gefið neinar skýringar á þessu en hins vegartelja ýmsir
aðilar sem til þessara mála þekkja að ummæli sem höfð voru
eftir Brett Anderson í tímaritinu Vox séu tilefni aðgerða
lögreglunnar. í viðtali við Vox gefur Anderson í skyn að hann noti
eiturlyf og þar sem fáttfari fram hjá eiturlyfjadeild lögreglunnar
sé þarna komin skýringin á áhuga hennar á Suede. -SþS-
_________________
Bubbi Morthens segir að rappið hafi lengi verið til á
og Bólu-Hjálmar hafi verið einna fyrstur til að rappa.
DV-mynd Brynjar Gauti
vafa fyrsti íslénski rapparinn. „Eins
og þessi tónlistarstefna er vinsæl í
dag finnst mér bara skrýtið að
enginn sé að gera þetta hér heima.“
Upptökur erlendis
og barnabók
Eins og áður hefur komið fram
blandar Bubbi saman rappi og
reggae á þessari plötu og til þess að
ná hljómnum hefur verið ákveðið að
taka hana upp úti. „Annaðhvort í
London eða á Jamaica. Það þýðir
ekkert að vinna með tónlistarmönn-
um sem eru að þykjast, þetta verður
að vera í blóðinu.“ Platan verður
tekin upp í júní því það hefur sýnt
sig hjá Bubba að jólaplötur, sem eru
teknar upp á sumrin, gefa lífmu lit
þegar dimma tekur.
En það er fleira í deiglunni fyrir
þessi jól. Bubbi hefur ákveðið í
samvinnu við Setberg að gefa út
barnabók sem ber nafnið „Rúmið
hans Áma“. Bókin fjallar um strák
sem sefur sjaldan í sínu eigin rúmi
þar til hann kemst að því að rúmið
getur tekið á sig alls kyns myndir.
Þetta verður samvinnuverkefni
hans og bróður hans. Það er sem sagt
nóg að gerast hjá honum Bubba
Morthens þessa dagana og fólk á
öllum aldri getur farið að hlakka til
jólanna. Fyrir þá sem vilja fá forskot
á sæluna er Bubbi þessa dagana að
kynna þetta nýj a efni einhvers staðar
á landinu, þannig að það er best að
hafa augu og eyru opin.
GBG
Tónlistargetraun DV og Japis er léttur leikur sem
allir geta tekið þátt í og hlotið geisladisk að launum.
Leikurinn fer þannig fram að í hverri viku eru birtar
þrjár léttar spurningar um tónlist. Fimm
vinningshafar, sem svara öllum spurningum rétt,
hljóta svo geisladisk í verðlaun frá fyrirtækinu Japis.
Að þessu sinni er það geisladiskurínn Bom To Choose
sem er i verðlaun.
Hér koma svo spumingamar:
1. Hvað kostar tvöfaldi geisladiskurinn Hit Mix ‘94
í Japis?
2. Út er kominn nýr safndiskur með REM,
Soundgarden, Tom Waits, Cowboy Junkies,
Helmet og fleiri. Hvað heitir hann?
3. Hvað era margar mix-útgáfur af laginu Big Time
Sensuality með Björk á samnefndum diski?
Rétt svör sendist DV fyrir 10. mars merkt:
DV, Tónlistargetraun
Þverholti 11
105 Reykjavík
Dregið verður úr réttum lausnum 10. mars og rétt
svör verða birt í tónlistarblaðinu 17. mars.
Hér era svörin úr getrauninni sem birtist 10. febrúar:
1. Milljónamæringamir.
2. T.d. Cream, Yardbirds, Traveling Wilbury’s.
3. Top of the World.
DV og Japis
Tónlistargetraun
Hvað eru margar mix-útgáfur af laginu Big lime Sensualhy með
Björk á samnefndum diski?